Morgunblaðið - 20.08.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.08.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2007 21 eins og veit að erðast til gabréfs- eð lögleg- di sem Þegar við ég því gegnum s að m hætti r að það ví að hann betur en haldinu um áhafn- rfs- eirra far- inn með fu Ís- m ís- a. „Þar min inn í rð segir a sótt um anda sér, ð að ræða nni að þar klárt og hún þyrfti ekki að hafa frekari áhyggjur af skráningu. Að sögn Söru trúlofuðu þau sig í október, en þá þegar voru komnar ákveðnar blikur á loft í sambandi þeirra. Unnustinn reynist virkur alkóhólisti „Viku eftir að ég kom til landsins datt hann í það,“ segir Sara og tekur fram að fljótlega hafi hún gert sér grein fyrir því að unnusti hennar var virkur alkóhólisti, þó honum hefði tekist að halda því leyndu fyrir sér á þeim níu mánuðum sem þau höfðu þá þekkst. Að sögn Söru drakk mað- urinn býsna reglulega og þegar hann var orðinn kenndur fór hann að tala til hennar með allt öðrum hætti en ódrukkinn. „Hann sagði að ég væri heimsk. Hann ásakaði mig um að vera að nota sig, sem er fjarri öllu lagi því ég elskaði hann og hafði fylgt honum um hálfan hnöttinn til þess að láta reyna á sambandið,“ segir Sara og rifjar í framhaldinu upp hvernig maðurinn hafi reglu- lega á fylliríum sínum hent henni út úr húsinu um miðjar nætur. „Í fyrsta skiptið sem hann henti mér út þá var mið nótt, frost úti og ég klæðalítil. Ég vissi ekki hvert ég ætti fara og leitaði því skjóls í stræt- isvagnaskýli skammt frá heimilinu okkar. Um klukkutíma seinna eða um fimmleytið um morguninn kom lögreglan og náði í mig. Þeir sögðu mér að hann hefði hringt á lögregl- una. Það var lögreglan sem sagði mér frá Kvennaathvarfinu og þang- að fór ég og dvaldi í nokkra daga,“ segir Sara sem sneri aftur heim staðráðin í því að láta, þrátt fyrir uppákomuna, á sambandið reyna. „Ég grátbað hann um að leita sér hjálpar og fara í meðferð, því ég elskaði hann,“ segir Sara, sem að endingu yfirgaf manninn í janúar á þessu ári eftir að hann hafði í fyrsta sinn lagt á hana hendur. Þetta var rétt um ári eftir að þau tóku upp ást- arsamband. Flúði út í janúarfrostið á náttsloppnum einum fata Að sögn Söru hafði maðurinn ver- ið að drekka mikið umrætt jan- úarkvöld. Um tvöleytið um nóttina hafi hann síðan vakið hana og dregið út úr rúminu og í framhaldinu reynt að þröngva henni til samræðis gegn vilja hennar. Segist hún hafa flúið inn á baðherbergi og læst að sér hurðinni, en maðurinn brotið niður hurðina. Þegar hún hafi haldið áfram að streitast á móti hafi hann lagt á hana hendur og tekið hana kverkataki með þeim afleiðingum að hún missti meðvitund. „Þegar ég rankaði við mér aftur lá ég á baðher- bergisgólfinu og hann stóð yfir mér og var að sparka í mig. Ég komst fram hjá honum og reyndi að finna gemsann minn til þess að hringja í lögregluna. Þegar hann uppgötvaði það varð hann enn reiðari og hélt áfram að berja mig,“ segir Sara sem að lokum flýði út í janúarfrostið á náttsloppnum einum fata. Segist hún hafa falið sig nálægt húsinu og að endingu komist inn hjá nágranna sem orðið hafði var við umganginn. Þangað sótti lögreglan hana síðan, kom henni upp á spítala þar sem gert var að sárum hennar og í fram- haldinu fór hún í Kvennaathvarfið þar sem hún dvaldi næstu þrjá mán- uði eða fram í apríl. Líkamsárásin kærð Að sögn Söru kærði hún líkams- árás mannsins strax daginn eftir til lögreglunnar í Reykjavík og lagði þá fram áverkavottorð frá lækni. Með aðstoð lögfræðings hjá Alþjóðahús- inu lagði hún einnig fram skaðabóta- kröfu. „Þetta snýst hins vegar ekki peningana. Ég vil bara að honum verði refsað fyrir það sem hann gerði mér, því annars er ekkert sem hindrar hann í því að endurtaka leikinn gagnvart annarri konu,“ seg- ir Sara. Eftir því sem blaðamaður kemst næst hefur hún einnig í hyggju að kæra fyrrum unnusta sinn fyrir að hafa smyglað sér til landsins með ólögmætum hætti. Segist hún ekki skilja hvers vegna lögreglan sjái ekki ástæðu til þess að rannsaka smyglið og ákæra flug- stjórann fyrir það, þar sem hún viti nú hvernig Söru var komið til lands- ins á sínum tíma. Að sögn Söru hef- ur hún frá því hún kom til landsins nokkrum sinnum ferðast til útlanda, bæði ein og með unnusta sínum meðan þau voru enn í sambandi. Þannig hafi þau farið saman til Dan- merkur á haustmánuðum og í nóv- ember sl. hafi hún farið ein í nokk- urra daga ferð til Bandaríkjanna, en þá var Sara að fara út úr Schengen- svæðinu aftur þó hún hefði, eftir því sem hún best viti sjálf aldrei verið skráð inn í það við komuna til Ís- lands í september. „Þegar ég fór til Bandaríkjanna gerði starfsmaður vegabréfaskoðunarinnar at- hugasemd við það að ég væri hvergi skráð inn í landið og ekki með neinn stimpil við komuna inn í Schengen,“ segir Sara og tekur fram að hún hafi þá gripið til þess ráðs að hagræða sannleikanum og segja að hún hafi upphaflega komið til Íslands í gegn- um Danmörk, sem hefði þá átt að skrá hana inn í Schengen-svæðið. Spurð um framtíðina segist Sara vonast til þess að hún fái að dveljast áfram á landinu. Segist hún í febr- úar sl. hafa sótt um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun og hafa upplýst starfsmenn þar um aðstæður sínar og líkamsárásarkæruna. „Þegar ég lagði inn umsóknina komst ég að því að maðurinn hafði aldrei skráð mig með lögheimili á Íslandi og heldur ekki sótt um makaleyfi fyrir mig. Ég treysti honum, en komst síðan að því að hann hafði í raun gert allt til þess að gera mig ólöglega hérlendis og halda mér utan við kerfið,“ segir Sara og bætir við: „Mér finnst mjög erfitt að vera í þeirri stöðu sem ég er núna. Ég hef fengið vilyrði frá Út- lendingastofnun um að mér verði alltjent ekki vísað úr landi þangað til að kæra mín fer fyrir dómstóla. Ég má hins vegar ekki vinna og hef því enga möguleika á að sjá fyrir mér,“ segir Sara og tekur fram að hún sé upp á náð og miskunn vinafólks komið sem hafi gaukað að sér mat. Segist hún hafa leigt sér lítið her- bergi úti í bæ eftir að hún fór úr Kvennaathvarfinu í apríl sl. „Ég hef neyðst til að vinna svart til þess að geta séð fyrir mér, en hef enga vinnu í augnablikinu og veit því ekki hvernig ég á að fara að því að greiða húsaleiguna næstu mánaðamót,“ segir Sara, sem aðeins nýverið komst í samband við Rauða kross Íslands sem er að skoða aðstæður hennar. Heldur enn í vonina Að sögn Söru hefur hún á umliðn- um mánuðum reynt að leita sér að- stoðar m.a. hjá dómsmálaráðuneyt- inu, íslenska flugfélaginu