Morgunblaðið - 01.06.2007, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 25
LANDIÐ
Árleg MA-hátíð verður haldin í Íþróttahöllinni
á Akureyri laugardaginn 16. júní
Miðapantanir á Netinu til 13. júní - www.bautinn.muna.is - en tekið verður
við greiðslu og miðar afhentir í Höllinni 15. og 16. júní kl. 13.00-17.00.
Verð á hátíðina er 7.500 kr. nema fyrir eins árs stúdenta, þeir greiða 4.500 kr.
Húsið verður opnað kl. 18.00. Fordrykkur frá 18:00-18:45
Hljómsveitin Í svörtum fötum leikur fyrir dansi. Miðar á dansleik verða
seldir við innganginn, verð kr. 2.500.
Afmælisárgangar eru hvattir til að fjölmenna. Samkvæmisklæðnaður.
25 ára júbílantar MA - stúdentar 1982 - www.ma1982.blog.is
FJÖLMENNUM
Á MA-HÁTÍÐ
Ljósmynd/Pálmi Guðmundsson
Ljósmyndun Ljósmyndarar geta víða fundið gott myndefni.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„ÉG hef fengið nokkuð margar
fyrirspurnir utan af landi, ekki síst
frá Austurlandi. Ég ákvað að halda
námskeið þar og síðan að taka hring
um landið í kjölfarið,“ segir Pálmi
Guðmundsson hjá ljosmyndari.is
sem heldur ljósmyndanámskeið
næstu daga á Egilsstöðum og Reyð-
arfirði og í kjölfarið á sex stöðum á
norðan- og vestanverðu landinu.
Pálmi segir að fólk af þessum
stöðum hafi fylgst með síðunni sinni
en ekki átt kost á því að komast á
námskeið til hans en ljosmyndari.is
heldur námskeið allt árið í Mosfells-
bæ. „Ég hef áður verið beðinn um að
halda námskeið á vegum símennt-
unarmiðstöðva á Vesturlandi og
Vestfjörðum og á vegum starfs-
mannafélaga og þau hafa gengið vel.
Það er því spennandi dæmi að fara í
þessa ferð,“ segir Pálmi. Hann verð-
ur á ferðinni í tæpan mánuð og
hyggst einnig nota tímann til að
skoða sig um og taka myndir á stöð-
unum.
Vilja byrja aftur
Námskeiðin eru ætluð þeim sem
eru að stíga fyrstu skrefin í ljós-
myndun og einnig fyrir þá sem hafa
tekið myndir en vilja öðlast meiri
þekkingu, og skiptir ekki máli hvort
þátttakendur eru með dýrar eða
ódýrar myndavélar. Pálmi fer yfir
helstu atriði stillinga stafrænna
myndavéla og gefur þátttakendum
ráð í viðleitni þeirra til að taka góðar
myndir við mismunandi aðstæður.
Einnig fer hann yfir tölvumálin,
hvernig hægt sé að koma skipulagi á
myndasafnið og geyma á öruggan
hátt.
Mikil aukning hefur verið í ljós-
myndun á undanförnum árum með
tilkomu stafrænu tækninnar. Pálmi
segir að þátttakendur í námskeiðum
hans skiptist gjarnan í tvo hópa,
annars vegar þeir sem aðallega taka
myndir af börnunum og í ferðalög-
um og hins vegar þeir sem áður
höfðu haft áhuga á ljósmyndun og
vildu komast aftur af stað.
„Ljósmyndun er skemmtilegt
áhugamál og nú kostar það lítið að
taka myndir. Það kemur fólk á öllum
aldri á námskeið hjá mér, meðal
annars fólk sem komið er um sjötugt
og vill komast aftur af stað í ljós-
myndun og vera sjálfbjarga með allt
ferlið,“ segir Pálmi.
Fer hringinn með
ljósmyndanámskeið
Í HNOTSKURN
»Ljosmyndari.is heldurnámskeið í júnímánuði á
Egilsstöðum, Reyðarfirði,
Húsavík, Akureyri, Sauðár-
króki, í Borgarnesi, Stykkis-
hólmi og á Ísafirði.
»Hvert námskeið tekur tvodaga og stendur í alls 8
klukkustundir.
