Morgunblaðið - 21.09.2007, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 21.09.2007, Qupperneq 15
„Sterkur leiðtogi er máttlítill ef hann hefur ekki öflugt lið á bak við sig.“ - Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans Samkeppnin um hæfasta starfsfólkið harðnar hröðum skrefum. Tæknibyltingar, hækkandi menntunarstig, minnkandi tryggð, kröfur um sveigjanleika og nýr alþjóðlegur vinnumarkaður eru aðeins forsmekkur þeirra breytinga sem eru að verða á íslensku atvinnulífi. Er þitt fyrirtæki viðbúið þessari þróun? Á ráðstefnunni gefst stjórnendum einstakt tækifæri til að skyggnast inn í framtíðina með tveimur af fremstu sérfræðingum heims á sviði stjórnendaþjálfunar og rannsókna á vinnumarkaði. ALÞJÓÐLEG RÁÐSTEFNA Á NORDICA 25. SEPTEMBER 2007 BARÁTTAN UM BESTA FÓLKIÐ DAGSKRÁ 12:30 Móttaka 13:00 Setning ráðstefnunnar 13:10 Mannauður og áskoranir 21. aldarinnar Dr. Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, og Atli Atlason, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbankans 13:40 Adjusting to the World of Work for Creating a Competitive Advantage - Dr. Dominique Turcq Dr. Dominique Turcq er meðal fremstu sérfræðinga heims í málefnum alþjóðlegs vinnumarkaðar. Hann starfar meðal annars sem ráðgjafi æðstu stjórnenda Manpower Inc., stærstu vinnumiðlunar heims, og alþjóðlega ráðgjafafyrirtækisins McKinsey. Dr. Turcq hefur einstaka yfirsýn yfir strauma og stefnur í atvinnumálum á heimsvísu og innsýn í fjölbreytilegar þarfir fyrirtækja, enda hefur hann helgað sig rannsóknum, stefnumótun og viðskiptaþróun á því sviði um árabil. 14:50 Kaffihlé 15:20 The Future of Leadership - Sir John Whitmore Sir John Whitmore er frumkvöðull á sviði stjórnendaþjálfunar. Hann vakti fyrst athygli sem Bretlands- og Evrópumeistari í kappakstri en skaust upp á stjörnuhimininn með bók sinni Coaching for Performance. Bækur hans hafa verið þýddar á yfir tuttugu tungumál og vakið verðskuldaða athygli á stjórnendaþjálfun sem leið að árangri, enda einkennast fyrirlestrar hans af líflegri framsetningu og virkri þátttöku áheyrenda. Sir John Whitmore var nýlega útnefndur sem sá fremsti á sviði stjórnendaþjálfunar í Bretlandi af blaðinu The Independent. 16:30 Umræður 17:00 Ráðstefnulok Ráðstefnustjórn: Dr. Margrét Jónsdóttir Verð: 18.000 kr. Skráning á www.hr.is eða skraning@ru.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.