Morgunblaðið - 08.09.2007, Side 16

Morgunblaðið - 08.09.2007, Side 16
16 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... ● VELTA í viðskiptum með hlutabréf í kauphöll OMX á Íslandi í gær var dræm, nam alls um 5,5 milljörðum króna en heildarvelta í kauphöllinni nam 22,1 milljarði. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,21% og var 8.160 stig við lokun mark- aðar. Mest hækkun varð á bréfum Atlantic Petroleum, 2,29% en bréf FL Group lækkuðu mest, um 3,75%. Lítil hlutabréfavelta ● LANDSBANKINN flaggaði í gær sölu á 0,16% hlut í bankanum en við- skiptin fóru fram hinn 31. ágúst sl. Samkvæmt lögum um verðbréfa- viðskipti ber að tilkynna flögg- unarskyld viðskipti, sem og viðskipti fyrirtækis með eigin bréf, um- svifalaust til markaðar. Þórður Friðjónsson, forstjóri kaup- hallar OMX á Íslandi, segir í samtali við Morgunblaðið það vinnureglu hjá kauphöllinni að vísa máli af þessu tagi til Fjármálaeftirlits og það væri síðan eftirlitsins að fjalla um málið og taka ákvörðun um framhaldið. „Við teljum það mjög brýnt að slíkar upplýsingar berist markaðnum um- svifalaust. Það er nauðsynlegt til þess að viðhalda gagnsæi og skil- virkni á markaði,“ segir Þórður. Frá Landsbankanum fengust þær upplýsingar að hér sé um veltubók- arviðskipti að ræða og að farið hafi verið að lögum og reglum. Flöggun barst of seint ● FL GROUP hefur átt í viðræðum við breska spilakassafyrirtækið Inspired Gaming Group (INGG) vegna óskuld- bindandi tilboðs sem gert hefur ver- ið í allt útistandandi hlutafé í félag- inu. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallar en þar segir jafnframt að engin fullvissa sé fyrir því að form- legt tilboð verði gert. Markaðsvirði INGG er um 257 milljónir punda, sem jafngildir um 33,4 milljörðum króna og hjá því starfa um 2.500 manns. Rætt við stjórn INGG KREDITTILSYNET, norska fjár- málaeftirlitið, er ekki ánægt með svör þau sem Exista og Kaupþing hafa sent við fyrirspurnum eftirlits- ins varðandi kaup félaganna á hlut- um í norska tryggingafélaginu Storebrand. Frá þessu greinir fréttaveitan Thomson Financial og vitnar m.a. í Ole-Jørgen Karlsen, talsmann eftirlitsins. „Það kæmi mér ekki á óvart þótt við fylgdum málinu eftir. Það má ef til vill kalla það nán- ari rannsókn,“ segir Karlsen í sam- tali við Thomson Financial. Svör íslensku félaganna voru að sögn Karlsen afar stutt en hann seg- ir það áhugavert fyrir eftirlitið að fá á hreint hvort Exista og Kaupþing séu að vinna saman við að byggja upp ráðandi eignarhlut í Storebrand. Eign Existu í Kaupþingi renni stoð- um undir slíkar grunsemdir. Mikil viðskipti áttu sér stað með bréf Storebrand í gær og miðlaði Kaupþing t.d. meiru en 5% hlut í fé- laginu. Thomson hefur eftir sérfræð- ingum að líklega eigi Exista ein- hverja aðild að þeim viðskiptum og sé að byggja upp hlut sem er aðeins minni en 10%, enda þarf félagið að flagga viðskiptum fari hluturinn yfir 10%. Sigurður Nordal, fram- kvæmdastjóri samskiptasviðs Ex- istu, segir félagið aldrei tjá sig um orðróm á markaði en bendir þó á að hefði félagið keypt hlut sem er stærri en 5% og bætt við þau 5,56% sem það á fyrir færi hluturinn yfir 10%. Hann segir það jafnframt fráleitt að Exista og Kaupþing séu að vinna saman að því að ná völdum í Store- brand. Kredittilsynet segir svörin valda vonbrigðum Norska fjármálaeftirlitið mun rannsaka kaupin nánar talan breska lækkað um tæp 2% og DAX-vísitalan þýska hafði lækkað um 2,4% þegar upp var staðið. Eins og gefur að skilja höfðu vinnumarkaðstölurnar ekki heldur mjög jákvæð áhrif á bandaríska fjár- festa enda lækkuðu helstu vísitölur vestra einnig um nær 2% í gær. En eins og segir í upphafi voru það þó ekki einungis tölfræðilegar upplýs- ingar sem hvekktu fjárfesta. Það gerði Alan Greenspan einnig. Þótt hinn aldni Greenspan sé ekki lengur seðlabankastjóri vestra hafa áhrif hans síst dvínað. Þegar hann talar leggja flestir við hlustir. Og þegar Alan Greenspan segir fjárfest- um að ástandið á mörkuðum heims- ins minni hann á þá krampa sem markaðir fengu árin 1987 og 1998 er ljóst að það vekur marga til umhugs- unar. Rauður dagur á mörkuðum heims Alan Greenspan og vinnumarkaðurinn vestra hjálpuðust að AP Lækkanir Kínverskir fjárfestar fylgjast með þróun mála á mörkuðum. Helstu hlutabréfavísitölur heims lækkuðu allar í gær. Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is MIKIL almenn lækkun varð á gengi hlutabréfa á öllum helstu mörkuðum heimsins í gær; dagurinn var í stuttu máli sagt rauður. Ástæðuna má fyrst og fremst rekja til tveggja þátta. Í fyrsta lagi birtust eftir lokun markaða í fyrrakvöld nýjar tölur um vinnumarkaðinn í Bandaríkjunum, tölur sem komu markaðnum illilega á óvart, og í öðru lagi drógu neikvæð ummæli Alan Greenspan, fyrrum seðlabankastjóra landsins, kjarkinn úr fjárfestum víða um heim. Sérfræðingar sem Bloomberg- fréttaveitan hafði rætt við spáðu því að nýjum störfum í Bandaríkjunum hefði fjölgað um 100 þúsund í ágúst- mánuði en þegar tölurnar birtust kom í ljós að þess í stað hefði störf- um fækkað um 4 þúsund. Þetta er í fyrsta skipti í fjögur ár sem störfum fækkar í bandaríska hagkerfinu og í kjölfarið létu sérfræðingar í ljósi áhyggjur sínar við fréttamenn. Einn þeirra er Zach Pandl, hagfræðingur hjá Lehman Brothers, sem sagði töl- urnar vísbendingu um að kreppa gæti verið í aðsigi. Hversu mikil hættan er á því skal ósagt látið en alltént er ljóst að tölurnar gætu ver- ið til marks um að ástandið á fast- eignamarkaði vestra og óróinn á fjármálamörkuðum séu farin að hafa meiri áhrif í öðrum kimum hagkerf- isins. Kauphöllin í Tókíó í Japan opnar ætíð fyrst af helstu kauphöllum heimsins og getur því gefið góða vís- bendingu um hver þróunin verður á öðrum mörkuðum á meðan jörðin snýst einn hring um möndul sinn. Það er skemst frá því að segja að jap- anska hlutabréfavísitalan (Nikkei) lækkaði um 0,83% og þar með var takturinn sleginn; gengi hlutabréfa í Evrópu hríðféll þegar kauphallir opnuðu. Í lok dags hafði FTSE-vísi- Í HNOTSKURN » Mánudagurinn 19. októ-ber 1987 hefur gjarnan verið kallaður svarti mánu- dagurinn. Þá lækkaði Dow Jones-hlutabréfavísitalan um tæp 23%. » Árið 1998 varð LongTerm Capital Manage- ment, stærsti vogunarsjóður heims, skyndilega gjaldþrota og olli það skyndikrampa á mörkuðum heimsins. ÚTFLUTNINGSRÁÐ Íslands og Trade Development Bureau of the Ministry of Commerce (TDB) í Kína hafa undirritað samstarfssamning til næstu þriggja ára, en Útflutnings- ráð og TDB gegna svipuðum hlut- verkum í sínum heimalöndum. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að aðilar vinni að því að auka við- skipti milli landanna og komi á fram- færi við viðskiptavini sína þeim tæki- færum í viðskiptum og fjárfestingum sem bjóðast í hvoru landi fyrir sig. Að mati Útflutningsráðs er þetta samkomulag mikilvægur hlekkur í þjónustu ráðsins við fyrirtæki sem áhuga hafa á viðskiptum við Kína. Undirritun samningsins fór fram við í tengslum við fund í sameigin- legu íslensk-kínversku efnahags- og viðskiptanefndinni. Fyrsti aðstoðar- viðskiptaráðherra Kína fór fyrir Kínverjunum og átti einnig fund með utanríkisráðherra Íslands. Samstarf við Kín- verja um viðskipti Samstarf Zhang Chaomei, aðstoðarframkvæmdastjóri TDB, og Jón Ás- bergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs, rita undir samninginn. GUÐMUNDUR P. Davíðsson hefur í kjölfar skipulagsbreytinga verið ráðinn forstjóri yfir starfsemi Eim- skips á Íslandi. Hefur félagið ákveðið að skipta markaðssvæðinu á N-Atlantshafi í tvennt og er Ís- land orðið að sérstöku sviði innan samsteypunnar. Guðmundur mun starfa við hlið Braga Þórs Mar- inóssonar sem verður forstjóri yfir Norður-Atlantshafssvæði Eimskips. Guðmundi er ætlað að einbeita sér að rekstri og þróun á starfsemi Eimskips á Íslandi og Bragi Þór mun fást við frekari uppbyggingu á svæðinu, einkum í Færeyjum og Noregi. Guðmundur var síðast fram- kvæmdastjóri Fjárfestingafélags- ins Grettis en Bragi Þór hefur verið framkvæmdastjóri hjá Eimskip. Breytingar hjá Eimskip Guðmundur P. Davíðsson Bragi Þór Marinósson              !! & ' (                                                                    !"#  $  %& ! '  " $ ()# *    + ,, +,+  ,   ++     +       +  ,  +   , , +  ,  ,, + +   +      , +   +  ,    +,   ,   +,       ,  - - ++-+ - -+ - ,- +- -  - -, +- -+ - ,- ,- - - - -+ - -  +-   - - ++- - - - ,-+ +- -,  - - - - - - - - - - -  -+ - +- - - ./ !"#  ,        +                +   0$  $ !" ! ,  , ,  , ,  , ,  , ,  , ,  , ,  , ,  , ,  ,   , ,  , ,  , ,  , ,  , ,  , ,  ,   ,   , ,  , ,  ,   , ,  , ,  ,   , ,  , ,  ,   , )* +   + " 1 )# 23 4"" / 1 )# 23 56  23 7 1 )# 23 1  & " 23 3 5"#38$ 9 :;  1 )# 23 ()# $ & " 23 7 & " 9  23 < ; 2  23 * ))4)!= .=3 & 23 %> 23 ?) 23 ,  *  - + 23 3; 23  ; @  ) @A 5" 4 " $ 1 )# 23 B > 4 " :; ; 1 )# 23 < 23 CD2. 23 %>$$ $! /! 23 E ) /! 23 )  .  /  F )> ) ) F 4 1  23 #!. 23 G<H G<H       I I G<H 2 4H      I I 0 J K CL         I I %*5 0 H         I I G<H 3 G<H .       I I ● SKULDATRYGGINGARÁLAG fjár- málafyrirtækja heimsins hefur hækk- að töluvert að undanförnu eftir því sem óróinn á fjármálamörkuðum heims hefur dregist á langinn. Ís- lensku bankarnir eru þar engin und- antekning. Í Vegvísi Landsbankans í gær seg- ir að álag á skuldabréf Landsbank- ans hafi rúmlega tvöfaldast frá því að skuldatryggingarálag tók að hækka en álag á bréf Glitnis hækkað nokkru meira. Þá hafi álag á bréf Kaupþings ríflega þrefaldast. Enn- fremur segir að álagið á bréf Glitnis og Kaupþings sé nú hærra en það var í mars á síðasta ári þegar ís- lenska bankakreppan stóð sem hæst. Álagið hækkar FIMM aðilar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn Icelandair Group en ný stjórn verður kosin á hluthafafundi hinn 12. september nk. Þeir sem gefa kost á sér eru Ásgeir Baldurs, Einar Sveinsson, Finnur Reyr Stef- ánsson, Gunnlaugur M. Sigmunds- son og Ómar Benediktsson. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallar en þar er jafnframt sett- ur sá fyrirvari að fundurinn breyti samþykktum félagsins þannig að stjórn verði skipuð fimm mönnum í stað sjö eins og nú er. Með það í huga er sjálfkjörið í stjórn. Sjálfkjörið í stjórn ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.