Morgunblaðið - 21.09.2007, Page 33

Morgunblaðið - 21.09.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 33 ALDARMINNING Mig langar að minn- ast ömmu minnar og nöfnu í nokkrum orð- um, en í dag eru 100 ár síðan hún fæddist í Saltvík í Reykjahverfi, dóttir hjónanna Sigurbjargar Þor- láksdóttur og Árna Frímanns Krist- jánssonar. Eina systur átti hún, Þor- björgu í Hellulandi sem einnig er látin. Amma giftist 15. ágúst 1926 afa mínum Hallgrími Óla Guðmundssyni frá Grímshúsum, hann var fæddur 29.9. 1897 og dó á besta aldri árið 1954, þau bjuggu í Grímshúsum og eignuðust 6 börn. Þau eru Eysteinn, f. 19.3. 1929, d. 1.8. 1990, Sigurbjörg, f. 10.7. 1931, Guðmundur, f. 26.9. 1938, Jónína Þórey, f. 10.8. 1941, d. 28.3. 1942, Jónína Árný, f. 18.1. 1943, og Guðrún Helga, f. 29.12. 1944. Það eru komnir 67 niðjar, barnabörnin eru 17, barnabarnabörnin eru 35 og barnabarnabarnabörnin eru 9 og fleiri á leiðinni. Amma bjó áfram í Grímshúsum, eftir að afi dó, með börnum sínum, Kristjana Árnadóttir ✝ Kristjana Árna-dóttir fæddist í Saltvík í Reykja- hreppi 21. septem- ber 1907. Hún and- aðist í Borgar- spítalanum í Reykjavík 11. sept- ember 1987. sum á barnsaldri. Hún starfaði mikið í fé- lagsmálum, var í kven- félaginu og stjórn kvenfélagasambands- ins, hún var í kirkju- kórnum og organisti i mörg ár. Ég minnist hennar þegar ég var í skóla upp við staði, þá gerðum við ýmislegt, spiluðum á spil, hún sagði mér sögur, kenndi mér bænir og sálma sem ég bý enn að og fleira og fleira. Ég svaf fyrir ofan hana í rúminu hennar, það var hlýtt og gott. Ég þakka fyrir allar þessar stundir og einnig þegar ég var farin að búa, þá kom hún oft í heimsókn. Amma var hlý og góð og alltaf var hún fín í tauinu. Við afkomendur ömmu og afa ætl- um að koma saman og minnast þeirra í kringum afmælin þeirra. Hér er eitt af versunum sem amma kenndi mér, Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Blessuð sé minning ömmu og afa í Grímshúsum. Kristjana Helgadóttir (Didda). Steinsnar í burtu bjuggu sígaunar í hellum og tregafullur flamenco-takt- ur var í loftinu – og aldrei fjarri, hlát- ur okkar. Kannski var það þetta ævintýra- lega umhverfi sem fékk mig, fyrst um sinn, til að taka því sem sjálfsögðum hlut að kynnast manni eins og Úlfi. En eftir því sem við urðum betri vinir og hittumst heima á Íslandi gerði ég mér ljóst hversu ævintýralegur mað- ur hann var. Hér var fluggáfaður maður, með rökvísi heimspekings, orðheppni skálds og myndheim lista- manns, án þess að vottaði fyrir þeirri kaldhæðni sem svo oft einkennir slíka menn á Íslandi; í stað glotts á vör mátti alltaf heyra vinalegan hlátur og vitrænan húmor sem hitti í hjarta- stað. Ég var lánsamur að fá að vinna með Úlfi þegar hann hannaði kápuna fyrir fyrstu ljóðabók mína, því þar uppgötvuðum við hversu svipaðan smekk við höfðum á fagurfræði und- arlegra hluta, til að mynda á lýrískri fegurð vísindaskáldskapar og -mynda. Við vorum báðir mjög hrifnir af Solaris en, ólíkt öðrum, bara nokk- uð ánægðir með George Clooney í nýrri endurgerð myndarinnar. Þessi sameiginlegu áhugamál okkar – geimurinn, stjörnurnar, fútúrisminn, og framsækin list – gátu líka orðið til- efni til umræðna um andlegri málefni hjá okkur. Síðar þegar Úlfur veiktist, í annað sinn og svo aftur í þriðja sinn- ið, hittumst við á milli þess sem hann var í Japan eða ég einhversstaðar út í löndum, og þá ræddum við oft um meðvitundina, eðli sálarinnar og hugsanlegan guðdóm; oftar en ekki með tilvísanir í aldagamla alkemíu, Jung, Spinoza, Wittgenstein og aðra spekinga, en á milli allra háfleygra orða skein í gegn þessi næstum hreini tónn – og vissa hjá Úlfi, um að með- vitundin lifi áfram, og að eitthvað væri