Morgunblaðið - 08.09.2007, Side 8

Morgunblaðið - 08.09.2007, Side 8
8 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is GEIR H. Haarde forsætisráðherra telur ekki að mörg dæmi séu þess á undanförnum árum að aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafi gengið til kosningabaráttu vegna sætis í örygg- isráði Sameinuðu þjóðanna með jafn litlum tilkostnaði og Ísland hefur bor- ið. Geir segir að hann hafi ákveðið haustið 2005, þegar hann var utanrík- isráðherra, að setja framboðinu hóf- legar fjárhagslegar skorður, efnis- legar forsendur og sanngirni ættu að ráða því að Ísland tæki sæti í örygg- isráðinu en ekki aflsmunur eða fjár- austur. Þetta hefði verið umgjörð framboðsins síðan og samstaða væri um það innan ríkisstjórnarinnar að svo verði til loka. Kostnaðurinn vegna framboðs Ís- lands nemur nú um 250 milljónum króna og áætlanir gera ráð fyrir að hann fari í um 320 milljónir. Geir sagðist í erindi sem hann flutti í gær á opnunarmálþingi í Háskóla Íslands um stöðu Íslands á alþjóðavettvangi vongóður um að Ísland myndi hafa erindi sem erfiði, en kosið verður eftir um það bil ár. Enginn gæti þó gengið að sigri vísum í þessari keppni. Þrátt fyrir bjartsýni gæti farið svo að Ís- land næði ekki kjöri í öryggisráðið. „Það yrðu vissulega mikil vonbrigði en myndi engu breyta um stöðu Ís- lands. Markmiðið er að gæta ís- lenskra hagsmuna og halda fram ís- lenskum gildum og seta í öryggisráðinu er einungis ein af mörgum aðferðum til að ná því.“ Forsætisráðherra sagði ennfremur að ákvörðun um framboð, sem tekin var 1998, lýsti nýrri sýn á stöðu Ís- lands á alþjóðavettvangi og nýju sjálfstrausti og virkni í utanríkis- málum. „Í þessu felst skilgreining á Íslandi sem öflugu smærra ríki en höfnun á þeirri sjálfsímynd að Ísland sé vanmáttugt örríki. Þetta lýsir ekki hégómlegu drambi heldur eðlilegu endurmati og sífelldri viðleitni til að treysta stöðu Íslands.“ Öryggismál eru af ýmsum toga Í erindi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra kom m.a. fram það mat að öryggismál – en þau eru einkum á borði öryggisráðs- ins – væru nú mun víðar skilgreind en áður. Þannig mætti líta á loftslags- breytingar sem nýja tegund ógnar og orkumál væru mjög ofarlega á baugi einnig. Á því sviði nytu Íslendingar virðingar fyrir að hafa tekist að um- bylta orkukerfi sínu þannig að við treystum nú á endurnýjanlega orku- gjafa, en ekki kol eða olíu. Við hefðum sitthvað fram að færa á þessu sviði. Þá nefndi Ingibjörg sem rök fyrir því að Ísland ætti erindi í öryggis- ráðið að engu öðru ríki stæði ógn af okkur og að smáþjóð væri vel til þess fallin að minna á það við borð stór- veldanna að leikreglur væru virtar og virðing borin fyrir mannréttindum og mannúð. Hún sagði Íslendinga ekki til þessa hafa verið gerendur í friðarmálum. Stærð þjóðar skipti hins vegar ekki máli í þeim efnum, heldur hvað hún hefði fram að færa. Ingibjörg Sólrún minnti á það að af 192 aðildarþjóðum SÞ teldust 100 þeirra vera smáríki, þar af 40 smá- eyríki. Ísland skipaði sér hins vegar nú í flokk helstu framfararíkja. Ör- yggisráð SÞ ætti að endurspegla þá flóru ríkja sem hefði skipað sér undir fána Sameinuðu þjóðanna. Fræðimennirnir Baldur Þórhalls- son, Alyson Bailes og Björg Thor- arensen fluttu einnig erindi á ráð- stefnunni í gær. Baldur fór í sínu erindi yfir tvær meginspurningar: hvers vegna og til hvers Ísland hefði aukið mjög þátttöku sína í alþjóða- samstarfi. Sagði hann að til að svara þessum spurningum þyrfti einkum að horfa til fjögurra þátta: breyttra hagsmuna Íslands og breytinga á því hvernig hagsmunir Íslendinga væru skilgreindir; aukinna bjarga hér inn- anlands, breytts viðhorfs stjórnmála- manna til alþjóðasamskipta; og al- þjóðlegs þrýstings og aukinna áhrifa alþjóðastofnana á innanlandsmálefni. Alyson Bailes, gestaprófessor við Háskóla Íslands, rakti hlutverk ör- yggisráðsins í upphafi 21. aldar og sagði að ef ráðinu tækist að axla ábyrgð vegna nýrra ógna í heiminum – s.s. til að tryggja öryggi og aðgengi að orku og árangursríkar mót- aðgerðir á sviði heilsugæslu ef bráð- hættuleg veira yrði að heimsfaraldri – um leið og það sinnti hinum hefð- bundnari