Morgunblaðið - 21.09.2007, Page 27
bæta líf sitt, ef söluaðilinn virðir síð-
an allar slíkar hugsjónir að vettugi
og fer illa með eigin starfsfólk. Þegar
slík dæmi koma upp á ég erfitt með
að líta svo á að varan sé enn Fair
Trade.“
Ekki hægt að horfa framhjá
vandamálunum
Þótt mikil aukning hafi verið í
eftirspurn eftir lífrænni framleiðslu
undanfarið á hún þó eftir að aukast
enn frekar að þeirra mati. „Sumir
byrja að kaupa lífrænan varning fyr-
ir börn sín eða vegna heilsunnar, á
meðan enn aðrir hafa áhyggjur af
áhrifum nútímaframleiðsluhátta á
jörðina,“ segir Vermeulen.
Hverjar sem ástæðurnar eru þá er
vöxturinn greinilegur. „Æ fleiri stór-
markaðir bjóða líka upp á lífræn
matvæli og þar kynnast enn fleiri
þessum vörum,“ segir Bouwman.
„Fólk sem jafnvel myndi aldrei gera
sér erindi í heilsuverslun grípur t.a.
m. með sér lífrænar hnetur í stór-
markaði og ef því líkar varan vel er
það líklegt til að prufa aftur.“
Evrópskir bændur eiga þá, að
þeirra mati, eftir að færa sig yfir í líf-
ræna ræktun í auknum mæli á næstu
árum. „Lífræn ræktun á bara eftir að
aukast og ég tel að sú staða eigi eftir
að koma upp í Evrópu í ekki alltof
fjarlægri framtíð að bændum á viss-
um svæðum verði hreinlega bannað
að nota kemískan áburð,“ segir Bo-
uwman. „Til að mynda eiga vanda-
mál tengd drykkjarvatni bara eftir
að aukast. Efnin sem við, a.m.k. í
Evrópu, setjum í jarðveginn núna
verða komin í drykkjarvatn okkar
eftir 30-40 ár. Allir þessir hlutir
skipta verulegu máli og til lengdar er
ekki hægt að horfa framhjá þeim.
Það er líka ein af hinum góðu afleið-
ingum hnattvæðingarinnar að þeim
fjölgar sífellt sem eru meðvitaðir um
þetta.
annaei@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 27
Kristbjörg F. Steingríms-dóttir á Hrauni á Aðaldalyrkir um nýja auglýsingu
Símans:
Enn flytur Gnarr oss gaman sitt,
guðstrúna slítur úr böndum,
ennþá sýnir sjónvarpið mitt
símann í Júdasar höndum.
Síminn hyggst auka víðfeðm völd
en vill svo fjárhaginn rétta,
því munu hækka þjónustugjöld
um þrjátíu peninga slétta.
Jón Ingvar Jónsson leikur sér
með orð og rím í limru:
Hún Magna á Seylu var málg
og mælti er snæddi hún fjálg
innmat úr Hyrnu
með Uppsala-Birnu:
„Tja! nú fæ ég aldeilis njálg.“
Rúnar Kristjánsson á
Skagaströnd yrkir um gönguferðir
lögreglunnar í höfuðborginni:
Löggan er í versta vanda,
veit ei hvernig starfa skal,
þegar hersing illra anda
er í miðjum borgarsal.
Vonar þó að drós og drengur
dragi úr verstu hvötunum,
meðan Stebbi stjóri gengur
stífur eftir götunum!
Og að síðustu:
Lærist kannski loks við hnekki
lexía í standinu,
að skógardýrin eru ekki
öll í vinabandinu.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Lögreglan og
skógardýrin
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
Fréttir
í tölvupósti
Bílaland B&L, Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - 575 1230.
Nýlegar lúxusbifreiðar á frábærum kjörum
Gott úrval lúxusbíla á einstökum kjörum í takmarkaðan tíma. Komdu núna í lúxussal Bílalands B&L og gerðu frábær kaup!
Opið virka daga frá kl. 10 til 18 og á laugardögum frá kl. 12 til 16.
Land Rover Range Rover Vogue
Nýskr: 06/2005, 4400cc
Sjálfskiptur, silfurlitaður
Ekinn 51.000 þ.
Verð kr. 7.950.000
Tilboð kr. 6.750.000
BMW X5 3.0i
Nýskr: 12/2006, 3000cc
Sjálfskiptur, dökkgrár
Ekinn 10.000 þ.
Verð kr. 6.450.000
Tilboð kr. 5.700.000
BMW 550i
Nýskr: 8/2006, 5000cc
Sjálfskiptur, dökkblár
Ekinn 17.000 þ.
Verð kr. 8.600.000
Tilboð kr. 7.500.000
BMW X3 2.5i
Nýskr: 05/2006, 2500cc
Sjálfskiptur, ljósblár
Ekinn 16.000 þ.
Verð kr. 5.150.000
Tilboð kr. 4.350.000
Porsche Cayenne
Nýskr: 09/2004, 3200cc
Sjálfskiptur, dökkblár
Ekinn 44.000 þ.
Verð kr. 5.600.000
Tilboð kr. 4.600.000
BMW Z4 M Coupe
Nýskr: 02/2007, 3300cc
beinskiptur, blár
Ekinn 9.000 þ.
Verð kr. 7.900.000
Tilboð kr. 6.700.000
Porsche 911 Carrera 2 (Anniversary)
Nýskr: 08/2005, 3600cc
beinskiptur, silfraður
Ekinn 9.000 þ.
Verð kr. 9.950.000
Tilboð kr. 9.000.000
BMW 330ix - 4x4
Nýskr: 05/2006, 3000cc
Sjálfskiptur, dökkgrár
Ekinn 13.000 þ.
Verð kr. 5.500.000
Tilboð kr. 4.750.000
Gott úrval á staðnum. Komdu í heimsókn til okkar að Grjóthálsi 1.
Settu
fókusinna . . .
Laugavegi 62 • Glæsibæ • Garðatorgi 5
Sími 511 6699 • sjon@sjon.is
X
E
IN
N
S
J 07 09 003