Morgunblaðið - 08.09.2007, Page 18

Morgunblaðið - 08.09.2007, Page 18
18 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MEIRIHLUTI jarðarbúa vill að bandaríska herliðið verði kallað heim frá Írak innan árs, samkvæmt nýrri skoðanakönnun BBC sem framkvæmd var í 22 löndum. Af þeim sem spurðir voru töldu 39% að herliðið eigi að fara strax frá Írak, 28% sögðust styðja að það færi í áföngum og 23% sagðist vilja að Bandaríkjaher væri í Írak þar til ástandið þar væri orðið tryggt. David Petraeus, yfirmaður bandaríska heraflans í Írak, er nú sagður vera að íhuga að leggja til að fækkað verði um eina herdeild eða 4.000 menn í herliði Banda- ríkjamanna þar. Petraeus mun gera Bandaríkjaþingi grein fyrir mati sínu á stöðu mála í Írak í næstu viku. Samkvæmt heimildum New York Times sagði Petraeus George W. Bush Bandaríkjaforseta á fundi þeirra fyrr í vikunni að hann vilji áfram hafa fjölmennt herlið í Írak til að verja þann árangur sem náðst hafi í öryggismálum ákveðinna svæða á undanförnum mánuðum. Petraeus er sagður hafa áhyggjur af því að sá árangur sem náðst hafi verði að engu og að helst vildi hann því halda sem flestum hermönnum í Írak. Hann sé hins vegar undir miklum þrýstingi að fækka her- mönnum og því sé hann að meta hættuna sem því myndi fylgja. AP Nammi í sárabætur Bandarískur hermaður gefur íröskum pilti sælgæti eftir að hafa handtekið föður hans við húsleit og lagt hald á vopn. Bandaríkjaher fari frá Írak Washington. AFP. | Osama bin Laden mun birtast í nýju myndbandi eftir helgi en á þriðjudag, 11. september, eru sex ár liðin frá hryðjuverka- árás al-Qaeda á Bandaríkin. Rann- sóknarstofnun, SITE, sem fylgist með skrifum á síður öfgasamtaka múslíma fullyrðir þetta en tilkynnt mun hafa verið um væntanleg skila- boð bins Laden. Þrjú ár eru liðin síðan bin Laden sást síðast í mynd- bandi af þessum toga, rétt fyrir for- setakosningarnar í Bandaríkjun- um. Hann hefur hins vegar sent frá sér nokkrar hljóðupptökur. AP Af myndbandinu (t.h.) má ráða að bin Laden hafi litað skegg sitt svart, t.v. er gömul mynd af honum. Bin Laden með ávarp LJÓST þykir að svokallað geisl- unarhneyksli í Frakklandi sé meira en talið var. Sagt er að 721 maður hafi fengið of stóran geislaskammt á sjúkrahúsi og sumir skaðast. Of mikil geislun HELSTA frímúrarastúkan í Frakk- landi hefur hafnað því að veita kon- um aðgang. Var það fellt á ársfundi hennar með 60% atkvæða en samt er andstaðan sögð fara minnkandi. Konunum hafnað LÆKNAR í Kína, sem skoðuðu 31 árs gamla konu, fundu 26 saumnál- ar í líkama hennar. Talið er að afi hennar og amma hafi ætlað að fyrirkoma henni sem hvítvoðungi af því að hún var ekki drengur. Eins og nálapúði KOMIÐ hefur í ljós í samanburðar- rannsókn að þunglyndi hefur meiri og verri áhrif á fólk en flestir aðrir langvarandi sjúkdómar. Mjög erfitt er að læra að búa við þann krank- leika. Þunglyndið verst Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is TALSMAÐUR sýrlensku stjórnar- innar skýrði frá því í fyrrakvöld að þá um morguninn hefðu ísraelskar her- flugvélar rofið sýrlensku lofthelgina og hefði því verið svarað með skothríð frá sýrlenskum loftvarnabyssum. At- hygli vakti, að beðið skyldi í hálfan sólarhring með að segja frá þessum atburði og þá vekur það ekki minni at- hygli, að ísraelsk yfirvöld skuli ekkert vilja um hann segja. Segja má að tæknilega ríki stríðs- ástand á milli Ísraela og Sýrlendinga eftir að friðarviðræður fóru út um þúfur árið 2000 vegna ágreinings um Gólanhæðir. Nú í sumar hafa þó vaknað vonir um nýjar friðarviðræð- ur og því kemur það mörgum á óvart, að Ísraelar skuli ögra Sýrlendingum með þessum hætti. Mohsen Bilal, upplýsingaráðherra Sýrlands, sagði í viðtali við Al Jazeera-sjónvarpsstöð- ina, að Sýrlandsstjórn myndi velta vandlega fyrir sér viðeigandi svari við yfirganginum en ekki er þó búist við, að það muni felast í öðru en harðorð- um yfirlýsingum. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sem fagnaði nýju, gyðinglegu ári á fimmtudag ásamt æðstu yfir- mönnum hersins, hefur ekkert viljað segja um ásakanir Sýrlendinga og ísr- aelskir fréttaskýrendur eru ekki á einu máli um ástæðuna. Hvort um sé að ræða beina ögrun eða könnunar- flug, hvort þögnin sé fremur fallin til að draga úr spennu eða auka hana. Tzahi Hanegbi, formaður varnar- og utanríkismálanefndar þingsins, segir, að Ísraelsstjórn vilji ekki valda aukinni spennu en ýmsir sérfræðing- ar eru á allt öðru máli. Bein ögrun „Ef ísraelskar herflugvélar rufu lofthelgi Sýrlands þá er það bein ögr- un,“ segir hernaðarsérfræðingurinn Reuven Pedatzur og hann heldur því fram, að þögn ísraelskra stjórnvalda sé beinlínis hugsuð til að auka spennuna milli ríkjanna. Undir þetta tekur fréttaskýrand- inn Ben Caspit í dagblaðinu Maariv: „Spennan milli Ísrales og Sýrlands eykst dag frá degi. Sé það ekki vilji Ísraelsstjórnar, myndi hún leggja sig í líma við að draga úr henni en Olmert steinþegir.“ Skilyrði Sýrlendinga fyrir friði við Ísraela eru, að þeir skili Gólanhæð- unum, sem Ísraelar eru ekkert áfram um auk þess sem þeim líkar ekki, að Sýrlandsstjórn skuli skjóta skjólshúsi yfir ýmis róttæk samtök Palestínu- manna, þar á meðal Khaled Meshaal, útlægan leiðtoga Hamas, en hann er efstur á fjandmannalista Ísraela. Í útvarpi ísraelska hersins var það haft eftir ónefndum herforingjum, að bein hernaðarátök við Sýrlendinga væru ekki útilokuð en líklegra væri þó, að stjórnin í Damaskus svaraði fyrir sig með því að styðja við „hryðjuverkaárásir“ á Ísrael. Ríkisstjórn Olmerts sögð kynda undir spennunni AP Vaxandi spenna Ísraelskur hermaður stekkur ofan af skriðdreka í Gólan- hæðum sl. fimmtudag. Þá um daginn höfðu Sýrlendingar skotið á ísraelsk- ar orrustuþotur, sem rufu sýrlensku lofthelgina. Sýrlendingar segja að ísraelskar orrustuþotur hafi rofið sýrlensku lofthelgina á fimmtudag UM 20 manns slösuðust er vopnaðir Hamas-liðar með grímu fyrir andliti tvístruðu fólki, sem kom saman til bænahalds á Gaza í gær. Var um að ræða stuðnings- menn Fatah-hreyfingar Abbas forseta, sem una illa yfirráðum Hamas-hreyfingarinnar á Gaza. Saka nokkrar mannréttindahreyfingar Hamas um að fótum troða borgaraleg réttindi á Gaza-svæðinu. Hér eru Hamas-liðar að handtaka einn stuðningsmann Fatah. AP Innbyrðisátök á Gaza-svæðinu Sydney. AP, AFP. | Ekki virðist neinn árangur hafa orðið af fundi þeirra George W. Bush, forseta Bandaríkj- anna, og Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, í Sydney í Ástralíu í gær. Var umræðuefni hans fyrirhugað eldflaugavarnakerfi Bandaríkjanna en í dag munu þeir sitja leiðtogafund APEC-ríkjanna, þeirra, sem aðild eiga að Efnahagssamvinnuráði Asíu- og Kyrrahafsríkja. Ekki var mjög létt yfir Pútín er hann kom af fundinum með Bush. Sagði hann, að umræðurnar hefðu fyrst og fremst snúist um eldflauga- skjöldinn, sem Bandaríkjamenn vilja koma upp í Mið-Evrópu, í Póllandi og Tékklandi, en Rússar líta á hann sem beina ögrun við sig. Moskvustjórnin heldur því fram, að eldflaugaáætlanir Bandaríkjanna riðli valdajafnvæginu en stjórnin í Washington segir, að eldflaugunum sé alls ekki stefnt gegn Rússum, heldur til að svara hugsanlegri ógn frá Íran og Norður-Kóreu. Pútín hefur svarað þessu með því að leggja til, að Bandaríkjamenn fái afnot af rússneskri ratsjárstöð í Aserbaídsjan og sagði hann í gær, að sérfræðingar beggja ríkjanna myndu skoða það mál nánar. Fyrr í gær sömdu Pútín og John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, um, að Ástralar seldu Rússum úran og lögðu þeir mikla áherslu á, að með því væri ekki verið að auka hættuna á útbreiðslu kjarnavopna. Leiðtogar 18 Asíu- og Kyrrahafs- ríkja sitja APEC-fundinn í Sydney og þar á meðal Hu Jintao, forseti Kína. Ætluðu Ástralar að leggja fram tillögu um, að ríkin settu sér ákveðin markmið í umhverfismálum, en mikil andstaða er við það í hinum nýju hagvaxtarríkjum í Asíu. Ólíkar áherslur Á fundi með kaupsýslumönnum notaði Bush tímann til að ræða um baráttuna gegn hryðjuverkum en Hu ræddi aftur um þau tækifæri, sem uppgangurinn í Kína byði upp á. Vöktu þessar ólíku áherslur athygli. Þykja þær endurspegla það, að áhrif Bandaríkjanna, sem eru upptekin af hryðjuverkaógninni, fara minnkandi en á sama tíma er farið að líta á Kína sem hina efnahagslegu driffjöður í þessum heimshluta. Bush og Pútín ósam- mála um eldflaugar AP Kankvís Þótt lítill árangur yrði af fundi Bush og Pútíns, fór vel á með þeim Condoleezzu Rice, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, og for- seta Rússlands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.