Morgunblaðið - 30.08.2007, Side 20
ferðalög
20 FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Heppnin ætlar svo sann-arlega að vera með okk-ur í dag ef horft er tilhimins. Nú er sólin hátt
á lofti, en við Seattle-búar eigum
frekar að venjast skýjuðum himni og
rigningu,“ segir fararstjórinn Cathy
hjá Argosy-skipaþjónustunni áður
hún tekur til við að leysa landfestar
og gefa skipstjóranum merki um að
„snekkjan“ sé ferðbúin fyrir tveggja
tíma siglingu um Union og Wash-
ington-vatn í ægifögru umhverfi á
spegilsléttum sjónum. Við farþeg-
arnir finnum okkur stað um borð,
sleikjum sólina og pöntum drykk áð-
ur en haldið er af stað. Fljótlega eft-
ir að komið er út úr höfninni tekur
við skemmtilegt hverfi fljótahúsa.
Eitt þeirra er svolítið kunnuglegt
enda upplýsir Cathy okkur um að
þarna hafi Tom Hanks átt heima í
rómantísku bíómyndinni „Sleepless
in Seattle“.
Siglt er undir brú með Wash-
ington-háskóla í fallegri umgjörð á
vinstri hönd. Þegar lengra er haldið
tekur við hver glæsivillan af annarri
sem allar kúra í skóglendi meðfram
Washington-vatni. Þarna hefur
Microsoft-auðjöfurinn Bill Gates
komið sér upp sautján húsum í þyrp-
ingu, en bæði hann og fyrirtæki hans
eru upprunnin í Seattle.
Fæðingarheimili Starbucks
Seattle, sem er höfuðborg Wash-
ington-fylkis, býður upp á fegurð og
milt veðurfar, og þegar litið er til
fylkisins alls eru afþreyingarmögu-
leikar ferðamanna fjölmargir.
Leggja má stund á siglingar og
veiðiskap í ám, lækjum og vötnum.
Finna má fín skíðasvæði innan fylk-
isins og tvö „alvöru“ fjöll er auk þess
að finna á nálægum slóðum, Rainier
og Mt. Helen, sem bæði eru virk eld-
fjöll.
Borgin sjálf býður svo upp á
spennandi verslunarmöguleika, söfn
af ýmsum toga, fjölda veitingahúsa,
sem mörg hver sérhæfa sig í sjávar-
fangi, og síðast en ekki síst frábæra
markaðsstemningu við sjávarbakk-
ann þar sem er að finna hinn fræga
Pike Place Market sem hefur verið
að fagna aldarafmæli sínu þetta árið.
Það gerir hann að elsta starfandi
bændamarkaði Norður-Ameríku.
Þarna er líf og fjör alla daga og
þarna má fá úrval af alls konar
ferskvarningi, lífrænum vörum, list-
munum, blómum og fjölmörgu öðru
dóti, sem gleður gests augað. Tón-
listarmenn troða upp og gaman er
að skreppa inn á veitingahús á svæð-
inu til að svala þorsta eða kitla
bragðlauka.
Kaffi-ilmurinn laðar svo gesti og
gangandi inn um dyr á móti mark-
aðnum, en einmitt þar var Star-
bucks-kaffikeðjan til. Þessi fyrsta
Starbucks-kaffibúð var stofnuð árið
1971, en síðan eru þessar vinsælu
kaffibúðir orðnar yfir sjö þúsund
talsins út um allan heim.
Framfarir og hugvitssemi
Seattle, sem hvílir á tólf aðal hlíð-
um, dregur nafn sitt af indíánahöfð-
ingjanum Noah Sealth eða Chief
Seattle, sem sagður er hafa gefið
tóninn um að vingast við hvíta land-
nema, sem fóru að streyma til
Seattle upp úr 1850. Seattle hefur nú
vaxið og dafnað í heljarinnar stór-
borg. Um aldamótin 1900 voru íbúar
um 80 þúsund talsins, en eru nú með
um sjö hundruð þúsund íbúa.
