Morgunblaðið - 21.09.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 31
BORGARYFIRVÖLD hafa sam-
þykkt að byggja megi
fjölbýli með sex litlum
einstaklingsíbúðum á
Holtavegi, sunnan við
Langholtsskóla. Upp-
haflega stóð til að
byggja tvö hús á svip-
uðum slóðum en frá
því var fallið eftir sam-
ráð við íbúa. Studdi ég
þá breytingu eftir að
hafa hlustað á fólkið í
dalnum og hélt að full
sátt myndi nást um
þetta mikilvæga hús.
Í skipulagsráði var
húsið samþykkt með fimm atkvæð-
um Sjálfstæðisflokks, Framsókn-
arflokks og Samfylkingar gegn einu
atkvæði Vinstri-grænna og F-lista
sem er með áheyrnarsetu í ráðinu.
Var skipulagið samþykkt þrátt fyrir
nokkur mótmæli íbúa enda töldu
þeir sem að málinu komu að upp-
bygging húsnæðis fyrir geðfatlaða
væri eitt það mikilvægasta sem við
stæðum frammi fyrir. Þá mun bygg-
ing á þessum stað, sem skilgreindur
er í aðalskipulagi sem íbúðasvæði en
ekki grænt svæði, alls ekki rýra
Laugardalinn að neinu
leyti. Til að ná sátt um
þetta mál hefðu allir
flokkar þurft að standa
saman. Vinstri-græn og
F-listi treystu sér ekki
til þess, heldur völdu
stjórnarandstöðugírinn
og bókuðu að húsið
myndi ganga á Laug-
ardalinn með afgerandi
hætti.
Ég met það fólk sem
berst fyrir grænum
svæðum, sú barátta er
afar mikilvæg. Við sem
erum í pólitík þurfum hins vegar að
skoða marga hagsmuni þegar kemur
að ákvörðunum og getum ekki leyft
okkur að taka ákvarðanir út frá einu
sjónarmiði. Við þurfum að vega hvað
vegur þyngst og sjá til framtíðar en
ekki stjórnast af vinsældaþörf nú-
tímans. Þetta er ekki síst mikilvægt
nú þegar Reykjavíkurborg var að
vistarperluna Laugardal, hvorki op-
in leiksvæði né skipulagða reiti.
Ég skil hins vegar áhyggjur íbúa
af ýmsum þeim hugmyndum sem
uppi eru um byggingar í Laugardal
og held að það sé full ástæða til að
staldra við. En að mínu mati þarf að
velja hvað eigi að vernda og hvað
ekki. Ég er ekki talsmaður malbiks,
risabygginga og bílastæða þótt ég sé
talsmaður þessa heimilis og annarra
heimila sem veita fólki lágmarkslífs-
gæði.
Í umræðunni er ég ásökuð um að
saka fólk um fordóma gegn geðfötl-
uðum. Því fer fjarri. Mér dettur ekki
í hug að nokkur sé á móti öðru fólki
bara af því að það er með sjúkdóm,
frekar en að fólk sé á móti rauð-
hærðu fólki með skakkar tennur.
Þannig er lífið sem betur fer ekki.
Deilan snýst um hvort vegi þyngra
verndun lóðar nálægt grænu svæði
eða búsetuþörf fólks sem lengi hefur
verið án þeirra mannréttinda að eiga
heimili, heldur hefur dvalist á stofn-
un.
Af geði og grænum svæðum
Björk Vilhelmsdóttir skrifar
um byggingu sambýlis í Laug-
ardal
»Deilan snýst umhvort vegi þyngra
verndun lóðar nálægt
grænu svæði eða bú-
setuþörf fólks sem lengi
hefur verið án þeirra
mannréttinda að eiga
heimili
Höfundur er félagsráðgjafi og borg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar.
Herdís Þorvaldsdóttir
taka við því verkefni frá ríkinu að
tryggja 80 geðfötluðum ein-
staklingum sem búið hafa á stofn-
unum búsetu í heimahúsum. Það
verkefni er prófsteinn á það hvernig
nærsamfélag sveitarfélaganna mun
taka við málefnum fatlaðra frá rík-
inu.
Ég hef stutt byggingu sambýlis í
Laugardal af því að ég tel hagsmuni
þeirra sem þurfa heimili á friðsælum
stað vega þyngra en það svæði sem
fer undir byggingu. Svæðið er auk
þess ekki grænt útivistarsvæði held-
ur smálóð milli annars sambýlis og
skólagarða. Nýtt hús mun á engan
hátt rýra skólagarðana, hvað þá úti-
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Eftir mörg ár lét ég draum rætast
og ferðaðist til Íslands. Við heill-
uðumst af fegurð náttúrunnar og
áhugaverðum ferðamannastöðum.
Hins vegar erum við niðurbrotin
yfir því sem á sér stað í Reykjavík
um helgar. Mörg þúsund ungling-
ar fara drukkin með óspektir um
göturnar, brjóta rúður og eyði-
leggja eignir annarra.
Laugavegur leit á mánudegi út
eins og það hefði farið fram styrj-
öld.
Af einskærum ótta þorðum við
ekki út úr hótelinu okkar á kvöld-
in.
Þetta er vitaskuld engin auglýs-
ing fyrir land ykkar og á meðan
þetta ástand breytist ekki komum
við heldur ekki aftur, þótt ým-
islegt veki áhuga okkar.
Er þess ekki nokkur kostur að
koma vitinu fyrir þessa óeirða-
seggi? Og heldur fólk virkilega að
yfirstandandi Íslandsbylgja í
Þýskalandi haldist með þessu
áframhaldi? Ég er svekktur og
sorgmæddur og langar til að koma
því skýrt á framfæri með þessum
hætti. Undir þessum kring-
umstæðum mun ég ekki koma aft-
ur til Íslands. Því miður.
Engu að síður vil ég skila
kveðju til allra skynsamra manna.
HEINZ KUBITZ,
Waldhufen,
Þýskalandi.
Niðurbrotnir ferðamenn
Frá Heinz Kubitz
www.bakki.com
bakki@bakki.com
Sigtún 2 Selfossi
Þröstur Árnason
lögg.
fasteignasali
Brynhildur
Tómasdóttir
ritari
Sigurður
Sveinsson
hdl.lögg.
fasteignasali
Sverrir
Sigurjónsson
sölumaður
Þröstur
Sigurðsson
sölumaður
Ásdís Ýr
Aradóttir
ritari/sölumaður
Opið hús helgina 22. og 23. september
Sýningarhús
frá Hiin húsin
á Leirubakka í Landsveit
frá kl. 13 til 16
nk. laugardag og sunnudag
Allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum Bakka í síma 482 4000
Sjón er sögu ríkari
Topp
hús
topp
gæði
-hágæðaheimilistæki
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
GJAFABRÉF
Með Magimix safapressunni
má töfra fram girnilega og
heilsusamlega drykki með
lágmarks fyrirhöfn.
Verð frá kr.: 23.500
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík
Baldursnes 6, Akureyri
Sími 588 0200 -www.eirvik.is
Aðrir söluaðilar:Kokka, Laugavegi, Egg, Smáratorgi
Villeroy&Boch, Kringlunni, Líf og list, Smáralind
Maður lifandi, Borgartúni og Hæðarsmára
Fyrir
heilsuna
Safapressa