Morgunblaðið - 20.08.2007, Blaðsíða 32
Morðið fyrir átta árum
er aðeins toppurinn á
ísjaka í gruggugu vatni …36
»
reykjavíkreykjavík
Snobbflugan sat heldur betur í súp-unni þegar hún leit við á ,,lágmenn-ingarnótt“ sem haldin var á Gaukiá Stöng á föstudagskvöldið þar sem
reifir Mínusmenn spiluðu af sönnum ómenn-
ingarsið. Viðstaddir stærðu sig af ,,upp-
reisninni“ gegn menningarnæturfyrirbær-
inu; stoltir og rokkaðir lágmenningarlubbar.
Og Dr. Spock lét að sjálfsögðu sitt ekki eft-
ir liggja. Hin eina sanna upphitun fyrir
menningar-maraþaraþonið hófst þó um há-
degisbil næsta dag þegar rennsveittir Glitn-
ishlauparar tóku að nálgast markið í Lækj-
argötu og sprettu úr spori fyrir utan húsið
hennar fröken flugu, sem sat suðandi með
tvöfaldan espresso í glugganum heima hjá
sér og tók áhugasöm út þróttmikil lærin á
gæjunum. Sum þeirra jafn girnileg og belg-
ískt súkkulaði, skal ég segja ykkur. Hef
ekki miklar mætur á menningarmaraþoninu
sjálfu en skellti samt eldsneyti á tankinn og
tók lágflug yfir miðbæinn. Lenti á Skóla-
vörðustíg, svalasta stræti borgarinnar, dáð-
ist að mjaðmahnykkjum magadansmeyjar
og nartaði í lífræn epli hjá Yggdrasli. Kom
m.a. auga á Magnús Einarsson fyrrverandi
fasteignasala og fallegu frú hans Guðrúnu
Jóhannsdóttur. Spottaði líka veiðiklóna og
tannlækninn Þórarin Sigþórsson (Tóta
tönn) sem var á veiðum eftir menningar-
viðburðum á Laugaveginum og Haraldur
Ólafsson prófessor sást á sveimi í sum-
argulum jakkafötum. Um kvöldið var stór
hluti mannfjöldans orðinn drukkinn og á
skömmum tíma breyttist Lækjartorg í Torg
hins ,,himneska ófriðar“. Bakkusblótið aldr-
ei langt undan.
,,Mammons-monsterið“ var líka dýrkað í
vikunni eða með öðrum orðum; Kringlan
átti afmæli. Í það musteri fer miðbæj-
arfluga helst ekki ógrátandi en hafði neyðst
til þess vegna endurnýjunar birgða af Mac-
glossinu geggjaða, Pink Poodle, og fékk
smáborgarahroll þegar stórsöngvarinn
Björgvin Halldórsson hóf upp raust sína og
söng afmælissönginn. Afmælisveislan stóð
enn örfáum dögum síðar þegar kaupa þurfti
langlíf kerti í Tiger, en þá æddu skælbros-
andi trúðar með blöðrur um ganga og þá
rölti músíkantinn og pistlahöfundurinn
Doktor Gunni þar um með sæta soninn
sinn. Doktorinn var í öllu svörtu og er orð-
inn líka svona slank og smart. Verð að deila
með ykkur nýjasta æðinu í smábarnatísk-
unni: Netslóðin babytoupee.com býður m.a.
upp á eftirlíkingar af hári Donalds Trump,
Lil Kim, Samuel L. Jackson og Bob Marley
fyrir börn. Kannski getur einhver sniðugur
íslenskur viðskiptaglanni gert hið sama fyr-
ir okkur á Íslandi og boðið upp á hárkollur
af frægum samlöndum eins og Ólafi Ragn-
ari Grímssyni, Agli Helgasyni, Davíð Odds-
syni og Eiríki Haukssyni. Svona fyrir næsta
barnaafmæli ... | flugan@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Perla Kristinsdóttir, Jóhann Sveinn Sveins-
son, Sigurjón Lýðsson og Þórey Ágústsson.
Sævar Markús Óskarsson, Eygló Margrét
Lárusdóttir og Fumi Nagasaka.
Selma Ragnarsdóttir og Harpa Einarsdóttir.
Margrét Klara Jóhannsdóttir, Óskar Alex
Sindrason og Ragnar Sigurjónsson.
Kristján Ari Arason, Gerður Bjarna-
dóttir og Berglind Ómarsdóttir.
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Ragnar Darri Daðason, Daði Lárusson,
Sif Rós Ragnarsdóttir, Dagur Örn
Fjeldsted og Auður Stefánsdóttir.
Sigfús Már Pétursson og Helga Ægisdóttir.
Þóra Ásgeirsdóttir og Gunnar Ólason.
Arnheiður Rós Ásgeirsdóttir, Ragnheiður
Júlíusdóttir og Fanney Ída Júlíusdóttir.
Magni Ásgeirsson, Marinó Bjarni
og Eyrún Huld Haraldsdóttir.
flugan
… Torg hins ,,him-
neska ófriðar“ …
… Afmælisveisla ,,Mammons-
monstersins …
Rut Hermannsdóttir og Þóra Tómasdóttir.
Stefan Jacobsson og Eli Barraclough.
Hlín Agnarsdóttir og Suzanne Osten.
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Guðrún Gunnarsdóttir, Kolbrún Birna Hall-
grímsdóttir og Sigríður Kristinsdóttir.
» Stórtónleikar voruhaldnir á Miklatúni á
Menningarnótt
» Selma Ragnarsdóttir ogHarpa Einarsdóttir opnuðu
nýja fataverslun með eigin
hönnun sem heitir Starkiller
»Menningargnægðin Reyfi hófst íNorræna húsinu um helgina