Morgunblaðið - 08.09.2007, Page 24
24 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Bolungarvík | Stórmót Kaupþings
og Sparisjóðs Bolungarvíkur –
Hraðskákmót Íslands 2007 – verður
haldið í Bolungarvík næstkomandi
laugardag, 15. september. Mótið er
öllum opið.
Tefldar verða fimm mínútna
skákir, tuttugu umferðir alls. Búist
er við fjölmennu og fjörugu móti
þar sem bæði sterkustu stórmeist-
arar og ungir byrjendur koma sam-
an.
Mikið verður um að vera í Bol-
ungarvík á meðan mótið stendur.
Kaupþing, Sparisjóður Bolungar-
víkur og Bolungarvíkurbær eru að-
alstyrktaraðilar mótsins.
Hraðskákmót
Íslands haldið
í Bolungarvík
LANDIÐ
Hólmavík | Hafin er útgáfa á nýju
héraðsfréttablaði á Ströndum. Það
heitir Gagnvegur.
Langt er um liðið síðan síðast var
gefinn út prentmiðill á Ströndum og
ætti það því að verða kærkomin við-
bót við fjölmiðlun á svæðinu, segir í
frétt frá útgáfunnni. Blaðið verður í
senn frétta-, dagskrár- og auglýs-
ingamiðill og verður því dreift
ókeypis á öll heimili í Strandasýslu.
Það er Kristín Sigurrós Ein-
arsdóttir, grunnskólakennari á
Hólmavík, sem gefur út og ritstýrir
hinu nýja blaði. Kristín er jafnframt
fréttaritari fyrir Morgunblaðið og
Bændablaðið og pistlahöfundur hjá
Svæðisútvarpi Vestfjarða, ásamt því
að vera tengiliður Fræðslu-
miðstöðvar Vestfjarða á Ströndum.
Samhliða blaðaútgáfunni verður
boðið upp á ýmsa aðra þjónustu, svo
sem prentun, skönnun og gerð boðs-
korta.
Hafin útgáfa
héraðsfréttablaðs
á Ströndum
Eftir Björn Björnsson
Sauðárkrókur | Björgunarsveitin
Grettir fékk nýlega afhentan nýjan
og fullbúinn jeppa af Nissan-gerð
en fyrir átti sveitin einn Land
Rover-jeppa. Að sögn Jóns Einars
Kjartanssonar, formanns björg-
unarsveitarinnar, hefur fjár-
mögnun kaupa á þessari bifreið
staðið yfir nokkuð lengi, en með
þessari viðbót hefur bifreiðaeign
sveitarinnar tvöfaldast.
Með öllum búnaði kostaði bifreið-
in um átta og hálfa milljón, en fyrir
litla björgunarsveit er það veruleg-
ur þröskuldur að yfirstíga, að sögn
Jóns Einars.
En einmitt daginn eftir afhend-
inguna boðuðu komu sína á Hofsós
afkomendur Rósu Sigurðardóttur
og Guðmundar Jóhannssonar, sem í
upphafi síðustu aldar bjuggu á
Bakka í Austurfljótum, en þeir
höfðu nú í sumar haldið veglegt
ættarmót á Hofsósi og ákváðu að
allur ágóði af mótinu rynni til
Björgunarsveitarinnar Grettis á
Hofsósi.
Sigurbjörg Björgvinsdóttir tals-
maður hópsins sagði gjöfina til
minningar um hjónin Rósu og Guð-
mund og vildu gefendur með henni
vekja fólk til umhugsunar um
hversu starfsemi, sem unnin er af
áhugasömun einstaklingum oft við
hinar erfiðustu aðstæður, væri mik-
ilvæg á ögurstundum, og einnig því
að unnt væri að styrkja það góða
starf sem unnið er af sjálfboða-
liðum um allt land með fleiru en
kaupum á flugeldum um áramót.
Jón Einar Kjartansson þakkaði
þessa höfðinglegu peningagjöf, sem
hann sagði koma í góðar þarfir
þegar ráðist hefði verið í miklar
fjárfestingar. Sagði hann að allur
rekstur sveitarinnar byggðist á
styrkjum og þeim fjármunum sem
sveitin aflaði, meðal annars með
sölu á stuðlabergi úr Staðar-
bjargavík auk hefðbundinna fjár-
öflunarleiða, og því væri gjöf sem
þessi kærkomin.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Láta gott af sér leiða Sigurbjörg Björgvinsdóttir afhenti Jóni Einari
Kjartanssyni styrkinn að viðstöddum björgunarsveitarmönnum.
