Morgunblaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR                                                                                                                                                                                                                                                                                            JÓN Þórarinsson tónskáld fagnaði níræðisafmæli sínu í gær. Af því tilefni fluttu Sinfóníuhljómsveit Ís- lands, Selkórinn og Ágúst Ólafsson söngvari Völuspá, viðamesta verk Jóns, á tónleikum hljómsveit- arinnar í Háskólabíói í gærkvöldi, en Jón átti um árabil sæti í stjórn hljómsveitarinnar. Jón samdi Völu- spá í tilefni Þjóðhátíðarinnar 1974. Kom víða við í menningunni Jón hefur alla tíð verið atkvæða- mikill í íslensku menningarlífi. Hann stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og hjá Paul Hindemith, tónskáldinu kunna, við Yale-háskólann. Á ár- unum 1947-68 var hann yfirkennari í tónsmíðum og tónfræði við Tón- listarskólann í Reykjavík, 1968-79 yfirmaður lista- og skemmtideildar Sjónvarpsins, auk fjölmargra ann- arra starfa að tónlistarmálum. Sönglög Jóns hafa alla tíð notið mikilla vinsælda, en meðal þeirra eru perlur á borð við Fuglinn í fjörunni og Íslenskt vögguljóð á hörpu. Blómvöndur frá hljómsveitinni Jóni var fagnað innilega við lok flutningsins á Völuspá, og Helga Hauksdóttir, fyrrverandi tónleika- stjóri hljómsveitarinnar og sam- starfskona Jóns þar, færði honum myndarlegan blómvönd frá hljóm- sveitinni í tilefni dagsins. Fjölskylda Jóns samfagnaði hon- um á tónleikunum, Sigurjóna Jak- obsdóttir eiginkona hans, börn og barnabörn. Jóni Þórarinssyni níræðum fagnað með flutningi Völuspár Morgunblaðið/Jón Svavarsson Afmæli Jón Þórarinsson 90 ára, ásamt fjölskyldu sinni. Á myndinni eru, sitjandi fremst: Katrín, Sig- urjóna Jakobsdóttir eiginkona Jóns, Anna María, Jón Þórarinsson, Agnes og Þorsteinn Jónsson. Í aft- ari röð: Benedikt Jónsson, Magnús H. Magnússon, Hallgerður Jóns- dóttir, Anna María Jónsdóttir og Sara Margrét. Þakklæti Helga Hauksdóttir færði Jóni blómvönd frá hljómsveitinni í tilefni dags- ins og flutnings Völuspár. KARLMAÐUR var dæmdur í Hæstarétti í gær í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að aka bíl að fyrrum eiginkonu sinni sem tókst með naumindum að forða sér. Var talið sannað að maðurinn hefði stofnað lífi og heilsu konunnar í aug- ljósan háska. Staðfesti rétturinn dóm Héraðsdóms Reykjaness. Atvikið varð 17. desember árið 2005 en konan kærði það 25. desem- ber eftir að hún fékk jólapakka frá manninum en í pakkanum var kaðall með hengingarhnút. Fram kemur í dómi Hæstaréttar, að maðurinn hafi ekið bíl yfir steyptan kant á bílastæði fyrir utan veitinga- stað að Smáratorgi í Kópavogi og í átt að konunni. Af gögnum málsins verði ráðið að maðurinn hafi á þessum tíma borið þungan hug til konunnar. Vitni báru, að maðurinn hefði gefið bílnum inn og ekið í átt að konunni, sem gekk eftir kantinum fyrir framan bílinn. Málið dæmdu Markús Sigur- björnsson og Ólafur Börkur Þor- valdsson og Helgi I. Jónsson dóm- stjóri. Stofnaði lífi konu í augljósan háska HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 36 ára gamlan karlmann, Luis Da Silva Concalves, í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa þröngvað kven- manni með ofbeldi til samræðis og annarra kynferðismaka á heimili sínu. Maðurinn, sem er portúgalskur ríkisborgari, var jafnframt dæmdur til að greiða konunni 1.000.000 kr. í skaðabætur. Maðurinn var með dómi héraðs- dóms dæmdur í fjögurra ára fangelsi og til þess að greiða fórnarlambinu 1.200.000 kr. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfell- ingu og heimfærslu til refsiákvæða, en dómurinn taldi jafnframt sannað að maðurinn hefði þvingað konuna til munnmaka. Héraðsdómur hafði sýknað manninn af þeirri háttsemi, meðal annars með vísan til þess að kærandi hefði ekki skýrt frá munn- mökunum fyrir dómi. Þrátt fyrir að finna manninn sek- an um fleiri ákæruþætti en héraðs- dómur, lækkaði Hæstiréttur refs- ingu ákærða um hálft ár og miskabætur kæranda um 200.000 krónur. Niðurstöðu sinni til stuðn- ings vísaði dómurinn til forsendna héraðsdóms um ákvörðun refsingar og rétt til miskabóta og fyrri for- dæma Hæstaréttar. Þorði ekki að kalla á hjálp Konan kærði manninn til lögreglu fyrir rétt rúmu ári en þau höfðu hist á öldurhúsi í Reykjavík og seinna um kvöldið haldið heim til mannsins ásamt systur konunnar og félögum mannsins. Fyrir lögreglu bar konan að hún og maðurinn hefðu farið sam- an inn í herbergi þar sem maðurinn hefði klætt hana úr fötunum og því næst ráðist á hana, gripið um brjóst hennar, kreist þau, bitið og klipið í þau. Hún hefði beðið hann um að hætta en hann hefði hent henni á bakið á rúmið, stigið hægri fæti sínum ofan á hægri fót hennar, barið hana í brjóstin með vinstri hendi, en með þeirri hægri hefði hann klipið í hana í kynfærin og sett fingur í kynfæri hennar. Hann hefði tekið kodda og þrýst honum að hálsi hennar, barið hana með hendinni um allan líkam- ann og í höfuðið ýmist með flötum lófa eða krepptum hnefa. Þar næst hefði maðurinn tekið um ökkla henn- ar, snúið upp á hann og skellt fæt- inum upp að vegg og snúið henni á magann. Síðan hefði hann farið með lim sinn í leggöng hennar og viðhaft harkalegar samfarahreyfingar. Konan kvaðst viss um að ákærði hefði haft sáðlát við samfarirnar, enda hefði hún verið útötuð í sæði um líkama og andlit og hann hefði slegið hana í andlitið fram og til baka með limnum og margsinnis kallað „bitch“ og „fuck me.“ Konan sagðist ekki hafa þorað að kalla á hjálp, en oft beðið manninn um að hætta. Kon- an fór á neyðarmóttöku sama kvöld og atburðirnir áttu sér stað þar sem hún fékk viðeigandi læknisskoðun. Hrottafengið og alvarlegt brot Héraðsdómur taldi að framburður konunnar væri skýr og nákvæmur og fengi hann styrka stoð í fram- burði vitna sem sáu konuna strax eftir atburðinn og heyrðu frásögn hennar af ofbeldi og nauðgun ákærða. Þá þóttu áverkar þeir sem konan bar við komu á neyðarmót- töku algjörlega koma heim og saman við lýsingu hennar á verknaði ákærða og tilurð áverkanna. Við ákvörðun refsingar í héraðs- dómi var horft til þess að brotið var mjög alvarlegt og sérstaklega hrottalegt. Konan hefði verið beitt endurteknu, grófu ofbeldi á meðan á nauðguninni stóð og óskir hennar um að ákærði léti af háttseminni hefðu verið virtar að vettugi. Þá hefði konan borið greinileg merki um ofbeldið við skoðun hjá lækni, ekki síst á viðkvæmum líkamshlut- um, svo sem brjóstum og kynfærum, en kynfæri hennar voru svo illa leik- in að ekki reyndist unnt að skoða þau hefðbundinni kvenskoðun. Þá kemur fram að konan hafi þurft að glíma við alvarlegar afleiðingar árásarinnar, bæði líkamlegar og andlegar. Nauðgunin talin sér- staklega hrottaleg Karlmaður dæmdur í 3½ árs fangelsi í Hæstarétti Í HNOTSKURN »Hálfum sólarhring eftirnauðgunina fór konan á Neyðarmóttöku. » Í ástandsskýrslu lækniskemur fram að konan sitji í hjólastól þar sem hún sé með bundið um ökkla og ekki göngufær. »Úti um allan líkamannkenni hún eymsla og „æi“ og „ói“ við minnstu snertingu á brjóstum, klofi, andliti, öxl- um og ökkla. »Um tilfinningalegt ástandsegir í skýrslunni að konan sé í losti, fjarræn, sitji í hnipri og endurlifi árásina. HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef- ur dæmt tvítugan pilt í nítján mán- aða fangelsi, m.a. fyrir tilraun til vopnaðs ráns í 10-11 verslun í júní sl. Honum var jafnframt gert að greiða 400 þúsund krónur í sakar- kostnað. Pilturinn var einnig ákærður fyrir að aka bifreið án tilskilinna réttinda og þjófnað á leikjatölvu úr verslun Hagkaupa. Hann játaði öll brotin og kvaðst m.a. hafa stolið leikjatölv- unni, sem kostaði 70 þúsund krónur, til að gera upp fíkniefnaskuld. Hvað varðar vopnaða ránið, þá skýrði pilturinn frá því að hann hefði þurft að útvega fjármagn til að greiða handrukkurum, sem voru farnir að hóta honum. Skuldin var upp á 150 þúsund krónur. Pilturinn réðst inn í 10-11 versl- unina vopnaður hnífi og hafði í frammi ógnandi tilburði í garð af- greiðslustúlku. Stúlkan þekkti pilt- inn, þar sem hann hafði áður unnið í versluninni. Hún greindi svo frá að hann hefði haldið hnífinum u.þ.b. fjörutíu sentímetrum frá andliti hennar, rifið af henni talstöð og ýtt inn á lager. Þar hafi pilturinn reynt að opna peningaskáp sem ekki tókst og þeg- ar viðskiptavinur kom inn í versl- unina flúði hann á brott. Héraðsdómarinn Gunnar Aðal- steinsson kvað upp dóminn. Hulda Elsa Björgvinsdóttir, fulltrúi lög- reglustjórans á höfuðborgarsvæð- inu, sótti málið og Bjarni Hauksson hdl. varði piltinn. Dæmdur fyrir vopn- að rán Stal leikjatölvu til að gera upp skuld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.