Morgunblaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Þvílíkur kuldi, þessi gæti nú hafa verið geymdur á Everest í heilt ár.
Nú er Samvinnunefnd um miðhá-lendið á ferð og að fenginni
reynslu er ástæða til að fylgjast vel
með hvernig þeirri ferð er háttað.
Til upprifjunar þá er Sam-
vinnunefnd um miðhálendið, nefnd-
in, sem vill byggja hótel upp undir
Langjökli.
Nú ætlar nefndin að bæta aðgengi
ferðamanna að Lakagígum, sem hef-
ur í sjálfu sér verið alveg bærilegt.
Í frásögn Morg-unblaðsins í
gær af þessu máli
er vitnað til Ósk-
ars Bergssonar,
formanns nefnd-
arinnar m.a. á
þennan veg:
„Óskar segir að
náttúran liggi
undir skemmdum vegna þess, að
ekki sé hugsað fyrir því, hvernig sí-
fellt vaxandi umferð um svæðið sé
stýrt. Annaðhvort verði því að
bregðast við túrismanum eða hrein-
lega loka hálendinu.“
Það er auðvitað alveg ljóst, að mik-il umferð ferðamanna getur
valdið miklu tjóni á vinsælum
áfangastöðum í óbyggðum eins og
dæmin sanna.
En þar með er ekki sagt að svarið
við þeirri hættu sé að ráðast í viða-
miklar framkvæmdir, hvorki við
vegagerð né önnur mannvirki. Svar-
ið getur líka verið gjaldtaka.
Ferðafélagi Íslands og ferða-félögum einstakra landshluta
hefur tekizt vel að haga skálabygg-
ingum þannig að þær séu í hófi.
Þessi félög hafa langa reynslu af
slíkri umgengni við óbyggðirnar.
Það er spurning, hvort ekki eigi að
fela þeim umsjón slíkra fram-
kvæmda. Þau hafa sýnt í verki í ára-
tugi að þeim er treystandi fyrir
þeim.
Náttúruverndarsamtök ættu hinsvegar að gefa fyrirætlunum
Samvinnunefndarinnar varðandi
Laka gaum.
STAKSTEINAR
Lakagígar
Samvinnunefnd á ferð
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!! "
!!
!!
#
!!
:
*$;<
!
*!
$$; *!
$%
&
'
%
'
( )'* )
=2
=! =2
=! =2
$('& ! + !,-" )!.
>;
?
*
"# $ !
$% &
/
'
(&
%
$ )
*+
=7
,
/# )00 ! )' 1
) ")+ !
3'45 @4
@*=5A BC
*D./C=5A BC
,5E0D ).C
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2 2
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
E
L
3
88
55
08
/2
0
0
7
Kringlunni · sími 568 4900
www.kello.is
Opið til kl. 21 í kvöld
Full búð
af nýjum vörum.
Hlýtt haust
VEÐUR
SIGMUND
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Ómar Ragnarsson | 29. ágúst
Óheyrileg spjöll
Sú afstaða margra Íslendinga að
yppta öxlum yfir Kyotobókuninni og
láta sér á sama standa
hvernig við förum að
ráði okkar í losun gróð-
urhúsalofttegunda er
ekki ábyrg og gengur
ekki til lengdar. Mér
hugnast ekki sú af-
staða margra að við eigum að segja
okkur úr alþjóðlegu samstarfi, verða
„frjáls“ í þessum efnum og fara okk-
ar fram, reisa olíuhreinsistöðvar og
risaálver og virkja alla orku landsins
sundur og saman án tillits til þeirra
óheyrilegu spjalla sem slíkt veldur.
Meira: omarragnarsson.blog.is
Ellý Ármannsdóttir | 29. ágúst
Slæmur andi
„Andfýlan út úr honum er alveg að
drepa mig,“ sagði huggulega vin-
kona mín sem stendur
okkur hinum langtum
framar hvað viljastyrk
snertir. „Hættu þá að
nota hvítlauk!“ sagði
ég og reyndi að róa
hana niður. „Ellý, það
er eitthvað mikið að honum því lykt-
in út úr honum er ógeð,“ sagði hún
og bætti við: „Ég er fyrir löngu hætt
að kyssa hann með tungunni.“ „Góða
vertu ekki svona pjöttuð. Þú sem
elskar manninn svo mikið,“ svaraði
ég. „Pabbi hans er eins!“ stundi hún.
