Morgunblaðið - 08.09.2007, Page 32

Morgunblaðið - 08.09.2007, Page 32
32 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN GRÍMSEYJARFERJUMÁLIÐ er merkilegt fyrir tvennt. Ann- arsvegar þann dæmafáa valdhroka sem málið sjálft endurspeglar og hinsvegar fyrir það hverjir taka nú að sér þann flórmokstur að verja gjörðir sjálfstæðisflokks- ráðherranna í málinu. Þeir sem ávirðingum eru bornir hafa að mestu kosið að þegja sem í minni sveit var nú talið jafnast á við samþykki. Össur Skarphéð- insson hefur nú geng- ið fram fyrir skjöldu í vörn fyrir vini sína og samstarfsmenn í Sjálfstæðisflokki og heldur því meðal ann- ars fram á heimasíðu sinni að hliðstæða þessa séu svokölluð Byrgismál. Sjálfur sat Össur í fjár- laganefnd á Byrg- istímanum og hreyfði þar aldrei þeim andmælum við fjárveitingum til Byrgisins sem honum var þó í lófa lagið. Staðreyndin er að þing- menn allra flokka voru grunlausir í Byrgismálinu og höfðu raunar enga ástæðu til annars. Þegar upp komst um vafasama meðferð bæði fjár og fólks á því meðferðarheim- ili var það þáverandi félagsmála- ráðherra, Magnús Stefánsson, sem kallaði tafarlaust eftir skýrslu um málið og lét stöðva greiðslur. En allar greiðslur vegna Byrgisins voru samkvæmt fjárlögum. Vöntunarákvæði fjármálaráðherra Grímseyjarferjumálið snýst um hálfs milljarðs króna fjársukk án heimildar í fjárlögum. Ráðslag þetta er gert með sérstöku leyfi fjármálaráðuneytis sem á sér enga hliðstæðu. Það er vissulega ekki einsdæmi að embættismenn geti fært fé milli fjárlagaliða þó að slíkt ráðslag sé illa samrýmanlegt lögum. En til að kóróna hina al- geru lítilsvirðingu sem ákveðið er að sýna Alþingi í málinu koma í framhaldinu lokaorð minnisblaðs fjármálaráðuneytisins: „Hafi Vegagerðin ekki svigrúm til þess að nýta ónotaðar fjárheimildir mun fjármálaráðuneytið heimila yfirdrátt sem þessari vöntun nem- ur.“ Hér eru engar skorður settar við hversu miklu fé megi eyða; hið einstaka vöntunarákvæði kveður á um að ef það vanti pening sé rík- issjóður galopinn. 40. grein stjórnarskrárinnar tekur af allan vafa um að fjár- málaráðherra hefur ekki undir neinum kringumstæðum heimild til að veita slíkan aðgang að rík- issjóði án samþykkis Alþingis. Um það snýst Grímseyjarferj- umálið og þrátt fyrir nokkurt ábyrgðarleysi og samsekt þáverandi samgönguráðherra í málinu er sökin fyrst og síðast hjá fjár- málaráðherra. Það er haldlaust að drepa málinu á dreif með umræðu um það hvort rétt ferja eða réttur ráðgjafi hafi verið valin í upphafi líkt og núverandi sam- gönguráðherra hefur gert með af- ar ósmekklegum hætti. Einn er flokkurinn … Og þó svo að hinn sérlegi tals- maður Sjálfstæðisflokksins í mál- inu, Össur Skarphéðinsson, kjósi að dylgja um að sambærilegar uppákomur séu þekktar í öðrum málum er alvara þessa máls hafin yfir slík vinnubrögð. Ef slík dæmi eru til, hvers vegna hafa þau þá ekki verið tilgreind nú mörgum vikum eftir að Grímseyjarferj- umálið kom upp? Og hvers fjár- málaráðherratíð er Össur að tala um. Það hefur bara einn flokkur haldið um þetta ráðuneyti, allt frá því flokksbróðir Össurar Ólafur Ragnar Grímsson lét af því emb- ætti árið 1991. Össur er reyndar ekki einn og það er honum nokkur huggun í vondu hreti. Morgunblaðið hefur tekið að sér að þegja um Gríms- eyjarferjumálið af meiri ákefð en dæmi eru til. Það er raunalegt fyrir íslenska blaðamannastétt að horfa á hversu mjög Morgunblaðið hallar sér á síðustu misserum að nýju að sínu gamla hlutverki að vera grímulaust flokksmálgagn. … og allir fjölmiðlar! Ritstjóri fréttablaðsins, Þor- steinn Pálsson, hefur einnig tekið að sér vörn fyrir fyrrum sam- verkamann sinn, Árna Mathiesen, og færir fyrir því einstök rök að menn eigi ekki að tala um þetta mál í leiðara um síðastliðna helgi; það ku nefnilega víðar vera sól- undað opinberu fé! Það er alveg rétt hjá fjár- málaráðherranum fyrrverandi að oft er sólundað opinberu fé í okk- ar landi en Grímseyjarferjumálið snýst ekki um það. Þorsteinn Pálsson var fjármálaráðherra fyrir liðlega 20 árum. Af hverju til- greinir hann ekki að sambærilegt ráðslag hafi þá eða síðar verið haft í fjármálaráðuneytinu eins og gerðist í Grímseyjarferjumálinu? Ástæðan er einföld – málið á sér ekki hliðstæður. Málflutningur Þorsteins Páls- sonar minnir okkur á að Sjálf- stæðisflokkurinn á núna algerlega öll dagblöð landsins. Þeim fjöl- miðlum sem ekki eru undir ægi- valdi Sjálfstæðisflokks er flestum stjórnað af flokkssystkinum Öss- urar Skarphéðinssonar. Málflutn- ingur Össurar verður seint til al- vöru metinn en ægivald ríkisstjórnarflokkanna yfir fjöl- miðlum þessa lands er mikið áhyggjuefni fyrir lýðræðið. Af Össuri og fjölmiðlum ríkisstjórnarinnar Bjarni Harðarson skrifar um Grímseyjarferjumálið »Hafi Vegagerðinekki svigrúm til þess að nýta ónotaðar fjárheimildir mun fjár- málaráðuneytið heimila yfirdrátt sem þessari vöntun nemur. Bjarni Harðarson Höfundur er alþingismaður. RANNSÓKNIR sýna að heyrn- arskertum fjölgar hlutfallslega og nú er svo komið að 16% Evr- ópubúa á aldrinum 18 til 80 ára eru heyrnarskert. Margt bendir til þess að fjölgunin stafi af vaxandi hávaða í umhverfi okkar og einnig af hækkandi meðalaldri fólks. Iðulega er því haldið fram að heyrnarskerðingu sé oftast hægt að lækna. En því miður er hún ólæknanleg í um 90% tilvika. Skemmd í innra eyra, sem staf- ar oft af hávaða, lagast ekki aftur. Þegar hin örfínu skynhár í innra eyr- anu eru einu sinni skemmd verða þau það til frambúðar. Skemmdina er ekki hægt að lækna og hárin vaxa ekki aftur. Það má ekki gefa fólki falskar vonir um að lækna megi tapaða heyrn. Unglingar, sem eru að skemma heyrnina með allt of hátt stilltum vasaspilurum, á rokktónleikum eða með ærandi há- vaða úr hljómflutningstækjum, mega ekki standa í þeirri trú að þeir geti fengið heyrnina aftur ef hún tapast. Heyrnarskertir hætta í vinnunni Eldra fólk er oft mjög nýtur starfskraftur og þeim fjölgar sem búa við sveigjanlegan eftirlauna- aldur. Athyglishæfni fólks má bæta með betri sjón og heyrn. En það þarf meira til að bæta heyrnartap en að skola úr eyrunum. Þegar sjónin sljóvgast fá menn sér gler- augu en aðeins lítill hluti þeirra, sem eru með skerta heyrn, notar heyrnartæki. Samkvæmt niðurstöðu úr viða- mikilli könnun, sem danska rann- sóknarstofnunin í félagsfræði (Socialforskningsinstitutet) gerði, eru tengsl heyrnarskertra við vinnumarkaðinn veikari en tengsl annarra. Það eru meiri líkur á að þeir verði atvinnulausir, fari á eft- irlaun eða örorkubætur sem er kostnaðarsamt fyrir þjóðfélagið. Sé þessi kostnaður umreiknaður á