Morgunblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 57
Heldur undarlegt mál komupp í Póllandi á dögunumþegar umboðsmaður barna
þar í landi, Ewa Sowinska, lét hafa
eftir sér í blaðaviðtali að hún teldi
fjólubláa Stubbinn Tinky Winky
vera samkynhneigðan og að mál
væri að láta sálfræðinga rannsaka
hvaða áhrif sú staðreynd gæti haft á
unga áhorfendur þáttanna.
Áhyggjuefnið var að væri Tinky
Winky samkynhneigður væri þar
með verið að „ýta undir óviðeigandi
viðhorf“ og að hætt væri við að börn
væru hvött til samkynhneigðrar
hegðunar með því að horfa á Stubb-
ana!
Nokkrum dögum síðar dró Sow-
inska í land og sagði að „sérfræð-
ingar hefðu sannfært sig um að ekk-
ert við Tinky Winky vísaði til
samkynhneigðar og því þurfi ekki
að grípa til aðgerða“.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ýj-að er að samkynhneigð Tinky
Winky. Sú staðreynd að hann sé
karlkyns en burðist samt um með
handtösku virðist sannfæra marga
um að hann sé hommi. Auk þess ber
hann á höfði fjólubláan þríhyrning
sem vísar niður, merki sem notað
hefur verið af samkynhneigðum í
baráttu þeirra frá því að samkyn-
hneigðir fangar nasista voru merkt-
ir á þann hátt.
Það var kristilegi leiðtoginn JerryFalwell sem fyrst vakti máls á
þessu þegar Stubbarnir voru frum-
sýndir í Bandaríkjunum árið 1999.
Eins og margir strangkristnir menn
fann Falwell sig knúinn til að vara
samborgara sína við mögulegri út-
breiðslu samkynhneigðar og er þá
væntanlega þeirrar skoðunar að
samkynhneigð sé bæði smitandi og
lærð hegðun sem verði að sporna
við.
Öll er þessi hræðsla nefnilegatengd þeirri undarlegu mýtu
að samkynhneigð sé smitandi fyr-
irbæri. Að blessuð börnin læri að
verða hommar við það að horfa á
fjólubláan Tinky Winky með veskið
sitt.
Og hvaða skilaboð eru það? Að ef
strákar leiki sér með stelpudót verði
þeir hommar? Maður vonar sífellt að
umræða um samkynhneigð sé komin
á hærra plan en þetta en án árang-
urs.
Þessi undarlega áhersla á kynlífsamkynhneigðra ýtir einnig
undir hræðsluáróðurinn. Sé Tinky
Winky samkynhneigður gerum við
þá ráð fyrir því að þau Dipsy, La-La
og Po séu öll gagnkynhneigð? Er það
í lagi eða er það bara í tilfelli samkyn-
hneigðra að fólk fer ósjálfrátt að
velta fyrir sér einhverju kynferð-
islegu.
Þessu hafa talsmenn hjá Bitsy En-
tertainment Co, sem dreifa þáttunum
í Bandaríkjunum, meðal annars svar-
að: „Það er fáránlegt að halda því
fram að við myndum setja einhverjar
kynferðislegar tilvísanir í barnaefni!“
Sé Tinky Winky svo í raun sam-kynhneigður veltir maður fyrir
sér hvað sé í raun svona hræðilegt
við það. Er ekki eftirsóknarvert að
börn læri frá unga aldri um fjöl-
breytileika samfélagsins, að sumir
strákar séu skotnir í strákum, að
sumir séu fæddir í öðrum heims-
álfum og að sumum finnist blóðmör
góður?
Meint samkynhneigð Tinky Winky
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
» Að blessuð börninlæri að verða
hommar við það að
horfa á fjólubláan
Tinky Winky með
veskið sitt.
birta@mbl.is
Stubbarnir Kynverurnar ógurlegu!
Smitandi! Tinky Winky
með fína veskið sitt.
Módel: María Ólöf Sigurðardóttir sjóntækjafræðingur. Sólgleraugu: Dolce&Gabbana.
Notaðu eigin umgjörð eða við
bjóðum þér nýja á hagstæðu verði.
Styrkleiki 0 til –6/0 til +4, sjón
skekkja til 1,00
KAUPAUKI
Þegar þú pantar þér ný gleraugu
hjá Optical Studio, fylgir frítt par af
sólglerjum með þínum fjærstyrkleika.