Morgunblaðið - 01.06.2007, Síða 28
Eftir Steingrím Sigurgeirsson
sts@mbl.is
Það er orðinn árlegurviðburður að hingaðkomi eigendur einsaf stærstu vínhúsum
Bordeaux og haldi skipulagðar
smakkanir fyrir Íslendinga.
Í fyrra voru það Cathiard-
hjónin, eigendur Chateau
Smith-Haut-Lafitte í Pessac
Léognan. Í ár er það Christine
Valette sem á og rekur Cha-
teau Troplong Mondot í St.
Emilion ásamt eiginmanni sín-
um Xavier Parette. Troplong
Mondot-vínekrurnar eru í
norðausturhluta St. Emilion og
ná yfir um 30 hektara svæði.
Þetta er vínframleiðsla sem
ávallt er meðal þeirrar bestu í
St. Emilion og því mikill feng-
ur að fá Valette og mann henn-
ar hingað til lands. Þess má
geta að í nýlegri endurskoðun
á gæðaflokkun St. Emilion
víns, sem fram fer á tíu ára
fresti, var Troplong Mondot
fært upp um einn gæðaflokk, í
Grand Cru Classé B.
Þau hjón munu víða koma
við og meðal annars mun al-
menningi gefast kostur á að
taka þátt í svokölluðum „mast-
erclass“ föstudaginn 8. júní kl.
17 í Þingholti. Þar verður fyr-
irlestur um Bordeaux, St. Emi-
lion og Troplong Mondot auk
þess sem nokkrir árgangar af
Troplong Mondot verða
smakkaðir undir leiðsögn
þeirra hjóna. Það er Vínskóli
Dominique Plédel sem heldur
utan um þá smökkun.
Vín frá Ástralíu og Tosk-
ana
Við beinum hins vegar sjón-
um að nokkrum venjulegri vín-
um.
The Stump Jump 2005 er
hvítvín frá McLaren Vale í
Ástralíu úr smiðju vínhússins
d’Arenberg. Líkt og unnendur
d’Arenberg eiga að venjast eru
farnar ótroðnar slóðir í þrúgu-
blöndunni en þarna eru not-
aðar þrúgurnar Riesling, Sau-
vignon Blanc og Marsanne.
Vægast sagt óvenjuleg blanda
en þarna eru þrúgur sem eiga
ættir sínar að rekja að þremur
stórfljótum Frakklands: Rín-
ar, Loire og Rónar. Þetta er
ávaxtaríkt og ilmríkt vín með
miklum og sætum sítrus, hvít-
um ávexti, perum og grænum
rabarbara. Mjúkt og þykkt
sumarvín fyrir heit síðdegi í
sólinni. 1.490 krónur. 88/100
Rauðvínið Stump Jump
2005 er einnig þriggja þrúgna
blanda en þrúgurnar þrjár eru
allar frá Rón: Grenache, Shi-
raz, Mourvédre. Það hefur feitt
og þykkt yfirbragð, bláber,
brómber og jarðarber í bland
við vanillu og krydd. Sætur
ávöxtur í munni en jafnframt
sýra þótt sætleikinn hafi yf-
irhöndina. 1.490 krónur. 87/
100
Belguardo Bronzone 2004
er ítalskt rauðvín frá Toskana.
Þetta er Sangiovese-vín líkt og
flest rauðvín Toskana en þó
óvenjulegt fyrir þær sakir að
það kemur frá svæðinu Morell-
ino di Scansano við strönd
Toskana. Vín frá
framleiðandanum Mazzei sem
einnig á Castello di Fonteru-
toli. Rauð ber og súkkulaði,
kryddað, þurrt, tannískt og
hart í byrjun. Þarf tíma til að
opna sig og fellur vel að mat.
2.180 krónur. 89/100
Vínræktandinn Christine Valette sem á Chateau Troplong Mondot í St. Emilion
Troplong Mondot smökkun
Reuters
Vínin Troplong Mondot var nýlega fært upp um einn gæðaflokk, í Grand Cru Classé B.
