Morgunblaðið - 01.06.2007, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EINHVERJIR virtustu fræði-
menn heims á sviði taugahjúkr-
unar sækja um þessar mundir
ráðstefnu á Nordica hóteli sem
fram fer hér á landi. Tauga-
hjúkrun lýtur að sjúkdómum eða
skaða í mið- og úttaugakerfi,
eins og heila og mænu. Að sögn
Ingibjargar Kolbeins, formanns
undirbúningsnefndar ráðstefn-
unnar, er taugahjúkrun vaxandi
sérsvið hjúkrunar enda fer sjúk-
lingum sem á þess konar hjúkr-
un þurfa að halda fjölgandi.
„Þarna er um að ræða t.d. heila-
blóðfallssjúklinga, mænuskaðaða
einstaklinga og MS- og Park-
insonsjúklinga.“
Ráðstefnan hófst í gær og
stendur fram á sunnudag. Þátt-
takendur eru hátt á fjórða
hundrað en fyrirlesarar eru fjöl-
margir og koma víðs vegar að úr
heiminum.
Ingibjörg segir að í gær hafi
hæst borið kynningu Nicolais
Van Der Woert á Neuroblend-
verkefninu en markmið þess er
að samræma hugtaka- og orða-
notkun innan fagsins og rafræna
símenntun taugahjúkrunarfræð-
inga. „Þetta verður nokkurs
konar gagnagrunnur þar sem
taugahjúkrunarfræðingar geta
sótt sér fræðslu og menntun.
Þetta verkefni er mjög viðamikið
og ítarlegt og þau lönd sem eiga
aðild að verkefninu munu fá að-
gang að grunninum en Ísland
hefur tekið þátt í þessu verkefni
frá byrjun.“ Verkefnið verður
einnig rætt á morgun og segir
Ingibjörg að verkefnið sé afar
sérstakt innan hjúkrunarfræð-
innar og hafi hlotið mikla at-
hygli.
„Einnig bíða menn nokkuð eft-
ir erindi dr. Bernards Gibbons,
sem mun fjalla um hjúkrun
heilablóðfallssjúklinga, en Gib-
bon er einn færasti fræðimaður í
heimi á þessu sviði.“ Ingibjörg
segir að einn þekktasti íslenski
fræðimaður taugahjúkr-
unarfræðinnar, dr. Þóra Haf-
steinsdóttir, muni einnig halda
erindi á ráðstefnunni. „Hún mun
líta til framtíðar og segja fyrir
um hvað er handan við hornið á
þessu sviði.“
Hratt vaxandi svið hjúkrunar
Ráðstefna um
taugahjúkrunar-
fræði haldin hér
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Skipuleggjendur Ingibjörg Kolbeins og Paul Van Keeken, forseti Evr-
ópusambands taugahjúkrunarfræðinga, á ráðstefnunni í gær.
taka sem vilja stuðla að eflingu
handverks, hönnunar og listiðn-
aðar og auka gæðavitund á þess-
um sviðum. Verslunin Kraum –
icelandic design, með íslenska
hönnun á boðstólum og í eigu
REYKJAVÍKURBORG hefur
eignast nýjan sýningarstað, Fóg-
etastofur, en hann er í end-
urbyggðu húsi Innréttinganna
svonefndu frá miðri 18. öld og
viðbyggingu þess í Aðalstræti
10, Silla og Valda-húsinu. Minja-
safn Reykjavíkur mun í sumar
halda þar sýningu um upphaf
byggðar við Aðalstræti og í
Grjótaþorpi. Eru þar líkön og
ljósmyndir er sýna hvernig
byggð þróaðist fyrstu öldina eft-
ir að Reykjavík hlaut kaupstað-
arréttindi árið 1786.
Kjartan Magnússon, formaður
menningar- og ferðamálaráðs,
beitti sér mjög fyrir því að húsið
yrði nýtt með þessum hætti.
Minjavernd, fyrirtæki í eigu
borgar og ríkisins, eignaðist
húsið gegn því að gera það upp
og sá einnig um að reisa nýja
viðbyggingu aftan við það. Borg-
in leigir síðan húsið af Minja-
vernd.
