Morgunblaðið - 20.08.2007, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ankara. AFP. | Tyrkneska lögreglan
yfirheyrði í gær mennina tvo sem
rændu tyrkneskri flugvél sl. laugar-
dagsmorgun. Mennirnir reyndust
vera 27 ára gamall Tyrki og 33 ára
gamall Egypti af palestínskum upp-
runa, sem ber sýrlenskt vegabréf.
Tyrkneska ríkisfréttastofan Anat-
olia fullyrðir að sá síðarnefndi hafi
verið fengið þjálfun hjá al-Qaida
hreyfingunni áður en ránið var fram-
ið, en hann mun eitt sinn hafa dvalið í
fangaklefa með hátt settum manni
innan samtakanna. Nokkrir farþeg-
anna í vélinni höfðu áður fullyrt að
mennirnir hefðu sagst vera á vegum
al-Qaida.
Lögreglan hefur nú upplýst að
sprengjan sem mennirnir sögðust
vera með reyndist vera leirklumpur.
Gert er ráð fyrir að mönnunum verði
birtar ákærur á miðvikudag.
Flugræn-
ingjar yf-
irheyrðir
Annar reyndist
Tyrki, hinn Egypti
ÞESSAR litríku stúlkur eru hluti af hópi mótmælenda
sem tóku sér stöðu við Heathrow-flugvöll á Englandi í
gær. Mótmælendurnir hafa áhyggjur af loftslagsbreyt-
ingum og söfnuðust saman við flugvöllinn í tilefni þess
að byggja á nýja flugbraut við völlinn, en þeir telja að
aukin flugumferð sé ekki til bóta. Í gær marseruðu mót-
mælendurnir um svæðið, en lofuðu að hindra ekki för
flugfarþega. Til smávægilegra átaka kom við lögreglu.
AP
Mótmælt við Heathrow-flugvöll
Pisco. AFP. AP. | Rotnandi lík eru
hvarvetna, óprúttnir aðilar fara
ránshendi um rústir heimila sam-
borgara sinna og heilbrigðisyfirvöld
standa í ströngu við að berjast gegn
útbreiðslu sjúkdóma, fjórum dögum
eftir að jarðskjálfti sem mældist 8
stig á Richter-skalanum reið yfir
landið. 500 létust og 1.600 slösuðust.
Björgunarmenn eru enn að störfum,
en nánast engar vonir standa til
þess að finna nokkurn á lífi nú.
Alan Garcia, forseti Perú, hefur
hótað að setja á útgöngubann til
þess að torvelda sveitum ruplara að
fara ránshendi um rústirnar. Her-
inn skálmar um götur Pisco til þess
að gæta þess að ekki myndist al-
gjört stjórnleysi, en Pisco er sú
borg sem fór verst út úr skjálft-
anum.
Mörg þúsund eru heimilislaus eft-
ir skjálftann og er hungrið farið að
sverfa að. Í Chincha reyndi hópur
fólks að brjótast inn á spítala í
þeirri trú að þar mætti finna neyð-
arvistir. Garcia forseti fullyrðir þó
að enginn muni svelta. Þegar hafa
um 600 tonn af mat og öðrum hjálp-
argögnum borist með um 280 flug-
vélum.
Hjálparstarfsmenn segja að
mengað vatn skapi mikla sjúkdóma-
hættu, því bæði eru mörg lík enn
ófundin og ekki er hægt að losna við
úrgang á skipulegan hátt.
Ástandið
enn erfitt
í Perú
Glímt við eftirmál
jarðskjálftans
Xintai. AFP. | 172 námumenn sem
tepptust neðanjarðar eru nú taldir af
í Shandong-héraði í Kína, en náman
hvarf undir flóð á föstudag.
Um 200 aðstandendur brutust í
gegnum öryggisgirðingu í gær því
orðrómur var á kreiki um að björg-
unaraðgerðum hefði verið hætt og
kom til átaka við öryggisverði. Yfir-
maður kínverska vinnueftirlitsins
sagði björgunaraðgerðir standa yfir,
en að hjálparsveitir þyrftu að fara
öllu með gát af ótta við frekari flóð.
Ekkert hefur heyrst til mannanna.
172 Kínverj-
ar taldir af
Bangkok. AFP. | Taílendingar kusu
sér nýja stjórnarskrá í gær, í
fyrstu kosningunum sem haldnar
hafa verið í landinu frá því að
valdarán var framið þar í sept-
ember sl. Útgönguspár gáfu það til
kynna að stjórnarskráin hefði ver-
ið samþykkt með um 70% atkvæða
og lýsti ríkisstjórn hersins, sem
hefur verið við völd allt frá bylt-
ingunni, yfir sigri í gær.
Sonthi Boonyaratglin, yfirmaður
hersins, sagði að þessi niðurstaða
þýddi að nú gæti þjóðin aftur siglt
lygnan sjó eftir árslangan óvissu-
tíma. Hann sagði jafnframt að úr
því að stjórnarskráin hefði verið
samþykkt yrðu haldnar almennar
þingkosningar seinna í ár. Hann
vildi ekki staðfesta hvenær þær
yrðu haldnar, en sagðist telja við-
eigandi að þær yrðu eftir afmæli
konungsins, sem er 5. desember.
En ekki eru allir jafnánægðir.
„Leiðtogar ríkisstjórnarinnar hafa
blekkt fólkið með því að fullyrða
að kosningar yrðu ekki haldnar
nema stjórnarskráin yrði sam-
þykkt. Þeir takmörkuðu tjáning-
arfrelsi fólks með herlögum,“
sagði Chaturon Chaisang, fyrrum
leiðtogi stjórnmálaflokksins Thai
Rak Thai, sem nú hefur verið
leystur upp og bannaður. Aðrir
segja niðurstöðuna vera skilaboð
frá Taílendingum um að þeir vilji
fá að kjósa sér stjórn.
Þeir sem eru andsnúnir nýju
stjórnarskránni segja að hún dragi
úr völdum þjóðkjörinna embættis-
manna, dragi til baka þær fram-
farir sem fyrri stjórnarskrá frá
árinu 1997 fól í sér, og ýti undir
veikar samsteypustjórnir sem her-
inn gæti auðveldlega beygt undir
sig.
Taílendingar samþykkja
nýja stjórnarskrá
Kosningarnar þær fyrstu sem haldnar hafa verið frá valdaráninu í fyrra
Reuters
Kosning Meðlimur í Hmonghæðar-
ættbálknum greiðir atkvæði.
Í HNOTSKURN
»Um sextíu prósenta kjör-sókn var í kosningunum.
»Stjórnarskrá landsins frá1997 var ógild við valda-
ránið.
»Á síðustu 75 árum hefur 18sinnum verið gert valda-
rán í Taílandi og 24 forsætis-
ráðherrar hafa setið á valda-
stóli.
Baghdad. AFP. AP. | Utanríkisráð-
herra Frakka, Bernard Kouchner,
birtist óvænt í Bagdad um kl. 18 í
gærkvöld og hyggst dvelja í Írak í
þrjá daga. Heimsóknin hafði ekki
verið tilkynnt fyrirfram, heldur
greindu frönsk stjórnvöld frá henni
þegar Kouchner var kominn til Írak.
Kouchner bauð Írökum stuðning við
að stöðva blóðbaðið í landinu. „Við
erum tilbúin til þess að gera gagn, en
lausn vandans er í höndum Íraks,
ekki Frakklands,“ sagði ráðherrann
í gær.
Tímamótaheimsókn
Frakkar hafa árum saman átt í
nokkuð stirðum samskiptum við
Bandaríkjamenn vegna ástandsins í
Írak. Er heimsókn Kouchners fyrsta
heimsókn fransks ráðherra til Íraks
frá innrás Bandaríkjanna árið 2003.
Franska utanríkisráðuneytið sagði
heimsóknina vera til þess að bera
Írökum „skilaboð um franska sam-
stöðu“ og að Kouchner væri þar í
boði Jalals Talabani, forseta Íraks.
Heimsókn Kouchners kemur í
kjölfarið á fundi Nicolas Sarkozy og
George Bush í Bandaríkjunum, þar
sem vel virtist fara á með þeim.
Kouchner
fór til Írak
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@mbl.is
FELLIBYLURINN Dean skall á
Jamaíku í gærkvöldi og var þá orðinn
fjórða stigs fellibylur. Þegar í gær-
kvöldi hafði Dean orðið að minnsta
kosti sex manns að bana eftir æðis-
gengna ferð sína um Karíbahafið.
Hús voru rýmd allt frá Cayman-
eyjum til Texas og skemmtiferðaskip
hafa þurft að sigla á fullri ferð í skjól.
Ferðamenn hafa flykkst heim frá hin-
um vinsælu sólbaðsstöðum sem eru í
braut bylsins, en ekki komust allir á
brott áður en flugvöllum var lokað. Í
Mexíkó hafa 530 neyðarskýli verið
reist og ferðamenn flúið frá Yucatan-
-skaga í stríðum straumum. Í gær var
tólf tómum flugvélum flogið á staðinn
til þess að ferja fólk á brott.
Ekki fóru allir í skjól
Forsætisrráðherra Jamaíku sár-
bændi íbúa að leita skjóls, skömmu
áður en bylurinn kom að ströndum
eyjunnar, en nokkur misbrestur virt-
ist vera á því að því boði hans væri
hlýtt. Stjórnvöld höfðu sett upp um
1.000 neyðarbyrgi, t.d. í skólum og
kirkjum, en að sögn yfirmanns al-
mannavarna á eyjunni var aðeins fólk
í 47 þeirra þegar stormurinn skall á.
Allir lögregluþjónar, slökkviliðsmenn
og fangaverðir á eynni voru kallaðir
út til þess að vinna að björgunarstarf-
inu.
Óttast var í gærkvöldi um örlög 17
spænskra kafara, sem höfðu neitað
að yfirgefa sandgrynningarnar Pedro
Cays, 80 kílómetra suður af Jamaíku,
en talið er ómögulegt að hefja björg-
unaraðgerðir eftir að bylurinn er
skollinn á.
Veðurfræðingar búast við því að
Dean eigi enn eftir að magnast og
muni ná fimmta og efsta stigi flokk-
unarkerfis fellibylja áður en hann
nemur land á Cayman-eyjum og svo í
Mexíkó.
Í Texas búa yfirvöld sig undir
komu Dean miðað við að hann skelli
beint á ríkinu, sem þó er heldur ólík-
legt, en yfirvöldum eru mannskaða-
fellibyljirnir Ríta og Katrín í fersku
minni.
Fellibylurinn Dean er orðinn einn af stærstu skrásettu stormum veðursögunnar
Dean æðir í átt að Mexíkó
! "#$%
% & '%
(
)"
* + "
,-) +./*#(+* +!
+ + 01"
" *+% /
+1
!"
# !% &
' ( ) *' "&+ !
, 2
-!./&!
01
23
45 -6
14
67 41 +4
* #!
3
4
3 4 5 "&
" % 1
8
98
5 "(
+
:8
;
<%
!% &=,> 6?3@A
B +62
6 +'
B +62
,+*
B +62
%%
B +62
"
+62
3
B +62
,#
CD ,&,
*, !&,
?
7
"'
&
-&,
♦♦♦