Morgunblaðið - 30.08.2007, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÍSLAND verður að axla nýja ábyrgð
innan NATO að mati Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráð-
herra, og þar með taka aukinn þátt í
nýjum verkefnum innan bandalags-
ins. Þetta sagði Ingibjörg á mál-
þinginu „Kapphlaupið um norður-
pólinn“ sem haldið var í gær í
tengslum við NATO- og friðarsam-
starfsæfinguna Northern Challenge
2007, en Ingibjörg nýtti þar tæki-
færið til að segja frá breyttum
áherslum í varnarmálum.
„Fram til þessa hefur Ísland verið
meira og minna þiggjandi í varnar-
samstarfi vestrænna ríkja,“ sagði
Ingibjörg og benti á að sá tími væri
nú liðinn, nú þyrfti Ísland að axla
ábyrgð. „Ég hef nýtt tímann frá því
að ný ríkisstjórn tók við til að und-
irbúa gerð vandaðs, faglegs ógnar-
mats fyrir Ísland.
Slíkt mat hefur
skort, það er
löngu tímabært
og allar áætlanir
um viðbúnað eru
að mínu mati
ófullnægjandi án
slíkrar undir-
stöðu.“
Ingibjörg sagði
jafnframt að beita
þyrfti lýðræðislegri vinnubrögðum
en hingað til þegar kæmi að þjóð-
aröryggi og efla þyrfti umræðuna til
að ná sátt um þessa sameiginlegu
hagsmuni þjóðarinnar. Í því skyni
væri nauðsynlegt að stofna öfluga
rannsóknarstofnun um öryggis- og
varnarmál sem tæki virkan þátt í al-
þjóðlegu fræðasamstarfi. Eins yrði
komið á fót samráðsvettvangi stjórn-
málaflokkanna til að ræða þessi mál.
„Þó Ísland sé hvorki stórt né fjöl-
mennt ríki fríar það okkur ekki frá
ábyrgð til þátttöku í alþjóðapólitísku
samstarfi. […] Við eigum að hafa
metnað og þor til þess að láta rödd
okkar heyrast.“
Ingibjörg nefndi rekstur loft-
varnakerfisins sem dæmi um sjálf-
stæða þátttöku Íslands í málefnum
NATO, auk aukinna afskipta í frið-
argæslumálum. Þó yrði það aldrei
hlutverk Íslands að taka að sér
„harðar varnir“, né að stofna íslensk-
an her, enda væri það ónauðsynlegt
og í andstöðu við íslenska hefð. Það
væri frekar á færi Íslendinga að
senda sérfræðinga til verka þegar
byssurnar væru þagnaðar, til að
vinna að friðaruppbyggingu.
Ógnarmat nauðsyn-
legt vörnum Íslands
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
ALLT bendir til að í ár verði metár í
mjólkurframleiðslu. Innvigtuð mjólk
var orðin 120,7 milljónir lítra þegar
fimm dagar voru eftir af verðlags-
árinu 2006/2007, að því er fram kem-
ur á vef Bændasamtakanna. Verð-
lagsárið er 1. september til 31. ágúst.
Aukning milli verðlagsára var orðin
10,1 milljónir lítra eða 9,31%. Þótti
ljóst að innvigtunin yrði ekki undir
122 milljónum lítra. Við það bætist
mjólk sem lögð er inn í Mjólku, u.þ.b.
ein milljón lítra.
Frá árinu 1959 til dagsins í dag
var árið 1978 metár þegar innvigtun
mjólkur náði 120,2 milljónum lítra.
Árið 1979 kom næst með 117,2 millj-
ónir lítra og árið 2006 í þriðja sæti
með 117,066 milljón lítra. Jón Viðar
Jónmundsson, nautgriparæktar-
ráðunautur hjá Bændasamtökum Ís-
lands, telur það borðleggjandi að
mjólkurframleiðsla hér á landi slái
fyrri met á þessu ári.
„Það getur ekkert orðið annað úr
þessu. Bændur hafa fengið það mikla
hvatningu frá mjólkuriðnaðinum og
farið að ég held fram úr væntingum
hans í framleiðslunni. Þeir hafa stað-
ið sig frábærlega,“ sagði Jón Viðar.
Hann sagði að nú væri hlutfallslega
meiri mjólkurframleiðsla á haust-
mánuðum en var á árum áður. Engin
ástæða sé til að ætla að hún verði
verulega minni á hausti komanda en
hún var í fyrrahaust.
Á vef Landssambands kúabænda
(LK) kemur fram að fjöldi mjólkur-
kúa á Íslandi sé nú um 25.000 en þær
hafi verið um 36.000 í kringum árið
1980. Greiðslumarkið á verðlags-
árinu sem nú er að líða, 116 milljón
lítrar, skiptist á milli u.þ.b. 750
greiðslumarkshafa (kúabænda) en
þegar LK var stofnað árið 1986 voru
þeir um 1.850 talsins.
