Morgunblaðið - 21.09.2007, Síða 25
hef afrekað allt upp í 150 manna
veislur. Svo tók maðurinn minn að
sér fararstjórn fyrir franska hópa
um Ísland í sumar og ég fór með sem
kokkur. Það var voða gaman þó
uppistaðan í matseldinni hafi í þetta
sinn verið íslenskur matur á borð við
hangikjöt, saltkjöt og baunir, kjöt-
bollur, lummur og síðast en ekki síst
plokkfiskur, sem allir elskuðu og
dáðu.“
Þegar Daglegt líf falaðist eftir
framandi uppskrift til birtingar,
bauð Renuka upp á karrífisk með
kókosmjólk ásamt grænmetishrís-
grjónum, fersku salati og mango
chutney.
Uppskriftin, sem hér fylgir, er
ætluð fyrir sex manns og alltaf skal
bera mat fram með bros á vör, segir
Renuka.
Grænmetishrísgrjón
750 g basmati-hrísgrjón
5 bollar heitt vatn
1 msk. salt
6 msk. ólífuolía
1 kanelstöng
1 tsk. svört piparkorn
5 gulrætur
1 blaðlaukur
Þrjár matskeiðar af ólífuolíunni
settar í pott ásamt piparkornunum
og kanelstönginni og látið malla í ol-
íunni í smá stund. Hrísgrjónin skol-
uð og þeim bætt út í pottinn ásamt
saltinu og vatninu. Hrært vel í með
sleif. Látið sjóða í 20 mínútur við
mjög vægan hita. Á meðan á suðunni
stendur er blaðlaukurinn skorinn
smátt og gulræturnar í strimla og
þetta steikt í 3 msk af olíu í öðrum
potti. Gulrótunum og blaðlauknum
er svo blandað vel saman við hrís-
grjónin að aflokinni suðunni og látið
sjóða saman í lokuðum potti í fimm
mínútur.
Karrífiskur með
kókosmjólk
1 kg lúða (má líka nota lax eða ýsu)
1 dós kókosmjólk
1 msk. salt
1 msk. karrí
1 tsk. túrmerik
1 laukur
1 tsk. karrílauf
1 tsk. tómatpuré
2 hvítlauksgeirar
½ tsk. engifer
3 msk. ólífuolía
½ tsk. svartur mulinn pipar
½ tsk. chiliduft
Olía hituð í potti og síðan er lauk-
ur, hvítlaukur, engifer, karrílauf,
karrí, chiliduft, salt, túrmerik, tóm-
atpuré sett út í pottinn og látið malla
rólega saman. Því næst er kókos-
mjólkinni hellt út í og hrært vel í.
Fiskurinn er síðan skorinn í bita og
honum blandað varlega saman við
ásamt piparnum. Pottinum lokað
með loki og látið malla við mjög
vægan hita í 20 mínútur. Grænu
fersku kóríander stráð yfir áður en
rétturinn er borinn fram með mango
chutney.
Salatið
íslensk salatblöð
4 tómatar
1 rauð paprika
1 rauðlaukur
½ gúrka
limesafi
salt
svartur pipar
Grænmetið skorið niður í skál og
kryddað með salti, lime-safa og
svörtum pipar.
join@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 25
bmvalla.is
Söludeild :: Breiðhöfða 3 :: Sími: 412 5050
Opið mánudaga til föstudaga 8–18
og laugardaga 9–14.
Uppspretta af
hugmyndum fyrir
sælureitinn þinn!
Nýja handbókin er komin
Handbókin okkar kveikir ótal nýjar hugmyndir.
Landslagsarkitekt okkar í Fornalundi aðstoðar þig síðan
við að breyta garðinum þínum í sannkallaðan sælureit.
Hringdu í síma 412 5050 og fáðu tíma í ráðgjöf.
Pantaðu handbókina í síma 800 5050
eða á bmvalla.is
ar
gu
s
0
7
-0
4
7
1
Stella
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
Í vetur verður flogið til Tenerife tvisvar í viku,
enda skín sólin þar flesta daga ársins.
Eyjuna sjálfa þarf vart að kynna: Furuskógar
og blómahöf í norðurhlutanum, magnaðar
sólarstrendur í suðurhlutanum og frábær hótel
þar sem öll fjölskyldan nýtur sín.
Það finna allir eitthvað við sitt hæfi á Tenerife.
Vatna- og dýragarðar og frábærir veitingastaðir
er aðeins brot af því sem þú upplifir á eyjunni.
Komdu til Tenerife og skemmtu þér meira.
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
www.uu.is
Innifalið: Flug, flugvallaskattar, íslensk fararstjórn
og gisting með morgunverði. Verð miðast við að bókað
sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er
bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega.
PARQUE DEL SOL
Verðdæmi: 49.967,-
- á mann m.v. 2 með 2 börn í viku.
Verð á mann m.v. 2 fullorðna 63.103,-
Brottför 16. janúar.
Fyrsta flokks íbúðahótel, vel staðsett í einungis
300 metra fjarlægð frá strönd. Rúmgóðar íbúðir
sem eru byggðar umhverfis glæsilegt sundlauga-
svæði. Frábær staður fyrir fjölskylduna þar sem
öll aðstaða og þjónusta er til fyrirmyndar.