Morgunblaðið - 20.08.2007, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 20.08.2007, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2007 23 FRÉTTIR B ifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur hélt 28. Alþjóðarall sitt um helgina en Alþjóðarallið er stærsta og lengsta rallíkeppni sem haldin er hérlendis. Að þessu sinni voru eknar 25 sérleiðir í rallinu og nam vegalengd þeirra samtals 333,3 km en áhafnir keppnisbíl- anna þurftu að aka vel yfir þúsund kílómetra á þremur dögum. Þessi mikli akstur á erfiðum vegaslóðum reyndi mjög á keppendur og öku- tæki enda fór það svo að einungis þrettán áhöfnum af tuttugu og sex tókst að ljúka keppninni. Til skiptis í forystu Gífurleg spenna einkenndi rallið frá fyrstu ræsingu til loka seinustu sérleiðar. Sigurður Bragi Guðmundsson og Ísak Guðjónsson ræstu fyrstir þar sem þeir leiddu Íslandsmeist- aramótið eftir Skagafjarðarrallið en Daníel og Ásta Sigurðarbörn mættu ákveðin til leiks og tóku forystuna strax á fyrstu sérleið, Djúpa- vatnsleiðinni. En lánið lék ekki við systkinin því þau óku út af á síðustu leið fyrsta dags, í Gufu- nesi og töpuðu forystunni og féllu niður í þriðja sætið. Jón Bjarni Hrólfsson og Borgar Ólafsson ræstu fyrstir inn á Lyngdalsheiðina að morgni föstudagsins enda í forystu eftir fyrsta daginn. Þegar 2. áfanga keppninnar lauk um hádegið, eftir æðisgengna keppni á mörgum sérleiðum umhverfis Heklu, voru Sigurður Bragi og Ísak aftur komnir með forystuna en þeim tókst að halda þeirri forystu á 3. áfanga sem einnig var ekinn umhverfis Heklu. Tvöfaldir meistarar Sigurður Bragi og Ísak ræstu því fyrstir inn á Tröllháls en á Uxahrygg urðu þeir fyrir því óláni að olíuslanga í Mitsubishi Lancer bíl þeirra gaf sig svo að þeir urðu að hætta keppni. Jón Bjarni og Borgar tóku þá forystuna en Daníel og Ásta voru, þegar hér var komið sögu, búin að saxa verulega á forskotið sem hinir fengu eftir út- afkeyrslu systkinanna á fimmtudeginum. Spennan var mikil á síðustu leiðunum en það var ekki fyrr en á lokaleiðinni, Djúpavatnsleið, sem úrslitin réðust en þar tókst Daníel og Ástu að komst fram fyrir Jón Bjarna og Borgar. Sigurinn var mikilvægur fyrir Daníel og Ástu því með honum tryggðu þau sér Íslandsmeistaratitilinn í ralli 2007 og hafa 10,5 stiga forystu á Jón Bjarna og Borg- ar. Pétur S. Pétursson og Heimis S. Jónsson gátu einnig brosað breitt eftir Alþjóðarallið en þeir sigruðu bæði í 2000 flokki og Max1 flokki og gulltryggðu með því Íslandsmeistaratitlana í báðum þessum flokkum. Þeir óku vel í keppninni en slógu aðeins af á síðustu leiðunum þegar ljóst var að þeir voru komnir með afgerandi forystu. Í jeppaflokki sigruðu Hilmar B. Þráinsson og Vignir R. Vignisson á Grand Cherokee. Hilmar og Vignir stóðu sig mjög vel í rallinu og höfðu mikla yfirburði í Jeppaflokknum en auk þess að sigra þar tókst þeim að ná 4. sæti í opnum flokki og tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í jeppaflokki sam- kvæmt reglum LÍA. # Áhöfn Flokkun Bifreið Samtals 1 Daníel / Ásta N MMC Lancer Evo 6 3:24:59 2 Jón Bjarni / Borgar N Subaru Impreza 3:25:10 13 Fylkir / Elvar N Subaru Impreza 3:46:30 12 Hilmar / Vignir J12 Grand Cherokee 3:46:45 9 Pétur / Heimir Max1 Toyota Corolla 3:57:50 5 Sigurður Óli / Elsa N Toyota Celica GT4 3:58:16 10 Þórður / Magnús Max1 Toyota Corolla 4:06:55 16 Guðmundur / Ingimar J12 MMC Pajero Dakar 4:18:32 27 Henning/Rúnar Max1 Toyota Corolla 4:23:17 14 Guðmundur / Hörður J12 Tomcat RS 100 4:53:17 36 Björn / Þórey Max1 Toyota Corolla 4:56:49 30 Gunnar / Jóhann Max1 Suzuki Swift Gti-R 4:59:23 26 Dali / Óskar Max1 Trabant 601 5:52:29 28. Alþjóðarallið fór fram um helgina Hörkuspennandi keppni Ljósmynd/JAK Á Gufunesleið Hilmar B. Þráinsson og Vignir R. Vignisson á Grand Cherokee sigruðu í jeppaflokki en hér aka þeir Gufunesleið. Í forystu Daníel og Ásta gáfu tóninn strax á fyrstu sérleiðinni um Djúpavatn. Meistararnir Daníel og Ásta Sigurðarbörn fagna sigri í Alþjóðarallinu og Íslandsmeistaratitlinum ásamt aðstoðarmönnum sínum. Ekið greitt Pétur S. Pétursson og Heimir S. Jónsson nutu sín vel í Alþjóðarallinu þar sem þeir sigruðu í 2000 flokki og Max1 flokki og tryggðu sér jafnframt Íslandsmeistaratitlana í báðum þessum flokkum. Hér aka þeir suður Skógshraun og fara greitt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.