Morgunblaðið - 30.08.2007, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 15
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 18:30 - 19:00
Brúnastaðir 25 - Raðhús
Sýnum í dag fallegt og vandað 209,8 fm endaraðhús á einni hæð. Í húsinu eru 4
svefnhebergi, 2 stofur, tvö baðherbergi bæði með sturtu. Allar innréttingar eru sér-
smíðaðar, einstaklega vel heppnuð innanhúshönnun er í þessu húsi. Sólpallur er í
garði, skjólveggir og rafmagnsnuddpottur.
Jóhann frá Fasteign.is verður á staðnum. S 860 0399
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Salou
í september
Sértilboð - frábær gisting
frá kr. 34.995
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 44.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í íbúð í viku
á Cye eða Aqua & Golden.
Aukavika kr. 14.000 á mann.
Brottför 31. ágúst, 7., 14. eða 21. september.
Verð kr. 34.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn
í íbúð í viku á Cye eða Aqua & Golden.
Aukavika kr. 14.000 á mann.
Brottför 31. ágúst, 7., 14. eða 21. september.
Aðeins örfáar íbúðir í boði
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð með gistingu á Cye íbúðahótelinu
í Salou eða Aqua & Golden hótelíbúðunum á Pineda ströndinni við
Salou. Í Salou er Port Aventura skemmtigarðurinn og Aquapolis
vatnsrennibrautagarðurinn er staðsettur í hjarta Pineda. Á báðum
íbúðahótelunum eru nýlegar loftkældar íbúðir með góðum aðbúnaði
fyrir gesti. Strönd, sól og skemmtun á frábæru verði.
TÓNLIST
Gljúfrasteinn
Kammertónleikar Beethoven: Fiðlusónata nr. 1 í D Op.
12,1. Kreisler: „Pugnani“ Preludium og
Allegro. Guðný Guðmundsdóttir fiðla,
Gerrit Schuil píanó. Sunnudaginn 26.
ágúst kl. 16.
HEIMILISLEGASTA tónleikaröð
höfuðborgarsvæðisins lauk sum-
arvertíðinni með 13. stofutónleikum
í húsi skáldsins sl. sunnudag við
húsfylli að vanda. Sem stundum áð-
ur sá maður ljóslifandi fyrir sér
tónsamkvæmislíf fyrri tíma í dag-
stofunni, enda voru þar skv. beztu
upplýsingum haldnir „soirée“-
tónleikar að meginlandasið um og
upp úr 1950 (þ.á m. með þátttöku
Rudolfs Serkin), jafnvel þótt ann-
áluð fullkomnunarhneigð nób-
elskáldsins tónelska ku hafa bannað
því beina þátttöku. Að votta skyldi
fyrir stakri hálfklökkri nótu á
Steinway-flyglinum gerði þetta
bara enn heimilislegra – ekki sízt í
ljósi hrópandi fágætis slíkra við-
burða í einkahíbýlum okkar tíma.
Guðný Guðmundsdóttir, kons-
ertmeistari SÍ, og hollenzki atgerv-
isinnflytjandinn Gerrit Schuil fluttu
fyrst 1. sónötu Beethovens frá
1798; verk í þáv. hefðbundnum
Hausmusik-anda – þó að við-
urkenna beri strax að gæða-
mælikvarði áhugaspilara, er þá
mynduðu meginmarkhóp tónskálda
í þýzkumælandi löndum, hafi
greinilega verið undrahár miðað við
seinni tíma. Túlkunin var ljúf og af-
slöppuð við hæfi.
Síðan tók við tvíþætt „bravúra“-
verk fiðlusnillingsins Fritz Kreis-
lers kennt við ítalska síðklassíkfiðl-
arann Gaetano Pugnani (1731-98);
einn margra „frumhöfunda“ er
Kreisler skýldi sér löngum að baki í
sjarmerandi smástykkjum sínum,
þótt gengið hafi loks fram fyrir
skjöldu 1935 og viðurkennt að þau
væru alfarið hans smíðar eins og
Guðný kynnti. Áhugaverðasta
spurningin – hvers vegna? – hélzt
þó enn sem fyrr ósvöruð.
Tónleikarnir mörkuðu jafnframt
vígslu nýrrar dökkleitrar fiðlu Guð-
nýjar eftir Hans Jóhannsson fiðlu-
smið – einn þeirra undra okkar
dvergríkis sem jafnvel í tugafalt
fjölmennari löndum eru teljandi á
fingrum. Í hverfandi endurómun
þéttsetinnar dagstofu var að vísu
frekar takmarkað hvað hljóðfærið
næði að njóta sín. En í átakameira
verki Kreislers var þó auðheyrt að
það barst mjög vel, og að styrkur
og hljómgæði héldust hnífjöfn á
öllu tónsviðinu í leiftrandi öruggri
meðferð þeirra félaga.