Bifreiðaeign
Grettis tvöfaldast
Eftir Örn Þórarinsson
Skagafjörður | Umferð hefur verið
hleypt á síðasta kafla Þverárfjallsveg-
ar, milli Skagastrandar og Sauðár-
króks. Þá var ný brú við Göngu-
skarðsárós tekin í notkun og einnig
hringtorg nyrst í Sauðárkróksbæ
skammt frá steinullarverksmiðjunni.
Með tilkomu vegarins breytist inn-
koma vegfarenda til Sauðárkróks
verulega. Þverárfjallsvegur er alls 35
kílómetar að lengd, 7,5 metra breiður
og lagður bundnu slitlagi.
Ekki verður annað sagt en síðasti
hluti framkvæmdarinnar hafi gengið
vel því samkvæmt samningum átti að
skila verkinu 1. ágúst 2008. Tekið skal
þó fram að enn er eftir nokkur frá-
gangur við veginn og hringtorgið.
Verktaki við seinni hluta vegarins,
sem var 12,4 kílómetra langur og náði
frá Hestgili á Laxárdalsheiði og á eyr-
ina norðan sláturhússins á Sauðár-
króki, var Skagfirskir verktakar ehf.,
sem er félag sem verktakafyrirtæki í
heimahéraðinu standa að.
Brúin sem áður var getið um er 30
metra löng, verktaki var Mikael ehf.
frá Höfn í Hornafirði. Vinna við brú-
arsmíðina hófst haustið 2006 og lauk
um miðjan júlímánuð.
Með tilkomu vegarins sést fyrir
endann á miklu baráttumáli sveitar-
stjórnarmanna í Skagafirði, en við
þetta styttist leiðin milli Sauðárkróks
og Blönduóss um 30 kílómetra.
Þverárfjallsvegur
ári á undan áætlun
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Breyting Ekið um fyrsta eiginlega
hringtorgið á Sauðárkróki.
Fjallabyggð | Efnt verður til tveggja
íbúafunda í Fjallabyggð á næstunni.
Markmiðið er að stilla saman strengi
alls samfélagsins, bæjarstjórnar,
fyrirtækja, félagasamtaka, frum-
kvöðla og allra íbúa og blása til sókn-
ar undir yfirskriftinni: „Fjallabyggð
er frumkvöðull.“
Tilefni fundanna er meðal annars
það að Fjallabyggð stendur frammi
fyrir þeirri áskorun að nýta tækifæri
sem skapast munu við opnun Héð-
insfjarðarganga og styrkja atvinnu-
lífið á svæðinu. Bæjarstjórn hefur
hafið viðræður við ríki og stofnanir
um leiðir til að efla atvinnulífið og vill
snúa vörn í sókn með víðtæku sam-
starfi alls samfélagsins.
Fundað verður í íþróttahúsinu á
Siglufirði 17. september kl. 20 og í
félagsheimilinu Tjarnarborg á Ólafs-
firði daginn eftir kl. 20.
Nýta tækifæri við opnun
Héðinsfjarðarganga
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Stoltir af nýja pólfaranum Þrír af fjórum starfsmönnum Ice Cool, f.v.
Hjalti Eggertsson, Magnús Valur Sveinsson og Gunnar Egilsson.
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | „Það er nóg að fara einu
sinni þessa leið en það var upplifun
að fara á sínum tíma, 2005. Þetta er
alveg eins bíll og fór þá á suðurpól-
inn. Hann er 6 hjóla og á 44 tomma
dekkjum,“ sagði Gunnar Egilsson
hjá fyrirtækinu Ice Cool á Selfossi
sem sendi nýlega frá sér sex hjóla
breyttan Ford Econoline-bíl sem
fær það verkefni að flytja leiðang-
ursmenn á suðurpólinn í samfloti við
bílinn sem Gunnar fór á á pólinn á
sínum tíma.
Leiðangursmennirnir sem ætla á
suðurpólinn núna er þeir sömu en
verða núna á tveimur bílum. Þegar
Gunnar fór í leiðangurinn með þeim
voru þeir á einum bíl og Gunnar
keyrði allan tímann. Í ferðinni var
sett hraðamet á svona bíl, en þeir
voru 69,5 klukkustundir á pólinn.
Núna gera leiðangursmennirnir ráð
fyrir tveimur mánuðum í leiðang-
urinn sem er lengri en síðast enda
verður farið þvert yfir pólinn.
Þrír bílar sömu gerðar
Gunnar og starfsmenn hans hafa
smíðað þrjá bíla af þessari gerð,
þann fyrsta á Gunnar sjálfur og not-
ar í óbyggðaferðir, bíll númer tvö
fór á suðurpólinn 2005 og sá nýjasti
er eins og þeir, 6 hjóla og vegur
samtals 4,7 tonn án eldsneytis en
tankar fyrir um það bil 1.600 lítra af
olíu voru settir í hann til viðbótar við
540 lítra tanka sem eru undir hon-
um.
„Þessi bíll er auðvitað smíðaður
sérstaklega fyrir það verkefni að
fara á suðurpólinn og við byggjum
að sjálfsögðu á þeirri reynslu sem
fékkst í ferðinni 2005 og þeirri
reynslu sem við höfum af því að
breyta bílum. Það er mikil sérsmíði í
kringum svona bíl, það þarf að stilla
inn drifbúnað og koma öllu hagan-
lega fyrir þannig að það virki vel.
Þessi bíll er mjög góður, sérstaklega
þegar búið er að fylla hann af olíu en
það er líka þess vegna sem hann er á
sex hjólum. Útfærslur okkar á bíln-
um eru þær einu sinnar tegundar
með því húsi sem er á honum,“ sagði
Gunnar og svaraði svo spurningu:
„Já, já við erum að sjálfsögðu til í að
smíða fleiri svona bíla ef út í það er
farið og kaupendur eru fyrir hendi.“
Gunnar og starfsmenn hans hafa í
nógu að snúast við breytingar á bíl-
um og segir Gunnar að mörg verk-
efni séu framundan í þeim efnum en
hann er þekktur fyrir að víla ekki
fyrir sér þó að verkefnin séu fyr-
irferðarmikil. „Okkar mottó hér á
verkstæðinu er að þróast og leysa
öll vandamál. Það er ekkert það
vandamál til sem ekki er hægt að
leysa og við breytum rétt,“ sagði
Gunnar Egilsson bílasmiður og
sneri sér við til að sýna áhersluna
sem hann hefur látið letra aftan á
starfsmannabolinn.
Smíða annan bíl sérstak-
lega fyrir suðurpólinn
Selfoss | Framkvæmdir við ný-
byggingu Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands á Selfossi hafa gengið
samkvæmt áætlun en verktakinn
JÁ-verk mun skila fyrsta áfanga
verksins 1. október eins og áætl-
anir gera ráð fyrir. Í þessum
áfanga er 2. hæð nýbygging-
arinnar og tengibygging við eldra
hús ásamt frágangi á lóð. Byrjað
verður 1. október á frágangi 3.
hæðarinnar en eftir er að bjóða út
fyrstu hæðina og kjallara hússins.
„Verkið hefur gengið vel,“ sagði
Ágúst Sigurjónsson, yfirverkstjóri
JÁ-verks, og Smári Stefánsson
verkstjóri tók í sama streng. Þeir
sögðu að áhersla væri lögð á að
skila fyrsta áfanganum á réttum
tíma og að núna væru um 80
manns við vinnu í húsinu auk þess
sem unnið væri við ýmsa þætti
annars staðar svo sem hurðasmíði.
Önnur hæð byggingarinnar,
sem verður kláruð fyrst, er ætluð
fyrir hjúkrunardeildina Ljósheima
sem nú er starfrækt í gömlu húsi
við Austurveg á Selfossi. Á þriðju
hæðinni verður einnig hjúkr-
unardeild sem er hugsuð fyrir
heilabilað fólk. Gert er ráð fyrir
að byrja á innanhússfrágangi
hennar 1. október. Á fyrstu hæð-
inni verður aðstaða Heilsugæsl-
unnar á Selfossi og í kjallara
byggingarinnar er gert ráð fyrir
endurhæfingaraðstöðu, kapellu og
fleiru.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gangur Smári Stefánsson verkstjóri og Ágúst Sigurjónsson, yfirverkstjóri
JÁ-verks, við nýbyggingu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi.
Vinnu er að ljúka
við fyrsta áfanga