Morgunblaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 29
MINNINGAR
✝ Ragna SigríðurFriðriksson
fæddist í Reykjavík
hinn 29. maí 1913.
Fyrir fimm árum
fluttist hún á
Hrafnistu í Hafnar-
firði, en þar lést
hún hinn 30. ágúst
síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Guðrún Sig-
urðardóttir og Kon-
ráð Ragnar Kon-
ráðsson. Fóstur-
foreldrar hennar
voru Guðbjörg Lafransdóttir og
Sigurður Sigurðsson í Skamma-
dal í Mýrdal. Í Skammadal ólst
hún upp ásamt fleiri börnum sem
þau hjón Guðbjörg og Sigurður
tóku að sér. Meðan hún var í
Skammadal naut hún hefðbund-
innar kennslu í þeirri sveit, en fór
síðan í Ingimarsskóla í Reykja-
vík.
Síðar fór hún á matreiðslunám-
skeið á Laugarvatni og um tíma
Reykjavík, en árið 1946 fluttust
þau á Sundlaugaveg 22 í Reykja-
vík, en það hús byggði hann
ásamt vini sínum Ingimundi Guð-
mundssyni. Börn Rögnu og Hilm-
ars eru: 1) Guðrún Hrönn, fædd
21.3. 1934. Hún er gift Gunnari
Magnússyni og eiga þau þrjár
dætur og tvo syni og búa í
Reykjavík. 2) Huld Göethe, fædd
20.8. 1937. Hún var gift Robert
Lee Göethe, hann fæddist 10.10.
1933 og lést 5.5. 1969. Þau eign-
uðust eina dóttur og einn son.
Huld er búsett í Reykjavík. 3) Sig-
urður Hreinn, fæddur 8.6. 1944,
kvæntur Þorbjörgu Ásmunds-
dóttur og eiga þau tvo syni. Þau
eru búsett í Garðabæ. 4) Björgvin
Hrafn, fæddur 12.10. 1952. Hann
var kvæntur Lilju Þórðardóttur,
en þau slitu samvistum. Eiga þau
þrjár dætur. Björgvin Hrafn býr í
Christiansand í Noregi.
Ragna vann m.a. í saumastof-
unni Iris í Reykjavík. Síðar vann
hún í eldhúsinu á geðdeild ung-
linga á Dalbraut og einnig um
helgar og um nætur á Hótel Loft-
leiðum.
Útför Rögnu verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.
var hún í námi í
klæðskerasaumi í
Reykjavík. Síðar fór
hún sem kaupakona
að Kópareykjum í
Borgarfirði og þá
kynntist hún manns-
efni sínu, Hilmari
Hafsteini Friðriks-
syni, en hann var þá
vinnumaður á Sáms-
stöðum í Hvítársíðu.
Hilmar var lærður
eldsmiður og lærði
síðar til vélstjóra.
Hann vann til fjölda
ára í vélsmiðjunni Héðni og einn-
ig í álverinu við Straumsvík.
Hilmar fæddist hinn 17.5. 1911 og
lést 8.5. 1973. Hann var sonur
Sigríðar Sigurðardóttur og Frið-
riks Klausen.
Ragna og Hilmar gengu í heil-
agt hjónaband hinn 21.3. 1935.
Þau byrjuðu sinn búskap á Bráð-
ræðisholtinu í Reykjavík, sem svo
var kallað, bjuggu svo um tíma á
Akranesi og síðar á Túngötu 34 í
Leiðir okkar Rögnu lágu saman
þegar ég rúmlega tvítugur bað um
hönd frumburðar hennar og Hilm-
ars. Þetta gekk eftir og hófust nú
kynni mín við einstakt fólk á
Sundlaugavegi 22. Ragna var afar
glæsileg, þá rétt um fertugt.
