Morgunblaðið - 08.09.2007, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 45
Tónlist
Norræna húsið | Harald Björköy ten-
órsöngvari og Selma Guðmunds-
dóttir píanóleikari flytja í dag kl. 16
sönglög eftir Edvard Grieg og sex
önnur norsk tónskáld, sem tilheyrðu
kynslóðinni á eftir Grieg og féllu í
skugga hans. Athygli manna hefur nú
aftur beinst að þessum tónskáldum
sem skrifuðu m.a. óperur og sönglög.
Frístundir og námskeið
JCI Garðabær, Kópavogur | JCI
verður með ræðunámskeið þar sem
farið er yfir öll helstu grunnatriði
ræðumennsku. Næsta námskeið
hefst þriðjudaginn 11. september.
Námskeiðið kostar 18.000 kr. Áhuga-
samir geta skráð sig á námskeiðið á
netfangið hrolfur@jci.is Nánari uppl.
á heimasíðunni: http://www.123.is/
jcigk/
Félagsstarf
Ferðaklúbbur eldri borgara | Farið
verður í haustlitaferð 21. september,
Þingvöllur-Lundarreykjadalur-
Húsafellsskógur-Hraunfossar-
Hvítársíða, kvöldverður, dans- og
skemmtiatriði. Allir eldri borgarar
velkomnir. Uppl. og skráning í s. 892-
3011.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Farið verður í Þverárrétt í
Borgarfirði mánudaginn 17. septem-
ber. Brottför frá Gjábakka kl. 8 og
Gullsmára kl. 8.15. Deildartunguhver
skoðaður. Réttur dagsins „kjöt og
kjötsúpa“ á Mótel Venus. Skráning
og ítarlegri upplýsingar í fé-
lagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Krumma-
kaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka
daga kl. 9-16.30 er fjölbreytt dag-
skrá, m.a. opnar vinnustofur, spilasal-
ur, kórstarf o.fl. Prjónakaffi hefst
föstudaginn 14. sept. Allir velkomnir.
Glerskurður er kl. 9 á þriðjud. umsj.
Vigdís Hansen og myndlist kl. 12.30 á
fimmtud. Uppl. á staðnum og í s.
575-7720.
Hraunbær 105 | Farið verður í haust-
litaferð miðvikudaginn 19. september.
Ekið um Þingvöll, Uxahryggi, Lundar-
reykjadal, Hestháls að Indr-
iðastöðum í Skorradal, þar sem
drukkið verður eftirmiðdagskaffi.
Leiðsögumaður: Gylfi Guðmundsson.
Verð 2.300 kr. Brottför kl. 13.30.
Skráning á skrifstofu eða í síma 411-
2730.
Kirkjustarf
Aðventkirkjan í Reykjavík | Biblíu-
rannsókn fyrir börn og fullorðna kl.
10. Einnig er boðið upp á umræðuhóp
á ensku. Guðþjónusta kl. 11. Ræðu-
maður: Eric Guðmundsson.
Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði |
Guðþjónusta og biblíurannsókn kl. 11.
Sérstakar deildir fyrir börn og ung-
linga. Boðið upp á biblíurannsókn á
ensku.
Hallgrímskirkja | Tónlistarandakt kl.
12 í tilefni af 125 ára afmæli Klais-
orgelverksmiðjunnar í Þýskalandi.
Guðný Einarsdóttir leikur á Klais-
orgel Hallgrímskirkju. Sr. Jón D. Hró-
bjartsson flytur ritningarlestur og
bæn.
Háteigskirkja | Auka aðalsafnaðar-
fundur Háteigssóknar verður haldinn
þriðjudaginn 11. september kl. 20 í
Safnaðarheimilinu. Fundarefni: Sala á
byggingarétti – Nóatún 33.
Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut
58-60, 3. hæð. Kristniboðsfélag
karla heldur félagsfund mánudaginn
10. sept. kl. 20. Ræðumaður er sr. Íris
Kristjánsdóttir.
