Morgunblaðið - 21.09.2007, Side 42
42 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Félag framsóknarkvenna í Reykjavík efnir til ferðar
á Þingvöll 27. sept. kl. 16.30. Farið verður með
rútu frá Umferðarmiðstöðinni. Leiðsögn og sam-
eiginl. kvöldverður í Valhöll. Karlar velkomnir. Uppl.
í símum: 891-5074 og 698-9247.
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30. Vinnustofan op-
in kl. 9-16.30. Verslunarferð í Bónus kl. 10. Bingó
kl. 14. Söngstund við píanóið kl. 15.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16 og opin smíðastofa kl.
9-16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn
handvinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, há-
degisverður, kertaskreytingarnámskeið, félagsvist
kl. 13.30 verðlaun og veitingar. Uppl. í síma 535-
2760.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Félagsfundur
verður laugardaginn 22. september kl. 14 í félags-
heimilinu Gullsmára 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.30. Málm-
og silfursmíði kl. 9.30. Yoga kl. 10.50. Hádegis-
verður kl. 11.40. Heitt á könnunni til kl. 16. Félags-
vist kl. 20.30.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður. Kl.
9.15 jóga. Kl. 10 ganga. Kl. 10.30 leikfimi. Kl. 11.40
hádegisverður. Kl. 14 bingó. Kl. 15.30 hringdansar.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleik-
fimi í Mýri kl. 12. Félagsvist í Garðabergi kl. 13, opið
til kl. 16.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Haustferð
Félags eldri borgara verður farin 26. sept. kl. 10.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaðaklúbbur og
umræður kl. 10. Leikfimi í salnum kl. 11. Opið hús,
spilað á spil kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30.
Laugarból, Íþr.hús Ármann/Þróttur Laugardal |
Leikfimi fyrir eldri borgara kl. 11.30.
Norðurbrún 1 | Myndlist kl. 9-12.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerð-
ir. Kl. 9.15-14.30 handavinna. Kl. 10.15-11.45
spænska – framh. Kl. 11.45-12.45 hádegisverður.
Kl. 13.30-14.30 sungið v/flygilinn. Kl. 14.30-15.45
Kaffiveitingar. Kl. 14.30-16 dansað í aðalsal.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, leir-
mótun kl. 9, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur
opnar alla daga, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl.
10, bingó kl. 13.30. Skráning á námskeið vetrarins
er hafin. Uppl. í síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Salurinn opinn frá kl. 13.
Kirkjustarf
Áskirkja | Hreyfing og bæn kl. 10.15 á Dalbraut 27
í umsjá djákna Áskirkju.
Breiðholtskirkja | Fjölskyldumorgunn kl. 10. Spjall
og kaffi.
Fríkirkjan Kefas | Unglingasamkoma kl. 20. Á
samkomunni verður tónlist, prédikun, umræður og
skemmtun. Hægt er að lesa meira um unglinga-
starfið á www.kefas.is
Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri borgara þriðju-
daga og föstudaga kl. 11-14. Leikfimi, veitingar og
spjall.
Vegurinn kirkja fyrir þig | Samkoma kl. 20. Bengt
Wedemalm prédikar, lofgjörð og fyrirbæn.
Miðasala í Garðabergi í dag og á mánudag kl. 13-
15.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur eru opnar
kl. 9-16.30. Bókband hefst föstud. 5. okt. kl. 10.
Prjónakaffi umsj. Ágústa Hjálmtýsd. á eftir er farið
í göngu um nágrennið. Frá hádegi er spilasalur op-
inn. Kl. 14.20 kóræfing. Uppl. um starfsemi og
þjónustu á staðnum, s. 575-7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Aðalheiður Þorsteins-
dóttir verður við píanóið kl. 14.15-15. Kaffiveitingar
kl. 15.
Furugerði 1, félagsstarf | Guðsþjónusta kl. 14.
Kaffiveitingar.
Hraunbær 105 | Kl. 9-12 kaffi, dagblöðin og spjall,
almenn handavinna. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 14
bingó. Kl. 14.45 bókabíllinn. Kl. 15 kaffi.
