Morgunblaðið - 21.09.2007, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ ER KOMINN TÍMI
FYRIR SÝNINGUNA OKKAR
Í DAG SÝNUM VIÐ
„KJÚKLINGADANSINN“!
EF ÞÚ SLEKKUR
LJÓSIN ÞÁ SKAL ÉG
SJÁ UM AÐ LOSA
OKKUR VIÐ ÞETTA
Æ,
NEI!
STUNDUM ER OF
MIKIÐ AF HINU GÓÐA
VIÐ ERUM STADDIR EFST Í
BREKKUNNI ÓGURLEGU!
HUNDRUÐIR MANNS HAFA
LÁTIÐ LÍFIÐ VIÐ AÐ RENNA
SÉR HÉR NIÐUR!
LEITIN AÐ BREKKUNNI SEM
FÆR ADRENALÍNIÐ Í OKKUR
TIL AÐ PUMPA HEFUR KOMIÐ
OKKUR Á ÞENNAN STAÐ!
ÞAÐ ER TÍMI TIL
AÐ FARA Á VIT
ÖRLAGANNA!
TILBÚINN?
NEI VIÐ ERUM Á
ÖRÞUNNRI
LÍNU MILLI LÍFS
OG DAUÐA! EIN
VITLAUS BEYGJA
OG ÞETTA
VERÐUR
OKKAR SÍÐASTI
DAGUR
ÞÚ ERT
EKKI AÐ
HJÁLPA
HVERNIG
FINNST ÞÉR AÐ
BÚA Í ÞESSUM
HLUTA
LANDSINS?
ÞAÐ ER
FÍNT... EN
MAÐUR
VERÐUR AÐ
VENJAST
EINU
HVAÐ
ER
ÞAÐ?
ÞAÐ ER
SVO MIKIÐ
ROK HÉRNA
ÞANNIG AÐ
ÞÚ ERT BÚINN
AÐ VERA
GÓÐUR VIÐ
BRÉFBERA
ALLA VIKUNA?
JÁ, ÞAÐ
VAR
EKKERT
MÁL!
ÉG ER VISS UM
AÐ ÉG GETI VERIÐ
GÓÐUR VIÐ
BRÉFBERA Í EINA
SKITNA VIKU
AF HVERJU
ER ÞÁ BÚIÐ AÐ
LÍMA ÞIG VIÐ
STAURINN?
MAMMA ER
EKKI JAFN
VISS OG ÉG
HVAÐ GERÐIR
ÞÚ Í DAG,
KALLI?
ÉG DRAP LOKSINS
VÉLMENNIÐ OG
KOMST Í BORÐ
NÚMER ÞRJÚ!
ÞAÐ VAR EKKERT SMÁ
SVALT! NÚNA ER ÉG MEÐ
ÞREFALT MEIRI ORKU, MIKLU
STÆRRI GEISLABYSSU OG
MÍNA EIGIN GEIMFLAUG!
ÉG ÁTTI VIÐ
EITTHVAÐ SEM
TENGIST EKKI
TÖLVULEIKJUM
Ó... EKKI
NEITT
ERU ÞESSAR BYGGINGAR
NÓGU HÁAR FYRIR ÞIG?
ÉG SKAL LÁTA
ÞIG VITA
JÁ,
ÞETTA ER
FÍNT
NÚNA ÞARF ÉG
BARA AÐ FARA
Í BÚNINGINN MINN
ÞETTA ER
TILVALINN
STAÐUR
dagbók|velvakandi
Staksteinar leiðréttir
Í STAKSTEINUM Morgunblaðinu
miðvikudaginn 19. september sl. er
fjallað um tiltekið atvik varðandi
vegabréfaeftirlit í Bandaríkjunum. Í
fjórðu málsgrein kemur fram algeng
en mjög hvimleið málvilla og hugs-
anavilla.
Þar segir: „Ljóst er að bandarísk
stjórnvöld hafa komið á viðamiklu
kerfi til að koma í veg fyrir að
óæskilegir einstaklingar komist ekki
inn í landið...“ (leturbr. mín).
Með öðrum orðum: Bandarísk
stjórnvöld vilja endilega að óæski-
legir einstaklingar komist inn í land-
ið, eftir þessari fullyrðingu að dæma.
Með því að koma í veg fyrir að
óæskilegir einstaklingar komist ekki
inn í landið, vilja þau stuðla að því að
einmitt hinir óæskilegu komist inn.
Rétt hefði verið að segja: „Ljóst er
að bandarísk stjórnvöld hafa komið
á viðamiklu kerfi til að koma í veg
fyrir að óæskilegir einstaklingar
komist inn í landið...“
Með góðri kveðju,
NN.
