Morgunblaðið - 21.09.2007, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
„Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða-
markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA
er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan
ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“
Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir,
Allrahanda.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa
og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu.
www.menntun.is
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA OMX á Íslandi
lækkaði í gær um 0,8% í 7.876,5
stig. Allar norrænu vísitölurnar lækk-
uðu í gær eða um 0,4% til 1,1%.
Hér heima varð mest lækkun á
gengi bréfa Atlantic Petroleum eða
3,4%, gengi bréfa Kaupþings banka
lækkaði um 1,4% og bréfa Straums
Burðaráss um 1%. Gengi bréfa
tveggja félaga hækkaði, Teymis um
0,5% og FL Group um 0,4%.
Íslenska krónan veiktist um 0,4%
og stendur gengisvísitalan í 118,80.
Lækkun og veiking
● FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur sam-
þykkt breytingu SPRON í hlutafélag,
á grundvelli laga um fjármálafyr-
irtæki. Hefur SPRON þar með upp-
fyllt öll lögformleg skilyrði breyting-
arinnar og telst hlutafélag frá og 1.
apríl á þessu ári. Í kjölfar samþykktar
FME verður nú óskað eftir skráningu
í kauphöll OMX á Íslandi. Verðmæti
SPRON er talið vera kringum 60
milljarðar króna.
SPRON óskar næst
skráningar í kauphöll
MISTÖK, vanhæfni og skortur á
innra og ytra eftirliti gerðu það að
verkum að Nick Leeson gat um
þriggja ára skeið stundað viðskipti í
nafni Barings-bankans breska langt
umfram það sem eðlilegt gat talist og
gat falið tap af þeim viðskiptum í
bókhaldi bankans. Kom þetta fram í
máli Leesons á málþingi í gær á veg-
um Háskólans í Reykjavík og Ice-
bank undir yfirskriftinni „Getur
Barings-málið endurtekið sig?“
Sagði hann frá því þegar hann fyrir
þrettán árum átti stærstan þátt í því
að Barings bankinn fór á hausinn, en
Leeson var þá yfirmaður verðbréfa-
miðlunar Barings í Singapúr.
Leeson segir að ætlun sín hafi
aldrei verið að hagnast sjálfur á at-
hæfinu en að hann hafi viljað komast
hjá því að slök frammistaða sín í
verðbréfaviðskiptunum kæmist upp.
Hann notaði svokallaðan 88888
reikning til að fela tap hvers mán-
aðar með því að losa á útsöluverði
stöður sem bankinn átti, þannig að
við lok mánaðar var reikningurinn á
sléttu, en hið rétta var að bankinn
tapaði sífellt meiri peningum. Eftir
því sem tapið jókst varð athæfi Lee-
sons örvæntingarfyllra og hann tók
sífellt meiri áhættu þar til spilaborg-
in hrundi til grunna þegar jarð-
skjálfti varð í japönsku borginni
Kobe og mikið fall varð á mörkuðum.
Segir Leeson að hefði innra eftirlit
í Barings banka verið betra hefði
fyrsta ranga færslan hans verið grip-
in og hann hefði aldrei komist jafn-
langt og hann gerði í raun. Má sem
dæmi nefna að Leeson gegndi,
ásamt stöðu yfirmanns verðbréfa-
deildarinnar, stöðu uppgjörsaðila og
hafði því eftirlit með sjálfum sér.
Þá segir hann að vanþekking yf-
irmanna sinna á afleiðuviðskiptum
hafi gert honum auðveldara að kom-
ast upp með svikin.
Fyrir athæfið var Leeson dæmdur
í sex og hálfs árs fangelsi í Singapúr.
Morgunblaðið/Frikki
Eftirlit Leeson lýsti á fundinum þeirri skoðun sinni að innra og ytra eftirliti
í Barings-banka hefði verið ábótavant og hefði það átt þátt í gjaldþrotinu.
Vöntun á innra
og ytra eftirliti
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
BARÁTTUNNI um norrænu
kauphöllina, OMX, virðist hvergi
nærri lokið þrátt fyrir að Borse
Dubai og Nasdaq hafi í gær til-
kynnt um samkomulag sín í milli
þess efnis að fyrrnefnda félagið yf-
irtaki norrænu kauphöllina OMX
og selji Nasdaq síðan félagið. Qat-
ar Holding, fjárfestingarfélag rík-
isstjórnar arabíska furstadæmisins
Qatar, hefur í millitíðinni lýst yfir
áhuga á að gera tilboð í OMX og
hvatt hluthafa félagsins til þess að
hinkra með að taka tilboði Borse
Dubai. Getgátur eru upp um að
Qatar Holding hafi jafnvel keypt
stóran hlut í OMX í gær, þótt það
sé ekki enn alveg ljóst.
