Morgunblaðið - 01.06.2007, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 33
Nemendur í framhaldsskólum fá stuðning til
kaupa á námsgögnum.
Sérstaklega verður hugað að stuðningi við
börn innflytjenda í skólakerfinu.
Stuðningur við langveik börn, börn með
hegðunarvandamál, geðraskanir og þroskafrá-
vik verður aukinn og þegar í stað verður gripið
til aðgerða til að vinna á biðlistum á þessum
sviðum. Jafnframt verður hugað að for-
eldraráðgjöf og foreldrafræðslu. Forvarnastarf
gegn kynferðislegu ofbeldi verður eflt og stuðn-
ingur við fjölskyldur ungmenna sem eiga í
vanda vegna vímuefnaneyslu verður aukinn.
Síðast en ekki síst þá mun ríkisstjórnin beita
sér fyrir því að fæðingarorlofið verði lengt í
áföngum.
Ríkisstjórnin leggur ríka áherslu á að styrkja
stöðu aldraðra og öryrkja. Við viljum vinna að
einföldun almannatryggingakerfisins. Eins er
brýnt að taka til sérstakrar skoðunar samspil
skatta, tryggingabóta, greiðslna úr lífeyr-
issjóðum og atvinnutekna einstaklinga til að
tryggja meiri sanngirni og hvetja til tekjuöfl-
unar og sparnaðar. Í þessu skyni verður dregið
úr tekjutengingum og skerðingum bóta í al-
mannatryggingakerfinu. Þannig er stefnt að
hækkun frítekjumarks vegna atvinnutekna fyr-
ir aldurshópinn 67-70 ára. Tekjutenging at-
vinnutekna 70 ára og eldri við lífeyri almanna-
trygginga verður að fullu afnumin sem og
skerðing tryggingabóta vegna tekna maka.
Skoðað verður hvort undanskilja megi hluta
af lífeyrissjóðstekjum eldri borgara skerðingum
í almannatryggingakerfinu. Jafnframt er stefnt
að því að ríkissjóður tryggi ellilífeyrisþegum líf-
eyri að lágmarki 25 þúsund krónur á mánuði
frá lífeyrissjóði og að almennt skerðingarhlut-
fall í almannatryggingakerfinu lækki á kjör-
tímabilinu í 35%. Til þess að tryggja framgang
þessara mála verður þegar á þessu þingi lagt
fram frumvarp sem felur í sér mikilvægar
breytingar á þessu sviði.
Við höfum líka ákveðið að hraða uppbygg-
ingu 400 nýrra hjúkrunarrýma fyrir aldraða og
fjölga einbýlum. Þá verður sólarhringsþjónusta
efld og einstaklingsmiðuð þjónusta aukin. Enn-
fremur er ríkisstjórnin sammála um að fylgja
eftir tillögum örorkumatsnefndar um stóraukna
starfsendurhæfingu og nýtt matskerfi varðandi
örorku og starfsgetu en koma jafnframt til
móts við þann hóp sem er með varanlega skerta
starfsgetu.
Ríkisstjórnin hefur sett sér metnaðarfull
markmið í jafnréttismálum. Meðal annars vil ég
nefna að gerð verður áætlun um að minnka óút-
skýrðan kynbundinn launamun hjá ríkinu og
stefnt að því að hann minnki um helming fyrir
lok kjörtímabilsins. Ríkisstjórnin vill einnig
koma á samvinnu aðila vinnumarkaðarins og
hins opinbera um að leita leiða til að eyða slík-
um launamun á almennum vinnumarkaði. Kjör
kvenna hjá hinu opinbera verða endurmetin,
einkum þeirra stétta þar sem konur eru í mikl-
um meirihluta. Þá verður unnið að því að jafna
stöðu kvenna og karla í nefndum og stjórn-
unarstöðum á vegum ríkisins. Tryggður verði
réttur launafólks til að skýra frá launakjörum
sínum ef það svo kýs. Loks vil ég nefna þá
stefnumörkun að trúfélögum verði veitt heimild
til að staðfesta samvist samkynhneigðra.
Ríkisstjórnin setur sér það markmið að allt
menntakerfi þjóðarinnar, frá leikskóla til há-
skóla, verði í fremstu röð í heiminum. Rík-
isstjórnin mun beita sér fyrir áframhaldandi
fjárfestingu í rannsóknum og menntakerfi þjóð-
arinnar, enda er ljóst að framfarir og hagvöxtur
komandi ára verða knúin áfram af menntun,
vísindum og rannsóknum. Áhersla verður lögð
á gæði, sveigjanleika og fjölbreytni í náms-
framboði þannig að allir geti fundið nám við sitt
hæfi. Fjölgað verður námsleiðum og áhersla
aukin á valfrelsi nemenda og einstaklingsmiðað
nám, meðal annars til að draga úr brottfalli
nemenda á framhaldsskólaaldri. List- og verk-
menntun á öllum skólastigum verður efld og
náms- og starfsráðgjöf aukin. Lögð verður
áhersla á að skapa ný tækifæri til náms fyrir þá
sem hafa eingöngu lokið grunnskólaprófi og
efla fullorðinsfræðslu innan skólakerfis og á
vinnumarkaði. Stefnt verður að auknu faglegu
og rekstrarlegu sjálfstæði skóla og minni mið-
stýringu og unnið að lengingu og aukinni fjöl-
breytni í kennaranámi. Lög um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna verða endurskoðuð með
það að markmiði að bæta kjör námsmanna enn
frekar.
Stefna ríkisstjórnarinnar er að á Íslandi sé
veitt heilbrigðisþjónusta á heimsmælikvarða.
Tekin verður upp blönduð fjármögnun á heil-
brigðisstofnunum þar sem fjármagn fylgir sjúk-
lingum og áhersla lögð á að kostnaðargreina
heilbrigðisþjónustuna. Þannig fái heilbrigð-
isstofnanir fjármagn í samræmi við þörf og
fjölda verka. Við þurfum einnig að skapa svig-
rúm til fjölbreytilegri rekstrarforma í heilbrigð-
isþjónustu, m.a. með útboðum og þjónustu-
samningum, en jafnframt tryggja að allir hafi
að henni jafnan aðgang, óháð efnahag. Þá þarf
að leita leiða til að lækka lyfjaverð og einfalda
greiðsluþátttöku hins opinbera. Stóraukin
áhersla verður lögð á forvarnir á öllum sviðum
og stuðlað að heilbrigðari lífsháttum. Brugðist
verður hart við aukinni vímuefnavá með öflugri
fræðslu og forvörnum, stuðningi við fjölskyldur
í vanda, fjölbreyttum meðferðarúrræðum og
hertri löggæslu.
Úrbætur í samgöngum lykilatriði
Ríkisstjórnin telur mikilvægt að allir lands-
menn eigi greiðan aðgang að menntun, atvinnu
og þjónustu óháð búsetu og fái notið sambæri-
legra lífskjara. Við munum í þessu skyni skil-
greina þau störf á vegum ríkisins sem hægt er
að vinna án tillits til staðsetningar og geta
þannig stuðlað að fjölgun starfa á landsbyggð-
inni. Í rammafjárlögum fyrir næstu fjögur ár
verður lögð mikil áhersla á eflingu innviða sam-
félagsins á sviði samgangna og fjarskipta.
Úrbætur í samgöngum eru lykilatriði til að
stuðla að jafnvægi í byggð landsins og lækka
flutningskostnað. Styttri vegalengdir milli
byggðakjarna og öruggari vegir skapa mögu-
leika á stærri og lífvænlegri atvinnu- og búsetu-
svæðum. Ríkisstjórnin mun beita sér sér-
staklega fyrir úrbótum á samgöngukerfi
höfuðborgarsvæðisins og leggur áherslu á um-
ferðaröryggi og almenningssamgöngur.
Ríkisstjórnin vill ennfremur tryggja öryggi í
gagnaflutningum til og frá landinu með lagn-
ingu nýs sæstrengs og sömuleiðis að flutnings-
hraði gagna aukist í takt við þá þróun sem á sér
stað. Góð gagnasamskipti auka mjög aðgengi að
menntun og þjónustu, óháð landfræðilegri stað-
setningu, og fela auk þess í sér tækifæri til ný-
sköpunar.
Ríkisstjórnin hefur einsett sér að Ísland
verði í fararbroddi þjóða heims í umhverf-
ismálum. Íslensk stjórnvöld, fyrirtæki og
menntastofnanir eru í einstakri stöðu til þess að
láta til sín taka á alþjóðavettvangi í baráttu
gegn mengun og sóun náttúruauðlinda. Rík-
isstjórnin stefnir að því að ná víðtækri sátt um
verndun verðmætra náttúrusvæða landsins og
gera skýra áætlun um samdrátt í losun gróð-
urhúsalofttegunda. Ríkisstjórnin hyggst efla
skógrækt og landgræðslu meðal annars í þeim
tilgangi að binda kolefni í andrúmsloftinu.
Einnig verður skipulega unnið að aukinni notk-
un vistvænna ökutækja, m.a. með því að beita
hagrænum hvötum. Til að skapa sátt um vernd
og nýtingu náttúrusvæða er mikilvægt að ljúka
rannsóknum á verndargildi þeirra og gildi ann-
arrar nýtingar. Sérstök áhersla verði lögð á að
meta verndargildi háhitasvæða landsins og
flokka þau með tilliti til verndar og orkunýt-
ingar. Stefnt verður að því að ljúka vinnu við
rammaáætlun fyrir lok árs 2009 og leggja nið-
urstöðuna fyrir Alþingi til formlegrar af-
greiðslu.
Þar til sú niðurstaða er fengin verður ekki
farið inn á óröskuð svæði án samþykkis Alþing-
is nema rannsóknar- eða nýtingarleyfi liggi fyr-
ir. Nokkur svæði, sem talin eru mikilvæg út frá
verndunarsjónarmiðum af stofnunum umhverf-
isráðuneytisins, verða undanskilin nýtingu og
jarðrask þar óheimilt þar til framtíðarflokkun
hefur farið fram í samræmi við staðfestar nið-
urstöður hinnar endurskoðuðu rammaáætlunar.
Slík svæði eru Askja, Brennisteinsfjöll, Hvera-
vellir, Kerlingarfjöll, Kverkfjöll og Torfajökull.
Vatnasviði Jökulsár á Fjöllum verður bætt
við Vatnajökulsþjóðgarðinn og tryggt að ekki
verði snert við Langasjó í virkjanaskyni.
Stækkun friðlandsins í Þjórsárverum verður
tryggð þannig að það nái yfir hið sérstaka vot-
lendi veranna.
Mikilvægt er að stjórnvöld, atvinnulífið og
samfélagið allt taki saman höndum við að berj-
ast gegn fordómum gagnvart minnihlutahópum,
hvort sem þeir fordómar byggjast á uppruna
eða öðrum þáttum. Ríkisstjórnin hefur því
ákveðið að unnin verði heildstæð fram-
kvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda sem
hafi það markmið að betur verði tekið á móti
erlendu fólki sem flyst til landsins og því auð-
veldað að verða virkir þátttakendur í íslensku
samfélagi og rækta menningu sína. Jafnframt
verði tryggt að útlendingar á vinnumarkaði
njóti sambærilega réttinda og íslenskt launafólk
og að allar ráðningar erlends verkafólks séu í
samræmi við gildandi kjarasamninga.
Mannréttindi, aukin þróunarsamvinna og
áhersla á friðsamlega úrlausn deilumála verða
nýir hornsteinar í íslenskri utanríkisstefnu. Ný
ríkisstjórn harmar stríðsreksturinn í Írak og
vill leggja sín lóð á vogarskálar friðar í Írak og
Miðausturlöndum, m.a. með þátttöku í mann-
úðar- og uppbyggingarstarfi.
Íslendingar eiga að stefna að því að taka for-
ystu í baráttunni gegn mengun hafsins og al-
þjóðlegu starfi til að bregðast við loftslags-
breytingum. Að öðru leyti byggist stefna
ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum á þeim
gildum sem legið hafa til grundvallar samvinnu
vestrænna lýðræðisríkja, norrænu samstarfi og
viðleitni þjóða heims til að auka frelsi í alþjóð-
legum viðskiptum. Ríkisstjórnin mun fylgja
markaðri stefnu í öryggis- og varnarmálum og
koma á fót samráðsvettvangi stjórnmálaflokk-
anna um öryggismál. Við leggjum áherslu á að
allar meiri háttar ákvarðanir um utanríkismál
verði teknar í samráði við utanríkismálanefnd
Alþingis.
Ríki Evrópusambandsins eru mikilvægasta
markaðssvæði Íslands.
Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið
hefur reynst þjóðinni vel og er ein af grunn-
stoðum öflugs efnahagslífs þjóðarinnar. Skýrsla
Evrópunefndar verður grundvöllur nánari at-
hugunar á því hvernig hagsmunum Íslendinga
verður í framtíðinni best borgið gagnvart Evr-
ópusambandinu. Við höfum ákveðið að koma á
fót föstum samráðsvettvangi stjórnmálaflokka á
Alþingi sem mun fylgjast með þróun mála í
Evrópu og leggja mat á breytingar út frá hags-
munum Íslendinga. Nefndin mun hafa samráð
við innlenda sérfræðinga og hagsmunaaðila eft-
ir þörfum.
Endurskoðun stjórnarskrár haldið áfram
Ríkisstjórnin er sammála um nauðsyn þess að
halda áfram með þá endurskoðun á stjórn-
arskrá lýðveldisins sem hófst á síðasta kjör-
tímabili.
Áhersla verður lögð á að leiða til lykta
ágreining um þjóðareign á náttúruauðlindum í
ljósi niðurstöðu sérnefndar um stjórnarskrár-
mál um það atriði á síðasta þingi.
Hæstvirtur forseti.
Ég hef nú farið yfir helstu atriði úr stefnu-
yfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingar. Við höfum sett okkur
afar metnaðarfull markmið á mörgum sviðum
sem öll eiga það sameiginlegt að stuðla að auk-
inni velsæld íslensku þjóðarinnar. Þetta er auð-
vitað meginmarkmið stjórnmálanna, að bæta
kjör almennings og skapa hér fjölskylduvænt
samfélag þar sem fólki líður vel; að skapa um-
hverfisvænt samfélag sem við getum verið stolt
af og skapa hér samkeppnishæft og aðlaðandi
umhverfi fyrir okkar kröftuga atvinnulíf. Með
öðrum orðum, íslenskt samfélag sem verður
áfram í fremstu röð þjóða heims á hvaða lífs-
kjaramælikvarða sem litið er.
Ég horfi björtum augum til þess kjörtímabils
sem nú er að hefjast og tel það fela í sér mikil
tækifæri til þess að gera gott samfélag enn
betra.“
egt jafnrétti verði
allri stefnumótun
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Stefna Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, flytur stefnuræðu sína.