Ríkarður Ö. Pálsson
Ljúft og leiftrandi
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
NÚTÍMADANSHÁTÍÐ í Reykjavík
2007 er hátíð þar sem nútímadans-
verk á mismunandi stigum sköp-
unarferlisins eru sýnd og er hátíðin
kjörinn vettvangur fyrir nýja sköpun í
nútímadansi. Hátíðin breiðir úr sér
um borgina að degi til en á kvöldin
finnur hátíðin sér samastað í Verinu
við Nýlendugötu þar sem aðalsýning-
arnar eru. Á daginn verður hins vegar
boðið upp á dansgöngur um götur
Reykjavíkur þar sem dansað verður í
búðargluggum og eldhúsum borg-
arinnar. Tvær göngur verða frá Aust-
urvelli og hefst sú fyrri á föstudag kl.
17 og sú síðari á laugardag kl. 14 en
báðar eru um klukkustundar langar.
Hátíðin hefst í dag og lýkur sunnu-
daginn 2. september.
Dautt kjöt dansar
Ein þeirra sem eru með verk á há-
tíðinni er Margrét Sara Guðjóns-
dóttir. Hún lærði dans í Amsterdam
og hefur búið þar og í Berlín und-
anfarin níu ár. Hún hefur unnið með
danshöfundum á borð við Jan Fabre,
Thomas Lehmen, Eszter Salamon og
Constanza Macras. Á hátíðinni sýnir
hún verkið Dead Meat. „Þetta er verk
sem ég og fleiri höfum verið að vinna
að saman í Berlín þar sem við búum
og höfum verið að vinna hjá flokki sem
kallast Dorkypark. Þetta verk er
brotakennt, þemað er vald og vald-
beiting í ýmsum myndum,“ segir
Margrét Sara sem vinnur verkið
ásamt Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og
leikkonunum Ann Tismer og Rachel
Savonbelli. Margrét Sara heldur til
Suður-Ameríku í mánuð til að sýna og
seinna til Japans þar sem hún mun
vinna með hinni frönsku Gisele
Vienne auk þess sem hún mun ferðast
með verk hennar og Ernu Ómars-
dóttur, Mysteries of Love, sem fékk
Grímuna núna í vor.
En hver eru mörk dansleikhúss og
annarra lista? „Það fer eftir því hver
tekur þátt, það er ný stefna hjá sum-
um dönsurum þar sem fólk hikar ekki
við að reyna að brjótast úr viðjum
formsins, blanda því saman og vinna í
samvinnu við mismunandi listamenn
til að skapa eitthvað sem opnar nýjar
víddir í staðinn fyrir að flokka sig nið-
ur í fyrirfram gefin hólf listanna. En
eins og í öllum listum snýst þetta allt
um hvað er í hausnum á þér, inni í þér,
og hvað fær að koma út.“
Myndbandsverk,
sólóverk og játningar
Önnur verk á hátíðinni eru Crystal,
verk eftir Alice Chauchat og Alix
Eynaudi; sólóverk portúgalska dans-
arans Paulo Castro; Fred Gehrig sýn-
ir sólóverk auk þess að vinna að verki
með Nadiu Banine; Steinunn Ketils-
dóttir er með verk þar sem hún dans-
ar með Brian Gerke og Cameron
Corbett er einnig með verk. Þá mun
Jóhann Freyr Björgvinsson sýna
Játningar minnisleysingjans sem sýnt
var í Klink og Bank síðasta vor og
Ólöf Ingólfsdóttir mun verða með
verk ætlað börnum. Peter Anderson
hannar videodansverk sem sýnt verð-
ur víðsvegar á auðum veggjum bæj-
arins og gluggum verslana. Í forsal
Borgarleikhússins verður sýnt vid-
eoverk eftir Jared Gradinger og það
verður einnig sýnt víðsvegar um bæ-
inn. Hægt er að kaupa miða sem gildir
á alla hátíðina á 2.700 krónur en einn-
ig má kaupa miða á staka viðburði.
Dansandi fólk um
alla Reykjavík
www.dancefestival.is
Dans Margrét Sara Guðjónsdóttir sýnir verkið Dead Meat á hátíðinni en hún
lærði dans í Amsterdam og hefur búið þar og í Berlín undanfarin níu ár.
LISTASAFN Reykjavíkur og Landsbankinn hafa gert með sér sam-
komulag um samstarf vegna stórrar yfirlitssýningar á verkum Eggerts
Péturssonar á Kjarvalsstöðum sem opnuð verður 8. september.
Auk þess að styðja sýninguna með veglegu framlagi lánar Landsbank-
inn verk á sýninguna, en bankinn á eitt stærsta einstaka safn verka
Eggerts.
Framlag Landsbankans gerir Listasafni Reykjavíkur kleift að gefa út
bók um listamanninn en hluta framlagsins verður einnig varið í sýning-
argerðina sjálfa. Bókin, Eggert Pétursson, er 140 blaðsíður að lengd og
hana prýða fjölmargar myndir af verkum listamannsins frá uppafi ferl-
isins.
Verk Eggerts á sýningunni spanna feril hans frá upphafi til dagsins í
dag og hafa sum hver aldrei komið fyrir augu almennings áður. Sýning
Eggerts Péturssonar stendur til 4. nóvember.
Eggert Pétursson
á Kjarvalsstöðum
Morgunblaðið/G. Rúnar
Undirskrift Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Eggert
Pétursson og Halldór J. Kristjánsson frá Landsbankanum.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn