Morgunblaðið - 20.08.2007, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Við eyjarskeggjar byggjum miklar vonir við að þetta samvinnuverkefni vegagerðar og
samgönguráðuneytisins eigi eftir að skila sér í verulegri fjölgun ferðamanna.
VEÐUR
Hafi það farið fram hjá ein-hverjum er ástæða til að vekja
athygli á því stríði sem staðið hefur
milli vinstrimanna, Samfylkingar og
Vinstri grænna frá því að núverandi
ríkisstjórn var mynduð.
Þetta stríð er hart og biturt. Um
það má segja eins og einu sinni var
sagt um brezka íhaldsmenn: þau
hata hvert annað svo fallega.
Nú hefur ÁrniÞór Sigurðs-
son, alþing-
ismaður Vinstri
grænna og fyrr-
um kær sam-
starfsmaður ut-
anríkisráðherra í
borgarstjórn
Reykjavíkur
gaman af því, að
minna á að Ingi-
björg Sólrún hefur staðið fyrir her-
æfingum á Íslandi með þeim sama
Bandaríkjaher og réðst inn í Írak,
sem hún hafði stór orð um.
Kæti Árna Þórs yfir þessu hlut-verki utanríkisráðherra leyndi
sér ekki í grein eftir hann hér í
Morgunblaðinu í gær.
Þess verður áreiðanlega ekkilangt að bíða, að Vinstri grænir
ræði ítarlega um það forystu-
hlutverk sem utanríkisráðherra
okkar gegnir í stríðinu í Afganistan.
Flugvélar Atlantshafsbandalagsins,
sem sagt er að drepi óbreytta borg-
ara þar í landi, eru þar m.a. á ábyrgð
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.
Ísland tók ákvörðun um það ásamt
öðrum Nató-ríkjum að senda her-
sveitir til Afganistans.
Fram að þessu hefur ekki orðiðvart við stefnubreytingu hjá nú-
verandi utanríkisráðherra.
Það má búast við skemmtilegumvetri á Alþingi, þegar fyrrum
samstarfsmenn í vinstri meirihlut-
anum í borgarstjórn ræða aðild okk-
ar að stríðinu í Afganistan.
STAKSTEINAR
Árni Þór
Sigurðsson
Hið indæla stríð
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!"
#
:
*$;<
! "!#
$ % &
!#
*!
$$; *!
$% &
%
'
(
)(
=2
=! =2
=! =2
$'& *
#
+,"(-
<;
>
=7
'
(
#
)
#
8
*
(
+
(
!#
, % &
( ' #
62
*
+ !
-
!
#
. % &
!#
./ (00
(1
(
"(*
#
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Vilborg G. Hansen | 19. ágúst 2007
Menningarhelgi?
Væri ekki sniðugt að
víkka Menningarnótt í
Menningarhelgi með
því að starta þessu með
tónleikum á föstudags-
kvöldi og jafnvel draga
þetta áfram fram á
sunnudag? Greinilega allir búnir að
læra; bæði við sem njótum, skipu-
leggjendur og lögregla. ... Við tókum
eftir fjölda bíla með erlendum núm-
erum þannig að greinilegt er að
ferðamenn stíla orðið inn á að koma
á þessum tíma til að upplifa þetta
með okkur. Meira: villagunn.blog.is
Ingvar Valgeirsson | 19. ágúst 2007
Erfið helgi á enda
Þó svo þessi frjálsi
opnunartími skemmti-
staða valdi mér svefn-
leysi, almennri óreglu,
taki tíma frá familíunni
og geri mér almennt
lífið leitt oft og iðulega
í spilamennskunni er ég samt á móti
því að breyta sýsteminu á ný. Fólk á
jú að fá að ráða hvenær það djamm-
ar frá sér ráð og rænu ef það kýs að
gera svo og ekki yfirvalda að ákveða
hvenær fólk drekkur brennivín og
reynir hvert við annað.
Meira: ingvarvalgeirs.blog.is
Bjarkey Gunnarsdóttir | 19. ágúst 2007
Berjablámi
Það segir mér fólk sem
komið hefur í Höllina
þessa vikuna að hér sé
allt fullt af berjum.
Ekki hef ég haft tök á
því að fara í berjamó
en á Skeggjabrekku
þar sem ég viðra hundana mína hef
ég rölt aðeins og kíkt og tek undir
það að vel er af berjunum.
Fór síðast í morgun og tíndi í
munninn þar sem ég og minn kæri
gengum í dýrindis veðri með ferfæt-
lingana.
Meira: bjarkey.blog.is
Óttarr Guðlaugsson | 19. ágúst 2007
Fáninn bannaður?
Fyrst af öllu vil ég
óska verkefnastjórn
Menningarnætur til
hamingju með stór-
glæsilega dag og til
hamingju Reykvík-
ingar með glæsilega
hátíð.
Við fjölskyldan fórum í bæinn um
kl. 14 til þess að sýna okkur og sjá
aðra og vorum við í bænum til mið-
nættis. Allt skipulag dagsins var til
fyrirmyndar og óhætt að segja að
allir gátu fundið eitthvað við sitt
hæfi á hvaða aldri sem þeir eru þrátt
fyrir að Landsbankatónleikarnir
hafi fengið falleinkunn frá ansi
mörgum – sökum þess að þar vant-
aði skipulag, tónleikastjóri (kynnir)
sá sem var settur sem kynnir var
viðvaningur á móts við glæsilega
frammistöðu Páls Óskars á tónleik-
unum á Laugardalsvellinum á föstu-
dagskvöldið, einnig leið alltof langur
tími á milli hljómsveita enda gáf-
umst við upp á þessum tónleikum og
gengum þess í stað niður eina
skemmtilegustu götu Reykjavíkur
þ.e Skólavörðustíginn – sú gata er
án efa staður lista og menningar,
staður jóla sama hvaða árstími er því
þar eru 2 ef ekki 3 jólabúðir sem
opnar eru allan ársins hring og
óneitanlega gleður það mig þar sem
ég myndi helst vilja hafa jólaskraut-
ið uppi 365 daga á ári.
Það var þó eitt sem við fórum að
velta fyrir okkur þegar við sáum ís-
lenska þjóðfánann blakta við eitt
heimilið í borginni – svo undarlega
sem það kann að hljóma þá virðist ís-
lenski þjóðfáninn vera bannaður í
Reykjavík því borgaryfirvöld flögg-
uðu honum hvergi á þessari miklu
menningarhátíð. Á dögum sem þess-
um ætti fáninn að vera á hverju
götuhorni og í öllum verslunar-
gluggum ef ekki bara öllum glugg-
um, við erum allt of spéhrædd að
nota fánann okkar. Því þurfum við
að breyta.
En maður lifandi hvað Villi borg-
arstjóri stimplaði sig rækilega inn
með flugeldasýningu aldarinnar.
Þetta var flottasta, stærsta og
magnaðasta flugeldasýning fyrr og
síðar – þó svo það hafi verið erfitt þá
sló Vilhjálmur gamla metið hans
Davíðs þegar hann var borgarstjóri
þegar haldið var uppá 200 ára af-
mæli Reykjavíkurborgar.
Meira: otti.blog.is
BLOG.IS
LANDBÚNAÐARSÝNINGUNNI
Sveita Sæla lauk í gærdag á Sauð-
árkróki. Að sögn framkvæmdastjóra
sýningarinnar er áætlað að um fjög-
ur þúsund manns hafi komið á svæð-
ið þessa þrjá daga sem sýningin stóð.
Ekki var að heyra annað en auglýs-
endur væru ánægðir með sinn hlut.
Búvélainnflytjendur voru með sýn-
ingarsvæði við reiðhöllina Svað-
astaði og fjöldi manns fékk að prufu-
keyra dráttarvélar. Innandyra var
fjöldi sýningarbása og þar var hand-
verksfólk með vörur til sölu. Á sýn-
ingunni voru allmargar dýrateg-
undir til sýnis s.s. landnámshænsni,
kindur, geitur, kálfar, minkar, kött-
ur með kettlinga og fjárhundar
sýndu listir sínar við smölun. Enn
fremur var hægt að fylgjast með
hænuungum koma úr eggjum. Þá
gafst fólki kostur á að skoða slát-
urhús og mjólkursamlag á Sauð-
árkróki í tengslum við sýninguna og
nýtt og fullkomið hátæknifjós á bæn-
um Birkihlíð var opið fyrir gesti og
nýttu margir sér það.
,,Ég held að það sé ekki vafi á að
þessi sýning er komin til að vera. Nú
nánast tvöfölduðum við gestafjölda
frá í fyrra og mér finnst fólk almennt
vera ánægt. Það hefur líka mikið að
segja að fá svona gott veður, þurrt
og sólskin alla dagana. Það verður
allt miklu auðveldara við slíkar að-
stæður,“ sagði Jón Þór Bjarnason,
framkvæmdastjóri sýningarinnar,
þegar henni var að ljúka í gær.
Um fjögur þúsund
manns sóttu sýninguna
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Fjaðrafok Landnámshænsni voru til sýnis á landbúnaðarsýningunni.