Jón Viðar sagði að kúm væri hætt
að fækka eftir fækkun ár frá ári um
áratugaskeið. Raunar hafi þeim nú
örlítið fjölgað. Hann sagði að fram-
leiðsluaukninguna mætti þó frekar
þakka hækkun í meðalafurðum en
fjölgun kúa. „Bændur hafa verið
hvattir til að framleiða eins og þeir
geta og það hefur skilað sér í þessu.“
Framleiðslan á verðlagsárinu sem
nú er að líða verður um það bil sjö
milljónir lítra umfram greiðslumark-
ið upp á 116 milljónir lítra. Á vef
Bændasamtakanna er vitnað í viðtal
bbl.is við Guðbrand Sigurðsson, for-
stjóra MS. Hann segir MS hafa
keypt alla umframmjólk á þessu ári
og á síðasta ári. Einnig að greiðslu-
markið fyrir næsta ár verði 117 millj-
ónir lítra og vonast Guðbrandur til
að sjá á bilinu 6-7 milljónir lítra af
umframmjólk sem hægt verði að
nýta til útflutnings.
Allar horfur á að árið verði
metár í mjólkurframleiðslu
! " " #$" %
! !
ÍBÚÐARHÚS við Vesturveg í
Vestmannaeyjum og innbú í því
er mikið skemmt, ef ekki ónýtt,
eftir eldsvoða í gær.
Tilkynnt var um eldinn til lög-
reglunnar kl. 17.28. Að sögn lög-
reglu brugðust slökkviliðsmenn
afar skjótt við kallinu og voru
fljótir á staðinn.
Þegar þeir komu á vettvang
voru þrír fullorðnir, sem verið
höfðu í húsinu þegar eldurinn
kom upp, komnir út og sakaði þá
ekki. Gluggar og gættir voru
lokaðar þegar að var komið og
var eldurinn kafnaður, að sögn
lögreglunnar í Vestmannaeyjum.
Eldurinn hafði að öllum líkind-
um kviknað út frá steikingar-
potti.
Eldhúsið var talsvert brunnið
og mikill reykur og sót út um
allt í húsinu. Stöfuðu hinar miklu
skemmdir aðallega af þeim völd-
um, að sögn lögreglunnar.
Eldsvoði
í Eyjum
Morgunblaðið/Sigurgeir
Mikill viðbúnaður Slökkviliðið kom fljótt á vettvang við Vesturveg. Fólk sem hafði verið í húsinu var komið út.
LÖGREGLA höfuðborgarsvæðisins
kom að pilti um tvítugt sem var sof-
andi undir stýri bíls sem var kyrr-
stæður á miðri götu í Grafarvogi í
fyrrinótt. Nokkra stund tók að
vekja piltinn sem reyndist vera
bæði undir áhrifum áfengis og
fíkniefna. Pilturinn viðurkenndi að
hafa ekið bílnum og sagðist hafa
fengið ökutækið að láni en vissi
bara ekki hjá hverjum. Við frekari
athugun kom jafnframt í ljós að
pilturinn hafði verið sviptur öku-
leyfi fyrr í sumar og var hann hand-
tekinn.
Kærði tjón, var handtekinn
Karl á þrítugsaldri kom á hverfis-
stöðina í Breiðholti í fyrradag til að
tilkynna um tjón. Ekið hafði verið á
bíl hans sem hafði verið lagt á bíla-
stæði í hverfinu. Tjónvaldurinn
hafði í þokkabót stungið af.
Lögreglan efaðist ekki um frá-
sögn mannsins en hjá henni vökn-
uðu grunsemdir um að hann væri í
annarlegu ástandi. Svo reyndist
vera og var maðurinn handtekinn
fyrir að aka undir áhrifum fíkni-
efna.
Undir áhrifum
fíkniefna
♦♦♦
DEILISKIPULAG fyrir Helgafells-
land var samþykkt í gær á bæjar-
ráðsfundi Mosfellsbæjar, samkvæmt
tillögu skipulagsnefndar. Hafa íbúar
kvartað undan þungaflutningum um
veg sem liggur að Helgafellshverfi
og segja í raun búið að leggja veginn
fyrir samþykkt á deiliskipulagi.
„Það er í raun enginn vegur búinn
að vera […] við erum að klára deili-
skipulagið fyrir umræddan Helga-
fellsveg,“ segir Ragnheiður Rík-
harðsdóttir, bæjarstjóri Mosfells-
bæjar.
Skipulag
samþykkt
Morgunblaðið/Frikki
Bitbein Veginum umdeilda í Mos-
fellsbæ hefur nú verið lokað.