Morgunblaðið - 01.06.2007, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lagadeild
Umsóknarfrestur er til 5. júní. www.lagadeild.hi.is.
Skrásetningargjald allt skólaárið aðeins kr. 45.000.-
Laganám í Háskóla Íslands:
Reynsla, metnaður og gæði
BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur
sett þróun skipulags byggðar í Ör-
firisey í forgang og segir Björn Ingi
Hrafnsson, formaður starfshóps um
framtíðarnotkun og skipulag í
eynni, að vænta megi þess að fram-
kvæmdir hefjist á svæðinu þegar á
kjörtímabili núverandi borgarmeiri-
hluta, gangi áætlanir eftir.
Standa vonir til að umrædd
byggð styrki miðborgina, líkt og
uppbygging á Mýrargötusvæðinu
og í tengslum við tónlistarhúsið og
hús sunnan við það að Lækjartorgi.
Reykjavíkurborg og Faxaflóa-
hafnir sf. kynntu hugmyndir um
uppbyggingu í Örfirisey í gær. Ger-
ir tillaga eitt ráð fyrir 15 hektara
landfyllingu, tillaga þrjú fyrir 68
hektara fyllingu og tillaga fimm 156
hekturum.
Að sögn Björns Inga er ljóst að
framkvæmt verði fyrir tugi millj-
arða í Örfirisey, ef af verður, en
áætla má að verði tillaga fimm fyrir
valinu verði hægt að koma fyrir
10.000-15.000 manna íbúabyggð á
svæðinu, auk margs konar atvinnu-
starfsemi.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, for-
maður skipulagsráðs Reykjavíkur,
var á meðal ræðumanna í gær og
sagðist hún binda vonir við að fast-
eignir á svæðinu yrðu komnar í sölu
fyrir árslok 2017. Á svæðinu gæfist
einstakt tækifæri í skipulagsmálum
og markmiðið væri að tryggja fjöl-
breytta íbúðabyggð í Örfirisey sem
gæti, ásamt byggð í Vatnsmýrinni,
Geldinganesi, Úlfarsárdal og Reyn-
isvatnsási, orðið eitt helsta framtíð-
arbyggingarsvæðið í borgarlandinu.
Hún sagði gæði, fjölbreytni og
umhverfi lykilhugtök við uppbygg-
ingu byggðar á landfyllingunni og
að til greina kæmi að velja hóp arki-
tekta til að sjá um hönnunina.
Byggt yrði þétt í anda miðborgar-
innar en „hæð húsa að jafnaði hóf-
leg“.
Þörf á ítarlegu umhverfismati
Dagur B. Eggertsson, borgar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, hélt
einnig framsögu þar sem hann gerði
framtíðarmöguleika á uppbyggingu
íbúðahverfa í borginni að umtals-
efni.
Með byggð í Örfirisey og í Vatns-
mýrinni væri hægt að byggja 5.000
íbúðir og skapa jafnmörg störf á
hvorum stað fyrir sig. Þessi byggð
myndi ekki aðeins auka íbúaþétt-
leika, hún myndi einnig verða þjóð-
hagslega hagkvæm. Máli sínu til
stuðnings benti Dagur á að áætlað
væri að byggð í Vatnsmýrinni
myndi spara þjóðarbúinu sem næmi
2,2 milljörðum króna á ári miðað við
sambærilega byggð á Geldinganesi.
Því væri spáð að árið 2030 yrði
íbúafjöldi í borginni frá 133.000 til
147.000 manns og þörf fyrir 14.200
til 20.700 nýjar íbúðir í borgarland-
inu. Einkar brýnt væri að þetta fólk
byggi sem næst miðborginni, ef
reistar yrðu 5.000 íbúðir í Vatns-
mýri og/eða Örfirisey fyrir 2030
þyrfti ekki að gera ráð fyrir upp-
byggingu í ytri úthverfum, s.s. í
Álfsnesi og á Kjalarnesi, en að
byggt yrði í Úlfarsárdal og á Geld-
inganesi.
