Morgunblaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 15 ÚR VERINU LYFJAFRÆÐIDEILD Dagskrá: 14. september Opið hús í Haga, húsi lyfjafræðideildar, Hofsvallagötu 53, kl. 15:00-17:00 15. september Málstefna um lyfjafræði í hátíðarsal Háskóla Íslands kl. 13.00-16.30 13:00 Inngangsorð: Elín Soffía Ólafsdóttir, forseti lyfjafræðideildar 13:05 Ávarp: Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands 13:15 Drug development today: Dr. Jan A. M. Raaijmakers, prófessor við Háskólann í Utrecht, Hollandi, og Director of External Scientific Collaborations Northern Europe, GlaxoSmithKline, Northern Europe 14:00 Líftæknisamheitalyf – ný tækifæri: Sigurður Óli Ólafsson, aðstoðarforstjóri Actavis 14:45 Kaffihlé 15:05 Pharmaceuticals, pharmacists and society – the role of pharmacy education: Lowell J. Anderson, lyfjafræðingur, Sc.D., fyrrverandi forseti American Pharmaceutical Association 15:50 Frumlyfjaþróun – ferli nýrra lyfjaefna á markað: Dr. Kristján Guðmundsson, Group Leader, GlaxoSmithKline, USA 16:30 Lokaorð: Elín Soffía Ólafsdóttir, forseti lyfjafræðideildar Fundarstjóri: Þórdís Kristmundsdóttir, prófessor, formaður afmælisnefndar 50 ÁRA AFMÆLI LYFJAFRÆÐINÁMS VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS 14. OG 15. SEPTEMBER 2007 www.hi.is Lyfjafræðinám við Háskóla Íslands í hálfa öld (1957-2007) ÍS L E N S K A S IA .I S H S K 3 89 44 0 9/ 07 bmvalla.is Söludeild :: Breiðhöfða 3 :: Sími: 412 5050 Opið mánudaga til föstudaga 8–18 og laugardaga 9–14. Uppspretta af hugmyndum fyrir sælureitinn þinn! Nýja handbókin er komin Handbókin okkar kveikir ótal nýjar hugmyndir. Landslagsarkitekt okkar í Fornalundi aðstoðar þig síðan við að breyta garðinum þínum í sannkallaðan sælureit. Hringdu í síma 412 5050 og fáðu tíma í ráðgjöf. Pantaðu handbókina í síma 800 5050 eða á bmvalla.is ar gu s 0 7 -0 4 7 1 Stella HEILDARAFLI í ágúst var 89.095 tonn. Það er nánast jafnmikill afli og var í ágúst 2006, þá var aflinn 89.566 t. Botnfiskaflinn í ágúst 2007 var 38.943 tonn en aflinn var 39.068 tonn í ágúst í fyrra, samkvæmt bráða- birgðatölum Fiskistofu.. Þorskaflinn var rúmlega þúsund tonnum minni í nýliðnum ágúst en í ágúst 2006, eða 10.115 tonn á móti 11.421 tonni í fyrra. Landað var 30 þúsund tonnum af norsk-íslenskri síld í ágúst 2007 en aflinn í ágúst í fyrra var rúmlega 32 þúsund tonn. Íslensk skip lönduðu eins og áður var nefnt 13 þúsund tonnum meiri makrílafla í ágúst 2007 en í ágúst 2006. Í fyrrasumar fór fyrst að bera verulega á makríl í afla. Kol- munnaafli í nýliðnum ágúst var hins- vegar slakur. Heildarafli fiskveiðiárs- ins 2006/2007, samkvæmt þessum bráðabirgðatölum, var 1.419.427 tonn. Þar af var botnfiskaflinn 507.572 tonn. Á síðasta fiskveiðiári var heildaraflinn 1.291.221 tonn en botnfiskaflinn var þá 532.401 tonn. Heildarafli íslenskra skipa á árinu var orðinn 1.049 þúsund tonn í lok ágúst 2007. Það er 83 þúsund tonnum meiri afli en á sama tíma á síðasta ári þegar heildaraflinn janúar – ágúst var 966 þúsund tonn. Í lok fiskveiðiársins 2006/2007 voru eftirstöðvar botnfiskaflamarks meiri en á sama tíma á síðasta fiskveiðiári. Talsvert meira þorskaflamark var nú flutt til næsta fiskveiðiárs en í fyrra. Mikið aflamark var líka eftir í ýsu og í ufsa. Heldur meiri afli $%& %'  (    ) &%'   *  +', - .-/ 0  - /.1 1.-/ 1 +',  02- -2 0 1 1..0 //-  00 .1- //.   )   ',   3 4     4 ', %'    ',    02 - %' -2     „ÞAÐ er hrein og tær snilld hvernig ríkisstjórninni tekst í allri þessari umfjöllun að skauta framhjá þeirri staðreynd að það eru sjómenn sem verða fyrir mestu skakkaföllunum vegna niðurskurðar þorskkvótans. Það er hreinlega nánast ómögulegt að sjá nokkurn skapaðan hlut í þess- um svokölluðu mótvægisaðgerðum, sem með beinum hætti hjálpar sjó- mönnum. Það eina, sem þarna kemur fram er að verið er að beina þeim í aðra vinnu en sjómennsku,“ segir Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands. „Það sem snýr beint að þessu áfalli, sem við sjómenn höfum orðið fyrir, er nánast ekki neitt. Það er með ólík- indum fyrst verið er að telja upp hin og þessi fórnarlömb í málinu að sjó- menn séu algjörlega afskiptir hvað varðar alla umfjöllun og tínt er til að gera eigi. Það er hvergi hægt að tengja það við þá gífurlegu skerðingu sem verður á kjörum sjómanna, að minnsta kosti ákveðnum hópi þeirra.“ Um 20% tekjuskerðing „Þeir sem hafa verið í þeirri að- stöðu að geta stundað þorskveiðar lungann úr árinu, verða hreinlega fyrir 30% kjaraskerðingu. Það er ekki öðru vísi. Það er ekki ofmetið að segja að skip, sem leggur töluverða áherzlu á þorskveiði, en veiðir líka aðrar tegundir í bland, að þar sé skerðingin að minnsta kosti 20%. Það er hætt við því að það yrði rekið upp ramakvein innan annarra stétta ef þær ættu að sætta sig við slíka kjara- skerðingu. Það er því ótrúlegt að hlusta á fólk vera að tala um ein- hverja menningartengda viðreisnar- áætlun, sem kemur stöðu sjómanna ekkert við. Það er langur vegur frá því að þetta hjálpi sjómönnum til að halda sjómennsku áfram. Maður á mjög erfitt með að átta sig á því hvers vegna þessu er svona háttað. Það er ekki að merkja annað en að áhugi og hugur ráðamanna beinist í flestar átt- ir aðrar en að sjávarútveginum. Það er ekki hægt að skilja þessi skilaboð öðru vísi,“ segir Árni. Sjómenn algjörlega afskiptir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.