Morgunblaðið - 21.09.2007, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
LEIT að manni sem féll í
Sogið í fyrradag bar engan
árangur í gær. Um 110
manns frá björgunarsveit-
um Slysavarnafélagsins
Landsbjargar tóku þátt í
leitinni sem stóð fram í
myrkur. Í gærkvöldi var
haldinn fundur björgunar-
manna og lögreglu og lagt
á ráðin um framhaldið.
Í dag stendur til að leita
betur á ákveðnum svæðum
með köfurum og bátum en
umfang leitarinnar verður
mun minna en undanfarna
daga. Einnig verður unnið
að skipulagningu leitar-
starfa um helgina, en
áform eru um mjög um-
fangsmikla leit þá, hafi leit-
in þá ekki borið árangur,
samkvæmt upplýsingum
frá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg.
Umfangsmikil leit að manni sem féll í Sogið áformuð um helgina
Morgunblaðið/Guðmundur Karl
Leit hefur
ekki borið
árangur
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
STJÓRN Orkuveitu Reykjavíkur (OR) samþykkti
í gær að hætta risarækjueldi og var forstjóra falið
að reyna á næstu tveimur mánuðum að finna ein-
hvern aðila til að taka við verkefninu. Haukur
Leósson, stjórnarformaður OR, er ekki bjartsýnn
á að það muni takast. Búið sé að reyna allt þetta ár
að fá nýja aðila til að taka við verkefninu. Mestar
líkur séu því á að rækjueldinu verði hætt. Þetta
verkefni hefur engum tekjum skilað, en fyrirtækið
þarf að afskrifa um 114 milljónir vegna þess.
Borað fyrir 88 milljónir
Orkuveitan samþykkti árið 2000 að leggja 10
milljónir króna í eldi á risarækju. Þá var gert ráð
fyrir að 30 milljónir kæmu frá öðrum aðilum.
Haukur sagði að Orkuveitan væri eini aðilinn sem
hefði lagt fram fjármuni til þessa verkefnis. Auk
beinna fjárframlaga hefði fyrirtækið látið bora eft-
ir heitu vatni í landi Bakka í Ölfusi. Holan væri
núna nýtt fyrir sveitabæi og sumarbústaði í ná-
grenninu, auk þess sem hún væri varahola fyrir
Þorlákshöfn. Kostnaður við borun þessarar holu
nam um 88 milljónum króna.
Sjálft risarækjueldið hefur hins vegar ekki
reynst gróðafyrirtæki. „Þessi tilraun hefur engum
tekjum skilað, ekki krónu,“ sagði Haukur. Hann
sagði ljóst að Orkuveitan myndi ekki halda þessu
verkefni áfram og svo virtist sem aðrir hefðu held-
ur ekki áhuga á að reyna þetta. Haukur sagði að
þó að framhald yrði ekki á þessu verkefni hefði til-
raunin leitt í ljós að það væri hægt að ala upp risa-
rækju á Íslandi með því að nota affall frá jarð-
hitaholu.
Enginn vill taka við verkefninu
Þegar stjórnendur Orkuveitunnar kynntu þetta
verkefni á sínum tíma var lögð áhersla á að Orku-
veitan ætlaði sér að gera þessa tilraun í samstarfi
við fleiri aðila. Fyrirtækið áformaði ekki að reka
þetta til frambúðar eða hefja markaðssetningu á
risarækju. Tilraunin byggðist á því að aðrir aðilar
tækju við verkefninu og hæfu risarækjueldi í
stórum stíl. Tekið var fram að ýmsir hefðu sýnt
verkefninu áhuga. Sá áhugi virðist hins vegar eng-
inn vera því Haukur sagði að búið væri að reyna
allt þetta ár að fá einhverju aðila til að taka við
verkefninu, en án árangurs. Málið yrði þó kannað
áfram í haust. Ef það skilaði engum árangri yrði
þessari starfsemi hætt.
Hefur engum tekjum skilað
Orkuveita Reykjavíkur þarf að afskrifa yfir 100 milljónir vegna tilraunar með
risarækjueldi Fyrirtækið ætlar að hætta þessu verkefni innan tveggja mánaða
Í HNOTSKURN
»Orkuveita Reykjavíkur var í samstarfivið aðila á Nýja-Sjálandi um eldi á risa-
rækju. Nýsjálendingarnir lögðu fram stofn-
inn, en enga aðra fjármuni til verkefnisins.
Stofnfiskur hf. hefur séð um rækjueldið fyr-
ir Orkuveituna.
»Risarækjan hefur verið alin í tjörnum ájörðinni Bakka í Ölfusi. Orkuveitan lét
bora eftir heitu vatni á jörðinni og var rækj-
an geymd í affallsvatni frá holunni.
GLITNIR hefur gengið frá samn-
ingum um útgáfu skuldabréfa á
Bandaríkjamarkaði og var fjárhæðin
einn milljarður dollara eða um 63
milljarðar ísl. króna. Að því er segir í
fréttatilkynningu frá bankanum var
eftirspurn mun meiri en framboð eða
um 1,7 milljarðar dollara.
Citigroup, Credit Suissse og Wac-
hovia höfðu umsjón með útgáfunni.
„Glitnir hefur skýr innri markmið
um lausafjárstöðu og styrkir þessi
útgáfa enn frekar trausta lausafjár-
stöðu bankans,“ segir Alexander
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Glitnis.
Skuldabréf
upp á 63
milljarða
♦♦♦
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra hefur ákveðið að Al-
freð Þorsteinsson, fyrrverandi borg-
arfulltrúi Framsóknarflokksins,
stýri ekki áfram starfi byggingar-
nefndar nýs
Landspítala. Að-
stoðarmaður ráð-
herra, Hanna
Katrín Friðriks-
son, segir að
nefndin verði
lögð niður og
verkefni hennar
flutt annað. Um
sé að ræða hluta
skipulagsbreyt-
inga sem taki
gildi um mánaðamótin. „Þetta teng-
ist stærra máli sem er nýju heil-
brigðislögin 1. september, það er
verið að breyta öðrum nefndum og
við ætlum að auka skilvirkni og færa
fleiri þætti undir sama hatt. Þetta
fyrirkomulag verður ekki kynnt í
smáatriðum fyrr en um mánaðamót-
in.“
Mikil eindrægni
En gerði Alfreð ráð fyrir þessari
breytingu? „Skýringin getur ekki
verið sú að nefndin hafi ekki unnið
sín verk fram að þessu því hún er
búin að leggja mikið af mörkum sl.
tvö ár,“ svarar hann. „Það er mikil
eindrægni í henni, varaformaður er
Inga Jóna Þórðardóttir og við höf-
um leitt þessa vinnu. Milli 200 og
300 starfsmenn spítalans og háskól-
ans hafa tekið þátt í þessari stefnu-
mótun og samvinna við borgaryfir-
völd hefur verið ágæt. Þegar nýr
ráðherra tók við gerði ég tilraun til
að fá fund með honum til að kynna
honum hvernig vinnan stæði og
hvað væri framundan. Ég vildi líka
heyra í ráðherra hvað hann væri að
hugsa, hvort hann vildi breyta ein-
hverju. En það tókst aldrei að koma
á fundi með honum. Hann svaraði
aldrei óskum um fund en kallaði síð-
an á mig á fund í síðustu viku til að
tilkynna mér að það yrðu gerðar
mannabreytingar í nefndinni án
þess að skýra það að öðru leyti.“
– Nú voru væringar með ykkur
þegar þið sátuð í stjórn Orkuveit-
unnar. Eru þetta eftirhreytur?
„Ég reikna nú með því að það sé
eitthvað slíkt. En það sem gerist
núna er bara það sem oft gerist þeg-
ar það kemur nýr ráðherra. Hann
vill kannski fá sitt fólk í þetta og ég
geri enga athugasemd við það í
sjálfu sér þó að mín vinnubrögð hafi
ekki verið þannig að skoða mál með
flokkspólitískum augum. Aðalatriðið
er að ekki verði tafir á verkinu en
það er alltaf hætta á því þegar skipt
er um lið í miðjum klíðum.“
„Fleiri
þætti undir
sama hatt“
Alfreð
Þorsteinsson
VEL gekk að koma trillunni Ellu
HF-22 af skeri við Álftanes og á
flot á ný síðdegis í gær. Annar
mannanna sem voru um borð
þegar trillan strandaði segir að
þótt hvasst hafi verið og nokkuð
af sjó í trillunni þá hafi þeir
ekki upplifað sig í nokkurri
hættu.
Ella steytti á skeri vestan við
Hlið á Álftanesi, rétt um 60
metra frá landi, á tíunda tím-
anum í fyrrakvöld. Margeir
Reynisson, eigandi trillunnar,
var um borð ásamt félaga sínum
en ekki stóð til að fara í langa
siglingu. Eftir stutta stund
missti báturinn afl en nokkuð af
sjó hafði komist í vélarrýmið.
„Báturinn varð vélarvana svona
700 metra frá landi. Þá var kom-
ið nokkuð af sjó í bátinn og við
urðum að handdæla úr honum
því dælan var biluð. Þegar okk-
ur tókst síðan að koma vélinni í
gang vorum við einfaldlega
komnir of nálægt landi og of
mikið rok til að við kæmumst í
burtu.“ Fóru þeir félagar í flot-
galla um leið og báturinn festist
og kölluðu á hjálp í gegnum tal-
stöð. „Við höfðum ekki stórar
áhyggjur af þessu af því að við
vorum í samskiptum við björg-
unarsveitarmenn og heyrðum
samskipti þeirra. Við vissum að
þeir voru á leiðinni og það tók
þá örstutta stund, ekki meira en
20 mínútur.“ Slöngubátur var
sendur að bátnum og fór björg-
unarsveitarmaður um borð. Óðu
þremenningarnir síðan að
slöngubátnum sem var ferjaður
til Hafnarfjarðar.
Ekki var unnt að koma bátn-
um af skerinu þá um kvöldið en
það var reynt síðdegis í gær.
Segir Margeir að sú aðgerð hafi
gengið afar vel og svo virðist
sem trillan sé lítið skemmd. Var
hún dregin til Kópavogshafnar.
Ella HF-22 er þriggja tonna
og rúmlega sex metra langur
línu- og handfærabátur.
Urðu að handdæla úr bátnum
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Bjargað Mennirnir sem bjargað var af trillunni Ellu ganga á land í Hafn-
arfjarðarhöfn eftir að björgunarsveitarmenn sóttu þá á slöngubát.