Þrátt fyrir að þannig væri ákjós-
anlegt að reisa íbúðir í Örfirisey
taldi Dagur mjög mikilvægt að fram
færi ítarlegt umhverfismat og að til-
raun yrði gerð til að meta áhrif
hækkandi sjávarborðs vegna hlýn-
unar lofthjúpsins á svæði fyrirhug-
aðra landfyllinga við Örfirisey.
Full blöndun byggðar óraunsæ
Auk Hönnu Birnu og Dags tók
hollenski arkitektinn Sjoerd Soe-
ters, sem hefur komið að hönnun
uppfyllinga í Amsterdam, til máls.
Mælti hann með því í samtali við
Morgunblaðið að byggðin í Örfirisey
tæki mið af andblæ Reykjavíkur.
Háreist byggð til norðurs kynni að
vera heppileg á eynni til að skapa
skjól fyrir lágreistari byggð þar.
Jafnframt taldi Soeters augljóst
að þétta þyrfti byggð í miðborginni í
því skyni að efla mannlíf á svæðinu,
hann væri andvígur verslunarmið-
stöðvum en hlynntur því að minnka
mannlaus og víð útirými. Þá þyrfti
að skoða hvort mætti byggja á milli
bygginga sem mjög rúmt væri um.
Daninn Karl-Gustav Jensen,
framkvæmdastjóri Port of Copen-
hagen Ltd., varaði við því að blanda
saman hávaðasamri atvinnustarf-
semi og íbúðabyggð í Örfirisey.
Reynslan í Danmörku sýndi fram á
að það gengi ekki upp og að kvart-
anir íbúa gætu leitt til þess að fyr-
irtæki þyrftu að flytja starfsemina.
Íbúabyggð í Örfirisey í forgang
Morgunblaðið/Golli
Hafnarsvæðið Hér sést hversu mikið pláss olíubirgðastöðin tekur í Örfirisey. Myndin t.h. er dæmi um hvernig byggt hefur verið á hafnarsvæðum erlendis.
Reykjavíkurborg hefur
uppi hugmyndir um upp-
byggingu 10-15 þúsund
manna byggðar í Örfir-
isey. Baldur Arnarson
sat fjölsótta ráðstefnu um
skipulag í eynni og á
tengdum landfyllingum.
FRAMKVÆMDIR í Örfirisey munu kosta tugi milljarða
króna, ef af verður, að því er Björn Ingi Hrafnsson,
borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, áætlar. Ráðgert
er að uppbygging tónlistarhúss og nokkurra stórra
bygginga sunnan megin við það kosti á bilinu 60 til 70
milljarða króna og má því gera ráð fyrir að heildar-
uppbygging þessara tveggja verkefna muni kosta yfir
hundrað milljarða á næsta áratug, gangi áætlanir eftir.
Meðal bygginganna sunnan tónlistarhússins verður
svokölluð „The World Trade Center Reykjavík“-
bygging, sem þýða má sem „Heimsviðskiptamiðstöðin í
Reykjavík“. Verður hún 16.000 fermetrar og tekur
miðrýmið mið af jöklum og ís í hönnun.
Alls nemur kostnaður við tónlistarhúsið um 15 millj-
örðum króna á núvirði og verður heildarbygging-
armagn á svæðinu 100.000 fermetrar ofanjarðar en
90.000 fermetrar neðanjarðar. Eru uppi hugmyndir um
að reisa kvikmyndahús neðanjarðar.
Stefán Þórarinsson, formaður verkefnisstjórnar Por-
tus hf., sem stýrir uppbyggingu tónlistarhúss, kynnti
Heimsviðskiptamiðstöðina á ráðstefnunni í gær. Þar
vék hann einnig að svokölluðu „W-Hótel Reykjavík“,
sem yrði eina fimm stjörnu lúxushótel landsins, í eigu
Starwood-hótelkeðjunnar. Fjöldi herbergja yrði um
400 og stærð byggingarinnar 28.000 fermetrar. Miðað
er við að hótelið verði opnað á vormánuðum 2010.