Hægt er að skrá sig í „mast-
erclass“ námskeiðið með
því að senda póst á net-
fangið dominique@vinskol-
inn.is en þátttökugjald er
2.000 krónur.
vín
28 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Allir út í garð
Spáð er ágætis veðri um víða um
land um helgina og því er upplagt
að taka fram gróðuráhöldin og
gúmmíhanskana, skella sér í gróð-
urhúsin til að kaupa sumarblómin
og pota þeim niður í næringarríka
moldina.
Þjóðahátíð í Hafnarfirði
Í Hafnarfirði stendur sem hæst
lista- og menningarhátíðin Bjartir
dagar með tilheyrandi Þjóðahátíð
Alþjóðahússins í íþróttahúsinu við
Strandgötu kl. 12-18 á morgun. Þar
kynna fulltrúar fimmtíu þjóða
menningu síns lands og bjóða gest-
um og gangandi að bragða á fram-
andi réttum. Leik- og grunn-
skólabörn eiga þá stóran þátt í
Björtum dögum því þau skreyta
fyrirtæki og stofnanir og ljóð þeirra
má sjá á gangi um bæinn. Þá má
nefna danssýningu, myndlistarsýn-
ingar, fjölda tónleika og brúðuleik-
hús.
Gospel að hætti
unga fólksins
Það verður gleði og fjör í Vídal-
ínskirkju á sunnudagskvöldið, en þá
tekur ungt fólk þar völdin og flytur
gospeltónlist. Fyrst kemur fram
hljómsveitin Exodus sem skipuð er
unglingum úr 9.-10. bekk Garða-
skóla og svo tekur gospelkór Jóns
Vídalíns við með þekktar gosp-
elperlur, en í kórnum er ungt fólk á
framhaldsskólaaldri.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Sjómenn fagna deginum
Bryggjurölt í borgum og bæjum
verður eflaust ofarlega í hugum
landsmanna um helgina enda verð-
ur sjómannadagurinn haldinn með
pomp og prakt á sunnudag með til-
heyrandi ræðuhöldum, róðr-
arkeppnum, siglingum og fiski-
veislum. Í höfuðborginni verða
tveggja daga hátíðarhöld á Mið-
bakkanum undir yfirskriftinni Hátíð
hafsins. Gömlu Akraborginni, sem
nú heitir Sæbjörg og hýsir Slysa-
varnaskóla sjómanna, verður siglt
um sundin blá auk þess sem gestir
geta skoðað og smakkað á skrýtn-
um fiskum, skoðað ljósmyndasýn-
ingar, kynnst björgunarstörfum,
kíkt í varðskipið Tý og fylgst með
spennandi siglingakeppnum.
Og koma svo, Ísland
Fyrir boltaglaða er svo upplagt
að skella sér á Laugardalsvöllinn kl.
16 á morgun og hvetja okkar menn í
karlalandsliðinu gegn Liechtenstein
í undankeppni Evrópukeppni lands-
liða.
Útimarkaður í Laugardal
Fyrir eða eftir boltann má svo
bregða sér á útimarkað í Laug-
ardalnum á túninu fyrir neðan
Langholtsskóla við enda Holtaveg-
ar, því þar milli kl. 11-15 ætla íbúar
úr nágrenninu að selja „dýrgripina“
úr geymslunum, m.a. leikföng, fatn-
að, gjafakort og jafnvel græðlinga
og plöntur nú er vorhreinsun og
grisjun í görðum stendur sem hæst.
mælt með...
allra sinna ferða
óhindrað líkt og áður
og látið vera að líta í
eigin barm og endur-
skoða hvað betur
megi fara í viðhorfi
hans til umhverfis og
náttúru – allt þar til
næsta svarta skýrsla
um hnattræna hlýnun
lítur dagsins ljós.
x x x
Víkverji veit að íhuga margra er
slík syndaaflausn ansi
hreint freistandi enda
hugurinn þannig frið-
aður með lágmarks
óþægindum og sama sem engri
fyrirhöfn. Og þótt vissulega hafi
gróðursetningarverkefni á borð
við Kolvið jákvæð áhrif í barátt-
unni gegn hnattrænni hlýnun er
kemur að því að draga úr styrk
koldíoxíðs í andrúmsloftinu þá ótt-
ast Víkverji að það dugi skammt.