Velmegun borgarinnar hefur á
undanförnum árum byggst á hug-
vitssemi og framförum sem gert hef-
ur borgina eina að hraðvöxnustu
borg Norður-Ameríku. Tölvu-
hugbúnaðargeirinn gerði Seattle að
höfuðstöðvum sínum upp úr 1980.
William Boeing stofnaði fyrsta Bo-
eing-fyrirtækið á svæðinu, en höf-
uðstöðvar þessa risafyrirtækis eru
nú í Everett, steinsnar frá Seattle,
og veita tugþúsundum starfsmanna
atvinnu. Fjölmargir viðskiptamógúl-
ar og fyrirtæki af fjölbreyttum
stærðargráðum hafa auk þess séð
sér hag í að hreiðra um sig í borg-
inni. Þótt hafnarsvæði Seattle hafi
eitt sinn verið miðdepill sjósóknar
og siglinga og borgin sögð rétt fyrir
aldamótin 1900 hafa verið síðasti
stoppistaður gullleitarmanna áður
en þeir héldu í gullæðið til Yukon og
Alaska, snýst þungamiðjan þar nú
um nýsköpun á sviði iðn- og tækni-
nýjunga með tilheyrandi háhýsum
þótt gamli tíminn minni líka eilítið á
sig.
Fjöldi skoðunarferða er í boði um
borgina, bæði á sjó og í landi auk
þess sem flugáhugamönnum er sér-
staklega bent á að skoða Boeing-
verksmiðjurnar og flugsafnið, en
þess má geta að samsetningarverk-
smiðja Boeing í Everett er í heims-
metabók Guinness fyrir að vera
stærsta bygging í heimi.
Svo má ekki gleyma því að í gegn-
um Seattle liggur þjóðvegurinn I-5
sem nær alla leið frá Kanada í
norðri til Mexíkó í suðri.
Flottasta útsýnið úr Nálinni
Menningarlíf blómstrar í borg-
inni, sem státað getur af öllu því,
sem sæmir menningarborg.
Gangskör var gerð fyrir heims-
sýninguna 1962 í Seattle að byggja
myndarlega upp. Stolt Seattle-búa
var Geimnálin svokallaða, sem fang-
ar augað víða. Nálin er 605 feta hátt
stálmannvirki, sem býður upp á
flottasta útsýni, sem völ er á, yfir
borgina og næsta nágrenni. Veit-
ingastaður er í 500 feta hæð Nál-
arinnar sem snýst hringinn á
klukkustundar fresti. Fyrir áhuga-
sama íþróttaunnendur er svo upp-
lagt að skella sér á völlinn og sjá
heimamenn í Supersonics spila
körfubolta eða sjá Seattle Seahawks
í ameríska fótboltanum.
Þó pínulítið langt sé að fljúga frá
Íslandi til vesturstrandar Banda-
ríkjanna og ferðalagið kosti milli-
lendingu á leiðinni er það vel þess
virði að heimsækja borgina. Það er
því enginn vandi að verða svefnvana
í Seattle sé tekið mið af þeim af-
þreyingarmöguleikum sem borgin
býður upp á.
join@mbl.is
Markaðsstemmning Á Pike Place er margt forvitnilegt. Flugminjar Upplagt er að leggja leið sína í Boeing-flugsafnið.
Morgunblaðið/JI
Miðborgin Seattle, sem er höfuðborg Washington-fylkis, býður upp á fjölda afþreyingamöguleika.
Kaffimenning Starbucks varð til í Seattle árið 1971.
Vagga Seattle ruggar
við sjávarbakkann
Náttúrufegurð einkennir nánasta umhverfi Seattle-borgar í Washington-fylki. Borgin dregur að sér fjölda ferðamanna ár hvert og laðar
sömuleiðis að sér íbúa þar sem lífsgæði þykja góð. Jóhanna Ingvarsdóttir flaug á vit vesturstrandar Bandaríkjanna.
Við sjávarbakkann er að
finna hinn fræga Pike
Place Market, sem hefur
verið að fagna hundrað
ára afmæli sínu í ár. Það
gerir hann þar með að
elsta starfandi bænda-
markaði Norður-Ameríku.
www.seeseattle.org