Morgunblaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 5
„Á að vera skyldulesning allra þeirra sem láta sig sögu 20. aldar einhverju varða.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Blaðið „Biðin borgaði sig og væntingunum var mætt til fulls. Þessi bók er alger sprengja.” Chris Patten, The Times „Sagan sem þau segja er heillandi í hryllingi sínum, einhver kröftugasta og mest afhjúpandi pólitíska ævisaga síðari tíma…Fáar bækur beinlínis breyta sögunni, en þessi gerir það.“ Georg Walden, Daily Mail Maó, sagan sem aldrei var sögð, eftir Jung Chang og Jon Halliday, er komin út í íslenskri þýðingu Ólafs Teits Guðna- sonar. Bókin er ein af umtöluðustu og umdeildustu ævisögum síðari ára. Þetta þrekvirki var tólf ár í smíðum og út- koman er ekki bara fróðleg ævisaga eins umdeildasta stjórnmálaleiðtoga 20. aldar heldur líka skemmtileg og grípandi lesning. Jung Chang er höfundur metsölubókarinnar Villtir svanir. Í dag: Kl. 12.30: Jung Chang og Jon Halliday í hádegisspjalli Bókmenntahátíðar í Norræna húsinu. Kl. 15.15: Jung Chang heldur fyrirlesturinn "Hvernig ég öðlaðist skilning á Maó" í sal 1 í Háskólabíói. Fyrirlesturinn er haldinn í samvinnu við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur. Að honum loknum árita höfundar bók sína. Á morgun: Kl. 11.00: Jung Chang og Jon Halliday árita bækur í Bókaverslun Máls og menningar, Laugavegi 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.