Morgunblaðið - 30.08.2007, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 25
Þá hefur sumarið raulað sitt síð-
asta. Nemendur farnir að tygja sig í
skólana. Haustkulið heilsar kinnum
á morgnana og reynitrén við Borg-
arbíó tekin að roðna.
Háskólinn bauð nýnema vel-
komna í síðustu viku og regluleg
kennsla er hafin. Nýnemar verða
svo busaðir í VMA frá og með deg-
inum í dag, en Menntaskólinn mun
dorma fram í miðjan september.
Allt um það. Þetta var samt fín-
asta sumar. Sumarið þegar hund-
urinn Lúkas týndist og fannst og dó
og lifnaði við. Þegar Akureyringar
urðu 17 þúsund. Þegar júnímánuður
leið og ekkert rigndi. Þegar Friðrik
V. opnaði í gilinu og Frúin í Ham-
borg flutti í Hafnarstrætið. Þegar
Saga Capital opnaði formlega og
Fiskidagurinn mikli náði nýjum
hæðum.
Sumarið þegar bærinn leit út eins
og útspýtt hundsskinn eftir 17. júní.
Þegar 18-23 ára ungmenni gátu ekki
gist á tjaldsvæðunum um versl-
unarmannahelgina. Þegar ákveðið
var að reisa aflþynnuverksmiðju við
Krossanes. Þegar um 50 ofurhugar
gengu á 24 tinda á 24 tímum og þeg-
ar bifhjólabænin var gefin út í fyrsta
skipti.
Svo voru náttúrlega fastir liðir:
Pollamótið, N1-mótið (þ.e. Essomót-
ið), Listasumar og endalaus flaumur
skemmtiskipa.
Akureyrarvaka lukkaðist með
eindæmum vel og gaf góð fyrirheit
fyrir veturinn. Dagskráin sem Leik-
félag Akureyrar er byrjað að kynna
er líka býsna spennandi. Bæði
hlakka ég mikið til að sjá Óvita og
líka nýtt verk sem skrifað var sér-
staklega fyrir Leikfélagið: Dubbel-
dusch. Alls eru fjögur ný leikverk í
vinnslu hjá félaginu, og þau á að
sýna á næstu árum. Það finnst mér í
tveimur orðum sagt: fínasta fram-
tak.
Skipulagsmál hafa annars verið
áberandi síðustu vikuna, og kannski
örlar á eftirköstum frá því að Ak-
ureyri í öndvegi-verkefnið var fyrst
kynnt. Þessi málaflokkur er samt
með eindæmum viðkvæmur og varla
hægt að taka einu einustu ákvörðun
án þess að styggja einhvern. Á að
byggja yfir Akureyrarvöll? Á að
grafa síki? Á að leyfa pollinum að
njóta sín? Á að reisa háhýsi eða ein-
býlishús við Bónus? Hvað á eig-
inlega til bragðs að taka?
Skíðasamband Íslands ákvað að
flytja til Akureyrar í byrjun vik-
unnar. Vertu velkomið, ó kæra
skíðasamband. Njóttu þín hér fyrir
norðan.
Og já. Til hamingju bæjarbúar.
Í gær voru semsagt 145 ár frá því
að Akureyrarbær endurheimti
kaupstaðarréttindi sín (sem var
semsagt árið 1862.) Bærinn hafði þá
verið ekki-kaupstaður í einhver 26
ár, eftir að hann missti réttindin. En
eftir að Akureyri klauf sig frá
Hrafnagilshreppi tók bærinn til við
að stækka upp úr því að vera ein-
hverjar 300 hræður. Það segir Wiki-
pedian allavega.
Hér ætla ég annars að setja
punkt að sinni og kveðja þannig
sumarið.
Karnival Frúin í Hamborg fagnar haustinu í skrúðgöngu á Akureyrarvöku
AKUREYRI
Hjálmar Stefán Brynjólfsson
Einar Páll Kjærnested,
löggiltur fasteignasali.
Sími: 586 8080 • Fax: 586 8081
www.fastmos.is
Krókabyggð
Glæsilegt einbýlishús
Erum með glæsilegt, 325 fm, einbýlishús á tveimur hæðum á skógivaxinni 2.000 fm
eignarlóð, rétt við Varmá í Mosfellsbæ. Í húsinu eru 5 svefnherbergi, 3 baðherbergi,
stór og mikil stofa með arni, eldhús, þvottahús og geymslur. Lóðin er 2.000 fm, skóg-
ivaxin eignarlóð og stendur húsið rétt við Varmá, en þar eru frábærar gönguleiðir og
útivistarsvæði. Mjög falleg aðkoma er að húsinu, þar sem stórt bílaplan og skógivaxið
umhverfi tekur á móti þér. Þetta er reisulegt hús á einstakri lóð rétt við Varmá. þetta er
eign sem vert er að skoða. Verð 84,0 m.
Skorradalur
Glæsilegt heilsárshús
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá mjög flott heilsárhús
á 8.000 fm EIGNARLÓÐ við Dagverðarnes 74
með fallegu útsýni yfir Skorradalsvatn. Húsið er
64 fm, finnskt bjálkahús á einni hæð á steyptri
plötu. 2-3 svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél, eldhús og
stofa. Húsið selst með öllu innbúi. Kalt vatn, hitatúpa, rafmagn og e-max internetteng-
ing. Góð timburverönd er við húsið og eignarlóðin er kjarri vaxin og rennur lækur í
gegnum lóðina. Skorradalur er eitt vinsælasta sumarbústaðarsvæði landsins, en þar er
landið skógi vaxið og vatnið hefur mikið aðdráttarafl, bæði fyrir þá sem velja silungs-
veiði eða vatnasport. Gönguleiðir eru fjölmargar og golfvöllur er í uppbyggingu í daln-
um, auk þess er stutt í alla þjónustu í Borgarnesi. Verð 32,0 m.
JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR
DAGSKRÁIN
í KVÖLD
30. ágúst
29. ágúst -
1.september
2007
Kl 17 – TJARNARBÍÓ
Jazzbíó kl. 5
STRAIGHT NO CHASER
THE THELONIUS MONK STORY
Kl 20 – AUSTURBÆ
Tröllum gefin
Eivör Pálsdóttir og
Stórsveit Reykjavíkur
Kl 21 – IÐNÓ
Á og með Láði
Agnar Már Magnússon
ásamt hljómsveit og
Kristjönu Stefánsdóttur
Kl 22 – DOMO
Múlinn á Múlanum
Eyþór Gunnarsson
og hljómsveit ásamt
Jerry Bergonzi
ALLIR ELSKA JAZZ!
Ókeypis fyrir miðahafa á atburði jazzhátíðar
úr bæjarlífinu
Fréttir
í tölvupósti