þar sem hún og unnusti hennar unnu, sem og ýmsum félagasamtökum og -stofn- unum. „Ég hef alls staðar komið að lokuðum dyrum. Mér er tjáð að staða mín sé svo flókin að það sé ekkert hægt að gera fyrir mig. Tvisvar hefur mér verið boðinn flug- miði heim aftur til Venesúela,“ segir Sara og tekur fram að í annað skipt- ið hafi það verið starfsmaður hjá flugfélaginu sem um ræðir sem hafi boðið henni slíkan miða. Að sögn Söru ræddi hún við yfirmann flug- stjórans hjá flugfélaginu og lýsti bæði aðstæðum sínum og árásinni. „Hann bauð mér flugmiða. Í fram- haldinu veit ég til þess að flugstjór- inn var sendur í tuttugu daga með- ferð og er enn að fljúga.“ Stuttu eftir að Sara sótti um dval- arleyfið í febrúar sótti hún um skólavist hjá Háskóla Íslands til þess að komast í íslensku fyrir út- lendinga, en Sara er langskólageng- in í heimalandi sínu, lauk meist- araprófi í stjórnmálafræði og stjórnsýslu og talar auk spænsk- unnar afbragðsgóða ensku. „Ég fékk inngöngu í námið, en í fyrsta lagi hef ég ekki efni á að greiða 45 þúsund krónur sem námið kostar og í öðru lagi hefur mér verið tjáð af Útlendingastofnun að ætli ég að fara í nám hérlendis þá þurfi ég að sækja um dvalarleyfi sem náms- maður og þar með byrja á öllu um- sóknarferlinu aftur, auk þess sem mér skilst að slíku leyfi fylgi ekki at- vinnuleyfi. Hvernig ætti ég þá að geta séð fyrir mér?“ spyr Sara sem heldur enn fast í vonina um lausn sinna mála. ð gera mig ólöglega hérlendis“ Morgunblaðið/ÞÖK sáras fyrrum unnusta síns til lögreglunnar í byrjun árs og íhugar einnig að kæra smyglið á sér. Myndin er sviðsett. Morgunblaðið/Ómar á að sjá brottfararspjöld við komuna til landsins. Í lögum um útlendinga, nr. 96/2002, er í 4. gr. kveðið á um það að hver sá sem kemur til lands- ins skuli þegar í stað gefa sig fram við vega- bréfaeftirlitið eða næsta lögregluyfirvald, nema um för yfir innri landamæri Schengen-svæðisins sé að ræða. Í 57. gr. kemur fram að það varði sektum eða fangelsi allt að sex mánuðum ef maður af ásetningi eða gáleysi brjóti gegn lög- unum. Þar segir einnig að það varði sektum eða fangelsi allt að tveimur árum ef maður af ásetn- ingi eða stórfelldu gáleysi aðstoði útlending við að koma ólöglega hingað til lands. Eftir því sem blaðamaður kemst næst þá er starfsvenjan sú að allir borgarar frá þriðja ríki, þ.e. landi utan EES, fá stimpil í passa sinn þegar þeir koma inn á Schengen-svæðið. Eins og fram kemur í viðtalinu við Söru, fór hún ekki í gegn- um vegabréfaskoðun við komuna til landsins og var gerð athugasemd við passa hennar þegar hún í nóvember sl. fór utan til Bandaríkjanna í nokkra daga. Samkvæmt upplýsingum frá landamæraeftirliti lögreglunnar á Suðurnesjum myndi skortur á stimpli valda grunsemdum, en hins vegar þekkist dæmi þess erlendis frá að lát- ið hafi verið hjá líða að stimpla í vegabréf borg- ara frá þriðja ríki við komu viðkomandi inn í Schengen. Því sé ekki alltaf hægt að sannreyna með innkomustimpli hvenær viðkomandi hafi fyrst komið inn á Schengen-svæðið. Hefði ekki þurft að vera ólögleg Þess ber að geta að hefði Sara gefið sig fram við vegabréfaeftirlitið við komu sína til landsins í september sl. þá hefði henni verið heimilt að dvelja hérlendis og á Schengen-svæðinu í allt að þrjá mánuði, því samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun þurfa ríkisborgarar Vene- súela ekki vegabréfsáritun til að ferðast til Ís- lands. Með því að gefa sig ekki fram við landa- mæraeftirlitið við komuna til landsins varð Sara sjálfkrafa ólöglegur innflytjandi í landinu og gerðist brotleg við lög. En ekki bara hún heldur einnig flugstjórinn sem hafði umsjón með fragt- fluginu, því samkvæmt 10. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga skulu skipstjórar og flug- stjórar við komu til íslenskrar hafnar eða flug- vallar frá ríki sem ekki tekur þátt í Schengen- samstarfinu sjá um að farþegar yfirgefi ekki skip eða loftfar fyrr en vegabréfaskoðun getur farið fram. Sé brotið gegn þessum lögum er það á ábyrgð lögreglustjórans í því umdæmi sem komið var inn í landið að rannsaka málið og gefa út ákæru þyki ástæða til. Þar sem Sara lenti í Keflavík er það á hendi lögreglustjórans á Suð- urnesjum. Samkvæmt heimildum blaðamanns hefur enn ekki reynt á þessi lög hérlendis. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er líkamsárásarkæra Söru til meðferðar hjá lögfræðideild lögreglunnar og er þar verið að leggja mat á hvort gefin verði út ákæra. Eftir því sem blaðamaður kemst næst er í flestum heimilisofbeldismálum ákært á grund- velli 217 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/ 1940. Í þeirri grein segir: „Hver, sem gerist sek- ur um líkamsárás, enda sé hún ekki svo mikil sem í 218. gr. segir, skal sæta sektum eða fang- elsi allt að 6 mánuðum, en fangelsi allt að 1 ári, ef háttsemin er sérstaklega vítaverð.“ Eins og áður hefur komið fram í Morgun- blaðinu þá þekkist það að konur af erlendum uppruna þori ekki að yfirgefa ofbeldisfulla maka sína af ótta við að verða í framhaldinu vísað úr landi. Í tilfelli Söru voru hún og unnusti hennar hins vegar ekki gift og ekki hafði verið sótt um makaleyfi fyrir hana. Umsókn hennar um dval- arleyfi í febrúar sl. var því fyrsta umsóknin hennar í kerfinu. Ekki fengust upplýsingar um það hvort það gerði stöðu hennar veikari eða við- kvæmari fyrir en ella. Málið til skoðunar hjá Útlendingastofnun „Mál þessarar konu verður skoðað og metið í heild sinni. Allir þessir þættir verða skoðaðir,“ segir Ragnheiður Böðvarsdóttir, staðgengill for- stjóra Útlendingastofnunar. Vísar hún þar til þátta á borð við aðstæður umsækjanda í heima- landi, tildrög þess að viðkomandi kom til Íslands og tengsl umsækjanda við landið, auk allra þeirra sjónarmiða sem umsækjandi kemur á framfæri við stofnunina. Meðal slíkra þátta gæti verið líkamsárásarkæra og áverkavottorð. Spurð hvort til greina komi að veita Söru dval- arleyfi af mannúðarástæðum segir Ragnheiður að skoðað verði hvort slíkt eigi við. „Almennt gildir að ef það er vitneskja um sérstakar að- stæður þá er horft til þess við ákvörðunartöku.“ Eftir því sem blaðamaður kemst næst hefur sambærilegt tilfelli og mál Söru ekki komið inn á borð hjá íslenskum yfirvöldum áður. Ekki er hins vegar óþekkt að hælisleitendur komi til Ís- lands á fölskum skilríkjum eða jafnvel skilríkja- lausir. Það hefur þó ekki útilokað að fólk í þeirri stöðu hafi getað fengið dvalarleyfi hérlendis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.