Hlutavelta | Þessir
dugnaðarstrákar héldu
tombólu fyrir utan versl-
un Samkaupa í Hrísalundi
og söfnuðu 4.420 kr. sem
þeir styrktu Rauða kross-
inn með. Þeir heita: Þór-
hallur Óli Pétursson,
Guðmundur Hafsteinn
Friðgeirsson og Andreas
Snær Unnarsson.
Orð dagsins: Sonurinn sagði: Faðir, ég hef syndgað mót himni og gegn þér. Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn. (Lúk. 15, 21.)
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
17
27
Nánari upplýsingar veitir Margrét Óskarsdóttir,
margreto@lv.is, sími 862 4120.
Tækniráðstefna um Kárahnjúkavirkjun
Landsvirkjun efnir til ráðstefnu um Kárahnjúkavirkjun í Reykjavík 17. og 18. september, þar sem fjöldi íslenskra
og erlendra sérfræðinga flytur erindi um alla helstu þætti þessarar stærstu framkvæmdar sem ráðist hefur verið í
á Íslandi. Ráðstefnan fer fram á ensku og er einkum ætluð fagfólki sem tengist framkvæmdum af þessu tagi.
Meðal annars verður fjallað um undirbúning
virkjunarinnar, hönnun mannvirkja, sjálfar
framkvæmdirnar ofan- og neðanjarðar, tæki og
tæknibúnað, umhverfisvöktun og upplýsingamiðlun.
Ráðstefnan verður haldin á Grand Hóteli í Reykjavík
mánudaginn 17. og þriðjudaginn 18. september.
Gestir á ráðstefnunni skrái sig í síðasta lagi
þriðjudaginn 11. september. Aðgangur er ókeypis.
Gert er ráð fyrir kynnisferð ráðstefnugesta um
framkvæmdasvæðið á Austurlandi miðvikudaginn
19. september. Gjald fyrir ferðina er 20.000 krónur.
Dagskrá tækniráðstefnunnar um Kárahnjúkavirkjun er
birt í heild á heimasíðu Kárahnjúkavirkjunar,
www.karahnjukar.is. Þar er jafnframt hægt að skrá
sig til þátttöku á ráðstefnunni.
hlutavelta
dagbok@mbl.is
Hlutaveltusumar – börn styrkja börn | Á sumrin er algengt að sjá
börn á fjölförnum stöðum með tombólu eða smásölu til styrktar góðgerð-
armálum. Í síðustu viku bárust UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóð-
anna, tvö framlög vegna slíkrar fjáröflunar.
Bjartur, 9 ára, hélt tombólu fyrir utan Pétursbúð í Vesturbænum og safn-
aði alls 2.815 kr. Hann mætti vaskur á skrifstofuna og afhenti Stefáni
Inga Stefánssyni, framkvæmdastjóra UNICEF Ísland, söfnunarféð.
Sóley Vera, 12 ára, og María, sem er 11 ára að verða 12, héldu tombólu og
seldu dót í Firðinum og fyrir utan Krónuna í Hafnarfirði. Þær söfnuðu
alls 8.262 krónum sem þær höfðu sett í vel skreytta tösku. Stúlkurnar
lögðu einnig sjálfar til fé úr sparibauknum sínum til að sjóðurinn yrði
meiri. Þær afhentu Snjólaugu Aðalgeirsdóttur, fjáröflunarfulltrúa hjá
UNICEF Ísland, féð í töskunni fögru.
UNICEF kann Bjarti og þeim Sóleyju og Maríu bestu þakkir fyrir fram-
lögin og hvetur fleiri börn til að styrkja jafnaldra sína, sem eiga um sárt
að binda, með þessum hætti.
dagbók
Í dag er laugardagur 8. september, 251. dagur ársins 2007
Fyrsti fyrirlestur vetrarins ífyrirlestraröð Sagnfræð-ingafélags Íslands verðurnæstkomandi þriðjudag, kl.
12.05 til 12.55. Yfirskrift fyrirlestrarað-
arinn er Hvað er Evrópa? og fara fyr-
irlestrarnir fram í fyrirlestrarsal Þjóð-
minjasafns Íslands.
Eiríkur Bergmann Einarsson er
fyrirlesari þriðjudags, með erindið Er
Ísland í Evrópu?
„Evrópa, og Evrópusamstarf er í
senn bæði einfalt og flókið fyrirbæri,“
segir Eiríkur „Evrópuríkin hafa komið
sér saman um samráðsvettvang, sem
Ísland tengist með sérstökum hætti,
pólitískt, menningarlega og efnahags-
lega. Í fyrirlestrinum velti ég fyrir mér
þessari stöðu Íslands, á jaðri Evrópu,
og færi m.a. fyrir því rök að orðið hafi
ákveðið rof. Formlega er Ísland fyrir
utan stofnanir Evrópusambandsins en
þegar raunveruleg staða er skoðuð
kemur í ljós að Íslendingar eru komnir
á bólakaf í Evrópusamrunann á nánast
öllum sviðum.“ Eiríkur leggur m.a. út
af hugmyndum Íslendinga um fullveldi
og þjóð, og þeirri þjóðfélagsþróun sem
átt hefur sér stað frá sjálfstæðis-
baráttunni: „Íslendingar hafa sérstaka
sjálfsmynd í samfélagi þjóðanna, sem
mótast af þessum þáttum,“ segir Eirík-
ur. „Einnig er gagnlegt að skoða utan-
ríkisstefnu landsins, sem skipta má upp
í þrjú mengi: Evrópumengið, í fyrsta
lagi, þar sem allir mikilvægustu við-
skiptasamningar okkar eru s.s. við
EFTA og EES og tvíhliðatengsl við
Norðurlöndin og jafnvel Bretland.
Annað mengi er Atlantshafsmengið,
sérstök tengsl landsins við Bandaríkin
og NATÓ, sem kalla má öryggisþátt
utanríkisstefnunnar. Þriðja mengið er
svo alþjóðlegt samstarf fyrir utan hin
mengin tvö, s.s. á vettvangi SÞ og
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
Með því að skoða þessi þrjú mengi
getum við áttað okkur betur á hvar Ís-
land er staðsett í alþjóðakerfinu.“
Fyrirlestraröð Sagnfræðingafélags-
ins er öllum opin og aðgangur ókeypis.
Finna má nánari upplýsingar um fyrir-
lestraröðina og einstök erindi á slóðinni
www.sagnfraedingafelag.net
Utanríkismál | Fyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins hefst á þriðjudag
Er Ísland í Evrópu?
Eiríkur Berg-
mann Einarsson
fæddist í Reykja-
vík 1969. Hann
hefur verið dósent
við Háskólann á
Bifröst og for-
stöðumaður Evr-
ópufræðaseturs
frá 2005. Eiríkur
lauk meistaragráðu í alþjóðastjórn-
málum frá Kaupmh.hásk. 1998. Hann
stundar nú doktorsnám við HÍ. Eirík-
ur starfaði sem blaðamaður, frkv.stj
Leikfélags Íslands og aðjúnkt og verk-
efnastjóri Evrópumála hjá HÍ. Hann
var yfirmaður Íslandsdeildar sendi-
ráðs ESB í Ósló. Eiríkur er í sambúð
með Aino Freyju Jarvela leikara og
eiga þau samanlagt þrjú börn.
BRESKA leikkonan Keira Knightley sést hér hálfdöpur í ljósmyndarahafi.
Knightley er þarna að ganga rauða dregilinn vegna frumsýningar á nýj-
ustu mynd sinni Atonement á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum nýlega.
Á rauða dreglinum
Í ljósmyndarahafi
Reuters
Fréttir í tölvupósti
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni