Morgunblaðið - 30.08.2007, Side 16

Morgunblaðið - 30.08.2007, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Á FUNDI byggingarfulltrúans í Reykjavík í fyrradag var samþykkt umsókn um að rífa núverandi hús á Laugavegi 4-6 og stigahús á Skóla- vörðustíg 1A en byggja þess í stað fjögurra hæða steinsteypt hótel og verslunarhús. Hugmynd um fjögurra hæða hús á þessum stað er ekki ný af nálinni. Reyndar er hún nær 70 ára gömul. Laugavegur 6 var í eigu Péturs W. Biering og afkomenda hans í 109 ár en Austurbakki hf. keypti húsið fyrir um 20 árum. Henrik C.J. Bier- ing, sonur hans, stundaði þar versl- unarrekstur í 32 ár og Henrik P. Biering, sonur hans, í 28 ár. Versl- unin hét fyrst Verslun H. Biering og síðan Biering búsáhöld. Teikningar samþykktar 1939 Henrik P. Biering rifjar upp að faðir sinn og Magnús Þorgeirsson, Magnús í Pfaff, sem hafi átt Lauga- veg 4, hafi um 1939 komið sér saman um eftir langvinnt þóf að byggja sameiginlega myndarlegt verslunar- hús á Laugavegi 4-6. Henrik segir að faðir sinn hafi verið fljótur til verka og þar sem hann hafi viljað hafa kjallara undir sínum hluta hússins hafi hann látið handgrafa skurð niður eftir Traðarkotssundi til þess að tengjast skolpræsi við Hverfisgötu vegna þess að klóak- leiðslurnar við Laugaveg hafi verið ofan kjallara. Henrik og Magnús hafi fengið Kornelíus Sigmundsson byggingarmeistara til að taka að sér byggingu hússins og bæjaryfirvöld hafi samþykkt fyrirhugaða bygg- ingu og teikningar Einars Erlends- sonar, síðar húsameistara ríkisins. Framkvæmdalán hafi verið tryggt en allt hafi þetta tekið sinn tíma og þegar hefja átti framkvæmdir hafi seinni heimsstyrjöldin skollið á. Fyrir vikið hafi þeir ekki þorað að halda áfram, ekki síst vegna óvissu um efnistök. Guðmundur Jónsson trésmiður reisti hús á Laugavegi 6 1871, en eft- ir 1920 var reist viðbygging við hús- ið úr steini þar sem áður var garður. Í fyrstu var þar tóbaksverslun, síðan kaffihús og svo verslunin Skórinn áður en Henrik P. Biering tók hús- næðið undir rekstur sinn. Húsið einskis virði „Húsið er einskis virði og ég er á móti því að verið sé að byggja aftur upp fornminjar því það eru ekki fornminjar þegar búið er að byggja þær upp á nýtt,“ segir Henrik. Hann segist samt aldrei hafa lagt sjálfur í nýbyggingu á lóðinni. „Ég hafði ekki kjark til þess,“ segir hann og vísar meðal annars til þess að lóðin sé svo hallandi frá Skólavörðustíg að Laugavegi 6 að hann hafi ekki talið gerlegt að fara út í framkvæmdir. Munurinn á lóðunum hafi verið hátt á annan metra og því erfitt við að eiga á árum áður en nú sé tæknin allt önnur og betri. Hins vegar bendir Henrik á að húsinu á Laugavegi 6 hafi mikið ver- ið breytt frá upprunalegri gerð. Afi sinn hafi eignast nokkurra ára gam- alt húsið 1878. Til að byrja með hafi verið dyr fyrir miðju og tveir gluggar sitt hvoru megin en fljót- lega eftir að faðir sinn hafi eignast húsið hafi hann leigt það húsgagna- smið og -sala og hafi hann breytt húsinu og sett upp fimm stóra versl- unarglugga á framhliðina. „Það var mjög gott að vera í þessu húsi en nú er það bara ruslahaugur,“ segir hann. Nær 70 ára hugmynd að veruleika Ljósmynd/Sigurður Guðmundsson Líkan Skömmu áður en seinni heimsstyrjöldin hófst voru uppi hugmyndir um byggingu stórhýsis við Laugaveg 4-6 og átti það að tengjast Indriðatorgi beint á móti en torgið hefur ekki enn orðið að veruleika. Laugavegur 6 Þessi teikning var samþykkt á fundi byggingarnefndar Reykjavíkur 31. ágúst 1939. Neðst eru kjallaragluggar. Fjögurra hæða bygging rís á Laugavegi 4-6 Í HNOTSKURN » Byggingarfulltrúi Reykja-víkur hefur samþykkt byggingu fjögurra hæða stein- steypts hótels og verslunar- húss við Laugaveg 4-6 með tengingu við Skólavörðustíg 1A, en borgarráð á eftir að samþykkja ákvörðunina. » Í