Stór hluthafi í Nasdaq og LSE
Samkomulag Borse Dubai og
Nasdaq er eins og áður segir þess
efnis að fyrrnefnda félagið kaupir
OMX af núverandi hluthöfum á
genginu 230 sænskar krónur á hlut
og selur síðan áfram til Nasdaq,
sem greiðir að hluta með hlutafé í
sjálfu sér. Mun Borse Dubai eign-
ast 19,99% hlut í bandaríska félag-
inu en þó aðeins fara með 5% hlut í
Nasdaq.
Ennfremur fær félag emírsins í
Dubai 11,4 milljarða sænskra
króna, jafngildi 109,1 milljarðs ís-
lenskra króna, í sinn hlut. Þá mun
Borse Dubai kaupa 28% hlut í
LSE, rekstrarfélagi kauphallarinn-
ar í London, af Nasdaq sem jafn-
framt verður kjölfestufjárfestir í
kauphöllinni í Dubai, dótturfélagi
Borse Dubai. Um 8,6% hlutur í
Nasdaq verður settur í sjóð sem
tengist Borse Dubai en samkvæmt
bandarískum lögum má enginn
einn aðili eiga meira en 20% í Nas-
daq.
Minkurinn frá Qatar
Ætla hefði mátt að með þessu
samkomulagi lyki baráttunni um
OMX en svo virðist þó ekki vera.
Investor, valdafélag Wallenberg-
fjölskyldunnar og stærsti hluthafi
OMX, hefur ekki lýst neinni ofsa-
kæti með tilboðið enda sá mögu-
leiki úr sögunni að félagið fái hlut í
Nasdaq fyrir hlutinn í OMX.
Þá hefur Qatar Holding brugðið
sér í hlutverk minksins í hænsna-
kofanum, eins og áður segir, og
hleypt öllu í bál og brand. Í gær
miðlaði Citigroup samanlagt tæp-
lega 13% hlut í OMX á genginu 260
og bendir flest til þess að þar hafi
Qatar Holding átt í hlut. Ennfrem-
ur tilkynnti félagið að það hefði
keypt 20% hlut í LSE í gær.
Þess má geta að þegar OMX
keypti Kauphöll Íslands í október á
síðasta ári fengu eigendur Kaup-
hallarinnar samanlagt í sinn hlut
1,7% hlut í OMX. Miðað við yf-
irtökugengið 230 er verðmæti þess
hlutar 475,5 milljónir sænskra
króna, jafngildi um 4,6 milljarða
króna, en miðað við gengið 260 er
verðmæti hlutarins 537,6 milljónir
sænskra króna, jafngildi um 5,2
milljarða íslenskra króna.
Hvar endar OMX?
Ríkisstjórnin í Qatar hefur hleypt nýju lífi í baráttuna
!"#$%&'
(%)&'*(+&
# $ % & % # # ' ( )
ASKAR Capital stefna að því að
fjárfesta fyrir allt 500 milljónir
evra, jafngildi um 44 milljarða ís-
lenskra króna, í fasteignum í Rúm-
eníu á næstu misserum. Frá þessu
er greint í Hungary Business
Newswire en þar segir jafnframt
að fyrsta verkefnið, sem er bygging
íbúðarhúsnæðis í höfuðborginni
Búkarest og kosta eigi um 30 millj-
arða íslenskra króna, eigi að hefj-
ast innan næstu 24 mánaða. Þá seg-
ir að Askar Capital sé einnig að
skoða fasteignaverkefni í borginni
Timisoara og að félagið sé reiðubú-
ið að leggja í verkefni í fleiri
stórum borgum Rúmeníu.
Tryggvi Þór Herbertsson, for-
stjóri Aska Capital, staðfesti í sam-
tali við Morgunblaðið að þessar
upplýsingar væru í öllum meg-
indráttum réttar. „Það er rétt,
þetta eru gríðarlega miklar fjár-
festingar hjá okkur.“
Opna skrifstofu í Búkarest
Askar Capital opnuðu raunar ein-
mitt skrifstofu í Búkarest í gær en á
meðal viðstaddra var Ólafur Ragn-
ar Grímsson, forseti Íslands. Auk
hans voru viðstaddir frammámenn
úr rúmensku viðskiptalífi og við-
skiptasendinefnd frá Útflutnings-
ráði sem er í föruneyti forsetans.
Tryggvi segir skrifstofuna í Búk-
arest eiga að annast Rúmeníu og
nálæg svæði. Rúmenía hafi orðið
fyrir valinu því þar hafi Askar sam-
starfsaðila og efnahagsþróunin í
landinu sé mjög hröð.
Askar Capi-
tal með stór-
fjárfestingar
í Rúmeníu
!
,%%*(-
* +*
,+-
- +
.,+/
.0+
-1+.
.+*
* 0-+
, +
*/+
*1+-
+*/
10+.
.+
+-
*,* +
0+
*+,*
.*/+
+0
11+
.*+
,+
0+
-*/1+
**+
+
!
"" "#$"$ $"##"% $"&%$" "&"#"&
$"& "&$" #"$&"%
"&"$##
"$&"##" &#"%" #"#$"$
%&""
$"&"&$
"&"#
"&"
""
$"%$"
$"#$"$
'&
&'$$
%'#$
&#' &' &#'
#' # '$
%' $' ##' '$
$'
&
'$
& '%$
&#'&
'&$
$' #'&$
#'%
'$
'&
#' '$
$'#
##' '#
#' &%'
()*
%
&$
&
%
+
"
"#" "#" "#" "#" "#" "#" "#" "#" "#" "#" "#" "#" "#" #"#" #"#" "#" "#" #"#" "#" "#" "#" "#" "#" "#" %"#" $"#" .) ) %()
, - ./"
0 *- ./"
12 ./"
(3- ./"
- ./"
/"14 /56
78
- ./"
9 ./"
3
6
./"
: 8( . ./"
! 4 0 ; ();/""./"
<4./"
= ./"
/+. 0))%(
&$./"
,/
8./"
,8>
4>?(
1 0
(- ./"
(@<0
78
8- ./"
:
./"
AB.
)./"
<4 * ./"
C * ./"
%( (12)3%
D
<, 4 4D"
0-
./"
4 )./"
E:F4
E:F5
,1*
*2. 0
+/
*+*
E:F6
0F
-2..-
,.
+/
+,
+GH
A
I
*-2//
.2 ,
+,
+
(!1
+,F
2,.1
/2/-
+
+.
E:F7 E:F /20/
*2-/
+0
+1
NORSKA fjármálaeftirlitið (FME)
hefur sent bæði Kaupþingi banka
og Existu bréf með ósk um viðbót-
arupplýsingar í tengslum við rann-
sókn þess á því hvort Exista og
Kaupþing hafi unnið saman að því
að byggja upp ráðandi eða nær ráð-
andi eignarhlut í Storebrand en ís-
lensku félögin eiga til samans um
fjórðungshlut. Þetta staðfesti Kjetil
Karsrud, talsmaður norska fjár-
málaeftirlitsins, í samtali við Morg-
unblaðið en hann vildi hins vegar
ekki tjá sig um innihald bréfanna
eða við hvaða spurningum eftirlitið
vildi fá fleiri eða nánari svör.
Norska
FME vill
fleiri svör
● DANSKI epn-fréttavefurinn fullyrðir
að 365 Media sé nú að skapa
stærsta fyrirtæki sem framleiðir aug-
lýsingamyndir í Evrópu. Meiningin sé
að slá saman fyrirtækjunum Euro-
pean Film Group, Saga Film á Ís-
landi, 2AM á Bretlandi og Soft Pillow
í Tékklandi. Saman muni þau mynda
stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í
Evrópu. Sagt er að dótturfélög Europ-
ean Film Group í Danmörku, Moland
Film, BSL, Welcome Postproduction
og ClubViral fylgi með í sameining-
unni.
Stærstir í
auglýsingamyndum
GOLDMAN Sachs, sem er stærsti
fjárfestingarbanki heims, var rekinn
með 2,85 milljarða dala (180 millj-
arða króna) hagnaði á þriðja árs-
fjórðungi á móti um 1,55 milljarða
dala hagnaði á sama tímabili í fyrra.
Hagnaðurinn var heldur meiri en
sérfræðingar á fjármálamarkaði
höfðu spáð. Þrátt fyrir aukinn hagn-
að hefur Goldman Sachs ekki farið
varhluta af vályndum veðrum á fjár-
málamarkaði að undanförnu en út-
lánatap vegna ótryggra lána nam
tæplega 1,7 milljörðum dala. Tekjur
Goldman Sachs jukust á hinn bóginn
um 63% á fjórðungnum og námu
12,3 milljörðum dala á móti 10,2
milljörðum á sama tímabili í fyrra.
Goldman
Sachs yfir
væntingum
♦♦♦
♦♦♦