Morgunblaðið - 21.09.2007, Page 37
þér. Svo sterk kona. Það dáðust all-
ir að styrk þínum.
Ég vil þakka þér, elsku amma
mín fyrir allar yndislegu stundirnar
sem við áttum saman í gegnum árin
og fyrir allt það sem þú gerðir fyrir
mig og mína
Dag í senn, eitt andartak í einu,
eilíf náð þín, faðir gefur mér.
Mun ég þurfa þá að kvíða neinu,
þegar Guð minn fyrir öllu sér?
Hann sem miðlar mér af gæsku sinni
minna daga skammt af sæld og þraut,
sér til þess að færa leið ég finni
fyrir skrefið hvert á lífs míns braut.
Hann, sem er mér allar stundir nærri,
á við hverjum vanda svar og ráð,
máttur hans er allri hugsun hærri,
heilög elska, viska, föðurnáð.
Morgundagsins þörf ég þekki eigi,
það er nóg, að Drottinn segir mér;
Náðin mín skal nægja hverjum degi,
nú í dag ég styð og hjálpa þér.
(Lina Sandell)
Megi þú hvíla í friði hjá hinum
englunum.
Hittumst aftur þegar tíminn
kemur.
Þín
Sólrún Björk.
Elsku besta vinkona mín Erla
Sigurgeirsdóttir er látin.
Mig langar til að minnast hennar
með nokkrum orðum.
Okkar vinskapur var einstakur
alla tíð og erfitt verður að sætta sig
við að þú sért farin úr þessu lífi.
Ég veit að margir hafa tekið á
móti þér hinum megin, þar á meðal
litla Sólrún þín og Gerða vinkona
þín sem fór yfir móðuna miklu fyrir
nokkrum árum. Enginn kemur í
þinn stað en ég geymi allar góðu
minningarnar um samverustundir
okkar. Minningin um skógarferð-
irnar okkar, þú með gítarinn og
spilaðir og söngst fyrir mig, fram-
kallar bros hjá mér þrátt fyrir
söknuðinn, við tvær gátum skemmt
okkur ótrúlega vel saman og þegar
við gátum ekki sést var síminn not-
aður og oft voru það löng símtöl.
Margar samverustundir koma
upp í hugann, bæði í Engihjallanum
og fyrir norðan, við tvær eða við
fjögur saman og ferðin okkar
tveggja saman til London er
ógleymanleg.
Síðasta stund okkar er mér of-
arlega í huga í sólskini og blíðu fyr-
ir norðan, ekki datt okkur í hug að
það væri í síðasta sinni sem við hitt-
umst í þessu lífi. Þú varst einstök
kona, alltaf glöð og kát þótt lífið
hafi ekki alltaf verið þér dans á rós-
um framan af ævinni svo kom Siggi
inn í líf þitt og áttuð þið góðar
stundir saman.
Ég sendi Sigga, börnum og fjöl-
skyldum þeirra innilegar samúðar-
kveðjur.
Með þessu fallega ljóði sem lýsir
svo vel okkar einstöku vináttu, kveð
ég þig, elsku Erla mín.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson.)
Þín vinkona
Minný.
Elsku besta amma mín, þín
minning verður ætíð ofarlega í
okka huga. Við þökkum þann tíma
sem við fengum að vera í faðmi þín-
um. Oft fengum við að koma til þín
og Sigga og vera um helgi og feng-
um aldrei nóg. Þegar ég fór í bæinn
kom ég oftast til þín og við vorum
meira en nöfnur, amma og barna-
barn,við vorum ofboðslega nánar og
erfitt að segja það með nokkrum
orðum.
Elskulega amma mín, ég kveð
þig með sárum söknuði, þú varst
besta amma í heimi.
Blessuð sé minning þín.
Þín dótturdóttir
Erla Dögg.
Elsku amma ég man hvað þú
ljómaðir þegar dóttir mín kom í
heiminn.
Þú varst svo ánægð langamma,
stolt ánægð og fannst nafnið sem
hún fékk svo fallegt, Viktoría Björt.
Þú talaðir mikið um Viktoríu og
kallaðir hana oft fimmsumtrínu. Við
Helena sjáum um að hún fái að vita
allt um þig og hver yndisleg þú
varst í alla staði. Ég hefði viljað
hafa fleiri tækifæri til að koma oft-
ar til þín. Guð taki þig í faðm sinn,
elsku amma.
Þinn dóttursonur
Hafþór Örn.