Heimilið bar vott um listrænan
smekk þeirra hjóna og þar ríkti
frjálsleg glaðværð. Á þeim tíma
var algengt að húsmæður saumuðu
föt barna sinna og það gerði hún
Ragna af miklum myndarskap, og
meira en það, því hún saumaði all-
an sinn sparifatnað sjálf. Sem
dæmi má taka síða samkvæm-
iskjóla sem hún skartaði á árshá-
tíðum í Oddfellow. Nú 40 árum síð-
ar eru þeir í fullu gildi og vekja
eftirtekt þegar dóttir hennar mæt-
ir í þeim til fagnaðar á sömu slóð-
um. Ekkert nema fádæma smekk-
vísi ásamt fínu handbragði gat
gefið þessum flíkum svo langa líf-
daga.
Þessi orð sem sett eru hér á
blað að leiðarlokum eru ekki síst
ætluð barna- og barnabarnabörn-
um Rögnu sem einkum muna
ógleymanlegu jólaboðin hjá ömmu
og allar hennar sögur og söng. Þau
muna þó ekki allar gömlu frænk-
urnar af Þerneyjarættinni og
kraftinn í þeim en þær kölluðum
við stundum „frekjur“ eða „gömlu
brýnin“ af mikilli virðingu. Í þeim
fjölskylduboðum gat það hent að
rokið væri á tengdasoninn og hann
boðinn velkominn í KR. Hilmar
bar nefnilega KR-húðflúr á upp-
handleggnum. Hann útskýrði síðan
mildilega að upphaflega hefði þessi
skammstöfun merkt Knattspyrnu-
félag Reykjavíkur, síðan Kæra
Ragna loks Konan Ræður.
Á heimilinu ríkti kærleikur, ást
og gleði. Eftirminnilegt var að sjá
þau hjónin taka létt dansspor á
eldhúsgólfinu í hádeginu við síð-
asta lag fyrir fréttir.
Síðustu fimm árin dvaldi Ragna
á Hrafnistu. Þar hófust ný kynni
af yndislegri gamalli konu sem var
innilega þakklát fyrir þá aðhlynn-
ingu og umhyggju sem hún naut
þar. Það var gaman og gefandi að
koma til hennar Rögnu og finna
fyrir hennar björtu lífsspeki, þar
sem aldrei þurfti að halla slæmu
að nokkrum hlut. Lengi vel sung-
um við með henni en hún kunni
ógrynni af lögum og ljóðum.
Smám saman fjaraði þó minnið
út og ljóðunum fækkaði en Ra-
móna sat lengi eftir enda var hún
mikið sungin við störfin heima.
Skömmu áður en minnið hvarf
lagði Ragna fyrir okkur góða gátu:
Hvað er það sem hest og skip
hagkvæmlega prýðir
en af mönnum allan svip
afskræmir og níðir?
Blessuð sé minning góðrar konu.
Gunnar Magnússon.
Hún amma okkar er farin á 95.
aldursári. Við erum lánsöm að
hafa fengið að hafa hana svona
lengi hjá okkur og við hana eru
tengdar svo margar fallegar minn-
ingar.
Hún bjó á Sundlaugaveginum
eins lengi og við munum, í húsinu
sem afi Hilmar byggði ásamt fleir-
um. Þangað var alltaf gott að
koma. Við munum sérstaklega eft-
ir jólaboðunum sem þau afi héldu
á jóladag áratugum saman, og svo
hún eftir að hann lést 1973.
Henni þótti undurvænt um fólk-
ið sitt og naut þess að fá það í
heimsókn. Börn hændust auðveld-
lega að ömmu. Barnabörnin áttu
öll vísan stað hjá henni og líka
langömmubörnin þegar þau komu.
Hún náði svo vel til þeirra og var
óþreytandi að gefa þeim að borða
og leika við þau. Eitt sinn er að
var komið, sat hún flötum beinum
á stofugólfinu og var í bílaleik við
einn langömmustrákinn sinn, þá
orðin rúmlega áttræð.
Amma Ragna var falleg kona.
Hún var alltaf fallega klædd og
fallega snyrt. Hún fór til dæmis
aldrei út úr húsinu án þess að
setja upp andlitið eins og hún kall-
aði það. Alltaf glæsileg og smart,
hvernig sem á stóð. Hún hafði fal-
lega nærveru, vildi öllum gera gott
og hallmælti aldrei neinum.
Reyndi frekar að sjá það góða í
samferðafólkinu. Hún hafði yndi af
ferðalögum og tónlist, og þótti
vænt um þegar við systkinin spil-
uðum fyrir hana á hljóðfærin sem
við lærðum á. Langömmubörnin
áttu sérstakan stað í hjarta hennar
og í dag kveðja þau ömmu löngu
sem þeim þótti svo vænt um.
Það eru 34 ár síðan afi Hilmar
dó og hún saknaði hans óendan-
lega mikið. Hin síðustu ár talaði
hún oft um hve mikið hún hlakkaði
til að hitta hann aftur. Nú eru þau
saman á ný og við vitum að það
hafa orðið fagnaðarfundir.
Við systkinin, börn Guðrúnar
Hrannar, þökkum ömmu Rögnu
fyrir allt sem hún var okkur og gaf
okkur. Guð blessi hana og varð-
veiti alla tíð.
Magnús, Hilmar,
Guðfinna, Ragna og Tinna
Gunnarsbörn.
Ragna S. Friðriksson
✝
AÐALBJÖRG ESTER ÞORSTEINSDÓTTIR,
Skálanesgötu 5,
Vopnafirði,
áður Víðidal á Fjöllum,
andaðist á Sundabúð fimmtudaginn 6. september.
Jarðsett verður frá Hofi laugardaginn 15. septem-
ber kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðmundur Þorsteinsson.
✝
JÓN EYJÓLFSSON,
bóndi,
Fiskilæk, Melasveit,
andaðist á dvalarheimili aldraðra Borgarnesi,
mánudaginn 10. september.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju í Saurbæ,
þriðjudaginn 18. september kl. 14.00.
Aðstandendur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HREINN ÁRNASON
málarameistari,
Laufrima 14c,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn
12. september.
Útförin fer fram í Grafarvogskirkju fimmtudaginn
20. september kl. 15.00.
Ólafía G. Ágústsdóttir,
María J. Hreinsdóttir, Rosario Ómar Russo,
Þóra Hreinsdóttir, Júlíus Brynjarsson,
Bryndís Hreinsdóttir, Conrad Cawley,
Íris Hreinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SIGRÍÐUR J. JÓNASDÓTTIR,
Hvammi, heimili aldraðra,
Húsavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 12. september.
Útförin auglýst síðar.
Jónasína Pétursdóttir, Hörður Arnórsson,
Eiður Aðalgeirsson, Sigurlína Hilmarsdóttir,
Pétur Óskar Aðalgeirsson, Agnes Adólfsdóttir,
barnabörn, og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURGEIR SVANBERGSSON,
Miðleiti 7,
Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 6. september,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 14. september kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hins látna er bent á
Hjartavernd.
Margrét Finnbogadóttir,
Edda Sigurgeirsdóttir, Þórður Kristinsson,
Helgi Sigurgeirsson, Gerður Garðarsdóttir,
Svanberg Sigurgeirsson, Rannveig Ása Reynisdóttir,
Valgerður Jóhannesdóttir, Sigurður Sverrir Guðmundsson,
Rafnhildur Jóhannesdóttir, Agnar Olsen,
afa og langafabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir og sonur,
KONRÁÐ ÞÓRISSON,
Móaflöt 37,
Garðabæ,
er látinn.
Jarðarförin fer fram frá Vídalínskirkju
fimmtudaginn 20. september kl. 15.00.
Vala Dröfn Hauksdóttir,
Oddný Þóra Konráðsdóttir,
Oddný Dóra Jónsdóttir.
✝
Elsku hjartans móðir okkar,
SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR,
Hjúkrunarheimilinu Eir
áður Hraunbæ 103,
lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn
12. september.
Fyrir hönd aðstandenda.
Kristin Sjöfn, Hrafnhildur og Guðfinna Björk Helgadætur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
áður til heimilis í Víðilundi 13,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn
17. september kl. 13.30.
Jón Trausti Guðjónsson, Þórdís Guðmundsdóttir,
Gunnsteinn Guðjónsson,
Anna Kristín Guðjónsdóttir, Jón Gísli Grétarsson,
Jóhann Guðjónsson,
Magnús Guðjónsson, Sigríður Jóhannesdóttir,
Ingvar Guðjónsson,
ömmu- og langömmubörn.