Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 27
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 27
Töðugjöld 2007 í Rangárþingi ytra
fóru fram í ágúst að áliðnum slætti
eins og venja var til hér áður fyrr.
Töðugjöld hafa verið árlegur við-
burður síðan 1994. Margt var um að
vera til dægrastyttingar fyrir unga
sem aldna. Dagskrá í Þykkvabæ
hófst kl. 16 á föstudeginum 17.
ágúst. Nokkur hundruð manns sóttu
atriðin sem þar voru á boðstólum
fram eftir degi og um kvöldið. Á
laugardag hófst dagskrá kl. 9 um
morguninn á Hellu og stóð allan
daginn sleitulítið fram að miðnætti.
Talið er að á annað þúsund manns
hafi verið á kvöldvökunni sem end-
aði með glæsilegri flugeldasýningu.
Sú nýbreytni var tekin upp á Hellu
þessi Töðugjöld að kauptúninu var
skipt upp í fjögur hverfi, gult, rautt,
grænt og blátt, þar sem íbúarnir
kepptust um að skreyta sitt um-
hverfi með viðeigandi litaskreyt-
ingum og blöðrum. Einnig var eitt-
hvað um að íbúar í hverfunum héldu
sameiginlegar útigrillveislur. Allt
fór vel fram og gerðu gestir góðan
róm að þeim viðburðum og sýning-
um sem fram fóru. Tæplega 300
myndir frá Töðugjöldum má sjá á
vefsíðu sveitarfélagsins, www.rang-
arthingytra.is.
Eftir að hringtorgið nýja kom á Suð-
urlandsveginn við Hellu hafa fyrir-
tæki sunnan vegarins komist á kort-
ið ef svo má að orði komast, en
hringtorgið liggur nokkuð nálægt
þeim. Þarna eru Pakkhúsið, Raffoss,
Sláturhúsið Hellu, Vörufell og Ár-
hús. Nú eru þessi fyrirtæki að fegra
umhverfið hjá sér og m.a. verða mal-
bikaðir nokkur þúsund fermetrar af
götum og plönum við fyrirtækin nú í
september. Hringtorgið nýja virkar
vel að mati flestra eftir stutta
reynslu og vonandi dregur það úr
hraðakstri og slysahættu á þessum
stað, eins og því er meðal annars
ætlað.
Heklusetrið á Leirubakka var afar
vel sótt í sumar eftir að það var opn-
að og ferðamenn sem þar hafa komið
hafa gert góðan róm að aðstöðunni
og sýningunni sem þar er. Í Heklu-
setrinu hefur verið sett upp nútíma-
leg og fræðandi sýning um Heklu,
sögu hennar og áhrif á mannlíf á Ís-
landi frá landnámi til okkar daga.
Þar verður aðstaða fyrir ráðstefnur
og fyrirlestra, bæði fyrir skólafólk
og aðra. Straumur ferðamanna um
svæðið hefur aukist ár frá ári og
sækjast margir eftir að sjá Heklu og
komast í návígi við eldfjallið. Að auki
er undravert hvað margir erlendir
ferðamenn sækjast sérstaklega eftir
að komast í Landmannalaugar sem
virðast geysilega vel kynntar erlend-
is og við komu ferðamanna til lands-
ins. Enda er þar fallegt og stórbrotið
landslag með mikilli litadýrð, sér-
staklega er bjart er yfir.
Nú líður að göngum og réttum á
svæðinu hér í vestanverðri Rangár-
vallasýslu sem annars staðar. Smal-
aðir eru 3 afréttir, Holtamannaaf-
réttur, Landmannaafréttur og
Rangárvallaafréttur. Það eru bænd-
ur frá mismunandi svæðum sem
nýta þessa afrétti, þannig að það er
réttað á 3-4 stöðum á mismunandi
dögum.
Holtamannafréttur nær frá vatna-
mótum á Sprengisandi suður á Búð-
arháls og Þóristungur. Þar eru talin
vera um 3.000 fjár, um 30 manns
koma að smölun á 2 svæðum á 3-4
dögum. Réttað verður sunnudaginn
16. september, annars vegar við
Hald hjá Tungnaá og hins vegar í
Þóristungum skammt frá Hraun-
eyjum.
