Morgunblaðið - 21.09.2007, Síða 15
„Sterkur leiðtogi er máttlítill ef hann hefur ekki
öflugt lið á bak við sig.“
- Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans
Samkeppnin um hæfasta starfsfólkið harðnar hröðum skrefum. Tæknibyltingar, hækkandi
menntunarstig, minnkandi tryggð, kröfur um sveigjanleika og nýr alþjóðlegur vinnumarkaður eru
aðeins forsmekkur þeirra breytinga sem eru að verða á íslensku atvinnulífi. Er þitt fyrirtæki viðbúið
þessari þróun?
Á ráðstefnunni gefst stjórnendum einstakt tækifæri til að skyggnast inn í framtíðina
með tveimur af fremstu sérfræðingum heims á sviði stjórnendaþjálfunar og rannsókna
á vinnumarkaði.
ALÞJÓÐLEG RÁÐSTEFNA Á NORDICA
25. SEPTEMBER 2007
BARÁTTAN UM
BESTA FÓLKIÐ
DAGSKRÁ
12:30 Móttaka
13:00 Setning ráðstefnunnar
13:10 Mannauður og áskoranir 21. aldarinnar
Dr. Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík,
og Atli Atlason, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbankans
13:40 Adjusting to the World of Work for Creating a
Competitive Advantage - Dr. Dominique Turcq
Dr. Dominique Turcq er meðal fremstu sérfræðinga heims í málefnum
alþjóðlegs vinnumarkaðar. Hann starfar meðal annars sem ráðgjafi æðstu
stjórnenda Manpower Inc., stærstu vinnumiðlunar heims, og alþjóðlega
ráðgjafafyrirtækisins McKinsey. Dr. Turcq hefur einstaka yfirsýn yfir strauma og
stefnur í atvinnumálum á heimsvísu og innsýn í fjölbreytilegar þarfir fyrirtækja,
enda hefur hann helgað sig rannsóknum, stefnumótun og viðskiptaþróun á því
sviði um árabil.
14:50 Kaffihlé
15:20 The Future of Leadership - Sir John Whitmore
Sir John Whitmore er frumkvöðull á sviði stjórnendaþjálfunar. Hann vakti fyrst
athygli sem Bretlands- og Evrópumeistari í kappakstri en skaust upp á
stjörnuhimininn með bók sinni Coaching for Performance. Bækur hans hafa
verið þýddar á yfir tuttugu tungumál og vakið verðskuldaða athygli á
stjórnendaþjálfun sem leið að árangri, enda einkennast fyrirlestrar hans af líflegri
framsetningu og virkri þátttöku áheyrenda. Sir John Whitmore var nýlega
útnefndur sem sá fremsti á sviði stjórnendaþjálfunar í Bretlandi af blaðinu
The Independent.
16:30 Umræður
17:00 Ráðstefnulok
Ráðstefnustjórn: Dr. Margrét Jónsdóttir
Verð: 18.000 kr.
Skráning á www.hr.is eða skraning@ru.is