Meira: ellyarmanns.blog.is
Dögg Pálsdóttir | 28. ágúst
Ánægjuleg skipun
Forseti Íslands hefur að tillögu
dómsmálaráðherra skipað nýjan
dómara við Hæstarétt,
dr. Pál Hreinsson. Ég
hafði veðjað á annan
umsækjanda, m.a.
vegna ungs aldurs
Páls, en hann er yngst-
ur þeirra sem sóttu um
að þessu sinni. Það hefur verið
ákveðin tilhneiging til að skipa í rétt-
inn einstaklinga sem orðnir eru
fimmtugir, þótt vissulegar séu
nokkrar undantekningar frá því. Ég
er ánægð með þessa skipun og trúi
ekki öðru en að hún verði óumdeild.
Meira: doggpals.blog.is
Guðríður Haraldsdóttir | 29. ágúst
Kúlurass og Strætó
Að ferðast með strætó
er góð skemmtun. Að
ferðast með mörgum
strætisvögnum sama
morguninn er bara
stórkostlegt. Það
rigndi mikið á Akranesi
en steypta skýlið við stoppistöðina á
Garðabraut er ónothæft því að
skemmtanaglaðir utanbæjarmenn
nota það til að kasta af sér vatni um
helgar og hafa víst gert í fjöldamörg
ár. Því var hárið blautt, krullað og
krúsílegt þegar stigið var upp í 7.41
vagninn í morgun. Ég bauð bílstjór-
anum gott kvöld, þar sem ég var
klukkutíma seinna á ferð en vanalega
en það var viljandi. Það tók þennan
klukkutíma að hrekja óvænt haus-
verkjarkvikindi á brott. Held svo að
Jónatan Bíbí hafi elt mig út á stoppi-
stöð, alla vega heyrðust undurþýð
hljóð frá mávi sem settist á ljósa-
staurinn við stoppistöðina.
Við farþegar í leið 15 lentum í um-
ferðarsultu á leið inn í höfuðborgina
og það var voða spennandi, allt geng-
ur vanalega svo snurðulaust fyrir sig
og það verður leiðigjarnt. Blá löggu-
ljós í göngunum „voru alveg að gera
sig“ líka og virkilega æsandi að velta
fyrir sér hvernig fólk löggan greip
þar og fyrir hvaða glæpi. Ákvað að
fara út hjá Ártúni og rifja upp kynnin
af milljóntröppunum, undir brúnni
og lúmsku brekkunni og taka 18 í
vinnuna. Ekki séns að ég nennti
labba frá Vesturlandsveginum núna,
ég var nógu blaut fyrir. Leið 18 er
hætt að ganga Stórhöfðann, við heil-
mikla sorg mína og annarra, heldur
gengur upp í Árbæinn áður en hann
fer hjá Lynghálsinum. Fullt af vögn-
um fer í Árbæinn, alla vega leið 5, og
því óskiljanlegt að láta okkur afplána
þennan rúnt, samt næs fyrir Árbæ-
inga að fá loksins góða þjónustu. Ég
velti því fyrir mér í morgun hvort
það gæti verið að erfiðleikar mínir
við að fá strætófar alla leið í vinnuna
tengdust því að Strætó bs vildi að ég
hefði flottan kúlurass af brekku-
göngu á morgnana? Neeee, hugsaði
ég, þeir vita af Nóa Síríus á leiðinni
og hættunum þar, nema þeir séu að
stjórna því að ég fái kúlurass og
reyni á sjálfstjórnina í leiðinni. Allir
velkomnir með mér á þetta frábæra
námskeið hjá strætó. Gangan upp
Súkkulaðibrekkuna hefst stundvís-
lega kl. 7.25 á morgnana.
Meira: gurrihar.blog.is
BLOG.IS