Telji eigendur bensínfrekra bif-
reiða mengunarkvóta sinn nefni-
lega að fullu greiddan með and-
virði aðeins bensíntanks á ári telur
Víkverji litla von til að neyslu-
mynstur og eldsneytisnotkun
þeirra taki nokkrum breytingum
og með því er, að hans mati, að-
eins verið að fresta því að leita
raunverulegra lausna á vandanum.
Víkverji dagsins áekki alltaf skilið
hrós fyrir að vera það
sem kalla má spar-
samur eða hófsamur
neytandi. Hann gerir
hins vegar jafnan sitt
besta til að vera um-
hverfisvænn, flokkar
ruslið eftir því sem
kostur er, endur-
vinnur það sem end-
urvinna má, skilar líf-
rænum úrgangi í
safnhaug, sparar
orkugjafa og reynir
að ferðast um á
tveimur jafnfljótum
sé þess nokkur kost-
ur.
x x x
Víkverji á þó engan geislabaugskilið því hann á svo sann-
arlega sinn hluta í vaxandi haug-
um umbúðaþjóðfélagsins og auk-
inni kolefnislosun með akstri til og
frá vinnu á degi hverjum. Því
mætti vel ætla að Víkverji tæki
framtaki á borð við vefsíðuna
Kolvið fagnandi, en svo er þó ekki.
Víkverji getur nefnilega ekki losn-
að við þá nagandi tilfinningu að
með Kolviði sé verið að bjóða hon-
um ansi hreint ódýra syndaaf-
lausn. Fyrir andvirði aðeins eins
bensíntanks á ári geti hann ekið
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Þeir sem halda gæludýr vita að
ekki er alltaf um tóm notalegheit að
ræða þar sem fjórfættu vinirnir eru
annars vegar. Sumir þeirra eiga til
að setja mark sitt á húsgögn og
muni innanhúss með því að klóra,
brýna og naga.
Nú geta hinir loðnu vinir hins
vegar fengið útrás á eigin hús-
gögnum því Ikea hefur sett á mark-
að litlar mublur sem eru sérhann-
aðar fyrir hunda og ketti, að því er
fram kemur á Aftenposten.
„Í þessari línu er hægt að fá hús-
gögn sem virka vel fyrir dýrin um
leið og þau eru falleg að horfa á,“
segir Monika Mulder, einn hönn-
uðanna á bak við lúxusseríuna
„Krone“ og hversdagshlutina
„Bästis“ sem ætlaðir eru gæludýr-
um. Hópur hunda var fenginn til að
prófa húsgögnin sem þurftu að
uppfylla sömu kröfur og barnavör-
ur Ikea.
Gæludýralína Ikea inniheldur
m.a. legubekki, legupúða, fleti og
matarílát sem passar ólíkum stíl
innanhúss, púða sem hægt er að
þvo, handklæði, teppi og leikföng.
Sum húsgagnanna eru klædd tvisv-
ar sinnum svo þau endist lengur.
„Markaðurinn fyrir gæludýr fer
vaxandi,“ segir Frode Skage Ulleb-
ust, upplýsingafulltrúi Ikea í Nor-
egi en þar í landi er gæludýramark-
aðurinn talinn velta milli 24 og 37
milljörðum íslenskra króna árlega.
„Fólk vill hafa dýr heima hjá sér en
um leið vill það að heimilin líti vel
út.“
Hjá Ikea á Íslandi fengust þær
upplýsingar að þar væri seld „Bäst-
is“ línan fyrir gæludýr en ekki lúx-
uslínan „Krone“.
Reuters
Heimilisvinir Það væri líklega flestum sama þó að kisi klóraði sinn eigin
sófa – á meðan hann léti stofustássið í friði.
Flottheit fyrir fjórfætta