Sínöldrandi Víkverji
ÁGÆTU Víkverjar.
Yfirleitt eru aðfinnslur ykkar fag,
öfund og ólund ráða skrifum.
Man konuna úr Vesturbænum. Sú
kerling benti lymskulega á margt,
en umfram ykkur var hún einnig
með hugmyndir um úrbætur.
Ég er ánægður með að sumu fólki
lánist að auðgast og njóta sinna
ávaxta. Heill sé þeim sem eru heið-
arlegir. Les yfirleitt Víkverja lítið
því sjónarmiðin eru misvísandi.
Flest tómt væl útaf smáatriðum sem
kerlingar og karlar taka að sér þeg-
ar ekkert er annað að gera en að
klóra Víkverja.
En í dag, 19. september, spyr Vík-
verji. „Einhvern tímann hlýtur þessi
þróun að taka enda“. Þar sem Vík-
verji er meðaljón eins og ég og fleiri
þá vildi ég benda þessum öfundar-
kór á að aðfinnslur eru eitt og til-
lögur að úrbætum eru annað.
Morgunkaffið hjá mér er bragðlít-
ið án Moggans. Les forsíðu og bak-
síðu og fletti. Stansaði samt við Vík-
verja í dag sem var svartsýnin
uppmáluð. Hvernig væri að Víkverji
fylltist bjartsýni yfir hversu Íslend-
ingar hafa komið ár sinni vel fyrir
borð og komist á kortið? Hvernig
væri að Víkverji færði rök fyrir sín-
um aðfinnslum og gæfi fólki von um
betri heim?
Með mestu vinsemd og virðingu.
Helgi Steingrímsson.
Fyrirspurn til ritstjórnar
Morgunblaðsins
EINU sinni var fastur liður í blaðinu
þáttur sem hét „Sá næstbesti“.
Þetta voru brandarar með góðum
húmor. Gaman væri ef þið gætuð
sett þennan þátt aftur í blaðið? Það
mundi bæta besta blaðið.
Óli Þór.
Svartur högni í óskilum
SVARTUR
högni, u.þ.b. 15
ára eða eldri,
fannst við
Njörvasund í
Reykjavík. Upp-
lýsingar veitir
Kattholt í síma
567-2909.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
EINHVERJUM íbúanum í Þingholtunum hlýtur að hafa verið mikið niðri
fyrir þegar hann lagði þetta myndarlega NEI á garðbekk við Bergstaða-
stræti. Kötturinn lét sér hins vegar fátt um finnast.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Kötturinn fer sínar eigin leiðir…
FRÉTTIR
SAMTÖK flugumferðarstjóra á
Norðurlöndum héldu árlegan fund
sinn í Reykjavík dagana 14. - 16.
september sl.
Á fundinum komu fram áhyggjur
flugumferðarstjóra vegna þess að
rekstraraðilar flugumferðarþjón-
ustu á Norðurlöndum mæta skorti á
flugumferðarstjórum í auknum
mæli með yfirvinnu.
„Mikil yfirvinna með tilheyrandi
álagi og þreytu stefna í hættu flug-
öryggi og heilsu flugumferðar-
stjóra. Fundarmenn benda á að í
stefnu Alþjóðasamtaka flugumferð-
arstjóra (IFATCA) er kveðið á um
að alla jafna skuli yfirvinnu haldið í
lágmarki. Þegar gripið sé til yfir-
vinnu beri ávallt að hafa í huga nei-
kvæð áhrif sem óhófleg vinna geti
haft á frammistöðu starfsmanna. Þá
þurfi rétt yfirvöld að setja reglur
um vinnutíma flugumferðarstjóra.
Með hliðsjón af framansögðu hvetja
Samtök flugumferðarstjóra á Norð-
urlöndum rekstraraðila í flugum-
ferðarþjónustu til að skipuleggja
starfsemi sína og mannauðsstjórn-
un í samræmi við aukna flugumferð
og með það að markmiði að útrýma
þörf fyrir yfirvinnu í stjórnun flug-
umferðar,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Yfirvinna stefnir
flugöryggi í hættu
Baldur er í ráðuneyti
fjármála
MEÐ viðtali við Sverri Hauk Gunn-
laugsson, sendiherra í Bretlandi, í
Viðskiptablaði Morgunblaðsins í
gær birtist mynd af Sverri og
nokkrum gestum í móttöku sem
sendiráð Íslands í Bretlandi hélt í
Dublin í síðustu viku. Þar er Baldur
Guðlaugsson sagður ráðuneytis-
stjóri forsætisráðuneytisins en hið
rétta er, að sjálfsögðu, að hann er
ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu.
LEIÐRÉTT
♦♦♦