Stefán segir bjarta tíma framundan í athafnalífi á
svæðinu. Þegar við bætist höfuðstöðvar Landsbankans
og D-reitur, austan Ingólfsgarðs, megi ráðgera að um
20.000 ársverk og 1.800 ný störf skapist, ásamt um 4,6
milljarða gjaldeyristekjum. Efnahagsáhrif verði á við
tvö álver Fjarðaáls við Reyðarfjörð.
Íshellir Miðrými Heimviðskiptamiðstöðvarinnar. Lúxus Fimm stjörnu herbergi á „W-Hótel“ við höfnina.
Framkvæmt fyrir vel á annað hundrað
milljarða við höfnina á næsta áratug?
SIGURÐUR Gunnsteinsson fékk í vikunni afhent skjal
frá heilbrigðisráðuneytinu sem staðfestir að hann er lög-
giltur áfengis- og vímuefnaráðgjafi og varð hann þar með
fyrstur til að hljóta slíka löggildingu. Innan tíðar mun
heilbrigðisráðuneytið væntanlega staðfesta löggildingu
15 annarra ráðgjafa.
Samkvæmt reglugerð sem sett var í lok síðasta árs
mega eingöngu þeir sem hafa fengið til þess leyfi hjá heil-
brigðisráðuneytinu kalla sig áfengis- og vímuefnaráð-
gjafa. Til þess að geta hlotið slíkt leyfi þurfa þeir að lág-
marki að hafa unnið í þrjú ár við áfengis- og
vímuefnaráðgjöf á heilbrigðisstofnun, hafa fengið
fræðslu sem nemur 300 klukkustundum og hafa fengið
handleiðslu af þar til bærum heilbrigðisstarfsmanni í
hópstarfi í alls 225 klukkustundir. Þar að auki þarf við-
komandi að standast próf í faginu.
Sigurður hefur unnið sem áfengisráðgjafi hjá SÁÁ frá
árinu 1978 og á þeim tíma sótt fjölmörg námskeið, m.a.
lokið bandarísku prófi sem áfengisráðgjafi sem veitti
honum rétt til að starfa sem slíkur þar í landi. Í samtali
við Morgunblaðið sagði hann að SÁÁ hefði allt frá stofn-
un lagt mikla áherslu á menntun áfengisráðgjafa og lengi
starfrækt ráðgjafaskóla en Sigurður er raunar náms-
stjóri hans. Ekkert formlegt próf eða löggilding hefði
hins vegar verið fyrir hendi hér á landi og því hefði í raun
hver sem er getað kallað sig áfengisráðgjafa, jafnvel þótt
hann hefði litla eða enga þekkingu á faginu.
Sigurður sagði að löggildingin væri bæði góð fyrir
sjúklingana sem nú hefðu tryggingu fyrir fagþekkingu
ráðgjafanna og sömuleiðis efldi þetta kunnáttu, metnað
og sjálfsmynd ráðgjafanna sjálfra. „Þótt við séum að
vinna í fjölþættu teymi með hjúkrunarfræðingum,
sjúkraliðum, læknum, félagsráðgjöfum og sálfræðingum
þá erum við langmest með sjúklinginn og vinnum í lang-
mestri nálægð við hann þannig að þetta er mjög mikið
lykilstarf,“ sagði Sigurður Gunnsteinsson.
„Þetta er mjög mikið lykilstarf“
Reyndur Sigurður Gunnsteinsson hefur verið áfeng-
isráðgjafi frá 1978 en varð löggiltur í fyrradag.
Morgunblaðið/ÞÖK
Í HNOTSKURN
»Borgarráð samþykkti síðastasumar að stofna tvo starfs-
hópa um Örfirisey.
»Sá fyrri var stofnaður 20. júlísem verkefnisstjórn, er falið
var að gera áhættugreiningu og
kostnaðarmat fyrir nýja stað-
setningu olíubirgðastöðvar og
möguleika á flutningi hennar úr
eynni.
»17. ágúst 2006 var starfshópifalið að kanna núverandi
land og starfsemi og möguleika á
landfyllingum.