Morgunblaðið - 20.08.2007, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 20.08.2007, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bjóðum nú síðustu sætin til Mallorca í ágúst á ótrúlegu tilboði. Bjóð- um einstök kjör á gistingu á nokkrum af okkar vinsælustu gististöð- um, Las Gaviotas eða Alcudia Pins í Alcudia. Góðar íbúðir á frábær- um sumarleyfisstað sem bjóða frábæran aðbúnað í sumarfríinu. Njóttu lífsins á Mallorca við góðan aðbúnað. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Mallorca Sértilboð 24. og 31. ágúst frá kr. 29.990 Góð gisting - aðeins örfáar íbúðir Verð kr. 29.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð á Las Gaviotas eða Alcudia Pins í viku. Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Las Gaviotas eða Alcudia Pins í viku. Munið Mastercard ferðaávísunina Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is STEFÁN Eiríksson, lögreglustjóri í Reykjavík, var við störf í mið- borginni á Menningarnótt í svo- kölluðum gönguhópi lögreglu- manna. Hann stóð vaktina frá því klukkan tvö um daginn og fór heim um leið og síðustu hátíðargestir um morguninn. Þó að Menningar- nótt hafi farið friðsamlegar fram en oft áður og engar stórfelldar líkamsárásir eða slys komið upp, þurfti að sinna ýmsum málum í miðbænum aðfaranótt sunnudags. „Við vorum að sinna öllum lög- gæsluverkefnum sem komu upp, það var töluvert mikið um ölvun og eitthvað um slagsmál og pústra og annað í þeim dúr. Svo var líka nokkuð um skemmdarverk,“ sagði Stefán. Gönguhóparnir reyndust vel „Þessir gönguhópar hafa fyrir löngu sannað gildi sitt, þeir skipta miklu máli þegar svona margir gestir eru í miðborginni. Þegar við höfum burði til þess að skipuleggja starfið með þessum hætti þá skilar það góðum árangri. Það gerir hins vegar okkar starf aðeins erfiðara að það er mikið rusl á götum borgarinnar og mikið af gler- brotum og brotnum flöskum, sem skapar ákveðið hættuástand. En þetta fór allt stórslysalaust fram,“ sagði Stefán. Til greina kemur að gönguhópar verði notaðir í auknum mæli um helgar. „Við erum að skoða það núna hvernig við getum eflt lög- gæsluna um helgar, en ég held að það eitt og sér dugi ekki til þess að ná góðum tökum á þeim vanda sem við er að etja, það er alveg klárt. Við munum ekki láta okkar eftir liggja í þeim efnum, en það þurfa fleiri að koma að því verki.“ Stefán er mjög ánægður með skipulag löggæslunnar á nýliðinni Menningarnótt og segir starfið hafa gengið snurðulaust fyrir sig. „Þetta gekk mjög vel, skipulagið gekk fullkomlega upp. Okkar við- búnaður var alveg í samræmi við umfang verkefnisins. Það má þakka bæði góðum undirbúningi og góðri samvinnu þeirra sem stóðu að þessu,“ sagði Stefán. Friðsæl Menningarnótt Þetta var fyrsta Menningarnótt- in síðan Stefán tók við starfi lög- reglustjóra. „Það segja mér reynd- ari menn að þetta hafi gengið mjög vel núna, umfangið hafi verið svip- að en fólk hafi almennt verið ró- legra.“ Á slysadeild höfðu menn sömu sögu að segja, þó að nokkrir hafi sótt sér læknishjálp vegna slags- mála og smáslysa. Að sögn Ólafs Ingimarssonar læknis var mun ró- legra á slysadeildinni á menning- arnótt nú en verið hefur síðustu ár. „Þetta var bara svona eins og á venjulegri helgi, ekki mikið meira en það. Í fyrra var miklu meira að gera og meiri læti og hamagangur. Þetta virðist hafa farið nokkuð prúðmannlega fram. Það kom okk- ur eiginlega á óvart.“ Morgunblaðið/Júlíus Löggæsla Stefán Eiríksson lögreglustjóri ræðir við unga Reykvíkinga á rölti sínu um miðbæinn á Menningarnótt. „Gönguhópar hafa fyrir löngu sannað gildi sitt“ Lögreglustjórinn stóð vaktina á Mennningarnótt Í HNOTSKURN »Menningarnótt var fyrsthaldin í Reykjavík árið 1996 í tilefni af 210 ára afmæli borgarinnar. Hátíðin í ár var því sú tólfta í röðinni. »Undanfarin ár hefur ölvunog óspektir sett mark sitt á hátíðina, sérstaklega árið 2005. Þá var mikið um ung- lingadrykkju í miðbænum. Í fyrra komu upp hugmyndir um að færa hátíðina yfir á sunnudag til þess að minnka vandræði vegna ölvunar. TRÉ ársins var valið á aðalfundi Skógræktarfélags Ís- lands um helgina. Að þessu sinni varð 13 metra hátt og rúmlega hundrað ára gamalt furutré fyrir valinu. Þór Þorfinnsson skógarvörður á Hallormsstað segir tréð geysilega fallegt. „Þetta er lindifura sem er í trjá- safninu í mörkinni. Það var danskur skógfræðingur, Christian Flensborg, sem sáði henni. Hann vann að til- raunum í skógrækt og árið 1906 sáði hann lindifuru- fræi í mörkinni. Mikið af því misfórst, en samt komust upp 87 tré af þessari tegund sem eru nú hérna í safn- inu,“ sagði Þór. Þetta var 72. aðalfundur Skógræktarfélagsins. Ný stjórn var kjörin á fundinum og tóku tveir nýir stjórnarmenn sæti, þau Aðalsteinn Siggeirsson og Jón- ína Stefánsdóttir. Magnús Gunnarsson var kjörinn for- maður, en Magnús Jóhannesson fráfarandi formaður ákvað að gefa ekki kost á sér í stjórn í þetta sinn. Ný stefna til næstu níu ára var samþykkt á fundinum. Þar segir meðal annars: „Félagið vill leggja sitt af mörkum til þess að sporna við loftslagsbreytingum með aukinni skógrækt og bindingu kolefnis í gróðri. Hér á landi eru einstakir möguleikar á að stórauka skógar- þekju og endurheimta landgæði en liður í því var stofn- un Kolviðar.“ Félagið minnir líka á hlutverk skógrækt- ar í almennum lífsgæðum landsmanna, sérstaklega í þéttbýli, þar sem trjágróður skýlir íbúum fyrir vindum og hávaða og ver þá fyrir svifryksmengun. Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson 101 árs gömul fura valin tré ársins FRAMKVÆMDIR við 50 lóða iðn- aðar- og þjónustukjarna Iceland Motopark í nágrenni Reykjanes- bæjar eru hafnar. Tólf aðilar hafa þegar tryggt sér lóð á svæðinu auk þess sem samningaviðræður um rekstur verslunarmiðstöðvar og eru langt á veg komnar. Gert er ráð fyrir léttum iðnaði, verslun og þjónustu á svæðinu, en lóðirnar eru staðsettar á milli Reykjanesbrautar og ökugerðis Iceland Motopark, sem opnað verður í byrjun næsta árs. Í fyrsta áfanga stendur einnig til að byggja mjög fullkomna go-kart braut, ásamt þjónustubyggingu sem hýsa mun kennslustofur, aðstöðu fyrir ökukennara o.fl. Úthlutun lóðanna er hluti af fyrsta áfanga Iceland Motopark, en í öðrum og þriðja áfanga stend- ur m.a. til að reisa fjölnota akst- ursíþróttabraut og allt að 2.000 íbúða íbúðarhúsabyggð. Fram- kvæmdir við næstu áfanga hefjast næsta sumar ef allt gengur að ósk- um. Úthlutun að hefjast HÖNNUN eldsneytislagnar milli Helguvíkur og Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar er lokið og undirbúningur framkvæmda hafinn. Lögnin mun flytja flugvélaeldsneyti á milli svæð- anna og búast má við því að hún verði tekin í gagnið árið 2008. Frá því í janúar hafa N1 og Olís flutt alla flugvélasteinolíu til birgða- stöðvarinnar í Helguvík í stað þess að ferja hana á milli Örfiriseyjar í Reykjavík og flugvallarins, en þegar samningar um eldsneytiskaup á milli Icelandair og N1 náðust í fyrra lagði olíufélagið þunga áherslu á að það fengi svæðið við Helguvík til notk- unar. Í Helguvík byggðu Banda- ríkjamenn sex risastóra birgðatanka á sínum tíma og þrír þeirra eru í dag notaðir undir geymslu flugvélaelds- neytis. Olían er síðan ferjuð með ol- íuflutningabílum frá Helguvík í birgðatanka olíufélaganna við flug- stöðina, um 1,5 kílómetra leið, en með tilkomu leiðslu á milli Helguvík- ur og Keflavíkurflugvallar verður allur slíkur akstur óþarfur. Leiðslan verður kostuð með lítra- gjaldi af allri olíu sem rennur í gegn- um hana og er hún hluti af innviðum Keflavíkurflugvallar. Um tíma var óvíst hver ætti að kosta framkvæmd- ir við leiðsluna, enda eru mannvirkin á varnarsvæðinu í umsjá utanríkis- ráðuneytisins, flugstöðin sér hluta- félag og flugmálayfirvöld á Keflavík- urflugvelli hafa umsjón með flughlaðinu. Morgunblaðið/RAX Fyllt á Flugvélaolíuleiðslan mun eflaust spara mönnum sporin. Eldsneytislögn tilbúin næsta vor Flytur olíu milli Helguvíkur og FLE

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.