Morgunblaðið - 08.09.2007, Síða 10

Morgunblaðið - 08.09.2007, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Við verðum bara, Haarde minn, að reyna að koma henni á upptökuheimili, það vill enginn orðið hafa þennan aumingja. VEÐUR Á forsíðu Berlingske Tidende ígær var frétt um að það ógni velferð í Danmörku að ekki sé leng- ur á það treystandi að fá vinnuafl frá löndum eins og Póllandi og Eystra- saltsríkjunum.     Eftir að þessiríki fengu að- ild að ESB hafa margir þaðan flust til Vest- urlanda til að sækja sér vinnu. Og það er farið að valda skorti á vinnuafli heima fyrir. Fyrir vikið hafa laun hækkað mikið og í mörg- um tilvikum meira en sú verðmæta- sköpun sem orðið hefur í löndunum.     Vestræn fyrirtæki sem hafa komiðupp starfsemi í þessum ríkjum eiga í erfiðleikum með að útvega mannafla í verksmiðjur sínar og reyna jafnvel að kaupa önnur fyr- irtæki til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaðnum eða leita til Hvíta- Rússlands eftir starfsfólki. Í Berl- ingske Tidende er talað um að Evr- ópuríki verði brátt að leita enn lengra eftir starfsfólki og eru nefnd löndin Úkraína, Moldavía og Sri Lanka.     Sú mikla sókn og uppbygging semorðið hefur í íslensku efnahags- lífi á undanförnum árum hefur að verulegu leyti byggst á því erlenda starfsfólki sem komið hefur til landsins. Það hefur borið uppi hag- vöxtinn og haldið niðri þenslunni.     Nú er mikill skortur á starfsfólkihér á landi og ekki virðist enda- laust hægt að mæta þeirri þörf með starfsfólki frá Póllandi og Eystra- saltsríkjunum. Þá er viðbúið að rík- ari krafa verði um að opna dyrnar fyrir starfsfólk annarsstaðar frá, svo sem frá nýju aðildarþjóðunum Rúm- eníu og Búlgaríu og með því að gera íslenskum fyrirtækjum kleift að sækja sérhæft starfsfólk út fyrir ESB. Ef bæta á lífskjörin enn frekar hér á landi þarf að vera fólk til stað- ar í störfin sem skapast. STAKSTEINAR Erlent starfsfólk til Íslands SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                 *(!  + ,- .  & / 0    + -                        12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                      :  *$;<                     !      "   ##  $%  & %     '   $(     *! $$ ; *! ! " # $  " $  % &$ '& =2 =! =2 =! =2 !%$# ( ) *+,&-  $ -         6 2  )     $       )    *   %  " +  & ,  -   $(     ;      . !            $ $/      &(     *  0  "  % )/      "    /  1     *   %    23       $ -  .    ./  &00  &$  1 & , &( ) 3'45 >4 >*=5? @A *B./A=5? @A ,5C0B ).A 2 2                   2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2               Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Áslaug Ósk Hinriksdóttir | 6. september 2007 Kraftaverkið mitt Ég á litla hetju sem heitir Þuríður Arna og hún er 5 ára gömul, 15. október 2006 mun ég seint gleyma en þá hrundi veröldin og þá var okkur tilkynnt að æxlið hennar Þuríðar væri orðið ill- kynja. Þeim degi mun ég seint gleyma. Hún var orðið algjörlega lömuð í hægri hendi, hún var farin að haltra því það var komin lömun í hægri fótinn og hún var líka farin að slefa því þar var líka komin lömun. Meira: aslaugosk.blog.is Anna Karen | 6. september 2007 Höfnum mann- réttindabrotum Það er alveg rosalega flott baráttukona stödd á landinu núna. Þetta er hin íranska Maryam Namazie. Hún ólst upp í trúarkúguninni í Íran og þekkir íslam að sjálfsögðu mun betur en við hér. Maryam gekk af trúnni í stað þess að gefa sál sína og persónuleika uppá bátinn, og hún berst aðallega gegn blæjunni. Við skulum bara lýsa henni sem mannréttindafrömuði. Meira: halkatla.blog.is Bogi Jónsson | 7. september 2007 Óþolandi stofnun! Það er óþolandi þegar stofnun sem á að bera hag vinnumála sér fyr- ir brjósti veldur því að í rúmt ár hefur ekki ver- ið hægt að hefja rekst- ur í nýjum hluta fyr- irtækis míns, austurlenskri heilsurækt, þar sem ekki hefur fund- ist sá sérfræðingur sem til þarf hér- lendis né á EES-svæðinu þrátt fyrir tæplega tveggja ára leit. Það er löngu búið að skila inn öllum þeim vottorðum og pappírum sem þeir hafa geta látið sér detta í hug. Meira: bogi.blog.is Einar Sveinbjörnsson | 7. september 2007 Þórsmörk – upplýs- ingar til vegfarenda Fyrir nokkrum árum voru gerðar veð- urathuganir í Þórs- mörk að sumarlagi. Öllu heldur í Básum (sem að sögn stað- kunnugra eru ekki Þórsmörk á Goðalandi) og reyndi skálavörður að lesa af mælum af bestu getu á milli anna við að þjón- usta ferðalanga. Þessar veðurathuganir leiddu í ljós að við ákveðin skilyrði getur rignt feikimikið í Mörkinni. Einkum í sunnanátt þegar rakt loftið af Atl- antshafi kembir yfir Eyjafjallajökul. Áður var álitið að Eyjafjöllin skýldu Þórsmörk (og Goðalandi) fyrir regni, en mælingarnar leiddu annað í ljós. Eins virðist úrkoma geta orðið mikil í ákveðinni tegund SV- og V- áttar þegar lítið rignir annars stað- ar. Árnar þarna innfrá, einkum Krossá og Steinholtsá bólgna mjög þegar mikið rignir. Vitanlega eru þessar ár jökulvötn og leysing á hlýjum dögum hefur líka mikil áhrif á vatnsmagn þeirra. Nú gerðist það í dag enn og aftur að hurð skall nærri hælum sökum vankunnáttu og skorts á upplýsingum. Þýsku hjónin sem festu jeppa sinn í Steinholtsánni höfðu líkast til lítinn grun um það að vatnsmagnið væri meira en venju- lega. Einhverjir hrista nú hausinn og tala jafnvel um gáleysi og annað í þá veru. En staðreyndin er sú að há- lendisvegir eru morandi af ferða- löngum á litlum jeppum að sum- arlagi og jafnvel þó margir hafi einhverjar upplýsingar og fari var- lega eru þó alltaf nokkrir sem æða út i óvissuna í góðri trú. Sjálfvirkur úrkomumælir t.d. við skálann í Básum af sömu gerð og eru á þéttbýlisstöðum þar sem hætta er talin á ofanflóðum, kæmi að veru- lega miklu gagni. Þar sem ekki er hlaupið að því að mæla rennsli ár eins og Krossár, sem flæmist um að hætti jökulvatna, mundu upplýs- ingar um úrkomumagn gagnast vel sem fyrirboði vatnavaxta. Ég þykist vita að mikið er búið að rigna í Mörkinni undanfarna daga, sbr. veðurspá sem ég gerði að um- talsefni á dögunum. Meira: esv.blog.is BLOG.IS FRÉTTIR Eftir Jón Sigurðsson BÆNDUR úr Vatnsdal og Þingi réttuðu fé sitt í Undirfellsrétt í gær í góðu veðri. Um 10 þúsund kindur koma til réttar og eru þessar réttir með þeim fjármestu á landinu. Gangnamenn hrepptu ýmis veður í göngum. Á mánudag og þriðjudag var bálhvasst en á fimmtudag hrepptu menn þoku í blálok gangna en að öðru leyti gekk allt vel og all- ir komust til byggða. Það er álit vísra manna að dilkar séu í góðu meðallagi þetta árið. Sumir segja dilka frekar smáa en holdmikla. Réttað er víða um land þessa dagana og má nefna að í dag, laug- ardag, verður réttað í Auðkúlurétt og Stafnsrétt og á sunnudag verða réttarstörf í Skrapatungurétt. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Gangnamenn komu vænu fé af fjalli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.