Morgunblaðið - 30.08.2007, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Meinafræðingur
í Vín heldur því
fram að læknir
Beethovens hafi
ráðið tónskáldinu
bana með því að
setja óvart of
stóran skammt
af blýi út í lyf
sem Beethoven
tók. Aðrir vís-
indamenn efast um þetta, en það er
þó óumdeild staðreynd að Beethov-
en hafði verið alvarlega veikur í
nokkur ár áður en hann lést 1827,
þá 57 ára.
Fyrri rannsóknir hafa sýnt að
Beethoven þjáðist af blýeitrun.
Fyrst kom í ljós hættulega mikið
magn af blýi í hári af honum, og
fyrir tveimur árum fannst það í
beinum hans. Þessar niðurstöður
höfðu rennt stoðum undir þá til-
gátu að blýeitrun hefði hrjáð
Beethoven og að endingu leitt hann
til dauða.
Meinafræðingurinn, Christian
Reiter, segir ítarlegar rannsóknir
sínar undanfarna mánuði á hárum
af Beethoven hafa leitt enn meira í
ljós. Niðurstöður hans voru birtar í
síðustu viku í Beethoven Journal
og sýna að síðustu mánuðina sem
Beethoven lifði jókst blýþétting í
líkama hans í hvert sinn sem hann
fór til læknis síns, Andreas Waw-
ruch, vegna vökva í kviðarholi.
Þessir stóru skammtar reyndu
mjög á lifur Beethovens, sem var
veik fyrir, og urðu honum loks að
aldurtila, sagði Reiter í viðtali við
Associated Press. Það var ekki fyrr
en lík Beethovens var krufið í Vín
26. mars 1827 að læknar komust að
því að hann hafði verið með skorpu-
lifur og bjúg í kviðarholinu.
Óvart ráð-
inn bani?
Beethoven gefið
of mikið blý
Beethoven
Í SKOTINU í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur verður opnuð í
dag sýningin Umkomulausu
börn Afghanistan.
Þar sýnir ljósmyndarinn
Dante myndir af börnum í
Afghanistan í daglegu lífi sem
einkennist af óróleika stríðs-
rekstrar og óstöðugleika á
svæðinu eins og alkunna er.
Dante stundaði nám í Gerrit
Rietveld Acadamy í Amst-
erdam, Hollandi og Institute of American Indian
Arts, Santa Fe í Nýju-Mexíkó og hefur unnið verk
sín að stórum hluta út frá arfleifð sinni sem
indíáni. Sýningin stendur til 24. október.
Myndlist
Umkomulausu
börn Afghanistan
Umkomulausu
börn Afghanistan.
HINN heimsþekkti saxófón-
leikari og djasskennari Jerry
Bergonzi verður með fyr-
irlestur í sal Tónlistarskóla
FÍH, Rauðagerði 27, í dag kl.
16.
Jerry Bergonzi er talinn
vera einn virtasti fræðimaður
djasstónlistar í dag. Á liðnum
árum hefur hann mótað sitt
eigið kennsluefni í snarstefjun
og er hann höfundur bóka-
flokks sem hann kallar Inside Improvisation.
Bergonzi mun fjalla ítarlega um bækur sínar í
fyrirlestrinum ásamt því að spila tóndæmi á saxó-
fóninn.
Fyrirlestur
Jerry Bergonzi í
Tónlistarskóla FÍH
Jerry Bergonzi
saxófónleikari.
JÓNAS Ingimundarson píanó-
leikari verður með einleiks-
tónleika í Sögusetrinu Hvols-
velli í kvöld kl. 21.
Tónleikar Jónasar eru liður í
menningarveislu Söguseturs-
ins þar sem áhersla er lögð á að
kynna bæði íbúa og gesti sveit-
arfélagsins fyrir menningar-
arfleifð svæðisins. Þá eru lista-
menn tengdir svæðinu í
hávegum hafðir. Jónas er
fæddur 30. maí 1944 á Bergþórshvoli í Vestur-
Landeyjum, Rangárþingi eystra. Nú heldur hann
tónleika á heimaslóðum og er þetta einstakt tæki-
færi til að hlýða á frábæran listamann.