Á Landmannafrétti sem er sunn-
an og austan Holtamannaafréttar,
eru hátt í 4.000 fjár og eru 26
manns ráðnir við smölunina sem
tekur 6 daga, en réttað verður í
Áfangagili fimmtudaginn 20. sept-
ember. Annar eins fjöldi fólks, 20-
30 túristar og annað fylgifólk kem-
ur að smöluninni sér til skemmt-
unar. Túristar greiða fyrir að fá að
vera með í ferðinni allan tímann eða
að hluta til. Rangárvallaafréttur er
enn sunnar og austar, þar verður
smalað vikuna fyrir laugardaginn
22. september, sem er réttardagur í
Reyðarvatnsréttum á Rang-
árvöllum. Um 10-12 smalar safna
þá saman sem mestu af um 2.000
fjár sem gengur þar. Vonandi verð-
ur veðrið skaplegt í smala-
mennskum þetta haustið og ósk-
andi að allt gangi slysalaust.
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Hátt uppi Þessi reyndi fyrir sér í
jafnvægislistum á Töðugjöldum.
HELLA
Óli Már Aronsson fréttaritari
Ármann Þorgrímsson varþakklátur eftir Landsmót
hagyrðinga um liðna helgi:
Öll til sóma veislan var
verður lengi í minni.
Konur báru af körlum þar
í kvæðamennsku sinni.
Öðru þó ég einnig hrósi
einu seint ég gleymi.
Á börunum á Blönduósi
er besta vatn í heimi.
Stefán Vilhjálmsson, sem gegnir
stöðu fagsviðsstjóra kjötmats hjá
Landbúnaðarstofnun, fór til
augnlæknis vegna óþæginda í auga
og var ráðlagt að fjárfesta í
gervitárum og augngeli. Honum
varð að orði:
Í hægra auga er eitthvert bölvað sár.
Svo yfirmatið réttsýnt verði í dag
ég á að kaupa krókódílatár
og koma með þeim sjóninni í lag.
Björn Ingólfsson orti að bragði:
Upp á Stefán hefur læknalið
lappað oft og tíðum gegnum árin.
Ég sé hann kroppa bera bjástra við
og brosa allan hringinn gegnum tárin.
Þá Davíð Hjálmar Haraldsson:
Að giftu sinni gengur Stefán vís,
gjörólíkur öllum þessum skálkum
er hafa ekki í hægra auga flís
heldur köst af myndarlegum bjálkum.
VÍSNAHORNIÐ
Af Lands-
móti og
réttsýni
pebl@mbl.is
Málstofurnar eru öllum opnar, aðgangur ókeypis, og allir nemendur Háskólans á Bifröst taka þátt í þeim auk
kennara og annars starfsfólks.
Stjórnenda- og leiðtogaskóli í hartnær 100 ár
Málstofur Háskólans á Bifröst
á haustmisseri 2007
Málstofur Háskólans á Bifröst fara fram í Hriflu, aðalsal Háskólans á
Bifröst, og hefjast kl. 15:30 á þriðjudögum
11.9.
Stefanía Óskarsdóttir
stjórnmálafræðingur
Hverju breytti 11. september;
skuggi hryðjuverka og skipan alþjóðamála
18.9.
Björg Thorarensen
forseti lagadeildar HÍ
Utanríkismál og utanríkismálanefnd
25.9.
Friðrik Snorrason
framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Nýherja
Stafræn veröld: framtíðin og hið óvænta
2.10.
Eggert B. Guðmundsson
forstjóri Granda
Þróun sjávarútvegs hérlendis og erlendis
9.10.
Henry Rosemont Jr.
prófessor St. Mary's College Maryland
Kína og Bandaríkin; var, er, verður
16.10.
Páll Þórhallsson
lögfræðingur forsætisráðuneytis
Undirbúningur lagasetningar;
málamiðlanir og vinnubrögð
23.10.
Berglind Ásgeirsdóttir
ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu
Ísland og OECD. Samstarf og samanburður landa
30.10.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra
Erindi Íslands í Öryggisráð SÞ
6.11.
Sigurður Jónsson
framkvæmdastjóri SVÞ
Þróun í þjónustustarfsemi; tækifærin framundan
Háskólinn á Bifröst býður öllum að koma á Bifröst og hlusta á
vandaða fyrirlestra í ofangreindum málstofum og taka þátt í
umræðu í kjölfar þeirra.
Dagskrá haustmisseris er eftirfarandi: