Morgunblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
HIZBOLLAH-samtökin í Líbanon
fordæmdu í gær ályktun örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna á mið-
vikudag þar sem kveðið er á um
að settur verði upp sérstakur
dómstóll vegna morðsins á Rafiq
Hariri, fyrrverandi forsætisráð-
herra Líbanons, árið 2005. Segir í
yfirlýsingu samtakanna að nið-
urstaðan sé ólögleg atlaga að
sjálfstæði Líbanons.
Hariri vildi lina kverkatak Sýr-
lendinga á Líbanon en þeir höfðu
þar mikið herlið fram á sumarið
2005 og réðu í reynd yfir landinu.
Líbanskir andstæðingar Hizbollah
og Sýrlendinga, sem grunaðir eru
um að hafa staðið á bak við morð-
ið, fögnuðu ákaft niðurstöðunni í
öryggisráðinu. „Þetta er söguleg
stund … dómstóllinn snýst ekki
um blóðhefnd heldur réttlæti fyrir
alla,“ sagði sonur Hariris, þing-
maðurinn Saad Hariri.
10 af 15 ríkjum öryggisráðsins
studdu ályktun 1357 um að settur
yrði á laggirnar alþjóðlegur dóm-
stóll til að rétta í málum þeirra
sem grunaðir eru um morðið. Tal-
ið er að mánuðir muni líða áður
en dómstóllinn taki til starfa og
enn er ekki vitað hvar hann muni
hafa aðsetur.
Fordæma
samþykkt SÞ
AP
Minnst Ferðafólk í Beirut við vegg-
spjald með mynd Rafiq Hariris.
NÝ rannsókn bendir til þess að apar
hafi lært að ganga á tveimur fótum
í trjánum löngu á undan forfeðrum
manna. Hafi umræddir apar gengið
á afturfótunum á mjóum greinum
en létt þungann með því að toga í
greinar með framfótunum.
Gengið í trjánum?
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti vill að þau 15 ríki sem losa
mest af gróðurhúsalofttegundum
setji sér markmið varðandi sam-
drátt í losuninni árið 2008. Leiðtog-
ar Breta og Þjóðverja fögnuðu
mjög ummælum Bush í gær.
Bush vill samdrátt
HUNDRUÐ lífstíðarfanga á Ítalíu
hafa hvatt Giorgio Napolitano for-
seta til að beita sér fyrir því að aft-
ur verði tekin upp dauðarefsing í
landinu. Einn þeirra, Carmelo Mus-
umeci, sagðist vera orðinn þreyttur
á að deyja örlítið á hverjum degi.
Fangar vilja deyja
MIKILL viðbún-
aður var í örygg-
ismálum í Taí-
landi í gær eftir
að Thaksin
Shinawatra, út-
lægum, fyrrver-
andi forsætisráð-
herra, og flokki
hans, TRT, var
bannað að bjóða
fram í þingkosningum sem verða
síðar á árinu.
Herforingjar ráða nú lögum og
lofum í Taílandi. Dómstóll á þeirra
vegum úrskurðaði að flokkur
Thaksins hefði beitt svikum í þing-
kosningum í fyrra. Surayad Chul-
anont, forsætisráðherra bráða-
birgðastjórnar landsins, sagði
koma til greina að lýsa yfir neyðar-
ástandi ef til óeirða kæmi.
Óttast óeirðir
í Taílandi
Surayud Chulanont
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
RÚSSNESKUR kaupsýslumaður,
sem bresk yfirvöld telja að hafi myrt
Alexander Lítvínenko, fyrrverandi
njósnara rússnesku leyniþjónust-
unnar, sagði í gær að breska leyni-
þjónustan hefði staðið fyrir morðinu.
Líklegt er að ásökunin auki
spennuna milli breskra og rúss-
neskra stjórnvalda vegna rannsókn-
arinnar á morðmálinu.
Kaupsýslumaðurinn Andrej
Lúgovoj kvaðst hafa sannanir fyrir
aðild bresku leyniþjónustunnar MI6
að morðinu en sagði ekkert um í
hverju þær fælust. Hann sagðist
ætla að afhenda rússneskum yfir-
völdum gögn sín um málið.