til fyrir handan. Aldrei hélt ég að það myndi reyna á þá vissu svo skjótt. Bara núna síðasta sumar vorum við byrjaðir að vinna að nýrri ljóðabók, í þetta sinn um Unu- noktíum, dularfullt efni sem uppgötv- aðist með tilviljunarkenndum hætti af vísindamönnum, stuttu eftir að við Úlfur ákváðum að nota það sem inn- blástur fyrir nýja ljóðakápu. Úlfur náði að vinna fyrstu uppköst að þeirri hönnun. Ég skil ekki margt, hvers vegna svona fer, hvers vegna sumir eru kall- aðir til snemma; en ég tek mér til fyr- irmyndar þessa vissu þína Úlfur, sem fær mann til að hlæja oftar, og trúi að héðan í frá svífir þú um í fútúrískum eðalheimum. Við Ella sendum innilegar samúð- arkveðjur til fjölskyldu Úlfs, Sigrún- ar, Elínar og allra vina. Valur B. Antonsson. Elsku Úlli, það er sárt að þurfa að kveðja þig, það kom mér í opna skjöldu að heyra að þú værir látinn. Ég hafði fylgst með þér veikjast og jafna þig áður. Þú áttir eftir að upp- lifa svo margt og aðrir að fá að njóta þín miklu lengur við. Sjúkdómur þinn var eitthvað sem við höfðum stundum rætt á köldum heimspekilegum nótum og analýser- að. Þú vildir líta á hann sem athygl- isverða lífsreynslu en ekki eitthvað sem gæti bugað þig. Ég var hrædd inn við beinið og þú vafalaust líka en það var gott að tala svona og gefa ógninni ekki of mikið vægi. Enda hafðir þú betur og varðst heilbrigður á ný, með alla þína útgeislun. Sjálfsvorkunn var ekki þinn stíll, þú tókst á við erfiðleikana með reisn. Enda varstu alltaf einstakur. Við vor- um sextán ára þegar við kynntumst og ég tók eftir þessu. Innri styrkur og óvenjulegt jafnaðargeð var ríkt í þín- um persónuleika, einhver ró og þroski, þrátt fyrir alla skemmtilega vitleysu sem fylgdi þessum aldri. Þú varst forvitinn og listrænn og vildir upplifa óvenjulega hluti. Það var gott að vera nálægt þér og við skildum hvort annað svo vel, bæði í fantasíu og alvöru lífsins. Við týndum okkur stundum í einkaveröld og hug- myndum sem náðu mislangt í fram- kvæmd, til dæmis „Comic“blaðið sem við reyndum að gera saman. Það er erfitt til þess að hugsa að eiga aldrei eftir að sjá þig aftur. Síð- ast rétt skiptumst við á nokkrum orð- um á Þorláksmessu. Kaldhæðnislega sagðir þú við mig, „Nei, á dauða mín- um átti ég von en ekki þér“ ég heyri þig segja þetta með brosi í röddinni, en man eftir ákveðnum tóni sem truflaði mig. Þú varst á leið í erfiða meðferð eina ferðina enn. Þetta sam- tal er núna þrungið merkingu en var svo ómerkilegt og er í raun óþolandi að þetta skuli hafa verið okkar kveðjustund. Þegar ég sá Kastljósþáttinn með Boga hugsaði ég með mér, en frá- bært, og mundi hvað þú varst hress eftir síðustu meðferð í Svíþjóð. Þann- ig sá ég þig fyrir mér og ætlaði að hringja í þig og óska þér til hamingju með allt og hvetja þig áfram. Þremur dögum seinna fékk ég að heyra að þú værir dáinn. Ég skil það varla enn. Við höfðum ekki hist oft eða talað reglulega saman undanfarin ár en það var alltaf eitt og eitt símtal og þegar ég kom heim um jól eða sumar náðum við að taka upp þráðinn á ný. Þá töluðum við saman eins og við hefðum sést í gær. Vináttan frá þessum árum sem við vorum kærustupar og samlokur var alltaf til staðar, vanrækt og stundum gleymd en furðu lífseig. Minningar frá þessu tímabili sækja nú svo sterkt á mig og hefði ég viljað rifja það upp með þér. Nú á ég minningarnar ein. Ég mun aldrei gleyma þér, Úlli, ég er heppin að hafa átt þig að vini og kynnst þér svona náið. Ég vildi gjarnan geta verið á Ís- landi núna, fylgt þér til grafar og minnst þín með fólkinu sem þykir vænt um þig, ég veit að þú skilur. Kæra Anna, Guð styrki þig í sorg- inni og alla fjölskylduna. Sigrún, þú átt alla mína samúð, missir ykkar er mikill. Hvíl