Tónleikar
Jónas spilar í
Sögusetrinu
Jónas Ingimundar-
son píanóleikari.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
VALA Þórsdóttir var í vikunni
viðstödd frumsýningu á verki sínu
Eða þannig … í Svíþjóð. Forsaga
málsins á rætur að rekja til Lapp-
lands fyrir nokkrum árum.
„Kona sem heitir Ingeborg Spi-
ik hefur verið að vinna mikið síð-
ustu ár með ferðaleikhúshluta
Ríkisleikhússins í Svíþjóð og vinn-
ur því mikið með leikhúsum úti
um allt land. Hún er að hætta og
ákvað að flytja verkið mitt í öllum
leikhúsunum sem hún er að
kveðja,“ segir Vala. Spiik þessi er
í dómnefnd á evrópskri leiklist-
arhátíð fyrir konur í Tornio í
Lapplandi þar sem þær Vala hitt-
ust fyrst árið 2001. Það ár fékk
Vala verðlaun fyrir einleik sinn
Háaloft sem Spiik hreifst af.
„Hún bað mig um að senda sér
verkin mín og langaði mest að
setja upp Eða þannig … þar sem
það átti best við að hennar mati,“
segir Vala.
Umræðan um konur
„Verkið fjallar um konu sem er
nýfráskilin og uppgötvar að hún
hefur alla tíð bara gert það sem
manninum hennar finnst skemmti-
legt en hefur alveg gleymt að
hugsa um sjálfa sig. Hún ákveður
að berjast gegn dónalegri fram-
komu almennings við fráskilda
konu og klæðir sig upp sem hug-
myndalistaverk, eitt stykki kona í
endurvinnslu. Þannig fer hún á
ball klædd búningi merktum hinu
nýja hlutverki en þar skilur eng-
inn hvað hún er að gera svo þetta
verður tómt klúður hjá henni,“ út-
skýrir Vala sem skrifaði verkið
fyrst fyrir 13 árum.
Vala segir flutninginn á Eða
þannig … hafa tekist mjög vel fyr-
ir fullu húsi á þriðjudagskvöld.
„Meirihluti áhorfenda voru konur
eins og þær virtust skemmta sér
vel,“ segir Vala.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
verk Völu eru leikin á erlenda
tungu.
„Háaloft var sýnt árið 2002 í
Tyrklandi. Það var svolítið öðru-
vísi upplifun því ég skil ekki
tungumálið,“ segir Vala.
„Það er gaman að sjá erlendir
áhorfendur virðast hlæja á sömu
stöðum og fá tár í augun á sömu
stöðum í verkunum og Íslend-
ingar.“
Verk Völu virðast höfða til fólks
um alla heim, er eitthvað í þeim
að finna sem allir geta samsamað
sig við?
„Já, ætli það ekki. Verkin mín
snúast öll að mestu leyti um konur
og manneskjurnar að baki þeim.
Við glímum öll við svipuð vanda-
mál í hinum vestræna heimi. Svo
er ekkert svo mikið af verkum
sem eru eingöngu skrifuð fyrir
konur,“ segir Vala og segir hluta
af útbreiðslu verka hennar mega
rekja til þess hve hún hefur verið
dugleg að sækja leiklistarhátíðir
þar sem eitt leiðir oft að öðru í
kynnum við fólk í sama geira.
„Ég var í Tyrklandi í sumar og
komst að því að verið er að kenna
verkin mín í leiklistarskólum þar í
landi, en bók með þremur verkum
eftir mig kom út þar fyrir fimm
árum,“ segir Vala. „Það er mikil
umræða um stöðu konunnar í
Tyrklandi um þessar mundir og
það hefur eflaust áhrif,“ segir
Vala en verið er að þýða verk
hennar, Eldhús eftir máli, á tyrk-
nesku og auk þess er líklegt að
verkið Háaloft verði sett þar upp
á næstunni.
Leikverk Völu Þórsdóttur frumsýnt í Ríkisleikhúsinu í Svíþjóð
Háaloft, Eða þannig …
VERK eftir Völu Þórsdóttur hafa verið leikin í Svíþjóð og Tyrklandi. Auk
þess hafa þrjú leikverka hennar verið þýdd á tyrkneska tungu nú þegar og
þessa dagana er unnið að þýðingum á fjórða leikverkinu auk þess sem ör-
sagnasafn eftir Völu kemur út þar í landi á næsta ári.
Leikverkin eiga víða við
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
LISTASAFN Íslands mun halda sýningu á verk-
um Kristjáns Davíðssonar þann 3. nóvember
næstkomandi og sama dag mun koma út bók um
listamanninn sem varð níræður í sumar en er þó
enn í fullu fjöri sem myndlistarmaður. Meðal
þeirra sem skrifa í bókina er tékkneski rithöfund-
urinn Milan Kundera, en þeir Kristján eru ágætis
vinir og verk Kristjáns hafa prýtt nokkrar bækur
höfundarins.
Það var að ósk Kundera sem málverk eftir
Kristján birtist á kápu Bókarinnar um hlátur og
gleymsku þegar hún kom út á íslensku og þá var
frönsk útgáfa sögunnar Með hægð – La lenteur
með kápumynd eftir Kristján sem og ensk útgáfa
Óljósra marka – Identity og sú kápumynd var
einnig notuð á norska og franska útgáfu bók-
arinnar. Í Frakklandi hafa raunar verk tveggja
listmálara verið notuð á bækur Kundera, verk
Pablos Picassos og verk Kristjáns Davíðssonar.
Kundera og Kristján
Listaverk Kristjáns Ensk útgáfa Óljósra marka má sjá lengst til vinstri en sama mynd var not-
uð á frönsku og norsku útgáfuna. Næst kemur kápa franskrar útgáfu Með hægð og loks íslensk
kápa Bókarinnar um hlátur og gleymsku.
♦♦♦
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vala Leikverk eftir hana eru nú kennd í leiklistarskólum í Tyrklandi.
ALÞJÓÐLEG
kvikmyndahátíð í
Reykjavík í sam-
starfi við Jazzhá-
tíð Reykjavíkur,
sýnir í kvöld og á
morgun í Tjarn-
arbíói, heimilda-
og tónleikamynd-
ina Thelonious
Monk: Straight,
No Chaser (1988)
um ævi og feril píanósnillingsins
Thelonious Monk (1917-1982). Monk
var ein af goðsögnum djass-heimsins
og er sagður hafa verið upphafs-
maður „bebop“-stefnunnar. Fyrst
og fremst er Monk þekktur fyrir
einstakan spunastíl og það tók djass-
heiminn mörg ár að átta sig á sér-
stökum áherslum hans í píanóleik,
sem líktist gjarnan leik á áslátt-
arhljóðfæri. Monk var frægur bæði
sem píanóleikari og tónskáld og
stjarna hans skein skærast á sjötta
og sjöunda áratugnum. Thelonious
Monk hvarf af sjónarsviðinu árið
1970 og lést 12 árum síðar.
Stórsveit Reykjavíkur og Eivör
Í kvöld kl. 20 gefst útvarpshlust-
endum svo fágætt tækifæri til að
hlýða á Stórsveit Reykjavíkur í
beinni útsendingu með færeysku
söngkonunni Eivöru Pálsdóttur und-
ir yfirskriftinni „Tröllum gefin“. Ei-
vör gerði fyrir þremur árum geisla-
disk með stórsveit danska
ríkisútvarpsins, þar sem Peter Jen-
sen og Jesper Riis útsettu lög Ei-
varar fyrir stórsveit og nú mun Stór-
sveit Reykjavíkur spreyta sig á
þeirri tónleikabók.
Ítarlega dagskrá Jazzhátíðar í
Reykjavík má finna á www.jazz.is.
Thelonious
Monk í
Tjarnarbíói
Thelonious
Sphere Monk