Lúgovoj hitti Lítvínenko á bar
hótels í London 1. nóvember, nokkr-
um klukkustundum áður en njósn-
arinn fyrrverandi veiktist. Bresk yf-
irvöld óskuðu formlega eftir því á
föstudaginn var að Rússar fram-
seldu Lúgovoj til að hægt yrði að
saksækja hann í Bretlandi fyrir að
byrla Lítvínenko eitur. Yfirvöld í
Rússlandi hafa neitað að verða við
beiðninni, enda bannar stjórnarskrá
landsins framsal rússneskra borgara
til annarra landa. Yfirvöld í Moskvu
segja að Lúgovoj eigi yfir höfði sér
saksókn í Rússlandi leggi bresk
stjórnvöld fram nægar sannanir fyr-
ir því að hann hafi myrt Lítvínenko.
Lúgovoj sagði bresk yfirvöld hafa
gert hann að blóraböggli til að leyna
því að Lítvínenko hefði verið á mála
hjá bresku leyniþjónustunni. Hann
kvað Lítvínenko hafa beðið sig að
njósna fyrir MI6 og afla upplýsinga
sem sköðuðu Vladímír Pútín, forseta
Rússlands.
„Það er erfitt að verjast þeirri
hugsun að Lítvínenko hafi verið
njósnari sem breska leyniþjónustan
hafi misst stjórn á og komið fyrir
kattarnef,“ sagði Lúgovoj. „Jafnvel
þótt leyniþjónust-
an hafi ekki myrt
hann sjálf var
morðið framið
undir stjórn
hennar eða með
samþykki henn-
ar.“
Talsmaður
breska utanríkis-
ráðuneytisins
sagði að það
myndi ekki svara ásökun Lúgovojs.
„Þetta er sakamál og varðar ekki
leyniþjónustu,“ sagði hann aðeins.
Sakaður um blekkingar
Konstantín Kosatsjev, formaður
utanríkismálanefndar dúmunnar,
neðri deildar rússneska þingsins,
hvatti bresk yfirvöld til að aðstoða
Rússa við að rannsaka „þessar mjög
svo alvarlegu ásakanir á hendur
bresku leyniþjónustunni“. „Ég vænti
þess að Bretar taki þessa nýju frá-
sögn eins alvarlega og þeir ættu að
gera,“ sagði hann.
Ekkja Lítvínenkos, Marína, lýsti
ásökun Lúgovojs sem „blekkingum
og ögrun“. „Þetta samræmist ekki
því sem Rússar hafa sagt til þessa,“
sagði hún.
Lúgovoj sagði að rússneski auð-
kýfingurinn Borís Berezovskí, sem
er í útlegð í Bretlandi, kynni einnig
að vera viðriðinn morðið. Lúgovoj
sagði að Lítvínenko hefði sagst geta
sannað að Berezovskí hefði beitt
blekkingum til að fá hæli í Bretlandi
sem pólitískur flóttamaður.
Berezovskí sagði að ásakanir
Lúgovojs væru „alrangar“ og liður í
tilraunum rússneskra stjórnvalda til
að leyna aðild þeirra að morðinu.
„Það er nú greinilegra en nokkru
sinni fyrr að ráðamennirnir í Kreml
standa á bak við morðið á Alexander
Lítvínenko,“ sagði Berezovskí.
Lítvínenko lést á sjúkrahúsi í
London 23. nóvember eftir að honum
hafði verið byrlað geislavirkt eitur-
efni, pólon-210. Hann sakaði Pútín
forseta um að hafa staðið fyrir morð-
inu.
Sakar MI6 um að hafa
myrt Lítvínenko
Meintur morðingi Lítvínenkos segist hafa verið gerður að blóraböggli
Reuters
Morðingi eða blóraböggull? Kaupsýslumaðurinn Andrej Lúgovoj á blaðamannafundi í Moskvu í gær.
Boris
Berezovskí
Í HNOTSKURN
» Andrej Lúgovoj er fyrr-verandi starfsmaður leyni-
þjónustunnar KGB og á nú
stóra drykkjaverksmiðju í
Rússlandi. Breska lögreglan
telur hann hafa byrlað Alex-
ander Lítvínenko eitur á bar
hótels í London.
» Alexander Lítvínenko varstarfsmaður rússnesku
leyniþjónustunnar FSB þar til
hann flúði til London árið
2000. Hann sakaði FSB um að
hafa lagt á ráðin um að ræna
Borís Berezovskí og fleiri
þekktum Rússum. Lítvínenko
skrifaði m.a. bók þar sem
hann sakaði Pútín og menn
hans um að hafa skipulagt
sprengjutilræði í rússneskum
borgum 1999 sem urðu hundr-
uðum manna að bana. Skæru-
liðum Tétsena var kennt um
tilræðin.