ís- lenska þjóðfélagið er hann 1,5 til 2 milljarða á ári vegna fram- leiðslutaps. Bæði þeir heyrn- arskertu og þeir sem hafa fulla heyrn eru álíka ánægðir með vinnuna en þeir heyrn- arskertu finna oftar fyrir lélegu sambandi við vinnufélagana. Þeir eru ekki jafn ánægðir með andann á vinnu- staðnum og þeir eru þreyttari í lok vinnu- dags. Heyrnarskertir á eftirlaunum eða ör- orkubótum hafa ekki sömu afstöðu og aðrir til vinnunnar og þeir áttu auðveld- ara með að draga sig í hlé og hætta að vinna. Óþekktur vandi með óbein áhrif Aðeins örfáir af þeim, sem tóku þátt í fyrrnefndri könnun, gáfu það í skyn að heyrnarvandi skipti máli í vinnunni. Í mörgum tilvikum virðast áhrif heyrnarskerðingar vera ómeðvituð. Menn vita ekki af henni og þá grunar ekki að þreyta í lok vinnudags og kulnun í starfi geti verið heyrninni að kenna. Heyrnarskerðing er lúmsk, mað- ur getur heyrt þrátt fyrir hana en hljóðrófið heyrist ekki allt. Skerð- ing á hátíðnihljóðum talmáls, s.s. „s“, rýrir talskilning. Fyrir þann, sem hefur grun um að vera heyrnarskertur, er fyrsta skrefið að fara í greiningu hjá heyrnarfræðingi eða háls-, nef- og eyrnalækni. Ef í ljós kemur leiðni- heyrnarskerðing, sem er um 10% tilvika, má trúlega lækna hana með lyfjum eða aðgerð en í boði eru fjölmargar gerðir heyrnartækja til að bæta úr heyrnarskerðingu. Heyrnartæki jafn sjálfsögð og gleraugu Á örfáum árum hafa heyrn- artæki þróast og batnað mjög mik- ið. Þau eru smágerð og lítið áber- andi. Með stafrænni tækni er hljóðmeðhöndlun tækjanna sniðin til og látin falla að heyrnarriti og hljóðumhverfi notandans. Tækin magna aðeins þann hluta hljóðrófs- ins sem hefur skerst. Þau sía einn- ig burtu síbyljuhljóð og læra að þekkja þær aðstæður sem notand- inn er oftast í. Heyrnartæki geta verið einföld og þægileg í notkun. Ef tenging við eyra er með opinni hljóðkeilu þá getur notandinn sett tækið upp strax eftir að heyrn- arfræðingurinn hefur sniðið virkni þess til og það eina sem þarf að gera er að kveikja á því. Tölvan í tækinu sér um allt. Það eru engir takkar eða fjarstýring og ef það er með hlaðanlegri rafhlöðu þarf að- eins að skipta um hana í mesta lagi einu sinni á ári. Ljóst er að fyrirtæki gætu haft akk af því að hvetja og styrkja starfsmenn til að fara í heyrn- argreiningu. Sá sem leitar hjálpar við heyrn- arskerðingu gefur sér, fjölskyldu sinni og starfsfélögum veglega gjöf þegar þeim finnst ekki lengur erf- itt að tala við hann. Að hætta í vinnunni vegna heyrnarskerðingar Ellisif Katrín Björnsdóttir skrifar um stöðu heyrn- arskertra á vinnumarkaði Ellisif Katrín Björnsdóttir »Heyrnarskerðing erí flestum tilvikum óafturkræf. Höfundur er heyrnarfræðingur hjá Heyrn ehf. ellisif@heyrn.is Á SAMA tíma og hlýnun jarðar og hættan sem henni fylgir verða æ fyrirferðarmeiri í umræðunni alls staðar á jarðkringlunni, er þreytt skringilegt kapphlaup um losunarheimildir koltvísýrings hér á Íslandi. Þrátt fyrir að það sé hér um bil orðin almenn vitn- eskja að áframhald- andi hirðuleysi gagn- vart mengun valdi ógnvekjandi breyt- ingum á veðurfari og sé í raun tilræði við tilvist okkar hér á jörð þá detta fólki ennþá þau ósmekk- legheit í hug að skemmta skrattanum með því að klæða hann í sparifötin og kynna hann fyrir fólki sem bjargvætt, en ekki bölvun. Þannig er nú á nýjan leik búið að dusta rykið af goðsögninni um olíuhreinsunarstöðina stór- kostlegu sem með næstum guð- legri íhlutun læknar sjúkt atvinnu- líf, breytir drullu í gull og reisir byggðalög upp frá dauðum með kraftaverkamætti sínum. Hugmyndin um olíuhreins- unarstöð kom fyrst til sögunnar fyrir um 40 árum og síðan þá hef- ur hún reglulega skotið upp koll- inum á eins og 10 eða 15 ára fresti. Síðast var það fyrir kosn- ingarnar 1999, en þá átti að hlamma ferlíkinu niður í Skaga- firði. Þess má geta að í dag er matvælaiðn- aður í mikilli sókn í Skagafirði, þetta er öflugt landbún- aðarhérað og ferða- þjónusta í blóma. Þetta eru atvinnu- greinar sem ég sé ekki fyrir mér að hefðu notið jafnmik- illar velgengni með mengandi olíu- hreinsunarstöð í bak- garðinum. Það er ljótur leikur að dubba olíu- hreinsunarstöð upp í föt frels- arans, og veifa henni framan í Vestfirðinga á þessum erfiðu tím- um sem blasa við byggðarlaginu í kjölfar niðurskurðar á þorskkvóta. Það er ljótt segi ég, vegna þess að það er ljóst að það verður engin olíuhreinsunarstöð, engin 500 ný störf, þar sem slíkt myndi brjóta gegn skuldbindingum Íslendinga samkvæmt Kýótóbókuninni. Það er ljótt vegna þess að það er ódýrt að ætla að leysa víðtækt vandamál sem að miklu leyti má rekja til vanrækslu og afskiptaleysis ráða- manna á málefnum þessa lands- hluta, með afturgenginni patent- lausn á borð við þessa. Það er ljótt að láta eins og Vestfirðingum sé mikill greiði gerður með þess- ari atvinnustarfsemi sem myndi skaða hreina og fagra ímynd Vest- fjarða, hafa skaðleg áhrif á ferða- þjónustu og matvælaiðnað á svæð- inu og ógna öryggi lífríkis sjávar með tíðari siglingum olíuskipa úti fyrir Vestfjörðum, svo eitthvað sé nefnt. Það er ljótt að reyna að telja einhverjum trú um það að ol- íuhreinsistöð muni draga að ungt fólk til Vestfjarða og það er af- skaplega ljótt að láta eins og mengandi stóriðja sé það eina sem haldið getur landinu í byggð. Frelsararnir sem boða komu ol- íuhreinsunarstöðvarinnar láta sig jafnvel dreyma um að Íslendingar finni sínar eigin olíulindir, það væri jú svo hentugt að eiga bæði olíu og olíuhreinsunarstöð! En væri ekki betra að hætta að eltast við mengandi eldsneyti eins og ol- íu, sem er auk þess að renna til þurrðar, því olíubirgðir heimsins eiga ekki eftir að endast nema í örfáa áratugi í viðbót. Væri ekki betra að Íslendingar einbeittu sér að því að verða sjálfum sér nægir um orku með endurnýtanlegum orkugjöfum? Við skulum stórefla orkurann- sóknir á Íslandi og nýta tækifæri sem þar felast til nýsköpunar og uppbyggingar. Í því sambandi er einmitt gaman að minnast á ný- stofnaðan Orkuskóla á Akureyri sem leggur áherslu á rannsóknir á endurnýtanlegum orkugjöfum. Það er von mín að ötullega verði stutt við bakið á þeim skóla til að við megum fljótt verða í forystu á heimsmælikvarða í rannsóknum á orkugjöfum framtíðarinnar. Afturganga á Vestfjörðum Steinunn Rögnvaldsdóttir vill ekki að sett verði upp olíu- hreinsunarstöð á Vestfjörðum » Við skulum stóreflaorkurannsóknir á Íslandi og nýta tækifæri sem þar felast til ný- sköpunar og uppbygg- ingar. Steinunn Rögnvaldsdóttir Höfundur er háskólanemi og situr í stjórn Ungra vinstri grænna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.