samþykktinni kemurfram að umsóknin sam- ræmist ákvæðum laga nr. 73/ 1997 og að frágangur á lóða- mörkum verði gerður í sam- ráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Í DAG fer fram ráðstefna um karla og ofbeldi í nánum samböndum í Kornhlöðunni við Lækj- arbrekku. Á ráðstefnunni verður norska verk- efnið Alternative to Violence kynnt, auk þess sem íslenskir sérfræðingar miðla af reynslu sinni. Marius Råkil er norskur sálfræðingur og for- svarsmaður verkefnisins Alternative to Violence. Hann mun kynna verkefnið og hvernig það hefur reynst ítarlega. Í tuttugu ár hafa aðstandendur verkefnisins unnið að því að svara eftirfarandi spurningum: Af hverja beita karlmenn ofbeldi, hvaða áhrif hefur ofbeldið á fórnarlömbin og hvernig vinna karl- menn sig úr ofbeldinu? Kynningin fer fram á ensku. Að loknu erindi Råkil verða nokkrir íslenskir sérfræðingar með erindi. Dr. Berglind Guð- mundsdóttir sálfræðingur mun lýsa þeirri þjón- ustu sem þolendur heimilisofbeldis fá hjá Áfalla- miðstöð slysa- og bráðadeildar LSH. Rannveig Þórisdóttir, félagsfræðingur hjá Lög- regluembætti höfuðborgarsvæðisins, veitir yfirlit yfir hvað gögn lögreglunar segja okkur um heim- ilisofbeldi. Að lokum munu Andrés Ragnarsson og Einar Gylfi Jónsson sálfræðingar kynna verkefnið Karl- ar til ábyrgðar, sem þeir hafa stýrt og greina frá niðurstöðum mats gerenda og þolenda á árangri þess. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra ávarpar fundargesti í upphafi fundar. Ráðstefnan er hluti af Evrópuverkefninu „Ár jafnra tækifæra“ og er öllum opin án endur- gjalds. Dagskráin hefst klukkan 13 og lýkur upp úr 16.30. Karlar til ábyrgðar er verkefni sem hófst árið 1998 og var komið aftur af stað í fyrra eftir fimm ára hlé. Þetta er eina sérhæfða meðferðaúrræðið hér á landi fyrir karla sem beita ofbeldi á heim- ilum. Um er að ræða einstaklingsmeðferð og hóp- meðferð hjá sálfræðingum. Þótt karlar séu ekki einir um að beita ofbeldi er meðferðarúrræðið að- eins fyrir þá. Karlar og ofbeldi ORÐASKRÁ í lestrarfræðum er komin út. Hún hefur að geyma um 850 ensk hugtök um lestur og tengd efni og er 66 síður að lengd. Kjarninn er fenginn úr bókinni The Literacy Dictionary: The vocabulary of read- ing and writing sem Harris og Hodg- es ritstýrðu. Einnig voru valin hug- tök úr fjölda bóka um lestrarfræði á ensku auk hugtaka í íslenskum ritum um læsi. Orðaskráin er einkum ætl- uð kennurum, kennaranemum og foreldrum sem fást við lestur er- lendra rita um læsi og lestrarerfið- leika. Höfundar eru Halldóra Haralds- dóttir lektor við kennaradeild Há- skólans á Akureyri og Rósa Egg- ertsdóttir sérfræðingur við skólaþróunarsvið Háskólans á Akur- eyri. Við gerð efnisins nutu höfundar aðstoðar Íslenskrar málstöðvar og fær hún öll hugtökin til afnota fyrir orðabanka sinn. Rannsóknasjóður Háskólans á Akureyri og skólaþró- unarsvið kennaradeildar HA styrktu gerð bókarinnar. Orðaskrá í lestrarfræð- um gefin út AKUREYRI ELDUR kom upp í bátaskýli gegnt Akureyri sl. þriðjudagskvöld. Slökkvilið Akureyrar fékk tilkynn- ingu um kl. 22.20 og var efri hæð skýlisins nánast alelda þegar slökkviliðið kom á staðinn. Leggja þurfti lögn frá bílastæðinu að skýl- inu þar sem enginn vegur eða slóði liggur niður að því. Mikill gróður er í kringum bátaskýlið og tókst að verja hann fyrir eldinum. Slökkvi- starfi lauk um kl. 1 aðfaranótt mið- vikudags. Bátaskýlið sjálft og allt innbú þess er ónýtt, þar á meðal lít- ill plastbátur. Ekkert rafmagn var í skýlinu og leikur grunur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Íkveikja Bátaskýlið og innbú þess er ónýtt eftir eldsvoðann, þ.m.t. báturinn á neðri hæðinni. Bátaskýli eyðilagt Skaði Þakið á vesturenda hússins er við það að hrynja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.