Á efri hæðinni er starfsemi
Handverks og hönnunar, sam-
fjárfesta og hönnuða, er rekin á
tveimur hæðum í bakhýsi Að-
alstrætis 10.
Innréttingar Skúla fógeta
Magnússonar eru oft taldar
marka upphaf þéttbýlis í Reykja-
vík. Til stóð að leggja þar grunn
að verksmiðjurekstri á Íslandi
en minna varð úr þeim hug-
myndum en til stóð, Aðalstræti
10 er eina verksmiðjuhús Inn-
réttinganna sem enn stendur.
Morgunblaðið/RAX
Innrétting-
arnar aftur
úr ösku-
stónni
Nýir sýningarsalir í Aðalstræti 10 og verslun með íslenska hönnun
Fógetastofur Frá opnun sýningarstaðarins í Aðalstræti 10 í gær, húsið var endurbyggt og bætt við bakhýsi.
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm hér-
aðsdóms yfir Edward Apeadu Koranteng,
fyrir að hafa nauðgað 14 ára stúlku í sept-
ember 2005. Var maðurinn dæmdur í
þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi auk
þess að þurfa að greiða stúlkunni eina millj-
ón króna í miskabætur.
Brotið átti sér stað um miðjan dag í kjall-
araíbúð Edwards á Eiríksgötu þegar stúlk-
an var þar gestkomandi ásamt tveimur vin-
konum sínum. Bar stúlkan fyrir dómi að
Edward hefði boðið þeim heim til sín til að
hlusta á tónlist. Þegar þangað var komið
hélt maðurinn stúlkunni inni í herbergi, af-
klæddi hana og kom fram vilja sínum. Fyrir
dómi vitnaði vinkona stúlkunnar um að hún
hefði heyrt stúlkuna biðja manninn um að
hætta en um hálfri klukkustund síðar kom
stúlkan grátandi úr herberginu. Fóru stúlk-
urnar því næst allar í Sundhöll Reykjavíkur
þar sem sú sem nauðgað var notaði snyrt-
ingu. Sagði stúlkan vinkonum sínum þar að
maðurinn hefði haft samfarir við hana gegn
vilja hennar.
Edward neitaði því hins vegar að hafa
boðið stúlkunum heim til sín og einnig að
hafa átt samræði við stúlkuna þar.
Í lok nóvember sama árs leitaði móðir
stúlkunnar til lögreglu og lagði fram kæru á
hendur manninum en þá hafði stúlkan sagt
systur sinni frá atburðinum. Í skýrslu rétt-
arlæknis segir að stúlkan hafi verið aum í
kringum leggangaopið í nokkra daga eftir
atburðinn og henni hafi einnig blætt. Stúlk-
an hafi lést um 14 kíló á einum mánuði,
henni gangi verr í skóla og sýni einbeiting-
arskort. Bersýnilegt sé að stúlkan hafi orðið
fyrir miklu áfalli.
Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var í
Hæstarétti, segir að framburður stúlkunn-
ar hafi verið stöðugur og samrýmist fram-
burði vinkvenna hennar tveggja. Engum
vafa sé undirorpið að stúlkurnar greindu
frá raunverulegum atburðum sem sett hafi
mark sitt á þær. Ákærði hafi hins vegar orð-
ið margsaga um tildrög þess að stúlkurnar
komu á heimili hans og hvaða kynni hann
hafði haft af þeim áður. Vitnisburður félaga
mannsins þótti einnig óljós. Brot Edwards,
sem var tvítugur þegar það var framið, þótti
ófyrirleitið og til þess fallið að valda stúlku á
viðkvæmum aldri verulegum skaða.