Eftir Björn Björnsson
Hólar | „Samfélagið og atvinnulífið
þyrstir í þekkingu ykkar,“ sagði
Skúli Skúlason, rektor Háskólans á
Hólum, í ræðu sinni við brautskrán-
ingu fyrstu nemenda skólans eftir að
ný lög um Háskólann á Hólum voru
samþykkt, og benti á að „aldrei hefur
verið meiri þörf fyrir aukna þekk-
ingu í ferðaþjónustu hérlendis, at-
vinnugrein sem er í örum vexti“.
„Í dag er hátíðisdagur á Hólum
þegar við brautskráum glæsilegan
hóp nemenda. Nemendur sem prýða
samfélag Hólaskóla, Háskólans á
Hólum og skólinn er stoltur af. Núna
fær samfélagið í heild að njóta þeirr-
ar þekkingar sem þið, nemendur
góðir, hafið öðlast hér og ég veit að
það verður enginn fyrir vonbrigðum
með ykkar framlag.“
Ný lærdómsöld
Síðar í ræðunni fjallaði rektor um
hlutverk skóla og þá ekki hvað síst
háskóla, sem væri að vernda og efla
menningu hvers samfélags og ef litið
væri til baka hefði einmitt þetta hlut-
verk einkennt skólastarf að Hólum
um aldir. Hólaskóli, sagði rektor,
hefði tekið þátt í framförum og
breytingum hvers tíma, mótað, bætt
og eflt hið íslenska samfélag, og í
þeirri sögu hefðu oft orðið stór tíma-
mót. Ein slík væru nú.
Í þeirri stöðu væri gott að hafa
söguna nálæga, og „klæðnaður minn
í dag er eitt merki þessa. Það tíðkast
í háskólum að stjórnendur klæðast
viðhafnarkápum. Í dag er vígð rekt-
orshempa, sem vísar til sextándu
aldarinnar þegar Guðbrandur Þor-
láksson og Arngrímur lærði voru hér
við stjórnvölinn. Einnig er söngur
kórsins í anda þess tíma. Þá voru
miklir uppgangstímar á Hólum og
tímabilið í Íslandssögunni nefnt lær-
dómsöldin. Við skulum vona og trúa
að þau tímamót sem nú eru mörkuð
verði Hólaskóla og jafnframt menn-
ingu þjóðarinnar ekki síður farsæl
en sá tími er þarna er minnst. Við lif-
um á nýrri lærdómsöld“.
Um framtíðarsýn skólans sagði
rektor: „Allar deildir gera ráð fyrir
eflingu bæði grunnnáms á háskóla-
stigi sem og meistaranáms. Þessar
áætlanir eru nú þegar að birtast okk-
ur. Hrossaræktardeild er í samvinnu
við Landbúnaðarháskóla Íslands bú-
in að koma á fót námi til sameig-
inlegs BS-prófs í hestafræðum, sem
hefjast mun í haust. Háskólaráð
samþykkti nýverið MS-nám við fisk-
eldis- og fiskalíffræðideild og nú er á
lokastigi samningur deildarinnar við
Háskóla Íslands um nám til sameig-
inlegs BS-prófs í sjávar- og vatna-
líffræði.“
Alls voru útskrifaðir sextíu og
fimm nemendur frá ýmsum náms-
brautum, flestir úr hrossaræktar-
deild eða tuttugu og sex hestfræð-
ingar, fimmtán tamningamenn og
fjórtán reiðkennarar. Frá Ferða-
máladeild útskrifuðust níu með BA-
gráðu í ferðamálafræðum og einn
með diplómapróf í ferðamálafræði.
Að lokinni ræðu rektors fór fram
brautskráning og afhending verð-
launa fyrir góðan námsárangur.
Meðal gesta sem ávörpuðu samkom-
una var fulltrúi tuttugu og fimm ára
útskriftarnemenda frá Bændaskól-
anum á Hólum, Ívar Ólafsson, en
hann færði skólanum að gjöf forláta
hestastein, stuðlabergsdrang með
áletraðri vísu eftir einn úr hópnum
Bjarna Stefán Konráðsson. Verður
þessari voldugu gjöf fundinn viðeig-
andi staður við skólann.
