Morgunblaðið - 20.08.2007, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.08.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2007 11 Íslenzkur sjávarútvegur er ótrúleg atvinnu-grein. Fyrir um það bil aldarfjórðungivoru erfiðleikarnir gífurlegir. Skipin alltof mörg og útgerðin óhagkvæm þrátt fyr- ir mikinn afla. Aflanum var hrúgað á land í vinnslu sem var vanbúin til að taka við svo mikl- um afla og vinnsluvirði afurðanna var lítið. Mikil skreiðarverkun er gott dæmi um það. Þessum erfiðleikum var mætt með niðurfellingu skulda við Byggðastofnun og ríkisbanka, sem töpuðu gífurlegum fjárhæðum. Að auki var staðan reglulega bætt með gengisfellingum upp á tugi prósenta nærri ár hvert og skertust lífskjör þjóðarinnar að sama skapi. Þetta var ljót mynd, eiginlega hryllingsmynd, og furðu margir virðast búnir að gleyma henni. Nú er staðan öll önnur. Ríkisafskipti af sjávar- útveginum eru að heita má engin önnur en þær eðlilegu starfsreglur og skorður sem atvinnu- greininni eru settar. Sjávarútvegurinn gerir meira en að standa á eigin fótum. Hann skilar raunverulegum tekjum í þjóðarbúið og er fær um að taka á sig áföll eins og niðurskurð þorsk- kvótans. Niðurskurður eins og nú hefði leitt til hrikalegs samdráttar og tugprósenta geng- isfellinga fyrir 30 árum. Reyndar hefðu pólitík- usar þeirra ára tæplega haft þrek og þor til svo harkalegra aðgerða. Það er meira að segja svo að undir þessum kringumstæðum sjá sumir sér sóknarfæri. Vestmannaeyingar kaupa ný skip og berja sér á brjóst fullvissir þess að þeir klári sig á dæminu. Þeim dettur ekki hug að vera með eitthvert væl. KG Fiskverkun á Rifi reisir nýtt fiskverk- unarhús og stjórnendur horfa bjartsýnir fram á veginn. Það er gaman að svona mönnum. Fyrir 30 árum hefði myndazt löng röð útgerðarmanna hjá bankastjórum ríkisbankanna og Byggða- stofnun við aðstæður sem þessar. Ekki núna. Þessar aðstæður eru vissulega erfiðar en já- kvæð viðbrögð hljóta að vera svarið. Menn þreyja þorrann og góuna og njóta svo ávaxt- anna þegar þar að kemur. Svona viðbrögð ættu að leiða til bjartsýni og jákvæðrar umræðu um sjávarútveginn og það góða sem menn eru að gera þar. Sjávarútvegurinn hefur gengið í gegn- um gífurlegar breytingar á síðustu áratugum, líklega einhverjar þær mestu sem nokkur at- vinnugrein hefur gert. Hæfir stjórnendur hafa stýrt fleyjum sínum gegnum mikið öldurót í formi aflaskerðinga og gengissveiflna og skilað þeim heilum til hafnar. Gífurleg hagræðing hef- ur átt sér stað og hefur hún leitt til betri af- komu. Umræðan um sjávarútveginn hefur verið neikvæð undanfarin misseri og verið honum þungbær. Við ættum að horfa til þess sem vel er gert í umræðunni og hjálpast að við að leysa það sem miður fer. Gefum sjávarútveginum frið til að vinna sig út úr þeim erfiðleikum sem nú standa fyrir dyrum. Það er gaman að svona mönnum » Þetta var ljót mynd, eig-inlega hryllingsmynd.BRYGGJUSPJALL Hjörtur Gíslason hjgi@mbl.is „VIÐ erum bara bjartsýn á fram- vinduna og ætlum að halda okkar striki. Við fáum mikla skerðingu á þorskkvótann eins og aðrir, en stefnum að því að bæta það upp með leigu og kaupum á aflaheim- ildum,“ segir Hjálmar Kristjánsson, framkvæmdastjóri KG Fiskverkun- ar á Rifi. Fyrirtækið hefur tekið í notkun nýtt fiskverkunarhús við höfnina á Rifi og jafnframt hefur KG Fisk- verkun tekið yfir útgerð Tjalds SH af Brimi. Nýja húsið er 2.800 fer- metrar að stærð og vinnslusalur er um 2.000 fermetrar. Salurinn er hannaður fyrir vinnslu á söltuðum flökum. Gert er ráð fyrir að hægt sé að vinna úr 20 tonnum af hráefni á dag. Stefnt er að því að gera Tjaldinn meira út en áður, en hann er með línubeitningu um borð. Kvóti fyr- irtækisins var 1.800 þorskígildis- tonn á þessu ári, þar af 1.000 tonn af þorski. Þau skerðast nú um ríf- lega 300 tonn. „Það verður náttúrlega svolítið erfitt að fara inn í nýtt fiskveiðiár með þessa miklu skerðingu í þorski. Menn þurfa að horfa öðruvísi á hlutina. Ég hef fulla trú á því að þetta komi til með að skána með tímanum og það þýðir ekkert að leggja árar í bát. Við ætlum að halda okkar striki og enginn bilbug- ur á okkur. Við ætlum að afla okkur meiri heimilda til að bæta skerð- inguna upp. Við erum með nóg af góðu starfsfólki og því er ég bjart- sýnn á framvinduna,“ segir Hjálm- ar Kristjánsson. Fiskvinnsla KG Fiskverkun á Rifi hefur tekið í notkun nýtt fiskverkunarhús. Fólkið Frumkvöðlar og forystumenn. Kristján Guðmundsson, stofnandi KG Fiskverkunar, eiginkona hans Ragnheiður Hjálmtýsdóttir og sonur þeirra Hjálmar Kristjánsson, sem nú er við stjórnvölinn. Enginn bil- bugur á okkur KG Fiskverkun tekur nýtt fiskverk- unarhús í notkun við höfnina á Rifi STÆRSTU sjávarútvegfyrirtæki Nýja Sjálands hafa lagt til að leyfileg- ur heildarafli af hokinhala verði skor- inn niður um 20.000 tonn. Með því vilja þeir vernda stofninn, sem hefur farið minnkandi undanfarin ár. Það eru fyrirtækin Sealord, Aotea- roa Fisheries og Sanford, sem vilja að heildarkvóti næsta fiskveiðiárs verði minnkaður niður í 80.000 tonn úr 100.000 tonnum. Árið 2001 var heild- arkvótinn 250.000 tonn og hefur hann verið minnkaður jafnt og þétt síðan. Hokinhalaveiðarnar eru mikilvæg- ustu veiðarnar við Nýja Sjáland og skiluðu tæplega átta milljarða króna tekjum á síðasta ári. Sjávarútvegs- fyrirtækin segja að það séu náttúru- legar ástæður fyrir því að stofninn hafi minnkað. Ekki sé um að kenna ofveiði eða eyðileggingu viðkvæmra svæða vegna togveiða. Þeir vilja auka hlutfall hokinhala, sem tekinn er á Chatham-hásléttunni og í Cook- sundi, úr 60% í 75% til að minnka veiðiálagið á öðrum slóðum vestan við eyjarnar, þar sem staða stofnsins er slökust. Vilja minni kvóta á hokinhala ÚR VERINU Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is COUNTRYWIDE Financials, stærsti húsnæðislánabanki Bandaríkjanna, gæti rambað á barmi gjaldþrots. Þetta kemur fram í nýju verðmati frá fjár- festingarbankanum Merrill Lynch sem mælir með því að fjárfestar selji hlutabréf sín í Countrywide snarlega. Aðeins eru nokkrir dagar síðan Mer- rill Lynch mælti með því að fjárfestir bættu við sig hlutabréfum í félaginu. Þá lækkaði alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s lánshæfiseinkunn Country- wide á fimmtudag og gaf til kynna að frekari lækkanir gætu átt sér stað