Morgunblaðið - 08.09.2007, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 47
Krossgáta
Lárétt | 1 ljós hugsun,
8 stútum, 9 vindurinn,
10 elska, 11 fen, 13 sleif-
ar, 15 guðshús, 18 annast,
21 auð, 22 lækna, 23 sálir,
24 vesalingar.
Lóðrétt | 2 gleður, 3 lofað,
4 skynfæra, 5 matreiðslu-
manns, 6 viðlag, 7 vökvar,
12 umfram, 14 dráttar-
dýr, 15 meltingarfæri,
16 björtu, 17 óhreinkaði,
18 skreið í gegnum,
19 þrábiðja, 20 forar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fóarn, 4 sárin, 7 ósköp, 8 iljar, 9 afl, 11 anna,
13 angi, 14 nafar, 15 grín, 17 frek, 20 bak, 22 unaði,
23 lítur, 24 deiga, 25 kenni.
Lóðrétt: 1 flóra, 2 askan, 3 næpa, 4 skil, 5 rýjan, 6 norni,
10 fífla, 12 ann, 13 arf, 15 grund, 16 Írani, 18 ritin,
19 karfi, 20 bisa, 21 klók.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Stundum er hugur þinn vinur
þinn, en stundum eins og eldra systkini
sem er alltaf að stríða þér. Segðu honum
næst: „Þú ræður ekki yfir mér!“
(20. apríl - 20. maí)
Naut Aðstæðurnar sem þú ert í í dag
skipta máli. Hagaðu þér á einn veg og þú
verður allt önnur manneskja en ef þú
brygðist öðruvísi við.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hulu verður svipt af og þú skil-
ur nákvæmlega af hverju þú vildir að viss
manneskja léki visst hlutverk í klikkaða
leikritinu þínu. Fyrir vikið verðurðu
frjálsari gagnvart henni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Stundum er best að mætast á
miðri leið til að sættast – nema núna.
Báðir aðilar ættu ekki að vera óánægðir?
Biddu um það sem þú vilt og fáðu það.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Hver gjörð kostar sitt. Þú skilur nú
hver kostnaðurinn er. Í kvöld skilurðu af
hverju það er hættulegt að forðast hætt-
ur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Stjörnurnar hvetja þig til að
halda áfram á sömu leið hver sem hún er.
Í kvöld þarftu að taka erfiða ákvörðun
sem þú veist að þú verður stoltur af
seinna.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ef þú vilt koma einhverju í verk,
biddu þá einhvern önnum kafinn að-
stoðar. En þú ert þessi önnum kafna
manneskja, skipulagður og drífandi.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú varst ekki að grínast
þegar þú sagðist geta lokið verkefninu í
dag. Dragðu svo aðeins úr hraðanum svo
þú getir tekist á við mikilvægari áskor-
anir eftir helgina.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Sá eini sem ekki hefur verið
fullkomlega heiðarlegur við þig er enn að
reyna. Hann er líkari hræddri mús í leit
að brauðmolum lífsins en illvígri rottu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Í stað þess að eiga þér stóra
drauma – eins og vanalega – hafðu þá
klikkaða. Hvernig yrði lífið ef þú hlypir á
brott með fjölleikahúsi?
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Pláneturnar þínar krefjast
aga og ábyrgðar af þér, auk mikillar
vinnusemi. Taktu að þér verk sem skipta
máli fyrir allan heiminn.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þegar þú trúir á einhvern, gerðu
það þá alla leið. Sambönd þrífast þegar
það finnst ekki efi í hjartanu eða gagn-
rýni á vörunum. Stattu stoltur með þeim
sem þú elskar.
stjörnuspá
Holiday Mathis
STAÐAN kom upp á minningarmóti
Stauntons í London. Enski stórmeist-
arinn Gawain Jones (2.526) hafði svart
gegn Jan Timman (2.560). 13. … Dg5!
Svartur hótar máti á g2 og að vinna
drottningu hvíts með Rf4-h3+. Hvítum
varð brugðið við þessa tvöföldu hótun
að honum sást yfir að eina vörnin væri
að leika 14. Kf2! og þá stæði svartur
aðeins betur eftir 14. … Kxg7. Hvítur
lék hins vegar 14. Dxf4?? og hafði ein-
göngu tvo létta menn fyrir drottningu
og tapað tafl. 14. … Dxf4 15. Bd4 c6
16. Had1 b6 17. Bf2 He6 18. Bg3 De3+
19. Kh1 Dc5 20. a3 Ba6 21. Bf4 d5 22.
b4 De7 23. b5 dxc4 24. bxa6 Dxa3 25.
Bd2 b5 26. Ha1 Dc5 27. Bf4 Hd8 28. g4
g5 29. Bg3 Hd2 30. Be1 Hc2 31. Bd1
Hb2 32. Be2 De5 33. Hc1 Hh6 34. Hf2
b4 35. Hg2 Hh3 36. Kg1 bxc3 37. Bxc3
Dc5+ 38. Kf1 Hb3 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Óvænt uppskera.
Norður
♠Á75
♥Á98
♦ÁD108
♣G104
Vestur Austur
♠KG964 ♠82
♥7 ♥6542
♦965432 ♦K
♣8 ♣ÁKD765
Suður
♠D103
♥KDG103
♦G7
♣932
Suður spilar 4♥.
Tígulliturinn býður upp á blekkingu
sem margir hafa prófað (með mis-
jöfnum árangri). Hafi sagnhafi grun
um að svíning muni misheppnast, kem-
ur til greina að taka á ásinn og spila
litlu að gosanum – kannski heldur aust-
ur að sagnhafi sé með einspil og dúkk-
ar.
Norskur spilari, Ivar Berg að nafni,
ætlaði að blekkja austur á þennan
máta á EM ungmenna. Austur hafði
meldað lauf og vörnin tók þar þrjá
fyrstu slagina, en síðan skipti austur
yfir í spaðaáttu – tía, gosi og ás. Nú var
Ivar viss um að austur ætti tígulkóng
og lagði niður ásinn með fyrrnefndum
ásetningi. Honum brá svo við að sjá
kónginn koma að hann „gleymdi“ að
henda gosanum undir (afblokkera). En
það kom ekki að sök því vestur þving-
aðist í lokin með spaðakóng og lengd-
ina í tígli.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Verslunarhelgin reyndist ekki vera mesta ferðahelginí ár. Hvaða helgi var það?
2 Yfirhershöfðingi NATO heimsótti Ísland. Hvað heitirhann?
3 Haldið var upp á 20 ára afmæli Háskólans á Akur-eyri. Hver er rektor HA?
4 Nýr íslenskur kvikmynda- og leikhúsþáttur er að hefjagöngu sína í Sjónvarpinu. Hver stýrir honum?
Svör við spurningum
gærdagsins:
1. Hvar var hin umdeilda auglýs-
ingamynd með Júdasi og Kristi
að kynna nýjan farsíma tekin?
Svar: Í Portúgal. 2. Hans Jó-
hannsson er að opna sýningu í
Serpentine Gallery í London.
Hver er aðalstarfi Hans? Svar:
Fiðlusmiður. 3. Hver var marka-
hæstur íslensku körfuknatt-
leiksmannanna í sigrinum á
Austurríki? Svar: Jakon Örn Sig-
urðsson. 4. Breski kvikmynda-
leikarinn Jude Law var handtek-
inn á dögunum. Fyrir hvað?
Svar: Að ráðst á ljósmyndara.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
VINNUSMIÐJA NKG 2007 fer
fram í Foldaskóla, Logafold 1, 112
Reykjavík, laugardaginn 8. septem-
ber og sunnudaginn 9. september kl.
9-15.30 báða dagana.
Nýsköpunarkeppni grunnskóla-
nemenda (NKG) er keppni í nýsköp-
un fyrir alla aldurshópa grunnskól-
ans. Í ár er keppnin á tímamótum
þar sem Vitinn – verkefnastofa í
samstarfi við menntamálaráðu-
neytið – hefur tekið að sér rekstur,
framkvæmd og þróun keppninnar
(www.nkg.is). Keppnin var haldin í
fyrsta skipti árið 1991 og er nú hald-
in í 16. sinn.
Í ár tóku rúmlega 3.000 börn og
unglingar þátt frá 52 grunnskólum
víða um land. Framundan er vinnu-
smiðja dagana 8. og 9. september
þar sem 62 nemendur á aldrinum 8
ára til 15 ára frá alls 20 grunnskólum
koma saman. Þessir nemendur kom-
ust í gegnum strangt matsferli þar
sem uppfinningar þeirra voru metn-
ar með tilliti til hagnýti, nýnæmi og
markaðshæfi. Það telst mikill heiður
að komast í vinnusmiðju.
Markmið vinnusmiðjunnar er að
hver hugmyndasmiður hafi tækifæri
til að útfæra hugmynd sína nánar
undir leiðsögn leiðbeinenda. Í vinnu-
smiðjunni verður mikið fjör þar sem
unnið verður að því að útbúa líkön af
frumgerðum, plaköt útbúin og annað
sem börnin telja að lýsi uppfinningu
þeirra best. Settar verða upp sex
sellur; texta- og tölvusella, teikni-
sella 1 og 2, tæknisella, smíðasella
og útskriftarsella.
Sunnudaginn 30. september verð-
ur haldið lokahóf í Grafarvogskirkju.
Dagskrá hefst stundvíslega kl. 15.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, verndari keppninnar og
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
flytja ávörp í tilefni dagsins. Í lokin
verður verðlaunaafhending þar sem
12 börn komast á verðlaunapall fyrir
uppfinningar sínar.
Nýsköpunarkeppni
grunnskólanemenda
VINIR Kolaportsins munu standa
fyrir undirskriftasöfnun í Kolaport-
inu dagana 8.-9. september til að
mótmæla breytingum sem til stend-
ur að gera á Tollhúsinu. Listanum
verður skilað á skrifstofu skipulags-
og byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar mánudaginn 10. september
kl. 11 sama dag og frestur til að
koma með athugasemdir rennur út.
Vinir Kolpaportsins hafa sent frá
sér fréttatilkynningu um málið, þar
sem segir deiliskipulagstillaga geri
m.a. ráð fyrir bílageymslu á annarri
og þriðju hæð, inni í rými Kolaports-
ins. „Sú bygging mun hafa það í för
með sér að lofthæð Kolaportsins
lækkar um helming, gólfflötur þess
minnkar um 20% og inngöngum
fækkar,“ segir í tilkynningunni „Þá
er ljóst að Kolaportið verður ekki
með rekstur í núverandi húsnæði
sínu meðan á framkvæmdum stend-
ur. Ef bráðabirgðahúsnæði finnst
ekki verður Kolaportið lokað í allt að
eitt og hálft ár.“ Segja þurfi upp öllu
starfsfólki og samningum við leigj-
endur og óvíst hverjir snúi aftur.
Undirskriftasöfnun
vina Kolaportsins
Guðfreður á morgun
AFMÆLIS- og styrktartónleikar
Guðfreðs Hjörvars til styrktar ung-
lingastarfi SÁÁ á Vogi verða í Lang-
holtskirkju annað kvöld kl. 20 en
ekki í kvöld eins og missagt var í
blaðinu í gær. Hlutaðeigandi eru
beðnir velvirðingar.
20 mínútur
ÞAU mistök urðu í greininni Til-
raunamennska í eldhúsinu sem birt-
ist í gær var gefinn rangur eldunar-
tími fyrir skógardúfu og sagt að
hana ætti að elda í 200 mínútur við
100° C. Hið rétta er að skógardúfuna
á að elda í 20 mínútur við 100° C.
LEIÐRÉTT
♦♦♦