Morgunblaðið - 21.09.2007, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 9
HÆSTIRÉTTUR felldi í gær úr
gildi þá niðurstöðu yfirskattanefndar
að verktakafyrirtækinu Impregilo
beri að greiða staðgreiðslu opinberra
gjalda vegna launa portúgalskra
starfsmanna tveggja starfsmanna-
leiga.
Taldi Hæstiréttur að starfsmanna-
leigurnar sjálfar teldust almennt
launagreiðendur portúgölsku starfs-
mannanna og að Impregilo hefði því
ekki borið almenn skylda til að standa
skil á staðgreiðslu vegna launa við-
komandi starfsmanna. Vísaði Hæsti-
réttur til þess að af samningum Imp-
regilo og starfsmannaleiganna mætti
ráða að starfsmannaleigurnar önnuð-
ust launagreiðslur til hinna útleigðu
starfsmanna. Lyti milliganga Imp-
regilo einungis að því að leggja til
nauðsynlegar upplýsingar til að hægt
væri að reikna út launin. Þótt í grein-
argerð með tekjuskattslögum væri
gert ráð fyrir að notandi þjónustunn-
ar væri launagreiðandi en ekki starfs-
mannaleigan þá hefði ekki verið sett
nægilega skýr heimild í lögin hvað
þetta varðaði.
Impregilo þarf að standa skil á
gjöldum vegna hluta launa
Impregilo hafði í málinu jafnframt
haldið því fram að hinir portúgölsku
starfsmenn væru ekki skattskyldir
hér á landi þar sem þeir hefðu dvalið
hér í svo skamman tíma. Samkvæmt
tvísköttunarsamningi milli Íslands og
Portúgals væru þeir því ekki skatt-
skyldir hér, heldur í Portúgal. Hæsti-
réttur taldi hins vegar að þar sem
Impregilo væri vinnuveitandi starfs-
mannanna í skilningi ákvæða tví-
sköttunarsamningsins þá ættu und-
antekningarreglur samningsins, sem
Impregilo vitnaði til, ekki við. Þar
með væru starfsmennirnir skatt-
skyldir hér á landi í samræmi við
meginreglu samningsins.
Hins vegar taldi Hæstiréttur að
Impregilo væri launagreiðandi
starfsmannanna að því er varðaði
greiðslu á þeirri fjárhæð sem næmi
mismun á íslenskum lágmarkslaun-
um og portúgölskum launum. Því
væri Impregilo skylt að standa skil á
staðgreiðslu opinberra gjalda vegna
þess munar.
Portúgalskir starfsmenn
skattskyldir hér á landi
Impregilo ekki talið launagreiðandi starfsmannanna
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Nýjar glæsilegar
yfirhafnir
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Pils og peysur
Opið laugardag í Bæjarlind kl. 10-16
og í Eddufelli kl. 10-14
Str. 36-56
Kynning í Hygea Smáralind
og Hygea Kringlunni
föstudag og laugardag
Sérfræðingar frá Shiseido kynna nýju litalínuna
og veita ráðgjöf í umhirðu
húðarinnar og val á kremum.
Fallegur kaupauki fylgir
þegar tveir hlutir
eru keyptir.
Hygea Kringlan : 553 4533 | Hygea Smáralind : 554 3960
• AFMÆLI • Moonstartherapy • AFMÆLI • Moonstartherapy • AFMÆLI •
• Moonstartherapy •AFMÆLI • Moonstartherapy • AFMÆLI• Moonstartherapy •
M
o
o
n
st
ar
th
er
ap
y
•
A
FM
Æ
LI
•
M
o
o
n
st
ar
th
er
ap
y
•
A
FM
Æ
LI
•
M
o
o
n
st
ar
th
er
ap
y
M
oonstartherapy •
A
FM
Æ
LI
•
M
oonstartherapy •
A
FM
Æ
LI •
M
oonstartherapy
Sjúkranuddstofan
Moonstartherapy
Anton Wurzer
Síðumúli 15,
108 Reykjavík
Sími/Fax
588 1404
Gsm 895 9404
Afmæli
Á morgun, laugardaginn 22. september,
á sjúkranuddstofan mín 6 ára afmæli.
Um leið og ég þakka viðskiptavinum mínum fyrir viðskiptin
býð ég bæði þá og nýja viðskiptavini velkomna.
Frí meðferð fyrir alla sem eiga afmæli þennan dag.
Orkumeðferð - Akupoint Massage Heilnudd - Body Massage
Bandvefsnudd - Connective tissue Massage Ristilnudd - Colon Massage
Svæðanudd - Feetreflexzonetherapy Sogæðameðferð - Lymphdrainage
Bakmeðferð - Back and Spine Therapy
Nýtt Rythmanudd - Rhytmical Massage
Svartar síðbuxur og gollur
Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460
Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15.
www.belladonna.is
St. 38-58
HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær ís-
lenska ríkið af bótakröfu Trésmiðju
Snorra Hjaltasonar vegna kaupa
trésmiðjunnar á húseign af íslenska
ríkinu. Reyndist húseignin við mæl-
ingu eftir kaupin minni en gefið var
upp í kaupsamningi. Kaupverðið
var 280 milljónir króna en ýtrasta
bótakrafan hljóðaði upp á 67,4
milljónir króna.
Þegar Trésmiðja Snorra Hjalta-
sonar hf. keypti Borgartún 6 var
húsið talið 5210,9 fermetrar að
stærð og var byggt á upplýsingum í
skrám Fasteignamats ríkisins. Við
mælingu, sem trésmiðjan lét gera á
eigninni eftir kaupin, kom í ljós að
hún var 4735,2 fermetrar eða 9,13%
minni en uppgefið var í kaupsamn-
ingnum.
Taldi Hæstiréttur m.a. að leggja
þyrfti til grundvallar þá skýringu
ríkisins að stærðarmuninn mætti
rekja til breyttra reglna um út-
reikning á stærð húseigna. Þá vís-
aði rétturinn til þess, að kaupand-
inn væri byggingarfyrirtæki og
byggingarfróður aðili á vegum þess
hefði skoðað eignina. Þar sem
eignaskiptayfirlýsing hefði ekki
legið fyrir og húseignin hefði lengi
verið í eigu sama aðila hefði hann
mátt gera sér grein fyrir að athuga
þyrfti upplýsingar um stærð eign-
arinnar.
Keypti minna
hús en selt var