Morgunblaðið - 08.09.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 33
LAGASTOFNUN Háskóla Ís-
lands gerði á sínum tíma samning
við Landssamband íslenskra út-
vegsmanna um kostun tímabund-
innar stöðu sérfræðings í auð-
lindarétti sem undirritaður gegnir.
Forsenda samnings af þessu tagi
er að viðkomandi starfsmaður hafi
í samráði við umsjónarmann verk-
efnisins fullt frelsi til að rannsaka
þær spurningar sem lagðar eru til
grundvallar og að kostunaraðili
hafi engar heimildir til að hafa
áhrif á niðurstöður rannsókn-
arinnar. Þrátt fyrir þetta hafa
m.a. leiðarahöfundur Morg-
unblaðsins og Sigurjón Þórðarson,
fv. alþingismaður, kosið að tengja
saman efnislega umfjöllun und-
irritaðs um sjávarútvegsmál við
LÍÚ. Það er og verður þeirra
vandamál en ekki undirritaðs.
Hvernig svo sem menn mæla út
sókn á Íslandsmiðum er það meg-
inatriði ljóst að sóknargeta ís-
lenskra skipa til að veiða þorsk
jókst verulega eftir að fiskveiði-
landhelgin hafði verið stækkuð í
200 sjómílur þó að það væri
óraunhæft að ætla að afli myndi
vaxa í sama mæli. Þetta hafði þær
afleiðingar að of margir höfðu
fjárfest í tækjum og búnaði án
þess að geta nýtt afkastagetu
þeirra með fullnægjandi móti en
slíkt ýtti undir að rekstur veiða og
vinnslu varð erfiður. Þannig var
þó nokkur taprekstur á fiskveiðum
árin 1980-1983 þó að landaður
þorskafli hafi að meðaltali verið
um 400 þúsund tonn.
Árið 1980 voru 82 skuttogarar í
íslenska fiskiskipaflotanum en þeir
voru 115 árið 1990. Skráðir bátar
undir 10. brl. voru 1.060 í upphafi
árs 1984 en þeir voru 2.045 árið
1990, sbr. Birgir Þ. Runólfsson:
Sjávarútvegur Íslendinga – Þróun,
staða og horfur, bls. 21. Árið 1984
lönduðu 1.128 smábátar afla en
2.023 árið 1990, sbr. skýrslu svo-
kallaðrar tvíhöfðanefndar frá
árinu 1993, bls. 64. Það voru tæp-
lega 1.000 fleiri fiskiskip á skrá
árið 1990 en árið 1984. Flotinn ár-
ið 1990 var mun stærri og afkasta-
meiri en sá floti sem veiddi að
meðaltali 445 þúsund tonn af
þorski árin 1980-1981. Flestir
fiskifræðingar töldu að veitt hafi
verið of mikið á árunum 1984-1990
og að helstu nytjastofnar sjávar
væru ofnýttir. Frá og með fisk-
veiðiárinu 1991/1992 hefur þorsk-
afli aldrei farið yfir 300 þúsund
tonn.
Þó að mestur þorskafli hafi ver-
ið veiddur samkvæmt reglum um
aflamark árið 1984 var meirihluti
aflans veiddur á grundvelli ann-
arra veiðiheimilda árin 1985-1990,
sbr. skýrslu tvíhöfðanefndar, bls.
111. Samræmt aflamarkskerfi var
því ekki notað á tímabilinu 1984-
1990 en grundvallarhugmynd laga
um stjórn fiskveiða nr. 38/1990
var að koma slíku kerfi á. Við
gildistöku laganna var aflakvóta
úthlutað til þeirra skipa sem höfðu
veiðileyfi í atvinnuskyni. Afla-
reynsla skipa á árunum 1980-1989
réði mestu um hvað hvert skip
fékk í sinn hlut, sbr. t.d. dóm
Hæstaréttar í Vatneyrarmálinu, H
2000:1534. Allt frá því að lög um
stjórn fiskveiða komu til fram-
kvæmda 1. janúar 1991 hafa verið
höggvin skörð í meginreglur afla-
markskerfisins.
Ófáir hafa byggt skoðanir sínar
um réttlæti og ranglæti við stjórn
fiskveiða á að kvótanum hafi verið
skipt árið 1984 og að miðað hafi
verið við þriggja ára veiðireynslu
við úthlutun hans. Á þessum
grundvelli hafa sumir fullyrt að
fáeinum einstaklingum hafi verið
afhent verðmæti á silfurfati. Þeg-
ar undirritaður benti á haldleysi
þessarar fullyrðingar með vísun til
þess hvernig fiskiskipastóllinn
þróaðist er tækifærið gripið til að
blanda því saman við álitamál um
líffræðilega sókn í nytjastofna
sjávar. Þó að það sé vissulega al-
gengt að hismið sé fremur valið en
kjarninn í umræðum um sjáv-
arútvegsmál sætir furðu að hægt
sé drepa málum á dreif með þess-
um hætti.
Orsök þess er kannski sú, að
þegar kjarninn hefur verið greind-
ur frá hisminu, stendur eftir sú
staðreynd að það er engin auðveld
lausn til við þeim vanda að skipta
takmörkuðum veiðiheimildum á
milli of margra aðila.
Kvóti: Kjarni eða hismi?
Helgi Áss Grétarsson
skrifar um sjósókn og
skipaflota á Íslandsmiðum
» Þegar kjarninn hef-ur verið greindur
frá hisminu er vanda-
samt að skipta of litlum
veiðirétti á milli of
margra aðila.
Helgi Áss
Grétarsson
Höfundur er sérfræðingur í auðlinda-
rétti við Lagastofnun HÍ.