inn- an skamms. Moody’s lækkaði einkunnina í kjöl- far tilkynningar frá Counrtywide þess efnis að bankinn hefði fullnýtt 11,5 milljarða dala lánsheimild sína hjá bandaríska seðlabankanum þar sem mjög illa gengi að afla fjár á markaði. Þá var ekki liðin vika frá því að bank- inn hafði lýst því yfir í skýrslu til bandaríska fjármálaeftirlitsins að handbært fé hans væri nægt til þess að takast á við ólguna á fjármagns- mörkuðum og þurrð á lánsfé. Countrywide Financials er sem áð- ur sagði stærsti lánveitandinn á bandarískum fasteignamarkaði og veitir bankinn fimmta hvert húsnæð- islán sem veitt er í Bandaríkjunum. Verði bankinn gjaldþrota er ljóst að það gæti ýtt enn frekar undir þann óróa sem ríkir á mörkuðum um þessar mundir. Gengi hlutabréfa Countrywide í kauphöllinni í New York hefur verið í frjálsu falli að undanförnu en líkt og önnur fyrirtæki hækkaði félagið tölu- vert á föstudag í kjölfar þess að banda- ríski seðlabankinn lækkaði daglána- vexti sína. Alls hækkaði bankinn um 13,09% á föstudaginn en enn er of snemmt að segja hvort sú þróun sé varanleg.                              Countrywide sagt geta verið á barmi gjaldþrots Moody’s lækkaði lánshæfismat bankans Reuters Wall Street Bréf húsnæðislána- bankans Countrywide eru skráð í kauphöllina í New York. BRESKA leikfangakeðjan Ham- leys, sem er í eigu Baugs, hefur tek- ið skartgripi fyrir börn úr hillum sínum eftir að í ljós kom að í vör- unum var of mikið magn blýs. Vör- urnar voru framleiddar í Kína en að undanförnu hafa komið upp fjöl- mörg tilvik þar sem komið hefur í ljós að vörur framleiddar í Kína innihalda í töluverðu magni ýmiss efni sem ekki þykja æskileg. Breska sjónvarpsstöðin Sky News greinir frá því að Hamleys hafi gripið til aðgerða eftir að dagblaðið Sunday Times lét efnagreina skart- gripina. Sem dæmi um þá barnaskart- gripi sem Sunday Times lét efna- greina var armband sem kostar tæplega 5 pund en blýinnihald þess var 93%. Ekki er mælt með því að blýinnihald sé meira en 0,06% en í Bretlandi er lögbundið hámarks- magn efnisins í leikföngum 0,1%. Þó eru engar reglur í gildi um hversu mikið blýmagn má vera í skartgripum ætluðum börnum. Magnið sem mældist í armbandinu hjá Hamleys mun vera nægilega mikið til þess að valda varanlegum heilaskaða og gæti jafnvel valdið dauða, leggi börn leikfangið sér til munns. Talsmaður Hamleys sagði í við- tali við Sky News að um leið og ljóst væri hversu hættulegar vörurnar voru hafi þær verið teknar úr hill- um verslunarinnar. „Við myndum aldrei selja eitraða skartgripi vís- vitandi enda tökum við heilsu og ör- yggi viðskiptavina okkar mjög al- varlega,“ sagði talsmaður Hamleys. Viðkomandi gat þó ekki staðfest hvort allar vörur verslunarinnar sem framleiddar eru í Kína yrðu prófaðar. Þetta er eins og áður segir ekki fyrsta dæmið um að afturkalla þurfi leikföng sem framleidd eru í Kína en leikfangarisinn Mattel þurfti í síðustu viku að endurkalla nærri tvær milljónir leikfanga sem seld voru í Bretlandi vegna ótta við of mikið magn blýs. Blý í skartgripum Hamleys frá Kína Morgunblaðið/Golli VIÐSKIPTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.