í friði, elsku vinur, Ása Fanney. Úlfur var alltaf öðruvísi en allir sem ég þekki. Hann var stærri en all- ir, á svo margan hátt, þokkafullur í hreyfingum og jafn fallegur að utan sem innan. Það skein líka einhvern veginn af honum hvað hann var vitur og sterkur. Úlli var alltaf jákvæður og glaður og jafnvel í miðjum veik- indunum var hann alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt. Þegar ég kynntist Úlfi var hann flottasti strákurinn í Reykjavík. Hann bar höfuð og herðar yfir alla í bók- staflegum skilningi. Hann var með kolsvartan húmor og talaði fallegra mál en flestir. Það er örugglega ekki til sú stelpa sem var ekki að minnsta kosti pínulítið skotin í honum. Seinna urðum við Úlli svo ná- grannar í vesturbænum. Hann og Nico, maðurinn minn urðu góðir vinir og við héldum ófá matarboð þar sem við elduðum saman einhverjar krásir sem oftar en ekki voru tilbúnar í kringum miðnætti. Með misgóða tón- list í botni, Carpenters og fleira, gæddum við okkur svo á útkomunni. Það var alltaf gaman að bjóða honum því hann var svo þakklátur og skemmtilegur félagsskapur. Seinna kom svo í ljós að hann var sjálfur listakokkur þegar hann fór að kenna okkur að elda japanskan mat. Það er ljúft að minnast Úlfs. Öll samskipti við hann voru upplífgandi og þægileg. Þrátt fyrir veikindin var hann alltaf jákvæður og glaður og var ekki að flagga því sem leiðinlegt var. Með honum var alltaf eitthvað skemmtilegt og spennandi að gerast og hversdagslegir atburðir urðu fyndnir og einhvern veginn óvenju- legir með honum. Meira að segja bar- átta Magna í Rockstar Supernova varð skemmtileg þegar hann var mættur í Magnapartý. Það var sérstaklega gaman að hitta Úlf í Japan. Þar var hann í umhverfi sem hann bar mikla virðingu fyrir. Hæfileiki hans til að sjá það skrítna og skemmtilega í öllu fékk sérstak- lega vel að njóta sín í Japan þar sem óvenjulegir hlutir eru á hverju strái. Það er svo skrítið að Úlfur sé far- inn. Þrátt fyrir að hann væri á leið- inni í lífshættulega aðgerð bar hann veikindi sín aldrei utan á sér. Það hvarflaði aldrei að okkur að Úlli, þessi lífsglaði maður, gæti dáið. Við hlökkuðum til að honum færi að batna svo við gætum hist og drukkið saman rauðvínið sem við keyptum í síðustu Frakklandsferð og búið til tónlistina sem við höfðum talað svo mikið um að gera. Sem betur fer tókst að halda styrktartónleikana á Iðnó áður en hann dó. Það er ómetanlegt að hann hafi fengið að fylgjast með þeim á spítalanum og fengið að finna þennan mikla stuðning vina sinna og séð að allir voru að hugsa til hans. Úlfur var merkilegur maður og kær öllum þeim sem hann komst í kynni við. Það er erfitt að hnoða sam- an nokkrum orðum sem gefa ein- hverja mynd af Úlfi eða tilfinningum okkar til hans, en það sem ég er að reyna að segja er að það er bæði fal- legt og sárt að hugsa til þess að Úlfur kunni betur en flestir að vera til. Elsku Sigrún, Anna, aðrir aðstand- endur og allir vinir Úlfs. Við Nico vottum ykkur samúð okkar og send- um ykkur alla okkar hlýju og styrk. Ester Bíbí Ásgeirsdóttir. Við vinirnir kynntumst Úlfi á spila- móti Fáfnis í kringum fimmtánda aldursárið. Þeldökkur, tveggja metra hár snillingur sem maður komst ekki hjá að líta upp til og ekki bara hæð- arinnar vegna. Úlfur hafði einstakt ímyndunarafl og sérlega öfluga sköp- unargáfu, góður hlutverkaspilari í hnotskurn. Sumar persónur Úlfs voru meira að segja svo heillandi að þær verðskulda í raun sínar eigin skáldsögur. Sellóspilandi gúlar, und- irförlir snákamenn, athyglissjúkir riddarar og nútímamenn sem fastir voru í sýndarveruleika hinna spilar- anna.Við spiluðum sjaldan sömu per- sónurnar mörg kvöld í röð enda fólst fjörið fyrst og fremst