Hraunbær 105 | Kl. 9 baðþjónusta, almenn handa-
vinna, kl. 12 hádegismatur, kl. 14 bingó, kl. 14.45-
15.30 bókabíllinn, kl. 15 kaffi.
Hraunbær 105 | Kl. 9-14 baðþjónusta. Kl. 9-12 al-
menn handavinna. Kl. 12-12.30 hádegismatur. Kl.
14.45-15.30 bókabíllinn. Kl. 14 bingó. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Félagsmiðstöðin opnar kl. 9. Leikfimi í
Bjarkarhúsinu kl. 13.30. Bridge kl. 13. Boccia.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-12,
postulínsmálning. Jóga kl. 9-11, Björg F. Böðun fyr-
ir hádegi. Hádegisverður kl. 11.30.
Hæðargarður 31 | Allir alltaf velkomir! Kynnisferð
fyrir 50 ára+ í World Class kl. 9 árdegis. Frábært
tilboð næstu 3 mánuði í styrktarþjálfun; tímabund-
ið samvinnuverkefni. Haustdagskrá 2007 liggur
frammi. Síminn er 568-3132.
80ára afmæli. Páll Krist-insson Njarðvíkur-
braut 32, Innri-Njarðvík,
verður áttræður, laugardag-
inn 22. september. Af því til-
efni vonast hann til að sem
flestir ættingjar og vinir sjái
sér fært að samgleðjast hon-
um á þessum tímamótum og
þiggja veitingar í Safnaðar-
heimilinu Innri-Njarðvík milli
kl. 15 og 17.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesendum
sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánu-
dagsblað.
dagbók
Í dag er föstudagur 21. september, 264. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Daníel sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð til eilífðar, því hans er viskan og mátturinn." (Daníel 2, 20.)
Nú standa yfir svokallaðareTwinning-vikur, en eTw-inning er áætlun ESB umrafrænt skólasamstarf.
Umsjónaraðili eTwinning hér á landi
er Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins:
„Verkefninu eTwinning var hleypt af
stokkunum 2005 og er hluti af nýrri
menntaáætlun Evrópusambandsins og
snýr að leik-, grunn- og framhalds-
skólum,“ segir Guðmundur Ingi Mark-
ússon, verkefnisstjóri hjá Alþjóðaskrif-
stofunni. „Aðgangur að verkefninu er
einfaldur og óformlegur, en þátttak-
endur skrá sig á vefsíðu verkefnisins
þar sem þeir geta komist í samband við
kennara í fjölda Evrópulanda og með
einföldum hætti skipulagt samstarfs-
verkefni milli bekkja og skóla.“
Verkefninu er þannig ætlað að auð-
velda tengsl milli skóla í Evrópu, en
ekki síður að auka vægi upplýsinga-
tækni í námi: „Samskipti fara öll fram
rafrænt, og býður eTwinning upp á raf-
ræna kennslustofu til að halda utan um
framvindu verkefna, skiptast á skjöl-
um, myndum, hljóðskrám o.þ.h. Er
þannig hægt að nota eTwinning til
hverskonar verkefnastarfs og í öllum
kennslugreinum,“ segir Guðmundur.
Sérstak kynningarátak vegna
eTwinning-verkefnisins stendur yfir til
19. október: „Kennarar sem skrá sig í
eTwinning á þessu tímabili fara í lukku-
pott, og verða nöfn tveggja kennara
dregin út og þeir hreppa iPod nano af
nýjustu kynslóð í vinning,“ segir Guð-
mundur. „Af þeim sem stofna til verk-
efnis á tímabilinu verða tveir dregnir úr
potti og hljóta boð á árlega hátíð eTw-
inning sem haldin er í ársbyrjun. Þar
koma saman hundruð kennara víða að
úr Evrópu og taka þátt í spennandi fyr-
irlestradagskrá og málstofum.“
Um þessar mundir er einnig verið að
dreifa handbókinni Learning with eTw-
inning til allra skóla á landinu: „Allir
skólar fá bókina ókeypis, og einnig allir
kennarar sem skrá sig í eTwinning.
Fulltrúar landsskrifstofu eTwinning
munu svo heimsækja skóla sem þess
óska og kynna verkefnið sérstaklega,“
segir Guðmundur.
Finna má nánari upplýsingar á
www.etwinning.is, eða með tölvupósti á
gim@hi.is og í síma 525 5854.
Menntun | Verkefnið eTwinning tengir saman skóla um alla Evrópu
Tengsl og tækninotkun
Guðmundur Ingi
Markússon fæddist
í Reykjavík 1969.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá Fjöl-
brautaskólanum í
Breiðholti 1998,
BA-gráðu í trúar-
bragðafræði frá
Árósaháskóla 2002
og cand.mag.-gráðu frá sama skóla
2003. Guðmundur starfaði um langt
skeið hjá Bóksölu stúdenta en hefur
starfað sem verkefnisstjóri hjá Al-
þjóðaskrifstofu háskólastigsins síðast-
liðið ár. Guðmundur er kvæntur Ástu
Vigdísi Jónsdóttur bókmenntafræð-
ingi og eiga þau þrjú börn.
Tónlist
Gaukur á stöng | Silfur leikur.
Staðarhólskirkja | Söngur við ljóð Stefáns frá
Hvítadal verður á morgun laugardag kl. 17. Sig-
rún Steingrímsd. kórstjóri stjórnar sönghóp,
nemendur grunnskólans flytja ljóð. Ný útsetn.
Atla H. Sveinssonar við ljóð Stefáns.
Myndlist
DaLí gallerí Akureyri| Hlynur Hallsson opnar
sýninguna ÞETTA-DAS-THIS kl. 17-19. Sýningin
samanstendur af spreyi á vegg, myndbandi,
stórri ljósmynd með texta, litakúlum og minni
textamyndum sem gestir geta tekið með sér.
Gallerí Tukt | Davíð Eldur Baldursson opnar
einkasýningu á morgun kl. 16.-18. Sýningin ber
yfirskriftina „Ljós Safnarinn“ og gefur hún okk-
ur innsýn í afrakstur sumarins hjá Davíð Eldi.
Sýningin stendur fram til 6.10.
Saltfisksetur Íslands | Ljósmyndasýning Sig-
ursteins Baldurssonar stendur yfir. Sigursteinn
hefur sérhæft sig í 360° ljósmyndun, myndum
sem kallaðar eru Kúlumyndir, hann sýnir m.a.
kúlumyndir sem hann tók af norðurljósunum.
Skemmtanir
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveit Geirmundar
Valtýrssonar leikur fyrir dansi föstudag og laug-
ardag. Húsið opnar kl. 22 frítt inn til miðnættis.
Fréttir og tilkynningar
Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd |
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra,
flytur erindi um stefnu ríkisstjórnarinnar í mál-
efnum barna og fjölskyldna kl. 12-13 í Odda
stofu 101. Þetta er fyrsta málstofa vetrarins á
vegum RBF og Félagsráðgjafarskorar HÍ.
Ferð á Þingvöll | Félag framsóknarkvenna í
Reykjavík efnir til ferðar á Þingvöll 27. sept. kl.
16.30. Farið verður með rútu frá umferð-
armiðstöðinni. Leiðsögn og sameiginl. kvöld-
verður í Valhöll. Karlar velkomnir. Uppl. í símum:
891-5074 og 698-9247.
HÉR sést fyrirsæta klædd hönnun Stellu McCartney fyrir Adidas-íþróttamerkið á tískuviku í London í vik-
unni. Þessi fatnaður er í vor/sumar-línu Adidas fyrir sumarið 2008. Eflaust eiga ekki margar íslenskar stúlkur
eftir að klæðast þessu næsta sumar, nema þær skreppi kannski til Spánar.
Sumarfatnaður Stellu McCartney
Fyrir næsta sumar
Reuters
FRÉTTIR
STJÓRN Torfusamtakanna fagnar
þeim hugmyndum sem birtast í
verðlaunatillögu í hugmyndaleit
Reykjavíkurborgar, þar sem rík
áhersla er lögð á að varðveita og
endurbyggja merkar gamlar bygg-
ingar á svæðinu umhverfis Lækjar-
torg.
Einnig fagnar stjórnin þeirri
ákvörðun borgaryfirvalda að verð-
launatillagan verði grundvöllur nýs
deiliskipulags á svæðinu.
Að mati stjórnarinnar setur verð-
launatillagan mikilvægt fordæmi um
hvernig standa megi að uppbygg-
ingu í miðbæ Reykjavíkur í sátt við
umhverfið og með virðingu fyrir
sögulegum menningararfi.
Sú staðreynd að tillagan er af-
rakstur samvinnu færustu ráðgjafa
á sviði húsverndar og þeirrar teikni-
stofu íslenskrar sem mestrar virð-
ingar nýtur á alþjóðavettvangi fyrir
framsækna hönnun sýnir og sannar
að húsagerðararfur fyrri tíðar og
nútímaarkitektúr geta vel fléttast
saman í sannfærandi heild þegar
fagmennska og listrænn metnaður
ræður ferðinni í mótun og útfærslu
hugmynda.
Með samkeppni þessari hefur
Reykjavíkurborg stigið jákvætt
skref í átt til þess að lífga miðborg-
ina. Við óskum borgarstjórn til ham-
ingju með ánægjulega niðurstöðu.
Yfirlýsingar borgarstjóra og for-
manns skipulagsnefndar eru upp-
örvandi og vekja vonir um að hug-
myndum þessum verði fylgt eftir af
fullri einurð og metnaði.
Torfusamtökin
fagna hug-
myndaleit
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur
borist frá Hildi Björgu Hafstein, fyr-
ir hönd íbúa við Laugardal:
„Íbúar við Laugardal lýsa yfir
furðu og sorg yfir ákvörðun skipu-
lagsráðs um að leyfa byggingu
tveggja hæða íbúðarhúss á grænum
reit í Laugardal. Íbúar hafa mót-
mælt þessari fækkun grænna svæða
í Laugardal með faglegum og vel
ígrunduðum rökum. Okkur telst til
að undanfarin ár hafi opnum græn-
um svæðum í Laugardal fækkað um
10-15%.
Ranglega hefur verið haldið fram
að það hafi verið hávær minnihluti
sem andvígur væri þessari bygg-
ingu. Henni mótmæltu t.d. 70% íbúa
þeirra fjölbýlishúsa sem standa næst
fyrirhuguðu byggingarsvæði. Auk
fjölmargra íbúa allt í kringum Laug-
ardalinn sendu foreldrafélag og for-
eldraráð Langholtsskóla athuga-
semdir við þessa áætlun. Því miður
var ekki fallist á þau rök og því er
þétting byggðar í Laugardal stað-
reynd.
Í fréttum og umfjöllun um þessa
byggingu hefur verið reynt að stilla
málum þannig upp að þeir sem ekki
vilji þessa byggingu séu á móti geð-
fötluðum. Slíkur málatilbúningur,
sem lesa má m.a. í yfirlýsingu Bjark-
ar Vilhelmsdóttur vegna málsins, er
með öllu óþolandi því hvergi hefur
komið fram í mótmælum íbúa að ver-
ið sé að mótmæla starfsemi hússins.
Þvert á móti hefur ítrekað verið bent
á að bygging sambýlis og verndun
grænna svæði getur vel farið saman.
Nú þegar ákveðið hefur verið hvar
eigi að byggja sex íbúðir, af 80 íbúð-
um fyrir geðfatlaða, sem samkvæmt
formanni skipulagsráðs leggja
áherslu á að byggja á grænum svæð-
um, er forvitnilegt að vita hvar
næsta húsnæði eigi að vera og hvaða
græna svæði glatast næst. Í bókun
meirihlutans í skipulagsráði er sagt
að „mikilvægt sé að geðfatlaðir njóti
sambýlis við opin og græn svæði“.
Það hlýtur því að vera hagsmunamál
allra geðfatlaðra í borginni að opnu
grænu svæðin séu sem flest og ekki
verði gengið enn frekar á þau svæði í
Laugardal.“
Furða sig á
ákvörðun
skipulagsráðs
♦♦♦