Morgunblaðið - 01.06.2007, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 55
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
SÍÐASTA færslan á vefritið Múrinn
var birt í gær, en forsvarsmenn vef-
ritsins hafa ákveðið að láta gott
heita. „Við ætlum hins vegar ekkert
að gefa frá okkur lénið og gamla
efnið verður látið hanga uppi með
einum eða öðrum hætti, enda er oft
gott að geta gripið til þess,“ segir
Stefán Pálsson, einn af forsprökkum
Múrsins, en hann var einn af stofn-
endum í nóvember árið 1999. „Það
eru sjö ár síðan þetta byrjaði og
þetta hefur verið nokkurn veginn
sami hópur frá upphafi. Við sögðum
strax í byrjun að það væri lykilatriði
að við hefðum gaman af þessu og
þetta mætti ekki snúast upp í að
vera kvöð. Það hefur hins vegar
ekki verið sami neistinn í þessu og í
upphafi, menn eru orðnir eldri,“
segir Stefán, en hátt á þriðja þús-
und greinar hafa verið birtar á vefn-
um. „Það verður að segjast að gull-
aldartími pólitísku vefritanna er
eiginlega liðinn. Þau áttu skeið þar
sem þau voru hvað ferskust og
höfðu áhrif. Það var fyrir nokkrum
árum, kannski á árunum 2001 til
2002. Þá var alvanalegt að ef það
voru kröftug skoðanaskipti á vefrit-
unum þá rataði það mikið inn í aðra
fjölmiðla. Það sér maður mjög sjald-
an í dag, sem er miður, því þessi
vefrit skiptu máli því þar komu fram
aðrar raddir og önnur sjónarmið,“
segir Stefán.
Stenst tímans tönn
Aðspurður segir Stefán að Múr-
inn hafi haft töluvert að segja hug-
myndafræðilega séð. „Sem dæmi
má nefna að hann hafði talsverð
áhrif á Vinstri græna á sínum tíma.
Þegar sá flokkur var ungur og dálít-
ið veikur fundum við að þetta skipti
verulegu máli. Það voru sjónarmið
sem við vorum að tala fyrir sem
komust ekki inn annars staðar.
Fyrst eftir 11. september hófst t.d.
upp mikið fár um nauðsyn þess að
ráðast á Afganistan, og stríðið gegn
hryðjuverkum fór í gang. Þá vorum
við á meðal fárra sem stóðu í lapp-
irnar, og reyndum að tala máli
skynseminnar. Margt af því sem við
sögðum í friðarmálum hefur staðist
vel tímans tönn,“ segir Stefán.
„Þetta hefur alla tíð verið mjög al-
þjóðasinnað vefrit í þeim skilningi
að þarna eru ókjör af greinum sem
hafa birst um stjórnmál í sam-
félögum sem sjaldnast komast í fjöl-
miðla hér heima. Það held ég að hafi
verið dálítið mikilvægt.“
Stefán segir ólíklegt að Múrinn
verði endurreistur. „Eins og staðan
er í dag tel ég frekar ólíklegt að það
gerist en við ætlum ekki að sleppa
léninu. Okkur þætti leiðinlegra ef
einhver múrvirki væri kominn með
gamla lénið okkar fyrir einhverjar
auglýsingar um steypublöndunar-
efni,“ segir Stefán í léttum dúr. „En
mér finnst þessi miðlunarleið mjög
hentug fyrir ungt fólk. Þegar við
stofnuðum þetta voru allir í hópnum
á milli tvítugs og þrítugs. Nú erum
við orðin rosknari þannig að mér
finnst bara komið að næstu kynslóð
að taka upp merkið. Svo er spurning
hvort menn fari ekki að nota meira
tæknilega möguleika, að vinna með
annað en bara þetta textaform. Það
væri mjög spennandi að sjá slíkt
gerast hjá róttæku ungu fólki.“
Múrinn er fallinn
Vefrit um þjóðmál, menningu og pólitík hefur sagt sitt síðasta
Morgunblaðið/Golli
Hættur „Okkur þætti leiðinlegra ef einhver múrvirki væri kominn með
gamla lénið okkar fyrir einhverjar auglýsingar,“ segir Stefán Pálsson.
Nánari upplýsingar á www.reykjavik.is
DAGSKRÁ LAUGARDAGINN 2. JÚNÍ
Kl. 11.00 Átakið hefst á fjórum stöðum: við Grandaskóla, á Landakotstúni, við
Melaskóla og við Skerjaver í Skerjafirði.
Kl. 14.00 Samgleðjumst yfir góðum árangri á hreinsunardegi! Grillveisla og skemmti-
atriði við Vesturgarð, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar við Hjarðarhaga 45-47.
AÐRIR HREINSUNARDAGAR Í SUMAR:
Austurbær, norðan Miklubrautar - laugardaginn 30. júní
Austurbær, sunnan Miklubrautar - laugardaginn 28. júlí
MotorMax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400
MotorMax Egilsstöðum - Sími 470-5080 / 470-5070
MotorMax Akureyri - Sími 460-4350
N Ý S T A R C R A F T
F E L L I H Ý S I
O G C A M P - L E T
T J A L D V A G N A R
Í M O T O R M A X
Starcraft fellihýsi
www.motormax.is
Opið laugardag
kl. 10 - 16 í Kletthálsi.
Jeppafellihýsið RT sem þú ferð með hvert á land
sem er eða eitthvað annað glæsilegt Starcraft fellihýsi
fyrir allar fjölskyldur. Þitt er valið. Starcraft hefur gæðin.
Verð frá 1.249.000 kr.
Með Camp-let tjaldarðu stórum og rúmgóðum
tjaldvagni á svipstundu. Í ár eru allir Camp-let á 13”
dekkjum með nýjum útbúnaði sem auðveldar tjöldun
og með lengra beisli. Camp-let er fallegur, nettur
og traustur tjaldvagn, sem ferðaglaðir Íslendingar
tjalda ár eftir ár.
Verð frá 669.000 kr.
Camp-let tjaldvagnar
Isabella
fortjöld og skjóltjöld
- heimsþekkt gæði.
smáauglýsingar mbl.is