ógnum væri réttmætt að það léki áfram lykilhlutverk á 21. öld- inni. Jákvætt væri þá að ólíkar þjóðir, líka smáríki eins og Ísland, tækju sæti í ráðinu. Við yrðum þó að vera meðvituð um að við myndum sæta þrýstingi stórþjóðanna í einstökum málum. Íslendingar ættu hins vegar eins mikla möguleika á því og hvert annað smáríki að standast slíkan þrýsting. Björg Thorarensen ræddi í sínu er- indi auknar valdheimildir ráðsins, ekki síst á sviði hryðjuverkavarna í kjölfar hryðjuverkanna 11. sept- ember 2001, en hún lýsti þeirri skoð- un að full ástæða væri til að velta fyr- ir sér hvaðan öryggisráðinu sprytti heimild til jafn víðtækrar ákvarð- anatöku – sem síðan skilaði sér inn í lög aðildarríkja – og raun bæri vitni. Lýsir ekki hégómlegu drambi heldur eðlilegu endurmati Á málþingi í Háskóla Íslands í gær var farið yfir tildrög þess að Ís- land sækist eftir sæti í öryggisráði SÞ og rök færð fyrir því að við ættum þangað erindi. Morgunblaðið/G. Rúnar Ræðumenn Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir utanríkisráðherra héldu bæði erindi á málþinginu í HÍ í gær. Í HNOTSKURN »Málþingið í Háskóla Ís-lands í gær markaði upp- haf samstarfs utanríkisráðu- neytisins og allra átta háskóla landsins, en hver um sig mun standa fyrir fundi í vetur sem hefur yfirskriftina: Ísland á al- þjóðavettvangi – erindi og ávinningur. » Ísland keppir við Aust-urríki og Tyrkland um tvö laus sæti í öryggisráði SÞ starfsárin 2009-2010. Kosið verður eftir ár. FRJÁLSLYNDI flokkurinn styður þá ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra að halda ekki áfram að manna stöðu upplýsinga- og fjölmiðlafulltrúa í Bagdad af hálfu íslensku friðar- gæslunnar. Kristinn H. Gunnarsson, for- maður þingflokks frjálslynda og fulltrúi í utanrík- ismálanefnd Al- þingis, segir þessa ákvörðun ráðherrans skynsamlega og í sam- ræmi við þá utanríkisstefnu Íslend- inga lengst af, að halda sér utan við hernaðarátök. Með þessu sé í raun verið að færa stefnuna aftur til fyrra horfs. Spurður um þátttöku Íslendinga í aðgerðum NATO í Afganistan sagði Kristinn að hann teldi að endurskoða ætti hana í þessu sama ljósi. Íslend- ingar gætu sinnt ýmsum verkefnum í þágu NATO og friðargæslu án þess að taka þátt í hernaðarátökum. Kristinn sagði að í þessu fælist ekki breyting á afstöðu til NATO en Ís- lendingar væru herlaus þjóð og hefðu ekki áhuga á að koma sér upp her. Íslendingar gætu valið sér verk- efni í samræmi við þessa afstöðu. Hárrétt ákvörðun Frjálslyndir sam- mála Ingibjörgu Kristinn H. Gunnarsson ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdótt- ir menntamálaráðherra hefur skipað Nikulás Úlfar Másson í embætti for- stöðumanns húsafriðunarnefndar ríkisins til fimm ára, frá 1. nóvember nk. Fimm umsóknir um embættið bárust en ein var afturkölluð. Nikulás Úlfar lauk námi í arki- tektúr frá Portsmouth School of Architecture árið 1983. Frá árinu 1991 hefur hann starfað við varð- veislu, rannsóknir og skipulagsmál í tengslum við byggingararfinn í Reykjavík og á landsbyggðinni. Á árunum 1991-2001 starfaði hann sem deildarstjóri húsadeildar Árbæjar- safnsins, um tíma sem staðgengill borgarminjavarðar og sat í húsafrið- unarnefnd ríkisins. Síðustu ár hefur hann starfað hjá skipulags- og bygg- ingarsviði borgarinnar. Nikulás Úlfar ráðinn HELGA Guðrún Guðjónsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti for- manns UMFÍ á þingi samtakanna sem haldið verður 20.-21. október næstkomandi á Þingvöllum, segir í tilkynningu. Björn B. Jónsson tilkynnti á dögun- um að hann gæfi ekki kost á sér til formennsku áfram. Helga hefur starfað í stjórn UMFÍ í 10 ár og þar af verið varaformaður í sex ár. Áður en hún tók sæti í stjórn UMFÍ var hún formaður Ung- mennafélagsins Geisla í Súðavík og formaður Ungmenna- og íþrótta- sambands Ólafsfjarðar. Helga hefur setið í mörgum nefnd- um á vegum ungmennafélagshreyf- ingarinnar og verið mjög virk á sviði íþrótta- og æskulýðsmála bæði innan hreyfingarinnar og utan. Helga býr í Hveragerði og starfar sem aðstoðarskólastjóri við grunn- skólann. Helga gefur kost á sér Helga Guðrún Guðjónsdóttir ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.