Dæmdur
í 3 ára
fangelsi
Nauðgaði 14 ára
stúlku á heimili sínu
„ÉG lýsi yfir mikilli
ánægju með þetta fram-
tak og frumkvæði hjá
Sjóvá,“ segir Guðlaugur
Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra, spurð-
ur um afstöðu sína til
þess að Sjóvá hafi boðist
til að hafa forystu um
að byggt verði við
Grensásdeild LSH, eins
og greint var frá í
Morgunblaðinu í gær. „Það liggur alveg
fyrir að við munum setjast niður með for-
svarsmönnum fyrirtækisins og fara yfir
þetta mál með opnum huga.“ Spurður
hvort hagsmunir ríkis og einkaaðila séu
ekki ósamrýmanlegir segir Guðlaugur
Þór að svo geti verið í ákveðnum tilfellum
en það séu hagsmunir fyrirtækjanna í
landinu að heilbrigðisþjónustan og hreysti
þjóðarinnar sé sem best.
Hann segir að í sínum huga liggi það
fyrir að heilbrigðismál þjóðarinnar séu
samvinnuverkefni margra aðila. Nefnir
hann sem dæmi að ríkið og sveitarfélögin
geti gert ýmislegt í sameiningu og frjáls
félagasamtök, eða þriðji geirinn, geti einn-
ig lagt sitt af mörkum. „Síðan eru það fyr-
irtækin í landinu sem hafa svo sannarlega
alla hagsmuni af því að heilbrigði þjóð-
arinnar sé sem best og ég fagna að þeir
hafi áhuga á því að koma að þeim málum
og mun reyna að beita mér fyrir því að
samvinna allra þessara aðila verði sem
best,“ segir heilbrigðisráðherra að lokum.
Fagnar frum-
kvæði Sjóvár
Guðlaugur Þór
Þórðarson
♦♦♦
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
ODDUR Friðriksson, yfirtrúnaðar-
maður starfsmanna við Kára-
hnjúkavirkjun, og Sverrir Alberts-
son, framkvæmdastjóri Afls, telja
ummæli Ómars Valdimarssonar,
talsmanns Impregilo, í fjölmiðlum
vekja furðu.
Í yfirlýsingu frá tvímenningunum
segir að vandamál við framkvæmd
Kárahnjúkavirkjunar séu stað-
reynd og furðu veki að talsmaður
Impregilo vísi ásökunum um slík
vandamál á bug. Hve mikil vanda-
málin séu og hvort og hvernig hafi
verið reynt að leysa þau séu hins
vegar mál sem megi skoða nánar.
Einnig er vakin athygli á að vanda-
mál í mannlegum samskiptum séu
ekki einskorðuð við Impregilo, en
mörg önnur fyrirtæki starfi við
framkvæmdirnar.
Í yfirlýsingunni segir að haustið
2005 hafi fundur verið haldinn með
yfirmönnum Impregilo vegna þrá-
láts orðróms um kynferðislega
áreitni yfirmanna á svæðinu við
starfstúlkur þar. „Á þeim fundi var
okkur lofað því að gert yrði sérstakt
kynningarátak meðal yfirmanna á
svæðinu og að fyrirtækið myndi
grípa til nauðsynlegra aðgerða. Síð-
an þá höfum við ekki heyrt ásakanir
um áreitni af þessu tagi fyrr en í
fréttum síðustu daga,“ segir í yfir-
lýsingunni. Þekkt sé að starfsmönn-
um sé sagt upp fyrirvaralaust og
þeir sendir samdægurs úr landi.
Sendiherra Portúgals gagnvart
Íslandi, Joao De Lima Pimentel,
kom hingað til lands í gær og mun í
dag fara á virkjanasvæðið og eiga
fundi með portúgölskum verka-
mönnum þar. Ekki er ljóst hversu
lengi Pimentel verður á landinu en
það mun að öllum líkindum ráðast
af því hvers hann verður vísari eftir
heimsókn sína á svæðið. Rúmlega
300 portúgalskir verkamenn starfa
nú á virkjanasvæðinu.
Segja ummæli talsmanns
Impregilo vekja furðu
Sendiherra Portúgals mun funda með verkamönnum við Kárahnjúka í dag
Í HNOTSKURN
» Yfirtrúnaðarmaðurstarfsmanna og fram-
kvæmdastjóri Afls segja
vandamál við framkvæmd-
ina vera staðreynd.
» Engar ásakanir um kyn-ferðislega áreitni hafa
komið fram síðan haustið
2005.