Meistaranám í ferðafræðum
Þá var komið að undirskrift samn-
ings milli Háskólans á Hólum og há-
skólans í Guelph í Kanada, um meist-
aranám í ferðamálafræðum, og voru
það Isobel Heathcote, yfirmaður
meistara- og doktorsnáms við Gu-
elph, og Skúli Skúlason rektor sem
undirrituðu samkomulagið, en það
felur í sér nemendaskipti og sam-
vinnu á hinum ýmsu sviðum varð-
andi þetta nám. Að lokinni undir-
skrift flutti Isobel Heathcote ávarp
og lýsti ánægju sinni með þá sam-
vinnu sem nú væri formlega staðfest,
en hefur þó staðið um nokkur ár báð-
um aðilum til gagns og ánægju, og
einnig flutti ávarp Rich Moccia, að-
stoðarrektor háskólans í Guelph.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Rektorskápa Klæðnaður Skúla Skúlasonar rektors við útskrift nemenda
vísar til sögu Hólastaðar, Guðbrands Þorlákssonar og Arngríms lærða.
„Samfélagið og
atvinnulífið þyrstir
í þekkingu ykkar“
Hellissandur | Vígður verður minn-
ingarsteinn í Ingjaldshólskirkju-
garði um þá sem fórust með ára-
skipinu Frosta í Keflavíkurlend-
ingu undir Jökli 9. febrúar 1909.
Athöfnin fer fram á sjómannadag-
inn, næstkomandi sunnudag, kl. 11.
Níu menn fórust með skipinu. Lík
átta fundust og hvíla þeir í sömu
gröf í Ingjaldshólskirkjugarði. Þeir
sem fórust með Frosta voru Loftur
Bergmann Loftsson formaður,
Kristján Jónsson, Guðmundur Pét-
ur Hákonarson, Dagóbert Pétur
Hansson, Sigurður Magnússon,
Kristján Sigurður Guðmundsson,
Þorkell Guðbrandsson, Hjörtur
Annel Magnússon og Guðjón
Nikulásson. Þeir voru úr Keflavík
nema Kristján Jónsson frá Vörðu-
felli, Hjörtur úr Beruvík og Guðjón
úr Reykjavík.
Minningarsteinn vígður
Djúpivogur | Leikið er á Hammondorgel Karls heitins
Sighvatssonar, „Drottninguna“, á Djúpavogi um helgina
en þar er haldin bæjarhátíð sem tileinkuð er þessu
skemmtilega hljóðfæri. Að þessu sinni er einnig heiðruð
minning Karls Sighvatssonar tónlistarmanns.
„Það eru einhverjar hátíðir í öllum plássum. Við sett-
umst niður nokkur hér til að ræða um hvað við gætum
gert og þá datt mér í hug að heiðra Hammond,“ segir
Svavar Sigurðsson, skólastjóri tónlistarskólans og org-
anisti á Djúpavogi sem sjálfur leikur á Hammond-orgel í
hljómsveit. Svavar tekur raunar fram að orgelið hans sé
japanskur Hammond, smíðað eftir að framleiðslan færð-
ist þangað austur. Hann telur að Hammond-hátíðin á
Djúpavogi sé sú eina sinnar tegundar í heiminum.
Fyrsta Hammond-hátíðin var haldin á síðasta ári og
tókst vel, að sögn Svavars. Eins og á öðrum bæjarhátíð-
um er tilgangurinn að gefa þorpsbúum og gestum kost á
að koma saman til að gera sér glaðan dag og að auki að
heiðra Hammond, úrsmiðinn sem fann upp hljóðfærið.
„Það hljómar skemmtilega og hefur verið notað í flestum
greinum tónlistar,“ segir Svavar.
Hammond-hátíðin á Djúpavogi hófst í gærkvöldi og þá
var Djúpavogsdagur. Í kvöld verður Austfjarðablús á
Hótel Framtíð með þátttöku blúsmanna af Austurlandi.
Hápunktur hátíðarinnar er á morgun, laugardag. Þá
verða tónleikar að deginum og um kvöldið sest Jakob
Frímann Magnússon við orgelið og leikur með hópi
þekktra tónlistarmanna sem Svavar nefnir Landsliðið. Á
sunnudag verður leikið á Hammond við sjómannamessu í
Djúpavogskirkju og lýkur hátíðinni með því.
„Drottningin“ á Djúpavogi
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Hammond Svavar Sigurðsson og Davíð Þór Jónsson
léku saman í Djúpavogskirkju á síðasta ári.
AUSTURLAND