í að skapa nýja karaktera, nýjan heim, ný ævintýri. Og í því fór Úlfur á kostum, enda brást það ekki að þegar Úlfur settist í leikstjórnendastólinn urðu til margar skrýtnar og skemmtilegar sögur. Við húktum saman í kjallarakompum tímunum saman, sveittir og saddir af pizzum og kóki. Hlutverkaspilið var okkar útrás fyrir sköpunargleði, næt- urgalsa og afsökun til að röfla um heima og geima langt fram undir morgun. Okkar eigin heimur þar sem allt mátti og allt gat gerst. Spil með Úlfi voru bestu spilin. Þegar Úlfur kom í heimsókn spurði hann iðulega hvort það væri til ís í frystinum og ef svo var hvarf ísinn á mettíma. En það var alltaf í góðu lagi. Úlfur var stór og þurfti mikinn ís. Við kveðjum Úlf og allar hans per- sónur, við kveðjum leikfélaga, við kveðjum einstakan sköpunarkraft og frábæran mann. Tvöhundruðog- fimmtíu punkta karakter. Aðalsteinn, Gunnlaugur, Ólafur og Hlynur, spilavinir. Elsku Úlfur. Æðruleysi, umburð- arlyndi, áhugi og lífsþorsti; umvafið kærleika, er það fyrsta sem kemur í huga minn þegar ég hugsa til þín. Ég var svo lánsöm að fá að kynnast þér og upp með mér að þú skyldir biðja mig að aðstoða þig síðustu dagana þína hér í þessu lífi. Þar varð ég vitni að mörgum kraftaverkum. Vinir þínir héldu tónleika fyrir þig. Það skipti þig miklu máli og ekki síst gestabókin sem allir skrifuðu í. Og pabbi þinn kom til að vera með þér. Stóra óskin þín um að fá að giftast Sigrúnu rætt- ist svo fallega. Það var yndislegt að fá að vera viðstödd og hlusta á þegar séra Örn spurði hvort þú vildir ganga að eiga hana. Þú gafst þér langan tíma og vandaðir hvert orð. Þú sagðir svo margt fallegt um ást þína á henni. Og ég grét. Þegar þú varst búinn kom þögn þar til séra Örn bætti við „Þú þarft bara að segja já.“ Þá hló ég. Þetta var fallegt og magnað. Það er mér svo lifandi fyrir hugskotssjónum hvað ríkti mikil sátt í augunum þínum og hvað þú tókst á við örlög þín af miklu hugrekki og þroska, elsku Úlf- ur minn. Ég spurði þig einu sinni hvort það væri eitthvað sem þú ættir eftir að gera eða segja ef illa færi. Svarið lýsti þér: „Ég mun aldrei yf- irgefa ykkur.“ Ég mun aldrei yfirgefa minningu þína, elsku Úlfur minn, og bið fyrir þér þar sem þú ert nú og eyðir hveitibrauðsdögunum. Elsku Sigrún. Missir þinn og Ilmar er mikill. Guð blessi ykkur og styrki. Foreldrum, vinum og öðrum að- standendum votta ég samúð mína. Ást og hlýja Jóhanna (Jóga). ✝ Hjartkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR GUÐMUNDSSON skipasmíðameistari, Vesturgötu 30, síðast til heimilis að Hrafnistu í Reykjavík, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 4. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum samúð og vinarhug. Haraldur Örn Haraldsson, Sigurlaug G. Viborg, Guðbjörg Kristín Haraldsdóttir, Óskar Örn Arnarson, Arna Sigurlaug Óskarsdóttir. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, EDDA ÁSGERÐUR BALDURSDÓTTIR, Rjúpufelli 46, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi aðfaranótt þriðjudagsins 18. september. Úrförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 1. október kl. 13.00. Garðar Árnason, Guðný Svana Harðardóttir, Þóra Björk Harðardóttir, Ómar Bjarni Þorsteinsson, Árný Lilja Garðarsdóttir, Sigrún Jóna Baldursdóttir, Helgi Gunnar Baldursson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og systir, GÍSLÍNA TORFADÓTTIR, Silfurtúni 14B, Garði, áður Urðarbraut 1, Blöndósi, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 24. september kl. 14.00. Ágúst F. Friðgeirsson, Torfi Gunnþórsson, Fjóla Svavarsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, barnabörn, barnabarnabörn og systkyni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.