Morgunblaðið - 01.06.2007, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
TAKK
ODDI!
HELDUR ÞÚ
AÐ EINHVER
EIGI EFTIR AÐ
SPRENGJA
HEIMINN?
KANNSKI... HVAÐA
DAGUR ER Í DAG?
MÁNU-
DAGUR
Á MÁNU-
DÖGUM HEF ÉG
ÁHYGGJUR AF
SJÁLFUM MÉR
ÉG HEF ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ
HEIMURINN VERÐI SPRENGD-
UR Á FIMMTUDÖGUM
HVAÐ
ERTU AÐ
GERA?
PABBI SAGÐI
MÉR AÐ FARA
ÚT, ÞANNIG AÐ
ÉG ER AÐ GRAFA
GÖNG TIL KÍNA
EF AÐ PABBI ÆTLAR AÐ
VERA SVONA LEIÐINLEGUR
ÞÁ ÆTLA ÉG AÐ BÚA HINUM
MEGINN Á HNETTINUM
ÞÚ MÁTT KOMA MEÐ EF
ÞÚ VILT. ÞAÐ
ER ÖNNUR
SKÓFLA Í BÍL-
SKÚRNUM
VERÐUR
PABBI ÞINN
EKKI REIÐUR
EF VIÐ GRÖFUM
Í SUNDUR INN-
KEYRSLUNA?
HANN ER
ALLTAF REIÐ-
UR, SKIPTIR
EKKI MÁLI
HVAR ÉG
GREF
HVER ER
LYKILLINN AÐ
FULLKOMNU
HJÓNABANDI?
ÞÚ VERÐUR AÐ GIFTAST
MANNI SEM BORÐAR Í HÓFI,
DREKKUR HVORKI NÉ SPILAR
FJÁRHÆTTUSPIL, KEMUR
ALDREI SEINT HEIM OG SKILUR
ALDREI HÚSIÐ EFTIR Í DRASLI
VIÐ
ÆTLUM AÐ
FÁ TVO
SVOLEIÐIS
HVAÐ ER AÐ
KIDDA MÍN? ÉG NÆ
ALDREI AÐ
KLÁRA ALLA
ÞESSA
HEIMAVINNU
MAMMA
EKKI HAFA
ÁHYGGJUR
ÞETTA ER
EKKERT ÓYFIR-
STÍGANLEGT.
ÞÚ VERÐUR
BARA AÐ BYRJA
Á ÞESSU
ÉG ÞARF AÐ
SKILA RITGERÐ
Á MORGUN,
SÍÐAN ER
STÆRÐFRÆÐI-
PRÓF Á HINN
DAGINN OG
SKÝRSLU SKIL
DAGINN EFTIR
AF HVERJU
HOPPAÐI ÉG?
ÉG VIL
LIFA!
GERÐU
ÞAÐ, EKKI
SKJÓTA MIG!
dagbók|velvakandi
Stjórnarsáttmálinn
JÆJA, nú er ný ríkisstjórn tekin við
og er ég mjög svo ánægður með það.
Það var löngu orðið tímabært að
losna við Framsókn úr stjórn lands-
ins. Ég ætla að gefa nýrri ríkisstjórn
smátíma áður en ég fer að gagnrýna
hana. En samt má ég til að nefna að
þegar ég las stjórnarsáttmálann kom
þar hvergi fram að það ætti að lækka
skatt af lífeyrissjóðstekjum í 10%
sem var eitt af aðalkosningaloforðum
Samfylkingarinnar. Kosningaloforð
er loforð og loforð á að efna, rétt eins
og Davíð Oddsson gerði alltaf þegar
hann var við stjórnvölinn. Einnig
kemur fram í stjórnarsáttmálanum
að athuga þurfi hvort ekki ættiað
undanþiggja hluta af lífeyrissjóðs-
tekjum aldraðra skerðingum í
almannatryggingakerfinu. Það yrði
nú aldeilis gott mál fyrir aldraða en
hvers vegna á það ekki líka að gilda
fyrir öryrkja? Það yrði algjört samn-
ingsmál fyrir öryrkja sem þurfa ekk-
ert síður á því að halda að hluti líf-
eyrissjóðstekna myndi ekki skerða
bætur almannatrygginga. Svo las ég
um að það ætti að lækka tekjuskerð-
ingarhlutfallið niður í 35%. Bíddu,
var ekki búið að ákveða það af fyrr-
verandi ríkisstjórn? Reyndar mætti
lækka hlutfallið enn meir en þetta er
þó ágætis byrjun en hvenær kemur
framkvæmdin til? Aldraðir og ör-
yrkjar mega ekki við langri bið. Nóg
er nú búið að svíkja þá undanfarin ár.
Ríkisstjórnin mætti líka tryggja það
rækilega að þessir hópar drægjust
ekki frekar aftur úr öðrum þegnum
landsins með því að hafa lífeyris-
sjóðstekjum tengdar við hækkarnir á
launavísitölu en ekki neysluvísitölu.
Ég auglýsi að lokum eftir Öryrkja-
bandalaginu. Það heyrist mjög lítið
frá því núorðið. Er búið að leggja
bandalagið niður?
Öryrki.
Yfirlýsing frá Framtíð Íslands
FRAMTÍÐ Íslands fordæmir vinnu-
brögð mannanna sem skjóta fugla
himinsins við Reykjavíkurtjörn.
Fuglarnir eru aðeins að leita sér
viðuværis því verið er að útrýma
aðalfæðu þeirra, sandsílinu. Dragnót
mannanna hefur eyðilagt lífsgæði
hafsins. Krían er t.d. hætt að verpa á
Íslandi vegna sandsílisskort.
Garðar H. Björgvinsson.
Sígarettustubbar á
Skólavörðustíg
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR er fjölsótt
gata, jafnt útlendingar sem Íslend-
ingar ganga þar um á hverjum degi.
Ég velti því fyrir mér af hverju ekki
sé lagður meiri metnaður í að halda
götunni hreinni og snyrtilegri.
Gatnamálastofnun hreinsar götuna
reglulega með „bursta“bílunum en
þeir skilja eftir sig hundruð
sígarettustubba í öllum köntum göt-
unar. Væri ekki hægt að fjarlægja þá
með einhvers konar ryksugu? Á
laugardaginn verður haldin blóma-
dagur á Skólavörðustíg og skrúð-
ganga gengur frá Austurbæjarskóla
niður Skólavörðustíginn og þá væri
gaman að sjá stíginn hreinan.
Einar.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
SIGURDÍS lét hendur standa fram úr ermum og reytti allan arfa úr blóma-
beði fyrir utan stjórnarráðið. Í sumar keppast námsmenn við að safna
nokkrum seðlum með því að starfa við ýmiss konar störfum.
Morgunblaðið/Ásdís
Bæjarvinnan byrjuð