Miami. AFP, AP. | Bandaríkjamaður
með hættulegt afbrigði af berklum
hefur verið settur í sóttkví á
sjúkrahúsi í Atlanta í Georgíuríki
og er þar í gæslu vopnaðra varða.
Maðurinn hafði farið í brúðkaups-
ferð til Evrópu og lagt á flótta þeg-
ar heilbrigðisyfirvöld hugðust setja
hann í sóttkví. Rannsókn hefur
verið hafin á því hvort hann hafi
smitað farþega sjö flugvéla sem
hann ferðaðist í.
Er þetta í fyrsta skipti í rúm 40
ár sem bandarísk yfirvöld skipa
sjúklingi að fara í sóttkví.
Nýgiftu hjónin höfðu ákveðið að
ganga í hjónaband í Aþenu og fara
í brúðkaupsferð til Rómar þegar
maðurinn greindist með hættulegt
afbrigði af berklum í janúar.
Venjuleg meðferð dugði ekki og
sterkari lyf höfðu ekki heldur til-
ætluð áhrif. Maðurinn sagði í við-
tali við dagblaðið Journal-
Constitution í Atlanta að hann
hefði ætlað að gangast undir lækn-
ismeðferð við sjúkdómnum í Den-
ver í Colorado eftir brúðkaupsferð-
ina.
„Braut engin lög“
Maðurinn heldur því fram að
bandarísk heilbrigðisyfirvöld hafi
vitað að hann væri með berklaaf-
brigði, sem er ónæmt fyrir lyfjum,
en ekki reynt að koma í veg fyrir
að hann færi í Evrópuferðina 12.
maí.
„Við fórum til Grikklands og
héldum að það væri óhætt,“ sagði
hann í viðtali við dagblaðið.
Bandarískir embættismenn
sögðu hins vegar að honum hefði
verið sagt að fara ekki í ferðina.
Martin Cetron, deildarstjóri
sóttkvíardeildar bandarísku stofn-
unarinnar CDC, sem fer með sjúk-
dómavarnir, viðurkenndi hins veg-
ar að maðurinn hefði ekki fengið
nein lagalega bindandi fyrirmæli.
„Hann braut engin lög með því að
fara í ferðina,“ sagði Cetron.
Þegar embættismenn stofnunar-
innar áttuðu sig á því hversu alvar-
legt málið var komust þeir að því
að hann var farinn í Evrópuferðina.
Þeir höfðu uppi á honum í Róm
eftir brúðkaupið í Aþenu, að sögn
Cetrons. „Þeir sögðu mér að ég
hefði verið settur í flugbann,“ sagði
maðurinn.
Hann ákvað þá að fara flugleiðis
til Prag og þaðan til Montreal til að
komast hjá handtöku og sóttkví á
Ítalíu. Hann ók að lokum frá Mont-
real til New York þar sem hann
hafði samband við embættismenn
CDC. Þaðan var hann fluttur með
flugvél stofnunarinnar til Atlanta
þar sem hann var settur í sóttkví.
Bandarísk yfirvöld sögðust í gær
vera að rannsaka hvernig á því
stæði að maðurinn komst yfir
landamærin til Bandaríkjanna þótt
landamæraverðir hefðu lista yfir
alla þá sem settir hafa verið í flug-
bann.
Embættismenn sögðu að smit-
hættan sem stafaði af manninum
væri „nokkuð lítil“ og kona hans
hefði ekki smitast af berklum. Yfir-
völd leituðu þó að um 80 farþegum
sem sátu næst manninum í flugvél-
unum tveimur sem fluttu hann yfir
Atlantshafið frá Bandaríkjunum og
aftur til baka. Bandarísku embætt-
ismennirnir lögðu áherslu á að lítil
hætta væri á því að maðurinn hefði
smitað farþega í styttri flugferð-
unum í Evrópu.
Smitberinn lagði á flótta
8
2
2-
- 9--
3
2
- 2
*
2 2 / :--
;+
2
2
-< ,
:--3,
+ ,
3
-
#=#
2 2
<3 :2
"
%
+!9:: ;<= <>!?@/A=;<;7
<
+ Q
1
D
"
D
<I
3
3
>0(0=0
?0(=07
4>'(
(
3
+8Q O
I
$*!
!
%
804
2 >B@
804
< :
C
=KAK
<I
804
< :
C
AN>
D
804
2 B>>
<I
804
RSC LKL
D
"
804
RSC @=@?
3
804
2 KAM
1
!