Við systkinin viljum að lokum
minnast þín með þessu ljóði.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Erla Dögg og Hafþór Örn.
Við þessi leiðarlok er mér efst í
huga þakklæti, þakklæti fyrir að
hafa átt Erlu að. Samskipti okkar
voru alla tíð hlý og góð. Hún var
fyrrverandi tengdamóðir og amma
dóttur minnar. Hún lagði á það ríka
áherslu þegar við Eiríkur skildum
að ég hefði ekki skilið við hana, það
þótti mér afar vænt um. Hún
reyndist alla tíð okkur svo vel, syn-
ir mínir voru afskaplega hrifnir af
henni. Þeir fundu henni nokkuð
merkilegt gælunafn. Þeir kölluðu
hana hótel-ömmu, þeim fannst þeir
alltaf lenda í veislu þegar þeir
komu með okkur Sollu þangað.
Þangað vildu þeir endilega fara.
Ein af mínum gæfum í lífinu var
að kynnast Erlu. Hún kenndi mér
margt og var yndisleg kona.
Fólkinu hennar sendi ég innileg-
ustu samúðarkveðjur. Megi Guð
styðja ykkur í þessum þungu spor-
um.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum
lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um réttan veg
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér.
Sproti þinn og stafur hugga mig.
Ragnheiður, Steinar og börn.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 37
ar. Okkur varð þá strax ljóst að þó að
hann væri dulur og jafnvel feiminn
náungi var undir niðri persóna sem
okkur langaði til að kynnast betur.
Við höfum haldið góðu sambandi í
gegn um tíðina og brallað margt
saman. Fræg er ferð til Stykkis-
hólms á Unglingalandsmót UMFÍ.
Sonur okkar var þar að keppa og þau
ákváðu að koma með okkur. Við vor-
um í fellihýsi en þau í tjaldi og þessa
helgi var úrkomumetið í Stykkis-
hólmi slegið. Þau urðu að flýja til
okkar í fellihýsið og sofa þar með öll
börnin og hafði Hjörtur oft á orði eft-
ir þessa helgi að hann færi aldrei aft-
ur í tjaldútilegu. Við áttum góðar
samverustundir á Benidorm þar sem
við vorum saman í íbúð í rúma viku.
Þó að þröng væri á þingi gekk allt
mjög vel og er sú ferð okkur ógleym-
anleg. Einnig leikhúsferðirnar, mat-
arboðin o.fl.
Hjörtur var mikill knattspyrnu-
áhugamaður, hann var Skagamaður
í húð og hár og fylgdist vel með leikj-
um liðsins, einnig var hann harður
stuðningsmaður Manchester Unit-
ed. Það voru margar heimsóknirnar
okkar á milli og var gjarnan stílað
inn á að það væri leikur á sama tíma
svo Árni og Hjörtur gætu horft sam-
an. Við fórum einnig saman á marga
leiki og var það mjög gaman vegna
þess að Hjörtur hafði mikið vit á fót-
bolta enda hafði hann æft með yngri
flokkum ÍA í mörg ár. Hans aðal-
áhugamál var enski boltinn og fóru
hann og Særún nokkrar ferðir út á
leiki. Þá var jafnan mikið verslað og
þá aðallega United-búningar á alla
fjölskylduna og var Viktor Frans
ekki hár í loftinu þegar hann var
kominn í sín fyrstu United-föt.
Hjörtur setti á fót sitt eigið fyr-
irtæki sem hann byggði upp frá
grunni og stóð sig einstaklega vel í
því. Dáðumst við oft að honum fyrir
dugnaðinn og ósérhlífnina.
Hjörtur var mjög ríkur maður í
þeim skilningi að hann átti fimm
börn, þrjú fósturbörn og tvö barna-
börn. Hann var mjög barngóður og
átti auðvelt með að ná til krakkanna.
Þegar Viktor Frans fæddist fyrir
rúmum fjórum árum munum við vel
eftir hvað hann var stoltur og
ánægður. Einnig þegar Kristinn,
sonur hans, eignaðist sitt fyrsta barn
og hann varð afi.
Elsku Hjörtur, nú er komið að
kveðjustund. Það er svo sárt að
kveðja góðan vin en sem betur fer
eigum við fjölmargar góðar minning-
ar og munu þær lifa með okkur um
ókomin ár. Owen og Unnur munu
fylgjast vel með Viktori Frans um
ókomna tíð og halda minningu þinni
á lofti.
