Morgunblaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 250. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Epli, gulrætur
og enginn viðbættur sykur!
Aðeins 46 hitaeiningar í 100 g
SUNGIÐ FYRIR FÓLK
HÖRÐUR TORFA MEÐ NÝJA PLÖTU OG
SÍNA ÁRLEGU HAUSTTÓNLEIKA >> 42
HEIMA ER BEST
HEIMILI OG
HÖNNUN
Á 48 SÍÐUM
HÆSTIRÉTTUR hefur gert karl-
manni á fertugsaldri, Americo Luis
Da Silva Concalves, að sæta þriggja
ára og sex mánaða fangelsi fyrir að
hafa þröngvað konu til samræðis og
annarra kynferðismaka með ofbeldi.
Þá var manninum gert að greiða
konunni eina milljón króna í miska-
bætur þar eð verknaðurinn, sem var
að áliti héraðsdóms hrottalegur og
ruddalegur, var talinn til þess fallinn
að valda konunni sálrænum örðug-
leikum.
Fjölskipaður héraðsdómur hafði
fyrr á árinu komist að þeirri niður-
stöðu að hæfileg refsing fyrir brot
mannsins væri fjögur ár og hæfileg-
ar miskabætur konunnar 1,2 millj-
ónir króna. Hæstiréttur mildaði því
refsingu mannsins um hálft ár og
lækkaði bætur konunnar um 200
þúsund krónur. Þrátt fyrir að hafa
ákvarðað manninum vægari refsingu
en héraðsdómur fann Hæstiréttur
manninn sekan um að hafa þröngvað
konunni til munnmaka en af þeim
þætti ákærunnar hafði maðurinn
verið sýknaður í héraði.
Sérhver sakfelling sigur
Réttargæslumaður konunnar í
Hæstarétti, Steinunn Guðbjarts-
dóttir, segir að niðurstaða Hæsta-
réttar valdi sér vonbrigðum. Niður-
staða héraðsdóms hafi verið í betra
samræmi við hve gróft brotið var og
líkamlegar og sálrænar afleiðingar
þess. Helsta starf réttargæslumanns
í sakamáli sé að halda uppi bótakröfu
brotaþola og það sé erfitt að sætta
sig við að miskabætur, sem í raun
eru aðeins til málamynda, skuli
lækkaðar í Hæstarétti.
Halldóra Halldórsdóttir, starfs-
kona Stígamóta, segir það ekki aðal-
atriðið að refsingin hafi verið milduð
og miskabætur lækkaðar fyrir
Hæstarétti. „Við lítum á sérhverja
sakfellingu í málum sem þessum sem
sigur út af fyrir sig,“ segir Halldóra
og kveður dóminn ekki vægan miðað
við fyrri fordæmi réttarins.
Sérstaklega hrottaleg | 4
3½ ár fyrir nauðgun
Í HNOTSKURN
»Við ákvörðun refsingar erlitið til þess að brot manns-
ins var sérstaklega hrottalegt.
»Brotaþoli bar auðsæ merkiofbeldisins, m.a. á brjóst-
um og kynfærum.
Hæstiréttur mildaði refsingu mannsins og lækkaði miskabætur þótt hann
hefði verið fundinn sekur um fleiri ákæruatriði fyrir Hæstarétti en í héraði
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
VAXANDI líkur eru á að sam-
komulag náist um víðtækar breyt-
ingar á veikinda-, slysa- og örorku-
réttindum á almennum markaði.
ASÍ og Samtök atvinnulífsins hafa
allt þetta ár rætt þessar hugmyndir
og nú liggur fyrir samkomulag um
meginþætti málsins.
Forysta ASÍ leitar nú eftir um-
boði aðildarfélaganna til að ganga
frá samkomulaginu á grundvelli
þeirra tillagna sem liggja fyrir.
Stefnt er að því að ganga endanlega
frá málinu í vetur með gerð nýrra
kjarasamninga, en gildandi kjara-
samningar renna út um áramót.
Fyrstu hugmyndir voru kynntar í
verkalýðshreyfingunni í vor og
komu þá fram efasemdir frá nokkr-
um verkalýðsfélögum, sérstaklega í
Starfsgreinasambandinu. Nú er búið
að móta tillögurnar betur og gera á
þeim vissar breytingar. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins líst
mönnum betur á tillögurnar nú en í
vor og vaxandi líkur eru á að sam-
komulag takist. Það eru þó enn efa-
semdaraddir innan verkalýðshreyf-
ingarinnar og ýmis atriði á eftir að
útfæra.
Meira til sjúkrasjóða
Það sem veldur einkum auknum
stuðningi við tillögurnar innan
Starfsgreinasambandsins er að í
upphaflegum hugmyndum var rætt
um að atvinnurekendur myndu
greiða minna í sjúkrasjóði verka-
lýðshreyfingarinnar. Nú er hins veg-
ar talað um að þessar greiðslur verði
auknar um 0,25% prósentustig og
verði 1,25%. Tillögurnar gera ráð
fyrir að útgjöld sjóðanna aukist. | 12
Meiri
samstaða
Morgunblaðið/Júlíus
„ÞAÐ áttaði sig enginn á þessum
haug fyrr en við lentum í honum,“
sagði Reynir Jóhannsson, bílstjóri
rútunnar sem ekið var inn í aur-
skriðu á Vesturlandsvegi í Kolla-
firði í fyrrinótt.
Reynir sagði að sem betur fer
hefði hann verið búinn að draga
mikið úr ferðinni vegna þess að
hann sá að bíl var snúið við á veg-
inum. Var honum síðan ekið á móti
rútunni með háu ljósin á. Vissi
Reynir síðan ekki fyrri til en hann
var kominn inn í skriðuna.
Rúmlega 60 manns, aðallega
starfsmenn Dvalarheimilisins
Höfða á Akranesi, voru í rútunni og
voru meiðsl á fólki minniháttar.
Farþegarnir urðu hins vegar að
vaða yfir aurinn til að komast í aðra
rútu, sem flutti fólkið áfram, en það
var á leið suður á Keflavíkur-
flugvöll. „Þetta fór betur en á
horfðist,“ sagði Guðjón Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Höfða. | 6
Allt í einu
fastur í
skriðu
var á leið í móttökuna í þjóðminja-
safninu. Joseph slóst í för með hon-
um er hann heyrði hver væri heið-
ursgestur móttökunnar. Joseph
segist ekki hafa vitað fyrr en nýlega
að vinur hans væri orðinn forsætis-
ráðherra. Hann bætir við: „En ég
vissi að Geir myndi ná langt þegar
hann sagði við mig: Morgunblaðið
hefur engan fréttaritara í Wash-
ington en ég er að hugsa um að bjóða
mig fram til þess hlutverks. Og hann
fór og fékk sig skráðan sem slíkan og
sat svo í kjölfarið alla fréttamanna-
fundi varðandi Watergate-málið og
við – hinir námsmennirnir – sátum
eftir grænir af öfund.“ | Miðopna
ÞAÐ urðu fagnaðarfundir með þeim
Geir H. Haarde forsætisráðherra og
Francis Joseph í móttöku sem
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
sendiherra Íslands gagnvart Írlandi,
hélt í þjóðminjasafninu írska í gær-
kvöldi. Geir og Joseph námu saman
við John Hopkins-háskólann í Wash-
ington fyrir meira en þrjátíu árum.
Joseph er forstöðumaður skrif-
stofu Evrópuþingsins í Dublin. Þeir
Geir hafa haldið sambandi í gegnum
árin en nokkuð er um liðið síðan þeir
hittust síðast.
Síðdegis í gær var Joseph á leið
heim úr vinnu er hann rakst á
finnska sendiherrann á Írlandi, sem
Óvæntur fundur skólabræðra
Morgunblaðið/Davíð Logi
Vinir Geir H. Haarde forsætisráð-
herra og Francis Joseph.
Morgunblaðið/Kristinn
Heimili og hönnun
14 | 09 | 2007