Elsku Særún, börn og aðrir að-
standendur, við sendum ykkur okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur og
vonum að guð gefi ykkur styrk á
þessum erfiðu tímum.
Þínir vinir,
Árni og Unnur.
Ég hitti Hjört Líndal í fyrsta sinn
árið 2000 þegar hann hóf störf hjá
kjúklingabúinu Móum sem þvotta-
maður. Við fyrstu kynni var hann
óframfærinn og sjálfsöryggið lítið,
en það átti fljótt eftir að breytast
okkar á milli.
Hjörtur var mikill vinnuþjarkur
og að sama skapi vandvirkur sem er
sjaldgæfur eiginleiki í sama manni.
Eftir að við höfðum stillt saman
strengi okkar varðandi vinnuna, ég
gerði kröfurnar og hann uppfyllti,
gat ég fullkomlega reitt mig á hann.
Hjörtur klikkaði ekki og alltaf var
hann reiðubúinn til að bjarga þegar
eitthvað óvænt kom upp á.
Hjörtur var einn hjartahreinasti
maður sem ég hef kynnst, ég varð
hans trúnaðarvinur með árunum.
Hann átti erfiða æsku, hann var
skemmdur og við, samfélagið,
brugðumst honum, hann fékk ekki
þá hjálp sem hann þurfti á þeim
tíma. Hann flúði í alkóhólið eins og
svo margir aðrir sem ekki ná að
vinna úr sársauka sínum. Á þeim
tíma sem hann var þurr vann hann
mikið, dugnaður er jú dyggð, en
hann vann allt of mikið og líkaminn
lét undan.
Þá komu verkjalyfin og líklega
voru það þau sem urðu upphafið að
endinum. Það hallaði meir og meir
undan, hann sá ekki birtuna og á
endanum gat hann ekki meira. Hvíl í
friði Hjörtur minn, þú átt skilið hvíld
og sálarró sem frá þér var tekin í
æsku.
Sigurborg Daðadóttir.
✝
Einlægar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR HELGA TRYGGVASONAR,
Kleppsvegi 4,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi og starfsfólki
hjúkrunardeildar 12G Landspítala fyrir frábæra
umönnun og einstakan velvilja.
Ágústa Erla Andrésdóttir,
Tryggvi Sigurðsson, Erla Halldórsdóttir,
Ágúst Ingi Sigurðsson, Eva Leplat Sigurðsson,
Andrés Þorsteinn Sigurðsson, Ása Svanhvít Jóhannesdóttir,
Ólafía Ósk Sigurðardóttir ( Lóa), Kári Hrafn Hrafnkelsson,
Sigurður Sigurðsson, Hildur Guðmundsdóttir,
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn,
HANS BÄÄRNHIELM,
Norrbyn,
Hörnefors,
Svíðþjóð,
andaðist mánudaginn 3. september.
Útförin fer fram í dag, 21. september.
Fyrir hönd aðstandenda,
Pétra Pétursdóttir Bäärnhielm.
✝
Hjartans þakkir sendum við þeim fjölmörgu sem
sýnt hafa okkur samúð og hlýhug vegna andláts
okkar ástkæra
HILMARS MÁS GÍSLASONAR.
Sérstakar þakkir fá vinir hans fyrir austan og
sr. Bjarni Karlsson.
Guð veri með ykkur öllum.
Gísli Sigurgeir Hafsteinsson, Heiður Sverrisdóttir,
Ragnheiður Hilmarsdóttir, Steinar Jónsson
og systkini hins látna.
✝
JÓN V. MARÍASSON
lést á Líknardeild Landspítala, Landakoti, föstudaginn 7. september.
Jarðaförin hefur farið fram.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Líknarsjóð Landakots,
Landakotssjóð.
Aðstandendur.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
HÓLMFRÍÐUR HELGADÓTTIR
frá Setbergi,
lést á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum miðvikudaginn
19. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Bragi Gunnlaugsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
KRISTÍN GUÐBRANDSDÓTTIR,
Svölutjörn 44,
Njarðvík,
áður Smáratún 29,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
miðvikudaginn 19. september.
Jarðaförin verður auglýst síðar.
Jóhann R. Benediktsson,
Benedikt Jóhannsson, María Hákonardóttir,
Kristbjörg Jóhannsdóttir, Jóhann Frímann Valgarðsson
og barnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Myndir | Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd er
ráðlegt að senda hana á mynda-
móttöku: pix@mbl.is og láta um-
sjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar